Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.1986, Side 32
FRETTASKOTIÐ
62 25 25
Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022
Hafirþú ábendingu eða
vitneskju umfrétt-
hringdu þá í síma 62-25-25
Fyrir hvert fréttaskot, sem
birtist eða er notað i DV,
greiðast 1.000 krónur.
Fyrir besta fréttaskotið í
hverri viku greiðast 3.000
krónur.
Fullrar nafnleyndar er gætt.
Við tökum við fréttaskotum
allan sólarhringinn.
Austfirðir:
Sólskinið
^ setti símann
úr sambandi
Eins og fram hefur komið í frétt-
um er mikil veðurblíða á Aust-
fjörðum þessa dagana, svo mikil
að menn láta hafa það eftir sér að
þeir séu eins og sviðnir hrútspung-
ar í framan undan sókkininu. En
sólskinið hefúr fleiri aukaverkanir
í för með sér en þessa því það hef-
ur sett símkerfið í þessum lands-
hluta úr skorðum.
Nú er að vísu búið að kippa
símamálunum í lag en undanfarið
hefúr verið illmögulegt að ná aust-
ur og er orsök þess að finna í þeirri
hitabylgju sem ríkt hefúr þama.
* Guðmundur I. Jóhannsson,
tæknifræðingur hjá Pósti og síma
á Egilsstöðum, sagði að ólag hefði
verið á strengnum milli Egilsstaða
og Reyðarfjarðar en hann flytur
480 símarásir. Á þessum streng er
31 magnari en mögnunin í þeim
ræðst af hitastiginu í kringum þá.
Mögnunin dofriar eft.fr því sem hit-
inn eykst. Strengurinn sjálfur er
grafinn 60 70 sm í jörð ei. magnar-.
amir eru í brunnum og á i.itinn
því greiðari leið að þeim. Vegna
þessa myndaðist misvægi þama á
milli sem olli ólaginu
„Lækningin var sú að lækka
styrkinn á strengnum á Reyðar-
firði,“ sagði Guðmundur. Og þá
getur síminn aftur truflað fólkið í
sólbaði á þessum slóðum. -FRI
Akureyri:
Ekið á mann
á gangbraut
Alvarlegt umferðarslys varð á
Hörgárbraut á Akureyri er þar var
ekið á gangandi vegfarenda á
gangbraut. Liggur vegfarandinn,
r sem er áttræður karlmaður, nú
þungt haldinn á sjúkrahúsinu á
Akureyri með höfúðkúpubrot auk
handleggs- og fótbrots.
Slysið varð við Stórholt á gang-
brautinn skömmu fyrir hádegið í
gær. -FRI
ALLAR GERÐIR
SENDIBlLA
LOKI
Brassarnir vinna!
Susana Blanco og Sigfried Held takast I hendur á Laugardaisvellinum i gær. DV-mynd Óskar Öm
Argentína gegn Vestur-
Þýskalandi í Laugardal
Þau tókust í hendur eins og sann-
ir íþróttamenn á Laugardalsvellin-
um í gær, Susana Blanco frá
Argentínu og Sigfiied Held frá V-
Þýskalandi. Á milli þeirra var
knötturinn en hann byrjar fyrst að
rúlla fyrir alvöru í úrslitaleiknum í
Mexíkó á morgun.
„Ef Þjóðveijamir finna ráð gegn
Maradona þá geta þeir unnið leik-
inn,“ sagði Sigfried Held. „Þeir
verða að setja mann á Maradona
þannig að hann geti ekkert gert. Það
er eina ráðið."
Susana Blanco tók ekki í sama
streng. Hún heldur með sínum
mönnum: „Ég fylgdist með heims-
meistarakeppninni í Argentínu 1978
en þá var Maradona of ungur til
að vera með. Ég held reyndar að
enginn leikmannanna þá séu í arg-
entínska liðinu núna.“
Susana Blanco fluttist til íslands
fyrir 6 árum og hefur unnið í Hamp-
iðjunni síðan. Henni var ekki rótt í
heimalandi sínu eftir að hún eignað-
ist son utan hjónabands. „Það eru
allir kaþólskir í Argentínu, þar er
ekki hægt að lifa sem einstæð móð-
ir. Sonur minn hefur ekki verið
mikið fyrir það að flagga þjóðemi
sínu hér á íslandi en i dag er hann
stoltur yfir því að vera frá Argentínu
eins og Maradona."
Það var ekki í fyrsta skipti í gær
að Sigfried Held heilsaði Argentínu-
manni á knattspymuvelli. Held, sem
nú þjálfar íslenska landsliðið í
knattspymu, er fyrrum þýskur
landsliðsmaður og hefúr tekið þátt
í tveimur heimsmeistaramótum; í
Englandi 1966 og í Mexíkó 1970.
„Við lékum á móti Argentínu í Eng-
landi ’66 og þeim leik lyktaði með
jafiitelfi, 0-0. *.*•
Susana Blanco og Sigfried Held
ætla bæði að fylgjast með viðureign
landa sinna á sunnudaginn - hvort
í sínu lagi.
-EIR
Veðrið um helgina:
Austanmenn
ánægðir
Á sunnudag og mánudag verður
lægðardrag á vestanverðu Græn-
landshafi og hæð fyrir austan og
suðaustan land. Veður breytist því
lítið frá því sem verið hefúr.
V estan gola eða kaldi verður um
allt land. Skýjað verður áfram á'
Suður- og Vesturlandi og sumstaðar
dálítil súld. Þurrt verður á Norður-
og Austurlandi og víða léttskýjað.
Hiti verður þar á bilinu 12-20 stig
en 9-11 stig fyrir sunnan og vestan.