Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.1986, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.1986, Blaðsíða 19
DV. LAUGARDAGUR 28. JÚNÍ 1986. 19 Myndin sem enginn vill vita af - „I giorni dell ira“ er kvikmynd sem enginn vill vita af eða sjá fram- leidda en samt munu allir ítalir ætla sér að sjá hana. Leikstjórinn heitir Giuseppe Ferrara og hefur ekki hing- að til notið sérstakra vinsælda á Ítalíu en þegar hann nú ætlar að íjalla um Aldo Moro-málið á hvíta tjaldinu hefur áhuginn skyndilega vaknað. Það eru liðin átta ár. Hingað til hefur aðeins ein kvikmynd verið gerð um ránið á leiðtoga kristilegra demó- krata á Ítalíu. En nú er verið að leggja síðustu hönd á gerð „I giorni dell ira“ (Dagar reiðinnar) - mynd um þá 55 daga sem Aldo Moro sat í „fangelsi alþýðunnar". Myndin hefst með mannráni Rauðu herdeildanna - aðgerð sem heppnaðist til fullnustu - og henni lýkur þegar Aldo Moro fmnst látinn í farangursgeymslu bíls sem finnst mitt á milli aðalstöðva flokks kristilegra demókrata og ít- alska kommúnistaflokksins í hjarta Rómaborgar. Gian Maria Volonté leikur Aldo Moro og er sagður óhugnanlega líkur honum. Umíjöllunarefni myndarinnar er viðkvæmt og sumir vilja raunar segja það nánast bannefni á Ítalíu. „Hirðin“ er á lífi - en hirðin eða höllin eru gæluheiti yfir pólitíska foringja á Ítalíu, þ.e. þá Andreotti, Fanfani, Craxi og fleiri. í mynd Ferr- ara eru þessir menn allir nefndir á nafn eins og þáverandi innanríkis- ráðherra, Francesco Cossiga, sem þótti setja hvað mest ofan vegna Aldo Moro-málsins. Nú er sá sami Cossiga forseti Italíu. Reyndur maður Guiseppe Ferrara er reyndur mað- ur. Hann segist sjálfur vera óháður pólitískt en hallast til vinstri. Hann hefur hingað til framleitt og stýrt ógrynni heimildamynda og pólitískra ákærumynda, m.a. um Alessandro Panagulis í Grikklandi, um mafíuna og um CIA. Nýjasta mynd hans, „Hundrað dagar í Pal- ermo,“ fjallar um baráttu Dalla Chiesa herforingja gegn Sikileyj- armafíunni. - Moro er enn eins og lík í fata- skáp allra pólitískra afla á Ítalíu, segir Ferrara. Kristilegir demó- kratar vilja alls ekki að myndin verði gerð. Það vilja kommúnistarnir ekki heldur. Aðeins sósíalistarnir munu hugsanlega verða ánægðir með myndina en þeir eru svo sem ekki heldur sérlega hressir með það að fólk sé að róta í fortíðinni. Ferrara segir að hægt sé að gera heimildamynd svo að segja samtímis atburðinum sem hún íjallar um - reyndar skipti það litlu máli hvenær atburðurinn hafi átt sér stað, öllu skipti að gögn og upplýsingar liggi fyrir. Rauðu herdeildirnar í mynd Ferrara um Moro-málið er vitnað til margra samtala og einræða Moros. Það efni er allt tekið úr bréf- um hans og athugasemdum. Texti hryðjuverkamannanna er fenginn úr lögregluskýrslum og uppskriftum úr yfirheyrslum og réttarhöldum. Handritið byggir á samnefndri bók eftir Robert Katz. Ferrara umskrif- aði bókina í samvinnu við leikstjóra ; myndarinnar, Armenicu Balducci, en hún er reyndar eiginkona Vol- onté. - Við höldum okkur af afli í ritaðar heimildir um þetta mál, segir Ferr- ara. - Ella værum við að falsa eða vera með vangaveltur um skjalfesta sögu. Það er bannað. I upphafi var ráð fyrir því gert að hryðjuverkamennirnir Adriana Far- anda og Valerio Morucci yrðu hjálp- leg við gerð þessarar myndar en frá því var fallið - m.a. eftir að ítölsk dagblöð höfðu fjallað um málið og sýndist flestum að greinilega ætti að gera mynd sem væri hliðholl málstað hryðjuverkamanna. Mjög snemma á undirbúningstíma „I giorni dell ira“ var afráðið að Gian Maria Volonté færi með hlut- verk Aldo Moro. Ekki eru nema tíu ár síðan hann lék Moro í annarri mynd, „Meðborgari sem er hafinn yfir allar grunsemdir“, en i þeirri mynd var Aldo Moro reyndar aldrei nefndur á nafn. Volonté er þekktur fyrir einbeit- ingu sína og rækilegan undirbúning fyrir sérhvert hlutverk. Áður en tök- ur „I giorni dell 'ira“ hófust lokaði hann að sér inni á heimili sínu í tutt- ugu daga, bjó í einu herbergi til að finna það á sjálfum sér hvernig það væri að vera lokaður inni. Jafnframt var hann klæddur þeim fötum sem hann átti að nota í myndinni til að finna hlutverkið nær sér - eða vaxa inn í það. Upptakan var síðan látin fara fram í réttri tímaröð þannig að m.a. skeggvöxtur Volonté breyttist dag frá degi. Eitt meginviðfangsefni heimilda- myndarinnar eftir Ferrara er um- fjöllun um það viðkvæma efni: Hvers vegna var ekki hægt að bjarga Aldo Moro? - Þessi mynd fjallar ekki svo mjög um völdin í þjóðfélaginu. Hún fjallar miklu fremur um falsið og skinhelg- ina í hinum pólitísku fordyrum. I fyrstu vildu menn alls ekki semja við hryðjuverkamenn. En svo skiptu menn nú aldeilis um skoðun. Og það eru einmitt innri andstæður og tog- streitan í stjórnmálunum sem Ferr- ara hefur Qallað um í fyrri myndum sínum. - Pólitísk kvikmynd? segir Ferr- ara. -- Hún tekur þátt í pólitískri baráttu og er þar með afl sem splundrar fylgi flokka. Brecht sagði alltaf að ef dramað ekki sundraði áhorfendum þá væri það ekki pólit- iskt. Hugsið ykkur drama sem sameinaði fasista og andfasista - það væri víst ógjörningur að búa til þannig verk. En þessi mynd um Aldo Moro - hún á eftir að sundra almenningi. Aldo Moro. Alfa Romeo 33QV. Vél 105 DIN Hö. 0-100 km. 9,5 sek. Hámarkshraði 190 km/klst. Praumur Nú getum viö loksins boöiö þér upp á allar geröir Alfa Romeo Alfa 33 á ótrúlegu veröi: Alfa 33 SL________________kr. 409.200.- Alfa 33 QV________________kr. 504.400.- Alfa 334x4 kr. 514.500.- Innifalið í veröi er m.a.: Rafdrifnar rúöur, miöstýröar hurðalæsingar (nema í Alfa 33 SL), veltistýri, litaö gler, fjarstilltir úti- speglar, upphituö framsæti, hreinsibún- aöur á framljósum, bílbelti í fram- og aftur- sætum, 5 gíra gírkassi, ,,digital“ klukka, snúningshraðamælir, niðurfellanlegt aftur- sæti (tvískipt), læst bensínlok, purrka og sprauta á afturrúöu (nema í Alfa 33 SL),og margt fleira. BILASÝNING UM HELGINA. OPIÐ KL. 13-17. JÖFUR HFÍ NÝBÝLAVEGI 2 • SÍMI 42600 Þóra Dal, auglýsingastofa

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.