Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.1986, Blaðsíða 15
DV. LAUGARDAGUR 28. JÚNÍ 1986.
15
Japanir
Japanir eru „hataraki bachi“ -
vinnudýr sem aldrei una sér hvíld-
ar eða leyfis í venjulegri Vestur-
landamerkingu. Taki Japani sér
leyfi í eina eða tvær vikur ó ári
gerir hann það ekki í þeim tilgangi
að skemmta sér heldur til þess að
hvílast og safna kröftum fyrir
næsta ár.
Þetta hljómar auðvitað sem al-
hæfing yfir svo fjölmenna þjóð en
hún styðst við tölfræðilegar stað-
reyndir. Samkvæmt opinberri
könnun eiga Japanir yfirleitt rétt
á tveggja vikna fríi á ári. En innan
við helmingur starfandi manna
nýtir þennan rétt. 56% þeirra taka
sér aðeins átta daga leyfi og geyma
sér afganginn af fríinu til að nýta
í tengslum við veikindi ellegar
óríðandi persónuleg erindi.
Enn er það viðtekin skoðun í
Japan, einkum á meðal eldra fólks,
að vinnan sé miklu þýðingarmeiri
en allt annað í lífinu, einkum þó
leyfi frá störfum. Tölfræðin sannar
þetta líka. Hún segir að 40% Jap-
ana líti svo á að þeir frídagar sem
þeir eigi rétt á dugi þeim meira en
nógu vel.
Yfirvinna
Japanskar eiginkonur kvarta
undan því að menn þeirra séu gift-
ir fyrirtækjunum og að þeir vinni
stöðugt yfirvinnu jafnvel þótt
vinnuvikan sé „aðeins“ fimm dag-
eru vinnudýr
ar. Aðeins helmingur starfandi
karla nær því að snæða kvöldverð
með fjölskyldu sinni. Hinir koma
ekki heim fyrr en bömin hafa sofn-
að og aðeins frúin er uppistandandi
á heimilinu til að taka á móti þeim.
En hvað gera Japanir þá þegar
þeir fara í sitt stutta frí? Algengast
er að þeir sitji heima hjá sér og
horfi á sjónvarpið - og líður þó
yfirleitt fremur illa. Þeir em óör-
uggir og vita ekki hvað skal taka
sér fyrir hendur vegna þess að iðju-
leysið er þeim óþekkt og framandi.
Meðaljóninn í Japan hefur held-
ur ekki efni á að fara í för til
útlanda þótt japanska yenið sé
sterkt á heimsmarkaði. Flestir Jap-
anir segjast ekki einu sinni hafa
efni ó að taka sér það frí sem þeir
hafa rétt á.
Venjulegast er að borgarbúar
taki sér stutta ferð á hendur til að
heimsækja ættingja úti í sveit.
Kannski skella menn sér líka í
hópferð að einhverju minnismerki
um sögufrægan atburð. Sú för tek-
ur yfirleitt ekki nema einn eða tvo
daga og þar með hefúr meðaljóninn
lokið sínu órlega ferðalagi.
Þrengsli á heimilum
Andúð ó lengri fríum kemur
einnig til vegna þrengsla heima
fyrir. Bústaðir Japana em svo litlir
að ekkert rými er til að vinna við
einhvers konar dægradvöl. Heimil-
ið er hinum vinnandi Japana
aðeins skýli til að sofa í. Þar dvelja
menn ekki lengi né umgangast
aðra í fjölskyldunni.
Yfirvöld í landinu reyna nú -
sökum þrýstings fró umheiminum
- að breyta afstöðu Japana til vinn-
unnar og frítímans.
Rfkisstjómin hefur hvatt þegna
sína til að fara í lengri leyfi og
eyða meira fé ó sjólfa sig. En það
viðfangsefhi er í raun ómögulegt
nema ríkisstjómin megni að breyta
gersamlega afstöðu manna til vinn-
unnar.
Eiginlega verða Japanir að skilja
að borði og sæng við vinnuveitend-
ur sína eigi einhver árangur að
verða af þessari nýju stefnu ríkis-
stjórnarinnar. (DN/GG)
Innkaupastj órar athugið!
Vorum að taka upp: Kúreka- og indíánabúninga, dúkkuvagna
og vörubíla.
Einnig sumarleikföng (sandleikföng) í ótrúlegu úrvali.
INGVAR HELGASON HF.
VONARLANDI V/SOGAVEG, SÍMI 37710.
MYIilDIR SEM HITTAIMARK JUNOMEDIAAS
mf
Erik Estrad og Morgan Fairchild fara á
kostum í þessari frábæru boxxnynd. Ekki
síðri en Rockymyndimar.
George Segal er frábær í þessari einstöku
fjölskyldumynd. Spennandi frá upphafi til
enda.
Frábær framtíðarmynd: Árið 2035 upp-
götva vísindamenn, sem eru í könnunarferð
í geimnum, nýja tegund lífs. Þessi upp-
götvun ógnar baráttu þeirra, eigin lífi.
Eru til á öllum
betri mynd-
bandaleigum
landsins.
Grínmynd
Spennumynd
T S
dreifing
Vog S., dreifing,
Skúlagötu 63,
sími 21735.