Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.1986, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.1986, Blaðsíða 30
30 DV. MÁNUDAGUR 23. JÚNÍ 1986. DV-myndir EJ. Sigurvegarar i fjórum gangtegundum fullorðinna. Helgi Guðmundsson mótsstjóri afhendir sigurvegurum í töltkeppni unglinga verölaun. Jón Gisli Þorkelsson á Stíganda, sigurvegari í töltkeppni fullorðinna. Hann keppti á Limbó og sigraði í töitkeppninni, fjórum gangtegund- um og íslenskri tvíkeppni. Auk þess varð hann stigahæstur knapa. í fj ór- um gangtegundum varð í öðru sæti Gísli G. Gylfason (Fáki) á Skáta, Katrín Sigurðardóttir (Geysi) í þriðja sæti á Tvisti, Birgir Gunnars- son (Sleipni) fjórði á Hremsu og Halldóra Eiríksdóttir (Sörla) fimmta á Létti. í töltkeppninni varð í öðru sæti Katrín Sigurðardóttir (Geysi) á Tvisti, Þorvaldur A. Þorvaldsson (Fáki) í þriðja sæti á Flugu, Halld- óra Eiríksdóttir (Sörla) fjórða á Létti og Hjörný Snorradóttir (Fáki) fimmta á Ópal. í flokki fullorðinna var Sigurbjöm Bárðarson sigursæll að vanda. Hirti fem af fimm gullverðlaunum, sigraði í skeiðtvíkeppni og var auk þess a Flengreið Suðurlandsmót i hestaíþróttum fór ffam á Flúðum fyrir skömmu. Það em hestamannafélögin Geysir í Rangárvallasýslu, Sleipnir á Selfossi og nágrenni og Smári á Skeiðum og í Hreppum sem standa fyrir þessu móti sem er opið öllum hestamönn- um. Mótið er haldið til skiptis hjá hestamannafélögunum og var haldið á Flúðum að þessu sinni. Þátttaka var alveg bærileg, þrátt fyrir mikla úrkomu á laugardeginum. Helstu úrslit urðu þessi: í unglingaflokki varð Hörður Ár- mann Harðarson (Fáki) tvöfaldur sigurvegari á Háfi í tölti og fjórum gangtegundum. Borghildur Ágústs- dóttir (Smára) varð í öðm sæti á Krumma í sömu greinum. Heiðar Eiríksson (Andvara) var í þriðja sæti á Von í sömu greipum. I tölt- keppninni varð í fjórða sæti Erla Jóna Ellertsdóttir (Sörla) á Skugga og í fimmta sæti Ragna Gunnars- dóttir (Sleipni) á Tjörva.í fjórum gangtegundum varð í fjórða sæti Ragna Gunnarsdóttir (Sleipni) á Tjörva og í fimmta sæti Elín Ósk Þórisdóttir (Smára) á Stjarna. Hörð- ur Ármann Haraldsson hiaut alls fem verðlaun því hann sigraði í ís- lenskri tvíkeppni og varð auk þess stigahæstur knapa. Hákon Pétursson (Sörla) fetaði í fótspor Harðar í bamaflokki því hann fékk einnig fem verðlaun. Fluðum stigahæstur knapa. Sex gullverðlaun alls. Úrslit urðu annars þessi: Sigur- bjöm Bárðarson (Fáki) sigraði í fjómm gangtegundum á Gára, Jón Gísli Þorkelsson (Gusti) varð annar á Stíganda, Gísli Gíslason (Faxa) þriðji á Sóla, George Kristjánsson (Gusti) fjórði á Herði og Atli Guð- mundsson (Sörla) fimmti á Skag- fjörð. Sigurbjöm Bárðarson (Fáki) sigraði í fimm gangtegundum á Kalsa. Hinrik Bragason (Fáki) var annar á Kraka, Orri Snorrason (Fáki) þriðji á Fjalari, Atli Guð- mundsson (Sörla) fjórði á Stíganda og Hermann Ingason (Geysi) fimmti á Djassi.Jón Gísli Þorkelsson (Gusti) sigraði í töltkeppninni á Stíganda. Hann stóð sig vel, strákurinn, og sigraði einnig í íslenskri tvikeppni. Georg Kristjánsson (Gusti) var í öðm sæti á Herði, Orri Snorrason (Fáki) var í þriðja sæti á Kórali, Sig- urbjöm Bárðarson fjórði á Gára og Gísli Gíslason (Faxa) fimmti á Sóla. Sigurbjöm Bárðarson (Fáki) sigraði að sjálfsögðu í hlýðnikeppninni á Gára. Jón Gísli Þorkelsson (Gusti) varð annar á Stíganda, Steingrímur Viktorsson (Geysi) var þriðji á Grána og Jökull Helgason (Smára) fjórði á Stássu. Sigurbjöm Bárðar- son (Fáki) sigraði í gæðingaskeiði á Kalsa, Guðni Jónsson (Fáki) varð annar á Þyrli og Hermann Ingason þriðji á Djassi. Fær drottningin Skjónaling? Ásgeir Gunnlaugsson, bóndi á Syðra-Sýrlæk, sýnir hve auðvelt þaö er að iðka knattspymu i túninu heima. DV-mynd ej. „Wona að ekki komi fjósalykt af Platini4 Nú hefur sannast hið fomkveðna spakmæh að grasið sé grænna hin- um megin við lækinn. Komið hefur í ljós að grasið á Syðra-Sýrlæk í Villingarholtshreppi í Flóa virðist grænna og betra en annars staðai-. Iþróttafélagið Fylkir, Garðabæjar- kaupstaður og Reykjavíkurborg hafa keypt þökur af vissri túnspildu af bóndanum Ásgeiri Gunnlaugssyni til að nota á grasvelli sína. „Þeir báðu um þetta,“ segir Ás- geir. Ég sá mann á vappi hér á túnunum í vor og reyndist vera þar á ferð Ámi Bragason jurtaerfða- fræðingur.Hann var að leita að heppilegum þökum. Síðar kom hann með Bjama Helgason jarðvegsfræð- ing og þeim leist vel á túnið. Þetta er túnvingull.rennislétt tún og sést varla snarrót. „Þeir geta fengið 2 hektara," segir Ásgeir. „Nú er verið að taka um 2000 fer- metra á Laugardalsvöllinn en hitt verður tekið síðar í sumar, sennilega ekki fyrr en ég er búinn að slá. Eg veit að Frakkar eiga að spila við íslendinga í haust. Eg vona bara að ekki komi fjósalykt á Platini því ég er nýbúinn að bera haug á túnið,“ segir Ásgeir að lokum. Olíklegt er þó að Platini muni reynast erfitt að spila á túnþökum bóndans á Syðra-Sýrlæk. Þær verða orðnar grónar í Laugardalnum og Platini ef til vill orðinn heimsmeist- ari í haust. flest þessara 60 hrossa sem hann er að kaupa nú. Það er langt síðan að yfir eitt hundrað hross hafa verið seld til sama aðila. Að sögn Gunnars Bjamasonar ráðunautar hefur slíkt ekki gerst síðan árið 1969 er sænsku hestakaupmennimir Berl Gutenberg og Knut Nilson fluttu út í einu lagi 365 hross. Verð á þessum hrossum er frá 30. 000 til 50.000 kr. og meðalverð um 40.000 krónur. Flestir þessara hesta eru svokallaðir bamahestar, eða hestar fyrir byrjendur og mjög lítt vana hestaimenn. Sigurður Ragnars- spn telur verðið ekki vera of lágt. „Menn eru að tala um lágt verð, en markaðurinn er mjög erfiður. Flutn- ingar á hrossum em dýrir og erfitt að skipuleggja þá. Til dæmis erum við í erfiðleikum nú að koma út keppnishestum sem hafa verið keyptir af sænskum hestamönnum. Þessa hesta á að nota á sænskum félagsmótum um þessar mundir. Við höfum beðið erlend flugfélög svo og Flugleiðir um tilboð í flutninga á hestum en tilboðin sem við höfum fengið eru ekki nægilega lág,“ segir Sigurður. Fyrirkomulag hestasoiunnar er á þann veg að Jens Marcussen mætir á fyrirfram auglýstan stað og þangað mæta hestamenn með fáka sína, sýna þá og selja. Marcussen mælir hestana og kynnir sér eiginleika þeirra og að lokum er prúttað. Lík- legt er að Marcussen komi á lands- mótið sem haldið verður á Hellu í bvrjun júlí og kaupi hesta þá. Grettir Bjömsson og Jens Marcussen innsigla sölu á Skjónaling. „Þú sérð til þess að drottningin tái hann Skjónaling," sagði Grettir. DV-myndir EJ Áhugi Dana á íslenska hestinum hefur aukist töluvert undanfama mánuði. Hestakaupmaðurinn Jens Marcussen kom hér i apríl síðast- liðnum, keypti 42 hesta og seldi jafnóðum. Aftur er hann kominn og hefur hug á því að kaupa nú 60 hesta. Þegar hefur hann keypt þá langflesta. Hann kom við á Ákur- eyri, Egilsstöðum og í Reykjavfk. Sigurður Ragnarsson hjá búvöm- deild Sambands íslenskra samvinnu- félaga hefúr vénð honum ti) aðstoðar, í.nánu sambandi við félag hrossabænda. Að sögn Sigurðar Ragnarssonar mun félag hrossabænda og SÍS sjá um að flytja hestana til Seyðisfjarð- ar. Marcussen kom með tvo flutn- ingabíla, mun setja hestana í þá og flvtja til Danmerkur í Norröna. Eins og flestir hestamenn vita er bannað að flytja lifandi dýr til útlanda í gámum og hafa dýralæknar sett ströng ákvæði um flutning hross- anna í þessum flutningabílum. Eins og fyrr segir keypti Maroussen 42 hross í apríl. Þegar hefur hann selt

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.