Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.1986, Page 40
40
DV. MÁNUDAGUR 23. JÚNÍ 1986.
Andlát
Herdís Ebenezersdóttir, Hraunbæ
156, lést í Landspítalanum 12. júní.
Jarðarförin hefur farið fram í kyrr-
þey að ósk hinnar látnu.
Sigríður Einarsdóttir, áður
Barmahlíð 25, lést þann 19. júní að
Elliheimilinu Grund.
Flosi Jónsson andaðist 19. júní.
Ólafur Ólafsson, Skipasundi 18,
Reykjavík, verður jarðsunginn í dag,
mánudaginn 23. júní, kl. 13.30, frá
Fossvogskirkju.
Guðrún Hjörleifsdóttir, Huldul-
andi 3, andaðist á öldrunardeild
Borgarspítalans aðfaranótt föstu-
dagsins 20. júní.
Lára Margrét Lárusdóttir lést að
Hrafnistu í Reykjavík föstudaginn
20. júní.
Arndís Helgadóttir, Seljavegi 9,
Reykjavík, andaðist föstudaginn 20.
júní í Landspítalanum.
Guðfmna Vigfúsdóttir, Öldugötu
12, lést laugardaginn 21. júní.
Tllkynningar
Kvenfélag Neskirkju
Kvciklferðin verður farin þriðjudaginn 24.
júní kl. 1H frá Neskirkju. Farið verður um
SuðumcM or kirkjan í Grindavík skoðuð.
Drukkið kvöldkaffi við Bláa lónið. Heim
verður komið um miðnætti. Kvenfélags-
konum er heimilt að taka með sér gesti.
Tilkynnið þátttöku fyrir sunnudagskvöld
í síma 13726. Hrefna, og 13119, Hildigunn-
ur.
Sumarferð Húnvetninga-
félagsins
Hin árlega sumarferð Húnvetningafélags-
ins verður farin laugardaginn 28. júní nk.
Að þessu sinni liggur leiðin um Þjórsárdal
og uppsveitir Ámessýslu, virkjunarsvæði
skoðuð og helstu sögustaðir, fararstjóri
Guðmundur Guðbrandsson. Á heimleið
verður sameiginleg máltíð snædd á Flúð-
um og er verð hennar innifalið í fargjald-
inu sem er kr. 1.500 fyrir fullorðna en kr.
700 fyrir böm yngri en 12 ára. Lagt verður
af stað kl. 8 f.h. frá félagsheimilinu Skeif-
unni 17. Þátttaka tilkynnist fyrir 26. júní
til Brynhildar s. 75211, Bjama s. 74732 eða
Aðalsteins s. 19863.
Nemenda- og
kennarasamband
Hússtjórnarskóla Suðurlands
heldur félagsfund fimmtudaginn 26. júní
nk. að Hótel Esju og hefst fundurinn kl.
20.30. AUir gamlir nemendur og kennarar
eru hvattir til að mæta og hitta gömlu
góðu félagana. Kaffiveitingar verða á
boðstólum og ýmiss konar mál rædd.
Heimatilbúin skemmtiatriði eins og þau
gerast best á Laugarvatni.
Greifinn flytur sig um set
Rakarastofan Greifinn hefur flutt sig um
set og opnað í JL-húsinu við Hringbraut.
Eigandi Greifans er Eiríkur Þorsteinsson.
Fyrsta bókin í nýjum flokki
teiknimyndasagna
Pési panda. Ránið á furðugripasafninu er
komin út og á bókarkápu er aðalsöguhetj-
unum svo lýst: „Pési panda er lítill og
skondinn náungi, búsettur að Skriflabæ,
sem er hrörlegur miðaldakastali. Hann
lendir gjarnan í hinum ægilegustu ævin-
týmm og á þá aldeilis hauk í horni þar
sem gamli þjónninn hans er, hann Vask-
ur. Ekki má gleyma Runka ref. Hann er
reyndar skúrkurinn í sögunum, þótt hann
sé ákaflega kurteis og tungulipur." Þeir
félagar eiga eflaust eftir að verða vinsælir
meðal lesenda teiknimyndasagna. Höf-
undurinn er Maartin Toonder. Bjarni Fr.
Karlsson þýddi. Bókin er prentuð í Dan-
mörku. Bókaútgáfan Iðunn gefur út.
Tímaritið TURBO
Ot er komið 1. tölublað tímaritsins TUR-
BO. Tímaritið Turbo er alhiða tímarit um
bíla, mótorhjól, vélsleða, jeppa og allt það
sem við kemur akstursiþróttum innan-
lands sem erlendis. Efni 1. tbl. er m.a.
Bílanaustrall 86, torfærukeppni Bíla-
klúbbs Akureyrar, trukkakappakstur í
Englandi, 1/4 míla í Bandaríkjunum,
heimsmeistarakeppnin í Formula 1 - rall-
akstri og mótorhjólakappakstri. Einnig er
reynsluakstur á BMW M 635 CSi og
Honda TRX 350 4x4 ásamt ýmsu öðru
skemmtilegu efiii. Tímaritið TURBO er
Utvarp
Sjónvarp
Katrín Fjeldsted læknir:
AIHof mikill fótbolti
í sjónvarpinu
Ég sá svona hitt og þetta í sjón-
varpinu um helgina, á föstudags-
kvöldið sá ég t.d. Þann gamla. Það
finnst mér afbragðsgóðir þættir og
ekkert miklu síðri en Derrick var,
en hann var alltaf í uppáhaldi hjá
mér. Á laugardagskvöldinu var síð-
an hrollvekjan Carrie á dagskránni.
Hana forðaðist ég eins og heitan
eldinn enda vissi ég um hvað hún
fjallaði. Yfirleitt er ég ekki mjög
spennt fyrir svona svæsnum hroll-
vekjum. Þættimir Aftur til Eden, eru
alveg ágætir ég er búin að sjá báða
og finnst skemmtilegir og vandaðir.
Annars var þetta heldur daufleg
sjónvarpshelgi fyrir þá sem ekki eru
fótboltaáhugamenn. Mér finnst allt-
of mikið af þessum fótbolta, þessi
helgi var t.d. alveg undirlögð af
heimsmeistaramótinu. Ég er búin að
sjá einn leik á HM, leik Dana og
Uruguay. Það fer bara svo geysileg-
ur tími í þetta, svo urðu allar þessar
framlengingar um helgina til þess
að dagskráin riðlaðist meira eða
minna. Nei, þá finnst mér heldur að
það ætti að koma öllum fótboltanum
fyrir á einni rás.
Sjónvarpssmekkur minn miðast
annars verulega af þvi sem ég átti
að venjast úti í Bretlandi þar sem
ég var lengi búsett, en þar er sjón-
varpsefni yfirleitt mjög vandað. Ég
held að sjónvarpið héma sé ahnars
alveg ágætt, miðað við að við höfum
bara eina rás.
Útvarpið hlusta ég mest á í bílnum.
Ég heyrði afskaplega fallegan söng
á rás 1 i gærkvöldi, í tónverkinu
„Aftansöngur Karmelíta". Þetta var
hljóðritun frá BBC og því miður fékk
maður ekki að vita hver söng, væri
ekki hægt gefa það upp? Mér finnst
útvarpið yfirleitt gott, hlusta mikið
á rás 1, minna á rás 2 en ekkert á
Svæðisútvarpið, enda er það lítið
sem ekkert kynnt. -BTH
fáanlegt á flestum bóka- og blaðsölustöð-
um um land allt. Útgefandi er Hugsýn sf.
Goðatúni 2, 210 Garðabæ, s. 651501.
Afskorin blóm lækkuð
Blómamiðstöðin hf., sölusamtök blóma-
bænda, hefur lækkað heildsöluverð
afskorinna blóma um allt að þriðjung.
Þetta lága verð mun haldast fram eftir
sumri. Ákvörðun þessi er tekin vegna
stöðugra verðlags á afgöngum blóma-
bænda og aukinnar hagræðingar í ræktun.
Á undaniornum árum hefur áhugi á blóm-
um og notkun þeirra farið vaxandi og vilja
blómabændur mæta þessum aukna áhuga
á blómum með lækkuðu verði.
Knattspyrnudeild Fylkis
gerði nýlega samning við veitingahúsið
American Style og Isfugl um auglýsingar
á búningum félagsins í meistaraflokki, 1.
flokki og 2. flokki. Samningurinn er til
tveggja ára og er í mörgum liðum. Meðal
annars verða kosnir leikmenn hvors liðs
í heimaleikjum Fylkis og fá þeir máltíð á
American Style í verðlaun. Einnig munu
allir leikmenn aðkomuliðs fá 10% afslátt-
armiða í American Style. Ýmis uppátæki
verða í heimaleikjum Fylkis og verða þau
á vegum ísfugls. American Style notar
eingöngu hráefni ffá Isfugli og er vel-
gengni veitingahússins meðal annars af
þeim sökum. Þessi auglýsingasamningur
er framlag Isfugls og American Style til
íþróttahreyfingarinnar.' Bæði fyrirtækin
hafa átt vinsamleg samskipti við íþrótta-
hreyfinguna og meðal annars lék Bjarni
Óskarsson, eigandi American Style, með
Fylki um árabil.
KEÐJUSÖG
HEKKKLIPPUR
v LOFT-
PÚÐA
1 SLÁTTU
VÉL
LAUFLÉTT
GARÐSLÁTTUVÉL.
RAFMAGNSHRIFA
HREINSAR UPP MOSA, LAUF OG
GRAS.
ÁRMÚLI 1 105 REYKJAVÍK SÍMI 91-685533
1
r
*
4 y l I
m í J 4i
fl m
M |
m | m 'ým
i
% j
II I l&K
i
macinai!
^Brncka uecker
_ y • •
GARÐAHOLVUM