Dagblaðið Vísir - DV - 11.07.1986, Blaðsíða 3
FÖSTUDAGUR 11. JÚLÍ 1986.
3
Fréttir
Foreldrar dvelja daglangt á bamadeild Hringsins:
„Viljum ekki vita af bam-
inu nánast ósjálfbjarga“
„Það eru gerðar óhugnanlega mikl-
ar kröfur til hjúkrunarfræðinganna á
þessari deild. Það er alveg ótrúleg
pressa á starfsliðinu. Engir hjúkrunar-
fræðingar hafa komið í stað þeirra sem
hafa hætt. Það er endalaust bætt á
þær sem fyrir eru. Þessar stúlkur hafa
reynst okkur frábærlega. Hins vegar
eru takmörk fyrir hvað hægt er að
bjóða fólki. Mælirinn er fúllur. Þær
geta einfaldlega ekki meira.“
Eins og greint var frá í fréttum DV
á dögunum er mikill skortur á hjúkr-
unarfræðingum á bamadeildum
Hringsins á Landspítalanum. Nýlega
þurfti að loka deild 13 E, annarri af
tveim bamadeildum spítalans, vegna
sumarleyfa hjúkrunarfræðinga. Að-
eins bráðatilfellum er sinnt á hinni
deildinni. Henni verður lokað þegar
13 E verður opnuð að nýju um næstu
mánaðamót.
Átján mánaða dóttir hjónanna
Hauks Eyjólfssonar og Guðrúnar Vil-
hjálmsdóttur, Hrefna, hefur verið að
meðaltali einu sinni í mánuði á deild
13 E á Hringnum, allt upp í 3-4 vikur
í senn. Haukur og Guðrún hafa orðið
áþreifanlega vör við fækkun hjúkr-
unarfræðinga á deildinni.
„Allt frá þvi að Hrefha kom fyrst á
deildina í febrúar 1985 höfum við horft
upp á fækkun hjúkrunarfræðinga. Það
hafa engir komið í stað þeirra sem
hafa hætt. Eins og málum er háttað í
dag komast þessir starfsmenn ekki
yfir allt sem þarf að gera. Við erum
ekki í rónni vegna þess að ekki er
hægt að veita Hrefhu þá umönnun sem
hún þarfnast."
Annarri lokað, hin fyllt
„Við vorum viðstödd um daginn þeg-
ar deildinni sem Hrefna er á var lokað.
Reynt var að senda eins mörg böm
heim og mögulegt var. Þrátt fyrir það
var hin deildin yfirfull. Það var komið
fyrir rúmum á ganginum, á skrifstof-
unni og á kaffistofunni. Hrefnu var
komið fyrir í skoðunarherberginu.
Mikið óöryggi
Við höfúm þurft að eyða miklum
tíma á deildinni með Hrefhu. Starfs-
fólkið er þakklátt fyrir allt ómak sem
við tökum af því. Þeir föstu starfsmenn
sem vinna þarna komast ekki til að
sinna henni nægilega vel. Nú er þessi
deild lokuð. Ef Hrefna veiktist núna
og þyrfti að leggjast inn þekkir fólkið
á hinni deildinni ekkert til hennar,
íyrir utan að það kæmist vart til að
sinna henni vegna anna. Það þarf að
þekkja Hrefnu vel til að geta skilið
þarfir hennar. Við megum ekki til
þess hugsa að hún liggi þama nánast
ósjálfbjarga.
Við erum mjög óömgg með Hrefhu
eins og málin em í dag. Það kemur
oft fyrir að við stöldrum aðeins lengur
við hjá henni til að sjá hversu margir
hjúkrunarfræðingar verði á nætur-
vakt. Við værum miklu ömggari með
hana ef deildin væri eitthvað nálægt
því að vera fullmönnuð."
Fleiri að hætta
„Sem betur fer getum við eytt nokk-
uð miklum tíma með Hrefhu á deild-
inni, þó auðvitað bitni það á vinnunni.
Að því leyti erum við lánsamari en
sumir foreldrar sem eiga böm þama.
En svona gengur þetta ekki til lengd-
ar. Það situr allt annað á hakanum á
meðan þetta ástand varir.
Fyrir utan það þá er aðstöðuleysi
foreldra bamanna á deildinni algjört.
Við eyðum heilu dögunum þama og
getum hvergi verið með bömunum.
Ástandið á bamadeildum Hringsins
er hrikalegt. En við og fleiri foreldrar
óttumst að það eigi eftir að versna.
Okkur er kunnugt um að meira en
helmingur þeirra hjúkrunarfræðinga
sem starfa á þessum tveimur deildum
hyggjast segja upp störfum eða em
þegar búnir að því. Deildimar á að
opna báðar eftir sumarleyfi 1. sept-
ember en tvísýnt er að það verði ef
heldur fram sem horfir.
Það er ljóst að það verður að gera
eitthvað í launamálum hjúkmnar-
fræðinga ef halda á þessum deildum
gangandi. Við foreldrar erum í hrika-
legri aðstöðu. Hvað eigum við að taka
til bragðs ef þessum deildum verður
endanlega lokað? Yfirvöld spítalanna
verða að gera eitthvað í þessum mál-
um. Það verður að stöðva þennan
starfsflótta áður en það er um
seinan.“ ÞJV
Aframhaldandi „þunglyndi“ háskólamenntaðra:
Skurðaðgerðum frestað
á Landsprtalnum
Nokkrum skurðaðgerðum varð að
fresta á Landspítalanum vegna þess
að hluti háskólamenntaðra hjúkr-
unarfræðinga tilkynnti veikindafor-
föll. Þeir gripu til þessa ráðs til að
lýsa yfir óánægju sinni með dóm
Kjaradóms um launamál þeirra. Búist
er við að á morgun verði einnig boðuð
„veikindaforföll"
Hjá Landspítalanum fengust þær
upplýsingar að allar lífsnauðsynlegar
aðgerðir hefðu verið framkvæmdar í
gær. Aðeins hefðu verið frestað að-
gerðum sem þola bið. Vegna mann-
fæðar var einnig gripið til þess að
senda sjúklinga heim þar sem því var
við komið. Mesta röskunin var á hand-
og lyflækningadeildum spítalans. I
gær fengust ekki upplýsingar hversu
margir hefðu verið „veikir“.
Störf á Borgarspítalnum og Landa-
koti röskuðust ekki í gær og var
mæting góð meðal háskólamenntaðra
hj úkrunarfræðinga.
Davíð Á. Gunnarsson, forstöðumað-
ur Ríkisspítalanna, sagði að ef þetta
héldi áfram yrði að grípa til sérstakra
ráðstafana.
Fimm lífifræðingar og einn hjúkr-
unarfræðingur mættu ekki til starfa
hjá Blóðbankanum í gær og báru við
þunglyndi. Ljóst er að röskun verður
á blóðgjöfum ef þessir aðilar mæta
ekki til starfa.
Á Hafrannsóknastofnun var óvenj-
umikið um „veikindi". Þar tilkynntu
19 háskólamenntaðir starfsmenn for-
föll í gærmorgun. Aðeins komu 10
starfsmenn í vinnu og tilheyra þeir
allir BSRB. ' -APH
Haukur og Guðrún með dófturina Hrefnu. „Hvað eigum við að taka til bragðs et deiidunum verður lokað7“
F / A T
Regata dísn
RÚMGÓÐUR OG VANDAÐUR DÍSILBÍLL
Á ÓTRÚLEGA HAGSTÆÐU VERÐI
kr.
494,000.-
(gengi 3/7 ’86)
INNIFALIÐ í VERÐI M.A.:
Rafdrifnar rúður rafmagnslæsingar
5 gíra gírkassi ★ vönduð innrétting
2000 cc aflmikil dísilvél it veltistýri
★ framhjóladrif
Komið og kynnið ykkur kjörin,
sýningarbíll á staðnum.
umboðið,
r
Skeifunni 8, s. 688850.