Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.1986, Qupperneq 28
28
DV. MÁNUDAGUR 23. JÚNÍ 1986.
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
„Þessi tvö lið hefðu átt
að leika úrslítaleik HM“
- sagði Tele Santana, þjátfari Brasilíu, eftir sigur Frakka
„Að mínum dómi hefði leikurinn í
dag átt að vera úrslitaleikurinn í
heimsmeistarakeppninni. Reyndar
hefðu þessi tvö lið einnig átt að leika
til úrslita í síðustu heimsmeistara-
keppni," sagði Tele Santana, þjálfari
Brasilíu, eftir hinn stórkostlega leik
Frakka og Brasilíumanna á laugar-
daginn. Það er mál manna að þetta
hafi verið einhver mest spennandi og
best leikni knattspymuleikur sem sést
hefur í heimsmeistarakeppni og það
er hægt að taka undir með Santana
þegar hann sagði að þessi tvö lið hefðu
átt að mætast í úrslitaleiknum. Það
var hrein og klár synd að annað liðið
skyldi þurfa að tapa leiknum.
Santana var að vonum vonsvikinn
eftir leikinn og taldi að þetta væri
endirinn á þjálfaraferli sínum. „Ég
mun nú halda til Brasilíu og hætti lík-
lega öllum afskiptum af knattspymu,"
sagði Santana sem hefur nú aðra
heimsmeistarakeppnina í röð komið
með frábært lið til leiks án þess að
ná að vinna til neinna verðlauna.
„Frakkar verða heimsmeistar-
ar“
„Frakkar hafa mjög sterku liði á að
skipa en miðjan hjá þeim er alveg frá-
bær. Mér fannst okkur takast ágæt-
lega að gera sóknarleik Frakka
skaðlausan og við náðum að stjóma
hraðanum í leiknum. Bæði liðin fengu
góð markatækifæri en ég tel að
markatækifæri Brasilíu hafi verið
betri og við áttum að vera búnir að
gera út um leikinn fyrir framleng-
ingu,“ sagði Santana sem taldi franska
liðið mjög gott. Hann bætti því við að
nú hefðu Frakkar góða möguleika á
því að verða heimsmeistarar í fyrsta
skipti.
„Svona er knattspyrnan"
„Við hverju er hægt að búast þegar
Zico og Sókrates, tvær af bestu víta-
skyttum Brasilíu og leikmenn með
ótrúlega reynslu, bregðast í sama
leiknum. Þeir misnotuðu tækifæri sín
og það sama gerði meira að segja Plat-
ini. Svona er nú einu sinni knattspym-
an,“ sagði Santana.
Frakkar mæta nú V-Þjóðverjum í
undanúrslitum alveg eins og í síðustu
heimsmeistarakeppni. Velta menn nú
þvi fyrir sér hvort sagan endurtaki sig
og V-Þjóðveijar seiglist i úrslitaleik-
inn á kostnað hins frábæra franska
liðs.
Bats hetja Frakka
Eins og áður sagði verður þessi leik-
ur án efa lengi í minnum hafður.
Bæði liðin léku stórkostlega og ótrú-
leg spenna var í leiknum.
Það vom Brasilíumenn sem urðu
fyrri til að skora þegar Careca sendi
þrumufleyg í markið eftir frábæra
sókn hjá Brasilíumönnum. Markið
kom á 17. mínútu. Frakkar hertu sókn
sína eftir markið og uppskám jöfnun-
armark á 41. mínútu. Var þar sjálfur
Michel Platini að verki eftir að knött-
urinn hafði borist til hans eftir fyrir-
gjöf Rocheteau.
Ekkert mark vár skorað i seinni
hálfleik þrátt fyrir fjölmörg tækifæri.
Besta tækifærið kom á 75. mínútu. Þá
fékk BrancO frábæra sendingu frá Zico
inn í vítateig og var felldur þar af
Joel Bats markverði Frakka. Það var
Zico sem tók spymuna en Bats gerði
sér lítið fyrir og varði slakt skot Zico.
Ekkert mark var skorað í framleng-
ingunni sem íslenskir sjónvarpsáhorf-
endur misstu að mestu af.
I vitaspymukeppninni varði síðan
Bats spymu Sókratesar en Julio Cesar
skaut í stöng. Þetta dugði Frökkum
til sigurs þó að Piatini misnotaði víti
sitt á 31. afmælisdegi sínum. Þeir Stop-
yra, Amoros, Bellone og Femandez
skomðu fyrir Frakka en þeir Zico,
Alemao og Branco skomðu fyrir Bras-
ilíu.
Áhorfendur: 65.777
Liðin:
Brasilía: Carlos, Josimar, Edinho, Ju-
lio Cesar, Branco, Elzo, Sókrates,
Junior (Silas á 91. mín.), Alemao,
Muller (Zico á 70. min.) og Careca.
Frakkland: Joel Bats, Manuel Amo-
ros, Maxime Bossis, Patrick Battiston,
Thierry Tusseau, Luis Femandez,
Michel Platini, Alain Giresse (Jean
Marc Ferreri á 84. mín.), Jean Tigana,
Yannick Stopyra, Dominique Roc-
heteau (Bmno Bellone á 100. mín.).
Dómari: Ioan Igna frá Rúmeníu.
-SMJ
• Það var Luis Femandez sem tryggði Frökkum sigurinn á Brasilímönnum
þegar hann skoraði örugglega úr síðustu spyrnu vítakeppninnar. Fernandez,
sem er 26 ára að aldri og leikur með frönsku meisturunum PSG, trylltist, sem
von er, a( fögnuði eftir markið. Símamynd/Reuter
4. deild - 4. deild - 4. deild - 4. deild - 4. deild
Afturelding óstöðvandi
Lið Aftureldingar frá Mostellssveit
hefur unnið alla leiki sína til þessa í
B-riðli 4. deildar og um helgina sigraði
það helstu keppinauta sína, Hvergerð-
inga. Einnig sýna Bolvíkingar og
Þingeyingar mikla yfirburði í sínum
riðlum, a.m.k. hingað til.
A-riðill:
Haukar-Augnablik frestað
Gmndarfj.-Skotfél. Rvk. 1-1
Þór, Þ.-Snæfell 2-2
Mörk Þórs skoruðu Jón Hreiðarsson
og Ármann Sigurðsson en Pétur
Rafiisson og Bárður Eyþórsson fyrir
Snæfell.
B-riðill:
Víkingur, Ól.-Stokkseyri 1-1
Afturelding-Hveragerði 3-0
C-riðill:
Hafhir-Leiknir, 4-1, Guðmundur F.
Jónasson, Ólafur Sólmundsson, Þórð-
ur Þorbjömsson og eitt sjálfsmark
tryggðu sigur heimamanna en Jóhann
Viðarsson lagaði stöðuna fyrir
Reykjavíkurfélagið.
Grótta-Árvakur, 1-3. Mörk Seltim-
inga gerði Valur Sveinbjömsson, en
þeir Bjöm Pétursson og Friðrik Þor-
bjömsson tryggðu Árvakri toppsætið.
Snæfell
Skotfél.
Haukar
Augnablik
Þór, Þorl.
Grundarfj.
5 3 1 1 10- 7 10
5 2 1 2 10- 9 7 Árvakur
3 2 0 1 6- 3 6 Leiknir, R.
3 2 0 1 10- 8 6 Grótta
5 1 1 3 6-12 4 Hafriir
3 0 1 2 3- 6 1 Eyfellingur
4 3 1 0 16- 6 10
4 2 1 1 11- 8 7
4 2 0 2 9- 5 6
4 2 0 2 10- 7 6
4 0 0 4 3-22 0
E-riðiU:
Kormákur-Höfðstrendingur, 2-1.
Mörk Kormáks gerði Rúnar Guð-
mundsson, 2, en Hjalti Þórðarson
svaraði fyrir gestina.
Svarfdælir-Vaskur 0-2. Þeir Valþór
Brynjarsson og Valdimar Júlíusson
tryggðu stöðu Vasks á toppnum.
Vaskur
Hvöt
Svarfdælir
Kormákur
Höfðstrendingur
4 3 1 0 7-1 10
3 2 1 0 2-0 7
4 1 1 2 34 4
3 1 0 2 4-8 3
4 0 1 4 2-5 1
HSÞ, B 4 4 0 0 21- 4 12
Tjömes 4 3 0 1 15- 2 9
Núpar 3 1 0 2 8- 8 3
Austri, R. 2 0 0 2 0-21 0
Æskan 3 0 0 3 3-12 0
G-riðiU:
Höttur-Neisti, 5-0. Mörk Seyðfirðinga
gerðu þeir Magnús Steinþórsson, 2,
Jóhann Sigurðsson, 2, og Grétar Eg-
gertsson.
Súlan-Huginn, 2-1. Mörk Súlunnar
gerðu þeir Ævar Ármannsson og Jón-
as Ólafeson en Birgir Guðmundsson
svaraði fyrir aðkomumenn.
Sindri-Hrafrikell, 7-1.
F-riðUl: Höttur
Austri, R.-Æskan frestað Súlan
HSÞ, B-Tjömes 2-1 Hrafhkell
Sindri
Það var Hörður Benónýsson sem Huginn
gerði bæði mörk Þingeyinga í upp- Neisti
gjöri toppliðanna.
4 3 0 1 11- 1 9
4 2 11 4-5 7
4 2 11 4-8 7
4 2 0 2 10- 6 6
4 1 0 3 6- 8 3
4 0 2 2 5-11 2
JFJ
„Sýnir sfyrk
franskrar
knattspymu"
- sagði Henri Michel
„Þetta er stór stund fyrir
franska knattspymu. Við vorum
heppnir en til að vinna leik þarf
alltaf á einhverri heppni að
halda,“ sagði Henri Michel,
þjálfari Frakka, eftir leikinn á
móti Brasilíu. Michel var að von-
um ánægður eftir leikinn en
játaði að þetta hefði verið erfið-
asti leikur Frakka síðan hann
tók við franska landsliðinu.
„Við erum nú komnir í irndan-
úrslit í annað skiptið í röð sem
sýnir styrkleika franskrar knatt-
spymu. Brasilíumenn eru frá-
bærir knattspymumenn og að
sigra þá hér í þeirra helsta vígi,
Guadalajara, er hreint ótrúlegt
afrek,“ sagði Michel sem vildi
gefa fyrrverandi þjálfara Frakka,
Michel Hidalgo, hluta af heiðrin-
um. „Ég vil óska Michel Hidalgo
til hamingju en ég tel að hann
eigi stóran hlut í þessum sigri.“
Hidalgo var þjálfari Frakka í síð-
ustu heimsmeistarakeppni og
leiddi þá síðan til sigurs í Ev-
rópukeppninni 1984.
„Réttlætinu var fullnægt"
„Ég tel að þar hafi réttlætinu
verið fullnægt. Ef höfð em í huga
öll þau skipti sem brotið var á
leikmönnum mínum á lokamín-
útunum og ekkert dæmt þá má
segja að mark Bellone hafi verið
hæfileg sárabót,“ sagði Michel.
Mark Bruno Bellone í víta-
spymukeppninni, þegar boltinn
hrökk úr stönginni í bakið á
brasilíska markverðinum og
þaðan inn í markið, hefur valdið
miklu deilum.
-SMJ
I
Sovétríkin
sigruðu A-
Þýskaiand
Sovétnkin sigmðu
Austur-Þýskaland í landskeppni
í frjálsum íþróttum i Tallin um
helgina, sigmðu í karlaflokki
með 122 stigum gegn 90 og í
kvennaflokki með 88 stigum
gegn 78. Snjall árangur náðist í
keppninni og tvö heimsmet vom
sett. Frá þeim er sagt á bls. 23.
Heike Dreschler, sem setti
heimsmetið í langstökki kvenna,
sýndi hve íjölhæf frjálsíþrótta-
kona hún er þegar hún sigraði í
200 m hlaupi á 22,13 sekúndum,
langt á undan Silke Gladisch,
báðar A-Þýskalandi, sem hljóp á
22,45 sek. Gífurleg keppni var í |
800 m hlaupi kvenna. Sigmn ■
Wodars, A-Þýskalandi, sigraði á I
snjöllum tíma, 1:57,98 mín. Ly- I
ubova Gurina, Sovét, varð önnur ■
á 1:58,67 mín. og Katrin Wuehn, I
A-Þýskalandi, þriðja á 1:58,70 J
mín. Tatyana Samolenko, Sovét, I
sigraði í 3000 m hlaupi á mjög .
snjöllum tíma, 8:36,00 mín. 1 200 |
m hlaupi karla sigraði Andrei ■
Fyodorov, Sovét, á 20,89 sek. I
Stefan Bringmann, A-Þýska- I
landi, annar á 20,97 sek. Hans- •
Joakim Mogalle, A-Þýskalandi, I
sigraði í 8oo m á 1:47,38 mín. og J
í 400 m grindahlaupi sigraði I
Alexander Vasilev, Sovét, á 48,76 _
sek.
hsím j
I