Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.1986, Síða 20
20
MÁNUDAGUR 21. JÚLÍ 1986.
íþróttir
• Guðmundur Torfason er hér felldur innan vítateigs Breiðabliks og vitaspyrna var dæmd. OV-mynd Brynjar Gauti.
„Mikilvægasti sigur okkar
í íslandsmótinu til þessa“
sagði Guðmundur Torfason sem skoraði bæði mörk Fram gegn UBK í 2-1 sigri
„Þetta var einn mikilvægasti sigur
okkar í mótinu til þessa. Blikamir
voru mjög erfiðir mótheijar, börðust
af miklum krafti og ég er mjög ánægð-
ur með sigurinn," sagði Guðmundur
Torfason Framari í samtali við DV
eftir leik Fram og Breiðabliks í 1. deild
í gærkvöldi. Framarar sigruðu, 2-1,
MEIRA
EN
VENJULEG
MÁLNING
STEINAKRÝL
hleypir raka mjög auöveldlega i
gegnum sig, tvöfalt betur en
heföbundin plastmálning.
STEINAKRÝL er mjög veðurheldin
málning og hefur frábært alkalíþol
og viöloöun viö stein.
STEINAKRÝL stendur fyrir sinu.
OS/VSIA
og tryggðu sér þar með fimm stiga
forskot í deildinni. Guðmundur Torfa-
son skoraði bæði mörk Fram í leiknum
og hefur nú skorað 13 mörk í 1. deild.
Framarar sóttu af miklu kappi í byrj-
un leiksins í gærkvöldi og það var
algerlega gegn gangi leiksins er Blikar
náðu forystunni á 16. mínútu. Rögn-
valdur Rögnvaldsson fékk þá laglega
sendingu inn fyrir vöm Fram og af-
greiddi knöttinn laust en laglega í
markið.
Guðmundur jafnar
Tíu mínútum eftir að Blikar náðu
forystunni jöfhuðu Framarar metin.
Guðmundur Torfason var felldur inn-
an vítateigsfsjá mynd) og vítaspyma
réttilega dæmd. Guðmundur tók hana
sjálfur en Öm Bjamason varði, hélt
hins vegar ekki knettinum sem kom
skoppandi til Guðmundar og þá urðu
honum ekki á nein mistökfsjá mynd).
Fyrri hálfleikur tæpar 50 mínút-
ur
Nokkuð var um tafir í fyrri hálfleik
og meiðsli leikmanna enda leikurinn
harður frá upphafi til enda. Eftir mark
Guðmundar sóttu liðin á víxl en Fram-
arar vom þó mun betra liðið. Minnstu
munaði á 49. mínútu að Guðmundi
Steinssyni tækist að skora. Skalli hans
eftir góða fyrirgjöf Péturs Ormslev fór
rétt fram hjá.
Rothöggið strax í byrjun
Strax í byrjun greiddu Framarar
Blikunum rothöggið. Á 2. mínútu fékk
Guðmundur Torfason knöttinn rétt
utan markteigshoms og þrumaði hon-
um í markið. Gullfallegt mark og 13.
mark Guðmundar í 1. deildinni. Til
loka leiksins vom Framarar mun betri
aðilinn og hefðu hæglega getað skorað
mun fleiri mörk.
Þorsteinn og Gauti góðir
Framliðið lék ágætlega á köflum í
þessum leik en mótspyman var mikil.
Ávallt erfitt að leika gegn liðum sem
beijast af jafnmiklum krafti og Blika-
liðið gerði í gærkvöldi. Þeir Þorsteinn
Þorsteinsson og Gauti Laxdal bám
nokkuð af hjá Fram í þessum leik en
Guðmundur Torfason var mikið í
sviðsljósinu að venju. Þá var Janus
sterkur en Pétur Ormslev hefur leikið
betur. Oft var hann óheppinn og um
tíma gengu hlutimir ekki upp hjá
honum á miðjunni. Hlutverk Péturs í
Framliðinu er stórt og ef hann „klikk-
ar“ bitnar það verulega á leik liðsins.
Pétur sýndi þó oft skemmtilega takta
í gærkvöldi. Jón Sveinsson lék einnig
mjög vel i vöminni og gerði ekki mis-
tök í leiknum. Framarar hafa nú fimm
stiga forskot í deildinni en sigur í
deildinni er þó langt undan og alltof
snemmt að spá liðinu íslandsmeistar-
atitli. Sex umferðir em eftir, barátta
um 18 stig sem án efa verður mjög
hörð.
Blikar börðust vel
Leikmenn Breiðabliks eiga hrós
skilið fyrir mikla baráttu i þessum leik.
Ef liðið berst af álíka krafti í næstu
leikjum kroppar það stig af andstæð-
ingum sínum en hvort það nægir til
að komast hjá falli í 2. deild skal ósagt
látið. Lið Breiðabliks getur leikið góða
knattspymu og í því era margir snjall-
ir leikmenn. Bestur í gærkvöldi var
Guðmundur Valur Sigurðsson.
Liðin: FVam. Friðrik, Þórður, Jón, Þor-
steinn, Viðar, Janus, Pétur, Kristinn,
Gauti, Guðmundur og Guðmundur.
Breiðablik. Öm, Ólafur, Heiðar, Ingjaldur,
Magnús, Jón Þórir, Helgi (Hákon), Rögn-
valdur, Gunnar (Þorsteinn G.), Guðmund-
ur Valur og Guðmundur.
Benedikt Guðmundsson lék ekki með í
gærkvöldi, hann var í leikbanni.
• Leikinn dæmdi Ólafur Lárusson ágæt
lega. Hann sýndi þeim Guðmundi Val og
Heiðari Heiðarssyni UBK gula spjaldið.
Áhorfendur 971.
Maður leiksins: Þorsteinn Þorsteinsson,
Fram. -SK.
• Og hér er Guðmundur Torfason að skora fyrra mark sitt i gærkvöldi. öm Bjarnason varði vítaspyrnu Guðmundar
en hér þrumar Guömundur knettinum í markið eftir að hafa fengið hann aftur. DV-mynd Brynjar Gauti.
Ragnar Ólafsson, GR, setti í gær nýtt
vallarmet á Hólmsvelli í Leira er harui lék
18 holumar á 70 höggum í opna Hagkaups-
mótinu sem fram fór syðra um helgina.
Ragnar sigraði í keppni án forgjafar al' gul-
um teigum og lék á 144 höggum. Annar
varð Sveinn Sigurbergsson GK á 148 högg-
um og þriðji Gylfi Kristinsson GS á 150
höggum.
í íjórða til fimmta sætí urðu þeir Björgvin
Þorsteinsson, GR, og Úlfar Jónsson, GK, á
152 höggum. Jafriir í sjötta til sjöunda sæti
urðu þeir Páll Ketilsson, greindur golfari
úr GS og Sigurður Hafsteinsson, GR, á 154
höggum. Hilmar Björgvinsson lék á 155
höggum og þeir Sigurður Sigurðsson, GS,
og Einar L. Þórisson, GR, vora á 156 högg-
um.
Ragnar hlaut í verðlaun 25 þúsund króna
vöraúttekt hjá Hagkaupum, Sveinn 15 þús-
und og Gylfi 10 þúsund.
•I keppni með forgjöf af hvítum teigum
sigraði Stefán Sæmundsson, GR, á 132 hqgg-
um nettó. Annar varð Guðmundur Sigur-
jónsson, GS, á 133 höggum og þriðji
ögmundur Ögmundsson, GS, á 135 höggum.
Stefán hlaut 20 þúsund króna vöraúttekt
hjá Hagkaupum, Guðmundur 12 þúsund og
Ögmundur 9 þúsund.
• Marteinn Guðnason, GS, vann sér inn
10 þúsund vöraúttekt hjá Hagkaupum með
þvi að leika á bestu skori af hvítum teigum.
Marteinn lék á 153 höggum.
Lögreglustjórinn við holubarminn
Lögreglustjórinn á Keflavíkurflugvelli,
Þorgeir Þorsteinsson, GS, var nálægt því
að fara holu í höggi á 13. braut. Kúlan stað-
næmdist þijá sentímetra frá holubarminum.
Þá var Marteinn Guðnason, GS, aðeins átta
sentímetra frá því að fara holu í höggi á
8. braut.
•Alls tóku 116 keppendur þátt í mótinu
sem tókst í alla staði mjög vel hjá þeim
Suðumesjamönnum. -SK.
Víkingur og KR
i sigurvegarar
I Úrslitakeppni pollamóts Eimskips og KSÍ
I fór fram um helgina. Vikingar sigruðu í
■ keppni A- liða en KR-ingar í keppni B-liða.
I Nánar verður sagt frá mótinu á unglinga-
| síðunni nk. laugardag.
j Brons hjá Magnúsi
IMagnús Ver Magnússon frá Seyðisfirði
vann til bronsverðlauna á EM unglinga í
I kraftlyftingum en mótið fór fram í Englaridi
■ um helgina. Magnús keppti í 110 kg flokki
I og lyfti samtals 737,5 kg sem er nýtt ungl-
_ ingamet. Hann setti einnig unglingamet í
| bekkpressu og lyfti þar 182,5 kg. -SK.
! Bandaríkjamenn
! heimsmeistarar
| Bandaríkjamenntryggðusérígærheims-
Imeistaratitilinn í körfuknattleik með því
að sigra erkifjendurna Sovétmenn í úrslita-
I leik með 87 stigum gegn 85. Staðan í leikliléi
■ var 48-38 þcim bandarísku í viL Júgóslavar
| höfnuðu í þriðja sæti og Brasilíumenn í því
| fióráæ _SK.
I
I Staðan eftir leiki helgarinnar í 1. deild:
I Víðir-Akranes....................2-2
IFH-KR..............................0-0
ÍBV-Þór.........................1-2
| Fram-UBK........................2-1
| Fram............12 9 2 1 27-7 29
1 Keflavík........12 8 0 4 15-14 24
I Valur...........12 7 2 3 18-5 23
_ Akranes.........12 5 3 4 19-12 18
I Þór.............12 5 2 5 16-21 17
IKR................12 3 6 3 13-9 15
FH.............12 4 2 6 17-20 14
IVÍðir.............12 3 3 6 9-16 12
Breiðablik.....12 3 2 7 9-22 11
I Vestmannaeyjar .12 1 2 9 10-27 5
■ -SK.
ftn irrt-- mmm mmm mmm mmm mmm mmm mam I