Dagblaðið Vísir - DV - 11.07.1986, Blaðsíða 11
FÖSTUDAGUR 11. JÚLÍ 1986.
11
Margrása kapalkerfi
á höfuðborgarsvæðinu
„Við erum að athuga ýmsa mögu-
leika sem tengjast þessu kerfi, en
endanleg stefna hefur ekki enn verið
tekin,“ sagði Páll Jónsson, tækni-
fræðingur hjá Pósti og síma, um
viðræður þeirra og sveitarfélaga á
höfuðborgarsvæðinu um dreifikerfi
fyrir sjónvarp.
Búið er að skipa samstarfsnefnd
þriggja aðila frá hvorum um sig og
hafa þeir hist til að ræða hugmyndir
um framkvæmd og eðli þessa sam-
starfs. Hér er aðallega um að ræða
að koma upp kapalkerfi sem leitt
gæti 30 sjónvarpsrásir, innlendar og
erlendar, auk þess sem slíkt kerfi
gæfi möguleika á sameiningu við hið
almenna símakerfi. Ef það yrði ofan
á opnast möguleikar á að einstakl-
ingar geti tengst tölvubönkum og
nýtt sér ýmsa tölvuþjónustu inn á
heimilunum.
Páll Jónsson sagði að aðalástæðan
fyrir þátttöku Pósts og sima væri að
ef af þessu yrði myndi það þjóna
mikilvægu hlutverki varðandi upp-
lýsinganetframtíðarinnar. „Svokall-
að breiðbandskerfi er framtíðarkerf-
ið sem ýmsar nágrannaþjóðir okkar
eru komnar vel á veg með að byggja
upp. Nú eru lögð rör í öll ný hverfi
og hvar sem skurðir eru grafnir á
annað borð leggjum við rör sem sér-
staklega eru gerð fyrir þessa kapla.
Þegar þar að kemur geta sveitarfé-
lögin eða fyrirtæki á þeirra vegum
dregið kapla í rörin. Gróflega áætlað
höfrim við reiknað út að 30 rása sjón-
varpskerfi myndi kosta hvem
notanda á bilinu frá 15 til 20 þúsund
í stofngjald, auk þess sem eitthvað
yrði að greiða sérstaklega fyrir
hverja dagskrá. Þessu myndi svo
fylgja möguleikamir á aukaþjón-
ustu, s.s. bankaþjónustu, öryggis- og
bmnavöm, svo eitthvað sé nefnt.
Möguleikamir em óendanlegir,"
sagði Páll að lokum.
Líklegt er að boðkerfið verði sam-
bland af kapalkerfi og þráðlausu
kerfi og að með ljósleiðurum Pósts
og síma verði möguleiki á að tengj-
ast sjónvarpsveitunni í gegnum
almenna símstöð. Sveitarfélögin em
nú í óða önn að undirbúa sig fyrir
að hefja starfcemi sjónvarpskerfa af
einhverju tagi og væntanlega skýrist
áður en langt um líður hvort um
víðtækara samstarf verður að ræða.
-S.Konn.
Balar sem búkkar og á þeim á hvíldi kraftmesti kagginn á Kópaskeri „framlappirnar'
DV-mynd JGH
DV á Kópaskeri:
Sá kraftmesti
Jón G. Hauksson, DV, Akuxeyxi
Kraftmesti bíllinn á Kópaskeri er
kaggi, Ford Torino, árgerð 1971. Hann
var með „framlappirnar" uppi á tveim
bölum á dögunum og eigandinn, Pétur
Valtýsson, var að gera við hann.
„Ég er að laga stýrisendana," sagði
Pétur um þennan kraftmikla farkost
sinn. „Hann er farinn að eldast en
stendur sig samt mjög vel.
Torinoinn geymir 225 hestafla vél
undir húddinu, upphaflegu vélina.
Hann leikur sér samt enn að því að
fara upp í löglegan hraða yfirvalds-
ins... og vel það.
DV á Þorshofn:
í sól hjá ömmu
Jón G. Haukssan, DV, Aknxeyxi
„Amma okkar býr hér og er að viðra
stólana og við notuðum auðvitað
tækifærið og laumuðum okkur í sól-
bað,“ sögðu þær frænkur, Karen Rut
Konráðsdóttir og Valdís Beck Jóns-
dóttir á Þórshöfh.
„Við pössum í leiðinni að engu verði
stolið," bættu þær við hlæjandi. í
sólskinsskapi stöllumar.
Karen Rut býr á Þórshöfn en Valdís
Beck á Reyðarfirði. „Amma kom í
heimsókn til Reyðarfjarðar og ég snar-
aði mér með henni þegar hún fór heim
aftur."
Broshýrar frænkurnar, Karen Rut Konráösdóttir (tv) og Valdís Beck Jónsdótt-
ir. „Amma er að viðra stólana." DV-mynd JGH
Jón Magnússon, flugvallarvörður á Raufarhöfn, við flugvélina sem nokkrir
Raufarhafnarbúar keyptu til að læra að fljúga á. Það er ftogið nánast eins og
hægt er að bjóða flugkennaranum. DV-mynd JGH
DV á Raufarhofn:
Flugið er della
Jón G. Hankssan, DV, Akuieyii;
Mikill áhugi er á flugi á Raufarhöfri,
svo mikill að hópur fólks þar tók sig
til og keypti flugvél til að læra kúnst-
ina. Flugkennarinn kemur að sunnan
og hefur í nógu að snúast, það er flog-
ið nánast eins og hægt er að bjóða
honum.
„Það er geysimikill flugáhugi hjá
þessum hópi sem samanstendur af um
átta manns, bæði konum og körlum,"
sagði Jón Magnússon, flugvallarvörð-
ur á Raufarhöfh.
Jón leysir af á flugvellinum á sumr-
in. Hann er skólastjóri bamaskólans
á vetuma. „Völlurinn hér er mjög
góður, 1200 metrar og tvær brautir,
enda fellur sárasjaldan niður flug
hingað til Raufarhafnar."
Úrval
við allra hœfi
Þverholti 11
Síminner
27022
STIMPLAR
SLÍFAR OG HRINGIR
IAMC
| Buick
i BMC dísil
j BMW
j Chevrolet
! Cortina
Datsun
jbensín— dísil
j Dodge
j Escort
Ferguson
! Fiat
c Ford
ÍD300 - D800|
Ford Traktor
Ford Transit
Ford USA
International
Isuzu dísil
Lada
Landrover
Mercedes
!Benz180 D
Mercedes
íBenz 220 D
Mercedes
Benz 240 D
Mercedes
Benz 300 D
Mercedes
Benz 314 D
Mercedes
Benz352 D
Mercedes
Benz 355 D
Perkins 3.152[
Perkins 4.108[
Perkins 4.203 í
Perkins 4.318 [
Perkins 6.354!
Peugeot
Pontiac
Range Rover
Renault
Saab
Simca
Subaru
Taunus
Toyota
Volvo bensin
— dísil
þJÓNSSON&COl
Skeitæi 17 s 8451^ — 845164
8451 6h
m
KJÖTMIÐSTÖÐIN
Laugalæk 2. Slmi 686511.
Minna en 1% fita.
Diet nautahakk 399,-
Nautahakk aðeins 250,-
5 kg. í poka.
Lambahakk 210,-
Kindahakk 185,-
Baconsneiðar 275,-
Baconstykki 199,-
Marinerað lambal. 310,-
Marineraðar lambakótel. 328,-
Marineraðar lambasn. 366,-
Marineruð lambasteik 218,-
Krydduð lambarif 126,-
Svínabógar, reyktir, 290,-
Nýr svínsbógur 247,-
Reykt svínalæri 295,-
Ný svínalæri 245,-
Svínarif 178,-
ítalskt gúllas 370,-
kr. kg.
Londonlamb, 1.fl„ 375,-