Dagblaðið Vísir - DV - 11.07.1986, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 11.07.1986, Blaðsíða 12
12 FÖSTUDAGUR 11. JÚLl 1986. Neytendur Sætmeti í morgunmat í stórmarkaði í höfuðborginni voru til sautján tegundir af jógúrt einn morguninn i vikunni. Þar af eru þrjár tegundir af svokallaðri léttjógúrt með ákveðnu bragði og ein tegund án ávaxta. Nú eru flestir að gæta sín á of hita- einingaríku fæði og vilja því gjaman fá ffamleiðsluvörur sem ekki inni- halda alltof mikið af sykri. Framleið- endur mjólkurvöru virðast hafa sérstakan áhuga á að bæta sykri og sykruðum ávöxtum út í ffamleiðslu- vörur sínar. Það er því betra að gæta sín og skoða upplýsingar um innihald- ið sem skráð er á umbúðir jógúrtarinn- ar. 46 hitaeiningar eða 134 Sú jógúrtin sem er hitaeiningasnauðust er léttjógúrt, bæði til með gulrótum og hveitikoms- hýði og einnig með gulrótum, eplum og sellerí. Hún inniheldur aðeins 46 hitaeiningar í 100 gr. Það þýðir að í litlu boxi em rúmlega 90 hitaeiningar. Hreina jógúrtin, þ.e. án ávaxta, inni- heldur 67 hitaeiningar í 100 gr eða 134 hitaeiningar í einu litlu boxi. Þessari tegundir em ffá Mjólkursamsölunni. Sú jógúrtin sem er hitaeiningaríkust er einnig þaðan en það er svokölluð sunnudagsjógúrt, til með tvenns konar bragði, með rúsínum og með banönum. Þær innihalda 134 hitaeiningar eða um 250 hitaeiningar í lítlu boxi. Léttjógúrt með rabarbara inniheldur 70 hitaeiningar pr. 100 gr., trefja- og kaffijógúrt ffá Húsavík innihalda 80,5 hitaeiningar, jógúrt ffá MS með trefj- um, blönduðum ávöxtum, banönum og appelsínum og kókoshnetum og með jarðarberjum og blönduðum ávöxtum ffá Húsavík innihalda 85 hitaeiningar, kaffi- og lakkrísjógúrt ffá MS innihalda 93 hitaeiningar og hnetu- og karamellujógúrt ffá MS inniheldur 96 hitaeiningar. Lítið box inniheldur 180 gr, þannig að óhætt er að nærri tvöfalda hitaein- ingafjöldann sem gefinn er upp á boxinu. Hann er miðaður við 100 gr. Við höfðum skyndibragðkönnun á sautján bragðtegundum. Dómamir voru eins margir og mennimir sem smökkuðu. Sumum þótti lakkrísjóg- úrtin best, flestir voru á þeirri skoðun að hnetu- og karamellujógúrtin væri alltof væmin og að kókosjógúrtin væri ekki velheppnuð. Flestum þótti gamla, góða jarðarberjabragðið mjög gott. Haft var á orði að léttjógúrtin væri fullþunn, raunar að allar tegundimar væm í þynnsta lagi. Litlu boxin kosta 20,40 kr., án ávaxta 18,50 kr. Hálfslíterspakkningamar kosta 45,60 kr., nema jógúrtin frá Húsavík. Hún kostar 39 kr. í verslun í Reykjavík. -A.BJ. Það er mjög gott úrval af jógúrt á markaðinum. En það er óþarflega miklum sykri bætt í þessa annars ágætu mjólkurafurð. Sykursnauðari tegundirnar eru til hægri á myndinni, þær em ekki nema þrjár, og loks hreina jógúrtin sem inniheldur raunar 67 hitaeiningar i 100 gr. Raddir neytenda Strætisvagnafargjöid of há Nú þegar umtalsverð lækkun rekstur. Það er ekki rökrétt því hefur orðið á bensíni og dísilolíu að um leið og bifreiðareigandi á sl. sex mánuðum er spurt: Hve- sparar um 15-20 þús. kr. ætti nær lækkar í strætó? Eins og er lækkun fargjalds að vera 5 kr. eða þá er mun ódýrara að reka einka- 20 kr. í stað 25 kr. Annað er ekki bifreið nú en fyrir sex mánuðum sanngjamt. Ps.: Verð á dísilolíu í en samt hafa fargjöld ekki lækkað, dag er kr. 8,80 en komst hæst í sennilega til þess að geta notað 12,10 skv. uppl. frá olíusölu hér í mismuninn í aðeins minni halla- bæ. -RóG Móða til mæðu Guðrún hringdi: „Getur einhver sagt mér hvemig ég get losnað við móðu sem hefur myndast á milli rúðanna hjá mér? Þetta er svo ansi hvimleitt og vil ég losna við þetta hið snarasta. Mér hefur verið bent á að láta bora göt á rúðumar og þannig fari móðan en hver tekur þannig við- gerðir að sér? -RöG. Sumargóðgæti Hér fara á eftir þrjár uppskriftir að gómsætum ávaxtaréttum sem gott er að eiga í kæliskápnum: Ávaxtaskál 1 bolli bláber 1 bolli jarðarber 2 bollar vel þroskaðar pemr 1 bolli steinlaus vínber 1 kiwiávöxtur 1 fema ávaxtaþykkni, appelsínu eða ananas Blandið ávöxtunum saman, nema kiwiávextinum. Bætið þykkninu var- lega út í ávextina. Skreytið barma skálarinnar með kiwisneiðum og nokkrum laufum af ferskri myntu. Jarðarberja- og ananasdraumur 1 bolli jarðarber 1 bolli ósætur ananas 1 salathaus 1 bolli ávaxtajógúrt Raðið salatblöðunum á kringlótt fat. Ananasinn er skorinn í sneiðar og lát- inn á miðjuna og jarðarberjunum raðað i kring. Berið jógúrtina fram i skál sem idýfú. Dýfið hverjum bita fyrir sig í jógúrtina um leið og þetta er borðað. Sólskinsdiskur 1 appelsina 1 bolli jarðarber 1 bolli vel þroskuð pera 'A bolli kotasæla Berjasúpan er borin fram í fallegri glerskál og diskurinn undir henni skreyttur með melónum og jarðarberjum. Skerið ávextina í litla bita og blandið saman við kotasæluna. Látið i skál og berið fram skreytt með steinselju- kvist eða myntublöðum. -A.BJ. Sótthreinsandi servíettur Á ferðalögum, á hótelum, jám- brautarstöðvum eða bara hvar sem er kemur maður inn á salemi sem §öldi fólks notar á degi'hverjum. Núorðið þarf ekki að útskýra mjög náið hvers kyns bakteríur og óhreinindi geta borist á milli manna af klósettsetum eins mikið og fjallað hefur verið um þau mál. Flestir sem koma inn á almenn- ingssalemi hafa hingað til notast við salernispappírinn til að strjúka af klósettsetum áður en sest er á þær eða umlykja setuna pappím- um. Nú er komin sniðug lausn á þessu máli, nefnilega sótthreins- andi servíettur sem drepa alla helstu sýkla og bakteríur sem kynnu að hreiðra um sig á klósett- setunum. Lítið fer fyrir hverju servíettubréfi þannig að þægilegt ætti að vera að bera þau á sér. Það er heildverslunin Stormur sem flytur þessa vöru inn og kost- ar hver pakki með tíu servíettu- bréfúm 75 kr. í heildsölu. -RóG.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.