Dagblaðið Vísir - DV - 11.07.1986, Blaðsíða 32
44
Sviðsljós
>
>
Ólyginn
sagði....
Gary Lineker,
breska knattspyrnustjarnan
sem varð markakóngur nýaf-
staðins heimsmeistaramóts,
gifti sig um daginn. Lineker,
sem orðinn er 25 ára, hefur
verið seldur til Barcelona á
Spáni fyrir rúmar 190 millj-
ónir króna og því munu
brúðhjónin eiga fáa hveiti-
brauðsdaga, hann þarf að
mæta í vinnuna. Lineker
giftist æskuást sinni, Mic-
helle Cockayne, og fór
vígslan fram í Leicester en
með samnefndu liði lék
Lineker forðum. Múgur og
margmenni safnaðist saman
fyrir utan kirkjuna til að óska
brúðhjónunum til hamingju
og þurftu þau á lögregluað-
stoð að halda til að komast
niður kirkjutröppurnar.
Bette Davis,
hin 76 ára gamla kvik-
myndastjarna, hefur látið frá
sér þá athugasemd að hún
ætli ekki að gifta sig aftur.
Hún segir sjálf að hún hafi
aldrei hitt þann eina sanna
þó hún hafi verið gift fjórum
sinnum. Henni finnst fjórar
áranguslausar tilraunir vera
nóg og er hér með hætt að
reyna.
Hussein
er nýorðinn nágranni Eng-
landsdrottningar. Hann
keypti Buckhurst Park Estate
fyrir 285 milljónir króna en
húsið á landareigninni snýr
út að Great Windsor Park.
Þar sem konungurinn á sér
marga óvini og er af mörg-
um talinn hin ákjósanlegasta
skotskífa vill hann gera mikl-
ar varúðaráðstafanir. Hus-
sein vill fá varðliðasveitir,
gráar fyrir járnum, og raf-
straumsgirðingu kringum
alla landareignina. íbúar
héraðsins eru mjög
áhyggjufullir og telja hérað-
ið geta orðið skotmark
hryðjuverkamanna og vett-
vang allskyns óhæfuverka
vegna þessa nýja sveitungs
síns.
A Italíu er Maradona umvafinn lögreglu og lifvörðum allan sólarhringinn.
Frægasti, dýrasti og besti knatt-
spymumaður heims heitir Diego
Armando Maradona, á því leikur lít-
ill vafi. Stjarna þessa 25 ára undra-
bams hefur sjaldan skinið skærar en
einmitt nú, að lokinni heimsmeist-
arakeppninni í knattspymu. Mara-
dona var fyrirliði heimsmeistara
Argentínu og efast flestir um að liðið
hefði náð svo langt ef hans hefði
ekki notið við. Hann hefur þó ekki
sloppið við gagnrýni og segja ýmsir
hann vera óheiðarlegan og montinn.
Benda menn einkum á fyrra mark
hans gegn Englandi því til sönnun-
ar. Maradona kippir sér þó ekkert
upp við slíkar raddir enda fylgir vel-
gengni ávallt töluverður hópur
öfundarmanna. Maradona leikur
með Napolí á Italíu og þar í borg er
hann nánast í dýrlingatölu. Hann lék
áður með Barcelona frá Spáni en var
seldur fyrir stórfé.
Mafían og borgarstjórnin
slógu saman
í Napolí em glæpaverk tiðari en
víðast hvar annars staðar, fátækl-
ingum fjölgar og félagslegt ástand
borgarinnar er hið ömurlegasta.
Mafían hefur geysisterk ítök þar í
borg sem ekki er til að bæta ástand-
ið. Þó að fullur fjandskapur hafi ríkt
á milli mafíunnar og borgarstjómar
Napolí náðist þó samkomulag um að
kaupa besta knattspymumann ver-
aldar til heimaliðsins í von um að
árangur þess myndi batna. Kaup-
verðið var í kringum 450 milljónir
króna.
Kaupin hafa gert sitt gagn
Ýmsum kann að þykja það ámælis-
vert að á meðan fólk hefur ekki í sig
og á skuli slíku stórfé eytt í einn leik-
mann. En fólkið vill víst brauð og
leiki og í Napolí virðast leikimir
vera mikilvægari. Glæpatíðni hefur
minnkað og menn verða ekki eins
áþreifanlega varir við fátæktina.
Fólkið hefúr fengið eitthvað til að
standa saman um, til að vera stolt
af, og margir fórna matarpeningun-
um til að komast á völlinn. Tnirækni
hefur einnig aukist í borginni enda
er Maradona mjög trúaður. Áður en
hann hélt til Mexíkó fékk hann
áheym hjá páfanum og blessun hans.
„Þú ert þekktari en ég,“ sagði páfinn
við Maradona sem sagðist vonast til
að geta glatt fólk með náðargjöf
sinni, knattspymunni. Hans heilag-
leiki hvatti Maradona að auki til að
giftast kærustu sinni, Juanitu, enda
ekki talið æskilegt í kaþólskri trú
að fólk búi saman án þess að vera
gift. Hvort sem samtalið við páfann
gerði útslagið eða ekki þá ætla þau
skötuhjúin að láta pússa sig saman
nú fljótlega eftir heimsmeistaramó-
tið.
Gleymir ekki fjölskyldunni
Maradona hefur ekki gleymt fjöl-
skyldunni þrátt fyrir frægðina. Stór
hluti peninganna, sem hann þénar,
rennur til fjölskyldunnar í Argent-
ínu. Þegar hann hafði gert stórsamn-
inginn við Barcelona 1982 var það
hans fyrsta verk að kaupa bíl fyrir
pabba sinn og sá var ekki af verri
endanum, Mercedes Benz. „Ég
gleymi ekki æsku minni þegar pabbi
vann myrkranna á milli til að ég og
systkini mín 8 hefðum nóg að bíta
og brenna."
1 Napolí lifir Maradona umvafinn
lífvörðum og lögregluþjónum. í Arg-
entínu getur hann hins vegar slapp-
að af og farið í veiðiferðir með
Juanitu og bræðrum sínum. Hann
getur jafnvel gengið um götur fá-
tækrahverfa Buenos Aires og talað
við gömlu vinina sína, verið Diegito
aftur. Þó hann sé orðinn ríkur og
frægur man hann eftir vinum sínum
sem hann ólst upp með i fátækra-
hverfunum. Hann er átrúnaðargoð
fátæklinganna, bæði á Ítalíu og í
Argentínu, maðurinn sem braust úr
fátæktinni til frægðar og frama.
n
Er Maradona óheiðarlegur svindlari eða gerðist atvikiö í hita leiksins?