Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.1986, Síða 27
DV. MÁNUDAGUR 23. JÚNÍ 1986.
27
íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir
Keflvíkingar veltu
KR úr efsta sætinu
- sigruðu, 24, í Keflavík á föstudag
Keflvíkingar gerðu vonir KR-inga
um að halda forustunni í 1. deild að
engu með því að sigra þá syðra, með
tveimur mörkum gegn einu, í fjörug-
um leik þar sem hraði og kraftur réð
ferðinni. KR-ingar byrjuðu betur og
skoruðu í fyrri hálfleik. Heimamenn
undu því ekki, jöfnuðu og bættu um
betur í þeim seinni, skoruðu tvö
mörk sem gáfu þeim þrjú stig og
fimmta sætið. ÍBK er nú með 12 stig,
sömu tölu og KR, en óhagstæðari
markatölu. Spennan helst í fyrstu
deildinni því aðeins tvö stig skilja
að efsta og fimmta liðið. Lítið má því
út af bera til að röðin breytist svo
það er eins gott fyrir liðin að halda
vel á spöðunum.
KR-ingar léku undan kaldanum
fyrri hálfleikinn og sóttu öllu meira
þótt uppskeran væri rýr - eitt mark.
Vörn IBK var föst fyrir og erfitt að
finna smugur í þeim múr og svo var
við Þorstein Bjarnason að eiga þegar
inn í vítateig var komið og hann er
ekkert lamb að leika sér við þegar
knötturinn er annars vegar. Samt
sem áður tókst hinum snögga fram-
herja KR-inga, Birni Rafnssyni, að
rjúfa vamargarð ÍBK og senda
knöttinn fram hjá Þorsteini Bjama-
syni og í ÍBK-markið á 34. mín., 0-1.
Margir álitu Björn vera rangstæðan
en svo var ekki. Hann smaug inn
fyrir varnarlínuna á réttu andartaki
- það var rangstöðuaðferð Keflvík-
inga sem brást en ekki línudómarinn.
Keflvíkingar sóttu fast
Keflvíkingar byrjuðu seinni hálf-
leikinn eins og hungruð ljón í ætis-
leit. Þeir sóttu mjög fast að marki
KR-inga en Loftur Ólafsson og
Hannes Jóhannsson voru fastir fyrir
ásamt Stefáni Jóhannssyni mark-
verði sem bæði varði vel og greip vel
inn í leikinn. Litlu munaði að Skúli
Rósantsson jafnaði í upphafi seinni
hálfleiks en þrumuskot hans geigaði.
Hins vegar fór knötturinn rétta boð-
leið í markið á 57. mín., af fæti Óla
Þórs Magnússonar, eftir að Stefán
hafði tvívarið hörkuskot af stuttu
færi frá Ingvari Guðmundssyni en
3. deild - 3. deild
hélt ekki knettinum sem að lokum
féll á fætur Óla Þórs, með fyrrgreind-
um afleiðingum, 1-1.
Eins og oft brennur við þá slaka
leikmenn á við jöfnunarmörk og það
henti ÍBK að þessu sinni. KR-ingar
tóku sig á og ætluðu sér öll stigin.
Ekki munaði miklu að þeim tækist
það ætlunarverk. Hálfdán Örlygsson
átti hörkuskot sem Þorsteinn varði,
eins og honum er lagið, og Júlíus
Þorfinnsson var ekki á skotskónum
þegar um 10 mín. voru til loka.
Knötturinn sveif rétt yfir þverslána
úr hörkuskoti hans af um 15 metra
færi.
Eftir mikið miðjuhnoð, þar sem
menn voru farnir að sætta sig við
bróðurlega skiptingu stiga - að því
er sýndist - gerist það nokkuð óvænt
að heimamenn senda knöttinn inn í
vítateig KR-inga. Stefán markvörður
hleypur fram í teiginn í kappi við
Óla Þór, verður aðeins fyrri til að
slá knöttinn en Óli að skalla. Magn-
ús Jónatansson dómari stöðvar
leikinn. Vítaspyrna, því Stefán hafði
víst tekið um höfuð Óla í leiðinni.
Slíkt mun vera refsivert í knatt-
spyrnu. Einar Ásbjörn var svo ekki
í neinum erfiðleikum með að senda
knöttinn í KR-markið, 2-1.
Þrátt fyrir fjarveru Sigurðar Björg-
vinssonar, sem var í leikbanni, var
sami kraftur í Keflvíkingum og verið
hefur í undanförnum sigurleikjum,
sem nú eru orðnir fjórir í röð. Sam-
virkni liðsins er alltaf að aukast.
Gunnar Oddsson sýnir miklar fram-
farir og er að verða einn besti maður
liðsins, hefur mikla yfirferð og gott
auga fyrir samleik. Annars var eng-
inn veikur hlekkur hjá IBK, allir
sýndu sínar betri hliðar.
Sömu orðin má nota um KR-inga.
Harðfrískir piltar en sóknarleikur
þeirra var ekki upp á marga fiska
þegar að marki dró. í þennan leik
vantaði þeirra snjallasta sóknar-
mann, Sæbjörn Guðmundsson, sem
var meiddur og það hafði áreiðanlega
sitt að segja.
Maður leiksins: Óli Þór Magnússon,
ÍBK.
Lið ÍBK: Þorsteinn Bjamason,
Rúnar Georgsson, Valþór Sigþórs-
son, Einar Ásbjörn Ólafsson, Gísli
Grétarsson, Gunnar Oddsson, Sigur-
jón Sveinsson, Skúli Rósantsson,
Freyr Sverrisson, Ingvar Guðmunds-
son, Óli Þór Magnússon.
Lið KR: Stefán Jóhannsson, Hálfdán
Örlygsson, Willum Þór Þórsson (gult
spjald í f.h.), Gunnar Gíslason,
Hannes Jóhannsson, Ágúst Már
Jónsson, Ásbjöm Björnsson, Björn
Rafhsson, Júlíus Þorfinnsson, Jó-
steinn Einarsson, Loftur Ólafsson.
Áhorfendur 711.
emm
DV-lið 7. umferðar
Gunnar Straumland
(FH)
Ingvar Guðmundsson (2) Ormar Orlygsson
(Val) (Fram)
Sigurður Lárusson Guðni Bergsson (4)
(ÍA) (Val)
Ólafur Þórðarson(3) Pétur Ormslev (2) Valur Valsson (2)
(ÍA) (Fram) )Val)
Halldór Áskelsson (3) Óli Þór Magnússon Guðmundur Torfason (4)
(Þór) (ÍBK) (Fram)
Þeir Guðmundur Torfason og Guðni Bergsson hafa oftast allra verið í
DV-liðinu. Hvor þeirra hefur verið valinn í 4 skipti.
Óli Þór Magnússon var KR-ingum erfiður, skoraði fyrra mark Keflvíkinga
og fiskaði síðan víti.
ÁRMÚLA 36 REYKJAVÍK,
SlMI 82166 OG 83830.
FÓTBOLTAR 0G
FÓTBOLTASKÓR
QUATRO
GRASKÓR
Jafntefli
hjá efstu
liðunum
- í B-riðli 3. deildarinnar
Leiftur frá Ólafsfirði og Tindastóll
gerðu jafntefli á Ólafsfirði, bæði lið
gerðu 1 mark. Óskar Ingimundarson
skoraði fyrir Leiftur en Eyjólfur
Sverrisson fyrir Sauðkrækinga.
Þróttur frá Neskaupstað hefði get-
að skotist upp í efsta sæti riðilsins
með sigri en þeir náðu aðeins jafn-
telfi við Reyni frá Árskógsströnd,
2-2. Svanleifur Þorsteinsson og Öm
Viðar Arnarson skoruðu fyrir Reyni
en Marteinn Guðgeirsson og Birgir
Ágústsson svöruðu fyrir aðkomu-
mennina. Valur, Reyðarfirði, og
Magni gerðu jafntefli, 0-0. Á Eski-
firði sigruðu heimamenn Leikni,
Fáskrúðsfirði, örugglega með 2
mörkum gegn engu. Mörk Austra
gerðu þeir Unnar Eyþórsson og
Kristján Svavarsson.
Staðan í B-riðli
Leiftur 5 3 2 0 10- 3 11
Þróttur, N. 5 2 3 0 10- 4 9
Tindastóll 4 2 2 0 0- 3 8
Magni 4 2 1 1 5- 4 7
Reynir, Á. 5 1 2 2 7- 9 5
Austri, E. 4 1 1 2 4- 5 4
Valur, Rf. 4 1 1 2 2- 5 4
Leiknir, F. 5 0 0 5 1-12 0
-JFJ.
NÚ SKALT ÞÚ GERA EITTHVAÐ SKEMMTILEGT
- við sjáum um uppvaskið
BW 200K D 14 D 48 D 53
h: 82 h: 82 h:156,5 h: 172
b: 59,5 b: 59,6 b: 64,5 b:160
d: 60 sm d: 60 sm d: 68 sm d: 75 sm
Uppþvottavél í hæsta
gæðaflokki, fyrir heimili,
12-14 manns.
Verð kr. 30.820,-
Uppþvottavél fyrir veit-
ingastaði, mötuneyti og
félagsheimili, allt að 26
bakkar/klst.
Verð kr. 149.900,-
Uppþvottavél fyrir veit-
ingastaði og mötuneyti,
allt að 40 þakkar/klst.
Verð kr. 326.000,-
Uppþvottavél fyrir veit-
ingastaði og mötuneyti,
allt að 115 bakkar/klst.
Verð kr. 820.000,-
VIÐ HÖFUM HEILDARLAUSN Á SÉRHVERJU UPPÞVOTTAVANDAMÁLI.
Electrolux , _ . . j •
Leiöandifynrtœki
Vörumarkaðurinn M.
| Ármúla 1 a, s: 686117 og 686114