Dagblaðið Vísir - DV - 11.07.1986, Blaðsíða 16
16
FÖSTUDAGUR 11. JÚLl 1986.
Spumingin
Hvernig finnast þér
íslenskir ökumenn?
Lárus Lúðvíksson iðnrekandi: Ég
treysti mér ekki til að svara því,
vegna þess að ég hef enga viðmiðun.
Gunnar Jónsson fiskifræðingur:
Hroðalegir og ég er sennilega verst-
ur.
Agnar Markússon sjómaður: Ja, nú
er það, mér finnst þeir bara þokka-
legir.
Kjartan Birgisson birgðastjóri: Eru
þeir ekki bara ágætir þegar þeir loks-
ins gefa réttinn?
Árni Stefánsson kennari: Þeir eru
auðvitað ákaflega misjafnir en ég
held nú samt að megnið af þeim séu
kurteisir.
Egill Jóhannsson sjómaður: Ekki
verri en aðrir ökumenn, þó eru þeir
verstir í Reykjavík því allir eru að
flýta sér.
Lesendur
Reiðir og langþreyttir
hjúkrunarfræðingar
Hjúkrunarfræðingar skrifa.
Við erum hér nokkrir hjúkrunar-
fræðingar sem vilja gera athuga-
semdir vegna greinar Davíðs
Gunnarasontir, forstjóra Ríkisspítal-
anna, í DV 26. júni. Þessi grein vakti
mikla reiði og furðu hjá okkur.
Ef Davíð ætlar sér að gera allt til
að manna ríkisspítalana með hjúkr-
unarfræðingum þá er aðeins ein leið
til þess og hún er mjög einföld. Að
borga okkur mannsæmandi laun,
laun sem við getum lifað af, það
getum við ekki í dag.
Davíð talar um að landsbyggðin
„plokki" hjúkrunaríiræðinga frá
Reykjavík. Ástæðan er aðeins ein,
hjúkrunarfræðingar geta lifað af
launum sínum þar. Mörg dæmi eru
um að laun hjúkrunarfræðinga séu
meira en helmingi hærri þar en hér
í Reykjavík. Við hjúkrunarfræðing-
ar erum orðnir láglaunastétt hér í
Reykjavík miðað við landsbyggðina.
Við trúum því ekki að ekki sé hægt
að greiða okkur hærri laun. Við
getum ekki hjúkrað af hugsjón einni
saman, við þurfum einnig að geta
brauðfætt okkur og okkar fjöl-
skyldu. Ekki má gleyma því að fjöldi
hjúkrunarfræðinga eru einir um að
framfæra sig og sín böm, við erum
ekki allir giftir, það er svo langt í frá.
Ef laun okkar verða ekki lagfærð,
og það verulega, stefhir í enn meira
neyðarástand á spítölunum, þá kem-
ur að allsherjaruppsögnum og hvað
þá?
Við skorum á þig, Davíð Gunnars-
son, og ykkur hina karlmennina,
sem skammtið okkur sultarlaun,
borgið okkur mannsæmandi laun,
þá fáið þið nóg af hjúkrunarfræðing-
um til starfa. Lausnin er ekki að
mennta hjúkrunarfræðinga á færi-
bandi því þeir koma ekki í vinnu
upp á þetta skítakaup. Eins og er
er til nóg af hjúkrunarfræðingum í
landinu en þeir koma ekki til vinnu
vegna smánarlauna.
Við skorum á þig, Davíð Gunnars-
son, upplýstu okkur, gjaman með
svarbréfi í DV. Hvað hefur þú í laun?
Hugleiddu vandlega hvort þú mynd-
ir treysta þér til að framfleyta þér
og þínum á skitnum 30.000 krónum
á mánuði.
Við vonumst eftir svari frá þér,
Davið.
Bréfritari segir að kaup hjúkrunarfræðingar í Reykjavík sé allt of lágt.
Rikshaw, besta hljómsveit landsins
Ein að norðan skrifar.
Ástæðan fyrir því að ég skrifa er sú
að ég vil þakka drengjunum í Rikshaw
fyrir tónleikana sem þeir héldu á Ak-
ureyri í júní. Ég er sammála Gurrý sem
skrifaði í DV þann 1. júlí sl. og sagði
að Rikshaw væri besta hljómsveit
landsins. Ég sá Rikshaw í Höllinni á
Listapoppi og vom þeir bestir íslensku
hljómsveitanna og þeir vom ekkert
verri en Fine Young Cannibals,
Simple Red og hinar hljómsveitimar.
Rikshaw flytja vandaða og góða tón-
list sem maður getur hlustað á án
þess að fá leið á þeim. Þeir flytja ekki
svona væl eins og Duran Duran og
Wham. Ég vil svo sannarlega mót-
mæla því, eins og Gurrý gerði í sinu
bréfi, sem tveir strákar sögðu að Riks-
haw hefðu verið lélegir í Höllinni.
Þetta er alrangt. Þeir vom æðislegir.
Rikshaw eiga svo sannarlega skilið
að vera kölluð besta hljómsveit lands-
ins. Það sem sannar þetta em öll lögin
sem komust inn á vinsældalista rásar
2. Fólk færi ekki að biðja um lag með
hljómsveitinni ef hún væri ekki góð.
Mér finnst ekki rétt af fólki að vera
að rakka þá niður. Rikshaw, ég vona
að þið látið þetta ekki á ykkur fá,
haldið þessu endilega áfram. Aðdáend-
ur ykkar munu styðja við bakið á
ykkur og þeir em fleiri en ykkur getur
gmnað. Vonandi komið þið aftur til
Akureyrar.
Ég vil nota tækifærið og þakka
starfsfólki og stjóm rásar 2 fyrir æðis-
legt útvarp, sérstaklega þeim sem sjá
um morgunþættina og vinsældalist-
ann.
Stillið brennívíns-
drykkjunni í hóf
Hestavinur skrifar:
Ég hef umgengist hesta í 40 ár og
veit því með vissu að brennivín og
hestar eiga ekki saman. Undanfarið
hef ég orðið mikið var við að dmkkið
fólk er á hestbaki. Að mínu mati er
þetta fólk ekki dýravinir. Hestar em
gáfaðar og tilfinninganæmar skepnur
og þola illa að drukkið fólk umgangist
þá.
Ef ykkur hestafólki þykir vænt um
hestana ykkar og viljið að þeim líði
vel þá sleppið öllu áfengi. Það er ekki
aðeins betra fyrir hestana, það er líka
betra fyrir ykkur, þið munuð njóta
hestamennskunnar hundraðfalt betur.
Hljómsveitin Rikshaw á ekki skilið að vera rökkuð niður.
Hvar era kökuformin?
Karola Hængsdóttir hringdi.
Ég fór á matvælasýninguna sem var
í Laugardalshöll í sumar. Þar hitti ég
á konu sem var að selja kökuform og
pantaði ég hjá henni form. Mér var
sagt að ég fengi heimsendan gíróseðil
og síðan kæmu formin. Nú hefur ekk-
ert gerst og ég bíð enn eftir þessu.
Bamaafmæli er í vændum hjá mér og
bráðvantar mig því kökuformin. Ég
vil endilega komast í samband við
konuna, er einhver sem getur hjálpað?
40 ár í fangelsi
Sigriður skrifar
Ég vil þakka sjónvarpinu fyrir sjón-
varpskvikmyndina um fangelsisvist
Rudolfs Hess sem sýnd var mánudag-
inn 7. júlí. Ekki einungis var leikurinn
góður og handritið, heldur er aldrei
of oft minnt á hvemig Þjóðverjar fóm
með gyðinga í seinni heimsstyijöld-
inni. Eg vona að sjónvarpið sýni oftar
þætti sem þennan því við getum heilm-
ikið lært af þeim.