Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.1986, Side 48

Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.1986, Side 48
m FRETTASKOTIÐ 62 25 25 Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022 Hafir þú ábendingu eða vitneskju umfrétt- hringdu þá í síma 62-25-25 Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast 1.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 3.000 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. Frjálst,óháð dagblað MÁNUDAGUR 23. JÚNÍ 1986. Hassmálið: Kaupanda veitt eftirför í nokkr- ar vikur Fíkniefnalögreglan handtók níu manns með 3 kíló af hassi á Hjarðar- haga um helgina. Sjö var fljótlega sleppt en tveir höíuðpauramir vom settir í 30 daga gæsluvarðhald. Að sögn Reynis Kjartanssonar, full- trúa í fíkniefhalögreglunni, hefur þetta mál verið í rannsókn í nokkrar vikur og hafði lögreglan fylgst með ákveðnum aðila á þeim tíma. Hann fór á Hótel Loftleiðir á föstudagskvöldið og sá lögreglan þá að hann og annar maður skiptust á töskum. I framhaldi af því var svo látið til skarar skríða á Hjarðarhaganum. Innflytjandinn mun hafa verið að koma frá Hollandi en hann og kaup- andi efhisins vom settir í gæsluvarð- hald. Mun kaupandinn hafa l'tillega komið við sögu fíkniefnalögreglunnar áður. -FRI Gleymdi steikinni Það fór illa fyrir sunnudagssteikinni hjá manni einum á Grettisgötunni því hann stökk út frá henni í miðjum klíð- um. Nágrannar í næsta húsi tilkynntu slökkviliðinu skömmu seinna að reyk legði út um eldhúsgluggann þar sem steikin snarkaði á pönnunni. Slökkvi- liðið kom að vörmu spori og slökkti í steikinni sem þá var orðin nokkuð þurr en ekkert sást til kokksins. -FRI Bílslys í Eyjum Rumlega tvítugur Vestmannaeying- ur stórslasaðist er hann ók bifreið sinni út af vegi í Vestmannaeyjum árla laugardagsmorguns. Var hann fluttur á sjúkrahús suður til Reykja- víkur og er líðan hans eftir atvikum. -EIR ALLAR GERÐIR SENDIBÍLA Skemmuvegur 50 LOKI Og hafðu það laxmaður! Gagniýni á slökkvistarf við Ijömina: ff Aðeins hægt að slökkva utanfrá áá Líklegast er talið að eldsupptök í gamla Iðnskólanum við Tjömina megi rekja til rafrnagns. Niðurstöður rannsóknar munu liggja fyrir seinna í dag. Nokkurrar gagnrýni hefur gætt hjá sjónarvottum sem telja að eldur- inn hafi magnast um allan helming eftir að slökkvilið kom á staðinn og braut rúður til að komast að eldin- um. Um þá gagnrýni segir Rúnar Bjamason slökkviliðsstjóri: „Ég er vanur því að fram spretti nokkur hundrað sérfræðingar í hvert sinn er eldur kemur upp í húsi í Reykjavík. Þegar við komum á staðinn var eldurinn mestur í gólfi á milli annarrar hæðar og þriðju. Tveir reykkafarar sem sendir vora inn byrjuðu á því að slökkva þann eld er þeir gátu á annarri haíð en f risi var eldurinn svo magnaður að þeir komust ekki að. Þann eld var aðeins hægt að slökkva utanfrá.“ -EIR sjá bls 2,3 og 4 Sjálfstæðisflokkur: Wng- flokkur- 0 i ræðir \ Hafskips- á ■■ malm Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins situr nú á fundi. Fjölmörg mál era á dagskrá að sögn Ólafs G. Einarssonar, formanns þingflokksins. Vegna tímaskorts var horfið frá því að halda fundinn í Grindavík og skoða um leið fyrirtæki á Suðurnesjum. Er fundurinn því í alþingishúsinu. Á fundinum er meðal annars fjallað um undirbúning fjárlaga og Hafskipsmál sem snerta Albert Guðmundsson ráð- herra. -HERB TVeirhvalirádag Mynd KAE Jón Ragnarsson og Rúnar Jónsson sigruðu á Ford Escort í Olafsvikurrallinu sem haldið var siðast- liðinn föstudag og laugardag. í öðru sæti urðu Hjörleifur Hilmarsson og Ari Arnórsson á Toyota Corolia og þriðja sætið skipuðu þeir Þórhallur Kristjánsson og Úlfar Eysteinsson á Sunbeam Talbot. Keppnin var hörkuspennandi og lengi framan af munaði ekki nema nokkrum sekúndum á keppend- um. Jón og Rúnar höfðu þó vinninginn og voru 12 sekúndum á undan næsta keppanda í mark, þeir fengu 1 klst. 31,36 í refsistig en næsti fékk 1 klst. 31,48 í refsistig. -s.Konn. Veðrið á morgun: Hlýtt áfram Á morgun verður hægviðri og skýjað víða um land, sums staðar þokuloft við sjóinn. Þó ætti að geta orðið bjart veður inn til landsins, einkum norðaustanlands. Hlýtt verður áfram, 10-12 stig suðvestan- lands og allt upp í 18 stiga hita fyrir austan. Hvalbátamir tveir vora í morgun á leið að landi í Hvalfirði hvor með sinn hvalinn. Samtals hafa veiðst 12 lang- reyðar síðan hvalveiði hófst eða tvær á dag. Alls má Hvalur hf. veiða 80 langreyðar og 40 sandreyðar. Veiðin það sem af er þykir góð og ef heldur áfram sem horfir lýkur veiði langreyða í byijun ágúst, að sögn Stef- áns Andreassonar, starfsmanns á skrifstofu Hvals hf. í Hvalfirði. Veiði sandreyða tekur þá við. Stefán sagði að unnið væri dag og nótt við hval- skurðinn. -KB Laxar í árekstri Upp komst um veiðiþjófnað er ölv- aður ökumaður ók bílaleigubifreið á hús við Reykj avíkurhöfh um helgina. Bílaleigubílinn hafði ökumaðurinn tekið ófrjálsri hendi af félögum sínum sem voru síður en svo hrifnir af uppá- tækinu. Mislíkaði ökumanninum það og bar því upp á félaga sína veiðiþjófn- að í Elliðaánum fyrir allnokkra. Munu • það hafa verið fimm laxar sem veiddir vora í net. Bílaleigubíllinn skemmdist nokkuð er honum var ekið á húsið við höfhina en laxamir era löngu seldir. -EIR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.