Dagblaðið Vísir - DV - 11.07.1986, Blaðsíða 35
FÖSTUDAGUR 11. JÚLl 1986.
47
Peter Fonda (fyrir miðju) er ungur og metnaðargjarn i hitasvækjunni.
Útvarp - sjónvarp
Föstudagsmyndin:
í hftasvækju
Föstudagsm>Tidin að þessu sinni
fíallar um lífið á fenjasvæðunum syðst
á Flórídaskaga. Þar búa draumóra-
menn, flakkarar og fleira fólk. Á meðal
þeirra er ungur þorpsbúi sem hefiir
þann einan metnað að verða fiskilóðs
hjá ferðamönnum, en hann mætir
harðri mótspymu gamalreynds,
drykkfellds fiskimanns. Myndin er
tekin í Key West og fjallar um sam-
skipti manna á þessum sérstæða stað.
Þama mótast líf fólksins og skap af
illbærilegri hitasvækjunni sem liggur
yfir öllu eins og mara.
Kvikmyndahandbókin gefur þessari
mynd þrjár og hálfa stjömu og lofar
frammistöðu leikaranna. Peter Fonda
(bróðir Jane og sonur Henrys) fer með
hlutverk unga mannsins en Warren
Oates leikur þann gamla. Aðrir leikar-
ar, sem koma við sögu, em Burgess
Meredith, Louise Latham, Margot
Kidder og Sylvia Miles. Leikstjóri og
jafhframt höfúndur sögunnar er
Thomas McGuane.
Útvarp, rás 1, kl. 20.40:
Hitt og þetta
í Sumarvöku
I þættinum Sumarvöku, sem verður
á dagskrá útvarpsins í kvöld, er komið
víða við. Úlfar K. Þorsteinsson lýkur
við lestur sinn úr Gráskinnu hinni
meiri. Þessi síðasti lestur ber yfir-
skriftina Skiptapinn á Hjallasandi.
Síðan mun Sigríður Schiöth lesa ljóð
eftir Valdimar Hólm Hallstað. Einnig
mun karlakórinn Feykir syngja undir
stjóm Áma Jónssonar og Erlingur
Daviðsson flytur eigin frásögn sem
kallast Þegar hugsjónir fæðast. Um-
sjónarmaður Sumarvökunnar er
Helga Ágústsdóttir.
Sjónvarp kl. 21.05:
Hestur-
inn í
Kastljósi
I Kastljósi í kvöld verður íjallað um
hestamál. Þar verður rætt um nýaf-
staðið landsmót hestamanna á Hellu
og möguleika á sölu íslenska hestsins
til Bandaríkjanna. íslenski hesturinn
hefur verið boðinn velkominn á fræga
hestasýningu þar vestra og telja marg-
ir að með þessari sýningu muni nýr
og stór markaður opnast fyrir hestinn
okkar.
íslenski hesturinn verður aðalumræðuefnið f Kastljósi f kvöld.
Veðrið
í dag verður hægviðri um mestallt
landið, sunnanlands og vestan verður
skýjað að mestu, léttskýjað á Austur-
landi og víða norðanlands léttir til
þegar kemur fram á daginn. Hiti verð-
ur víðast á bilinu 8-14 stig, þó enn
hlýrra sums staðar á Norður- og Aust-
urlandi.
Akureyri skýjað 7
Egilsstadir léttskýjað 9
Galtarviti alskýjað 6
Hjarðames léttskýjað 9
Keflavíkurfíugvöllur alskýjað 10
Kirkjubæjarklaustur skýjað 10
Raufarböfn alskýjað 4
Reykjavík alskýjað 10
Sauðárkrókur skýjað 8
Vestmannaeyjar skýjað 9
Útlönd kl. 6 í morgun:
Bergen léttskýjað
11
Helsinki rigning 12
Kaupmannahöfn léttskýjað 13
Osló skýjað 12
Stokkhólmur hálfskýjað 15
Þórshöfn skýjað 8
Útlönd kl. 18 í gær:
Aigarve heiðskírt 18
Amsterdam skýjað 14
Aþena
Barcelona þokumóða 21
(Costa Brava)
Berlín skýjað 11
Chicago alskýjað 21
Feneyjar
(Rimini/Lignano)
Frankfurt rigning 14
Glasgow mistur 7
LasPalmas
(Kanaríeyjar)
London rigningsíð- 14
ustu klst.
LosAngeles skýjað 18
Lúxemborg rigningog 13
súld
Madrid léttskýjað 19
Malaga þokumóða 19
(Costa Del Sol)
MaUorca léttskýjað 16
(Ibiza)
Montreal léttskýjað 10
Gengið
Gengisskráning nr. 128 - 11. júii
1986 kl. 09.15
Eining kl. 12.00 Kaup Sala Tollgengi
Dollar 41.260 41.380 41.270
Pund 62,732 62.544 63.726
Kan. dollar 29.960 30,048 29,713
Dönsk kr. 5.0680 5.0828 5.0680
Norsk kr. 5.4766 5.4925 5.5038
Sænsk kr. 5.7970 5.8138 5,8000
Fi. mark 8,0973 8.1209 8.0787
Fra. franki 5.8926 5,9097 5,8945
Belg. franki 0,9189 0.9216 0.9192
Sviss. franki 23.1473 23,2146 23,0045
Holl. gyllini 16.7942 16.8430 16,6849
V-þýskt mark 18.9179 18,9729 18.7945
it. lira 0,02756 0.02764 0,02736
Austurr. sch. 2.6910 2.6988 2,6723
Port. escudo 0,2769 0.2777 0.2765
Spá. peseti 0,2972 0,2980 0.2942
Japansktyen 0,25627 0,25702 0.25180
írskt pund 56,912 57.078 56.781
SDR (sérstök
dráttar-
réttindi) 48.7782 48.9203 48,5165
ECU-Evrópu- 40,4492 40.5669 40,3765
mynt
Belgiskur fr.fin 0.9133 0.9160 0,9105
Simsvari vegna gengisskráningar 22190.
MINNISBLAÐ
Muna eftir
að fá mer
eintak af
r
TM "BP Timarit f>TÍr alla V
Urval