Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.1986, Side 5
MÁNUDAGUR 21. JÚLÍ 1986.
5
Laxá og Bæjará:
• •
Ossur fékk
engan
Veiöimennirnir við Bæjará með aflann: Lúðvík Geirsson, Þröstur Elliðason og
Össur Skarphéðinsson sem glottir að tregðu fisksins.
DV-mynd G.Bender
„Þetta er þægilegt og mikið labb
héma, gott veiðihús og gaman að vera
hér við veiðar," sagði Össur Skarp-
héðinsson eftir að veiðitúmum í Laxá
og Bæjará lauk um helgina. Ritstjóri
Þjóðviljans hefur látið ýmislegt íjúka
um átökin í Alþýðubandalaginu og
það hefúr gustað um hann. En Össur
Skarphéðinsson er veiðimaður og hef-
ur gaman af að renna fyrir lax og
silung enda doktor í fiskeldi. Hann
stóð upp úr stólnum „ó“mjúka og
renndi í Laxá og Bæjará.
Laxá og Bæjará hafa gefið 5 laxa, 4
bleikjur og 1 urriða, enda veiðin rétt
að byrja og lítið af fiski komið ennþá.
Laxáin lætur ekki mikið yfir sér þessa
dagana hvað fisk snertir en nokkrir
laxar em í Bæjará og veiddust einn
og þijár bleikjur.
Nýju veiðihúsi hefur verið komið
fyrir við Laxá og er þetta eitt það
skemmtilegasta sem undirritaður hef-
ur gist í. Það ætti ekki að væsa um
veiðimenn í þvi.
G.Bender
32 punda
laxinn sem
aldrei veiddist
Þær sögur hafa gengið fjöllunum
hærra norðan heiða að veiðimaðurinn
Páll A. Pálsson hafi fengið 32 punda
lax í Skjálfandafljóti fyrir skömmu.
„Þetta er allt meiri háttar vitleysa
og ég hef ekki veitt neinn 32 punda
fisk,“ sagði Páll A. Pálsson á Akur-
eyri er við höfðum samband við hann
í gær.
„Við vorum að veiða í Skjálfanda-
fljóti og veiddum vel, fengum kvótann
og svo gerðum við annað, hreinsuðum
laxastiga í Djúpá. Svo komum við aft-
ur á mánudaginn og þá er það fyrsta
sem við sjáum að skrifað hefur verið
í veiðibókina að Páll póstur hafi feng-
ið 32 punda lax, hæng, og allt fært inn
í bókina annað, hitastig og vatnshit>
inn líka, svo þetta leit mjög vel út.
Palli póstur á líklega að vera ég, alla
Veiðivon
Gunnar Bender
vega er sagt að það sé ég. Við látum
þetta vera og svo kemur veiðimaður
til veiða daginn eftir og sér þetta, 32
punda fiskur, og þannig kemst þetta á
kreik. Þetta er tómt kjaftæði og eins
og að gera úlfalda úr mýflugu, engan
stórlax hef ég veitt."
Víða
góð veiði
Veiðimenn fara víða til veiða þessa
dagana og fá margir góða veiði.
Laxá í Leirársveit hefur gefið 668
laxa og hafa veiðimenn fengið góða
veiði síðustu daga, erlendir veiðimenn
renna þessa dagana.
Stóra-Laxá í Hreppum hefur gefið
89 laxa og hafa veiðimenn aðeins séð
laxa í ánni síðustu daga en ekkert
mok hefur verið ennþá.
1185 laxar hafa veiðst í Þverá
(Kjarrá) og hefur veiðin aðeins verið
að batna í Kjarrá síðustu daga.
Laxá í Dölum hefúr gefið 400 laxa
og hafa erlendir veiðimenn veitt vel,
bandarískur veiðimaður sem var við
veiðar á fóstudag hafði veitt 12 laxa
þá um daginn og alla á flugu. Mikið
var af laxi í ánni.
Laxá í Kjós hefur gefið 470 laxa og
hafa bandarískir veiðimenn verið þar
við veiðar.
Veiðimenn, sem voru að koma úr
Soginu, sögðu 15 laxa vera komna af
Bílfellssvseðinu og sögðu ekki mikið
vera af laxi.
Fréttir
Kristján Thorlacius, fórmaður BSRB:
„Þorsteinn vill
eyðileggja BSRB og
aðildarfélög þess“
„Rakalaus fullyrðing," segir fjármálaráðherra
„Það er greinilega stefria fjár-
málaráðherra að rústa heildar-
samtök opinberra starfsmanna og
einstök félög þeirra. Þessi stefha
er reyndar í fullu samræmi við
fyrra starf hans sem framkvæmda-
stjóri Vinnuveitendasambands
íslands. Hann er með þessu að
þjóna hagsmunum atvinnurek-
enda eins og hann var þá. Samn-
ingurinn við lögreglumenn er liður
í þessari eyðileggingarstarfsemi
fjármálaráðherra,“ sagði Kristján
Thorlacius, formaður BSRB, í við-
tali við DV.
Kristján sagði að í febrúar heföi
fjármálaráðherra undirritað bók-
un um að skipa nefnd til að fjalla
um samningsrétt irrnan BSRB. í
þessa nefnd heföi ríkið ekki skipað
fyrr en nýlega. Á þeim vettvangi
ætti að fjalla um samningsrétt fé-
laganna en ekki að taka hann til
umfjöllunar eins og gert var hjá
lögreglumönnum.
„Þetta eru gjörsamlega raka-
lausar full>Tðingar og hafa ekki
við neitt að styðjast. Undir stjóm
þessarar ríkisstjómar hefúr aldrei
verið gengið eins langt í umfjöllun
um sanmingsrétt opinberra starfs-
manna. Ég lagði til í vetur að
samningsrétturinn yrði færður til
félaganna innan BSRB, sem hefúr
verið stefria BSRB, að minnsta
kosti í orði kveðnu.
Hins vegar bregðiu- svo við, þeg-
ar eitt aðildarfélagið gerir samn-
inga í þessum anda, að forystan
rís upp á afturlappimar og telur
þetta vera hina mestu ósvinnu.
Kristján Thorlacius getur ekki
ætlast til þess að ríkið haldi BSRB
uppi. Við viljum þó ekki á neinn
hátt leggja stein í götu samtak-
anna. Við viljum gjaman að það
séu til sterk heildarsamtök,“ sagði
Þorsteinn Pálsson fjármálaráð-
herra þegar ummæli Kristjáns
vom borin undir hann.
„Það er ekki rétt hjá fjármála-
ráðherra að hann sé að fram-
kvæma okkar stefnu. Við
kröíðumst þess að samnings- og
verkfallsréttiuánn yrði færður til
félaganna, líkt og hjá Alþýðusam-
bandinu, og þau fengju öll þann
rétt. Þorsteinn stefnir hins vegar
að samningsrétti til félaganna en
ekki fyrir t.d. löggæslumenn og
heilbrigðisstéttimar og það er
hans stefiia en ekki okkar,“ sagði
Kristján Thorlacius.
-APH
TVÖ FRÁBÆR FRÁ
AIWA*
Sérstakt tilboðsverð
fram að verslunarmannahelgi.
CS-W 220 stgr. krOörSæ
stgr. Kr. 9.990.-
Útvarp: LW-MW-FM stereo.
Magnari: 20 músíkvött.
Tvöfaldur upptökuhraði
milli segulbandstækja.
Auto laudness.
Viðstöðulaus
afspilun (Deckl Deck2)
Til í svörtu, silfurlitu og rauðu.
CA— 25 stgr. kr. 13^70'
stgr. Kr. 12.990.-
Útvarp: LW-MW-FM stereo.
Magnari: 32 músíkvött.
5 banda tónjafnari.
Lausir hátalarar.
Innstunga fyrir plötuspilara.
Auto laudness.
Til i svörtu, silfurlitu og rauðu.
D i
ÍXdOTÖ
Ármúla 38, símar 31133 og 83177,
og Garðatorgi 1, Garðabæ, sími 656611
AIWA