Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.1986, Page 43
DV. MÁNUDAGUR 23. JÚNÍ 1986.
43
Sviðsljós Sviðsljós Sviðsljós Sviðsljós
17. júiú í blíðskapar-
veðri í New York
Bima Hreiðaisdóttir, New York;
Sautjánda júní-hátíð íslendingafé-
lagsins í New York var haldin í
blíðskaparveðri í Rye, litlum strand-
bæ fyrir utan Manhattan. Hátt í
fjögur hundruð manns sóttu hátíð-
ina. Formaður félagsins, Pétur
Thorsteinsson, ræðismaður í New
York, setti hátíðina og fjallkonan
mætti á staðinn. Að þessu sinni var
það Þórunn Ólafsdóttir, sem skilaði
því hlutverki með sóma.
Ung stúlka, Júlía Rissinger, lék á
flautu. Guðlaugur Einarsson sá um
dagskrá fyrir yngri börnin og vakti
það mikla lukku hjá smáfólkinu er
hann klæddist í grýlugervi og fór
með börnunum í skessuleik.
Ágústa Lorencini þandi nikkuna
af miklum krafti með hjálp Páls
Önundarsonar og Þórólfs Sveinsson-
ar, sem spiluðu á gítara. Var sungið
og dansað fram eftir degi.
Coldwater, Iceland Waters, Sam-
bandið, Álafoss og Hörður Helgason
sendiherra gáfu mat og drykkjar- *
fong. Tókst hátíðin framúrskarandi
vel.
Næst á dagskrá íslendingafélags-
ins í New York er sýning á leikriti
Guðmundar Steinssonar, Brúð-
kaupsmyndinni, sem verður þann 28.
júní í Samuel Beckert Theater á
Manhattan.
Sjaldgæfar eru svona góðar myndir af Lisu Marie Presley.
Ríkasti ungl-
ingur Ameríku
Rokkstjaman Elvis Presley var
dáður um allan heim og er hann lést
söfhuðust þúsundir aðdáenda hans
saman fyrir framan heimili hans.
Allt sem hann og aðstandendur hans
gerðu var fréttamatur á sínum tíma
og oft voru sérstakir blaðamenn
hafðir til að fylgjast með ferðum Elv-
is. 1 dag er nafn Presleys sjaldan
nefnt í fjölmiðlum og fáir hafa áhuga
á aðstandendum hans að undanskil-
inni dóttur hans sem heitir Lisa
Marie. Fjölmiðlar hafa þó ekki úr
miklu að moða því Lisa Marie lifir
svo sannarlega hljóðlátu einkalífi.
Hún fer ávallt með leynd og er vel
gætt af móður sinni, Priscillu Pres-
ley. Lisa Marie varð 18 ára í febrúar
og er ríkasti unglingur Ameríku.
Þegar hún verður 25 ára mun hún
erfa auðæfi föður síns sem eru talin
nema um það bil 500 milljónum doll-
ara. Priscilla gerir allt sem hún getur
til að vemda dóttur sína og sumir
telja hana ganga alltof langt í ein-
angrunarstefnunni. Sjaldan fást
myndir af dótturinni og enginn fær
að eiga við hana viðtal. Móðir henn-
ar ekur henni í og úr skóla og sama
á við ef hún fer á stefnumót. Þegar
Lisa byrjaði að fara út með fyrsta
kærasta sínum var ávallt fylgst með
þeim og núna, þegar hún er í tygjum
við leikarann Meeno Peluce, vill
mamma gamla fá að vita hvert hún
fer og hverja hún hittir. Mörgum
finnst strangleiki Priscillu minna á
mann sem kastar steinum úr gler-
húsi því hún var sjálf flutt inn til
Elvis þegar hún var 15 ára gömul.
Priscilla segist einungis vilja vernda
dóttur sína þannig að hún geti upp-
lifað unglingsár sín á eðlilegan máta.
„Ég vil ekki að hún alist upp sem
einhver fjölmiðlamatur,“ segir Dall-
as-leikkonan. Einnig óttast Priscilla
mikið að mannræningjar láti fyrr en
síðar til skarar skríða. Spurningin
sem menn velta nú fyrir sér er sú
hvort Lisa Marie muni beygja sig
öllu lengur undir járnaga þennan nú
þegar hún er orðin 18 ára og lög-
ráða. Telja sumir sig hafa séð glitta
í gull á baugfingri hennar og kunn-
ugir segja hana orðna langþreytta á
ofverndun móður sinnar.
Priscilla gerir allt sem hún getur
til að halda blaðamönnum frá dótt-
urinni.
Hún lifir
Eina konan í heiminum sem hefur
atvinnu af nautaati er Raquel Mart-
inez frá vesturströnd Bandaríkjanna.
Martinez þvkir mjög fær nautabani
og stendur körlunum alls ekki að
baki nema síður sé. Hún lærði réttu
tökin og hreyfingarnar í 10 ár undir
leiðsögn mexíkanska nautabanans
Jesus Menoz, betur þekktur sem E1
Ciego. Raquel æfir í 6 tíma á dag og
reynir með því að koma í veg fyrir
mistök í starfi. ..Líf mitt getur oltið
á þvi að stíga ekki feilspor inni i
hringnum." segir Raquel. Hún hefur
aldrei slasast sem er óvenjulegt af «
nautabana og e.t.v. er það séræfing-
unum að þakka.
Ys og þys, enda timinn naumur.
Sumir vildu fyrlr enga muni fara úr peysunni aftur.
um að hafa staldrað við á eyju lengst
norður við íshaf og geta þannig bætt
fleiri gripum í safn sitt, frá hinum
ýmsu þjóðlöndum. Vinsælast meðal
ferðamanna er örugglega lopinn og
reyna þeir flestir að birgja sig upp
af honum. Margir hafa haft á orði
hve mikil synd það sé að ferðafólk
þetta sjái ekkert annað en verslanir
þegar það dvelst hérna. Er því ekki
úr vegi að setja upp myndbandasýn-
ingar í verslunum þannig að ferða-
menn geti slegið tvær flugur í einu
höggi, keypt lopa og horft á Gull-
foss, Geysi og apana í Hveragerði.
Nýlega var hér á ferð sovéskt
skemmtiferðaskip með fjölda farþega
innanborðs. Hafði það stutta viðdvöl
hérlendis en lopainnkaupin í hlut-
falli við dvalartima eru sennilega
met. Sjálfsagt eru veturnir kaldir í
Sovétríkjunum og ekki liggja þar
lopavörur á lausu á útsöluverði!