Dagblaðið Vísir - DV - 22.08.1986, Blaðsíða 18
18
FÖSTUDAGUR 22. ÁGÚST 1986.
Iþróttir
Danir tóku boði sem
íslendingar höfnuðu
- völdu mót á Spáni frekar en BaKic Cup
„Við höfðum ekki efrii á að
hafha þessu góða boði frá Spán-
verjum,“ sagði Leif Mikkelsen,
landsliðsþjálfari Dana í hand-
knattleik. Leif valdi frekar að fara
með leikmenn sína á mót í Barce-
lona heldur en taka þátt í Baltic
Cup sem fer fram í A-Þýskalandi.
Þess má geta að íslendingum var
boðið að taka þátt í mótinu á Spáni
sem fer fram í janúar. HSÍ valdi
frekar að fara til A-Þýskalands á
Baltic Cup sem verður dagana 19.
til 25. janúar. Þegar Islendingar
neituðu snéru Spánverjar sér til
Dana sem völdu frekar að fara til
Barcelona en á Baltic Cup.
Ástæðan fyrir því að Danir völdu
frekar Barcelona er að þar leika
heimsmeistaramir frá Úngverja-
landi og ólympíumeistarar Júgó-
slava sem eiga sterkustu landslið
heims.
í Baltic Cup, eða Eystrasalts-
keppninni, keppa Rússar, Pólveij-
ar, V-Þjóðveijar, íslendingar,
Svíar og A-Þjóðverjar.
Pólveijar og Rússar eru nú að
byggja upp ný landslið. Leif Mikk-
elsen taldi því mótið á Spáni vera
sterkara en mótið í A-Þýska-
landi.
-SOS
• Úr leik íslands og Sviss i gærkvöldi.
Tvö mörk á
tveimur mínútum
- og Sviss sigraði ísland, 1-3
Tvö svissnesk mörk á tveimur mín-
útum gerðu út um möguleika á ís-
lenskum sigri er ísland og Sviss léku
landsleik í kvennaknattspymu í Laug-
ardal í gærkvöldi. Sviss sigraði, 1—3,
eftir að staðan hafði verið 1-2 í leik-
hléi.
Kristín Amþórsdóttir náði að
Keflvíkmgar
misstu stigin
Dómstóll Knattspymusambands
Islands staðfesti í gær dóm sem
dómstóll íþróttabandalags Suður-
nesja kvað upp fyrir skömmu þess
efriis að Keflvíkingar hafi notað
ólöglegan leikmann í liði sfnu í
leik í 1. deild gegn Víði, Garði.
í héraði var leikurinn dæmdur
Keflavík tapaður, 0-3, og félagið
auk þess dæmt til að greiða 65
þúsund krónur í sekt. Dómstóll
KSÍ lækkaði sektina í 8.775 krónur
en að öðru leyti stendur dómur
Suðumesjamanna. Máh þessu er
þar með lokið.
-SK
Nú hefjast námskeiðin I falMffasstökki aftur.
Fyrsta flokks kennsla frá upphafi til enda.
Einungis er kennt á fullkomnasta útbúnað sem völ er á.
Allar nánari uppl. gefnar í síma 72732 milli kl. 18 og 20 virka
daga.
Watson
til Everton
Everton féllst að lokum á að
greiða milljón pund, eða rúmlega
60 milljónir kr„ fyrir landsliðs-
miðvörðinn Dave Watson hjá
Norwich. Hann mun að öllum
líkindum leika með Everton á
móti Nottingham Forest í 1.
umferð ensku deildarkeppninnar
á morgun. Mikil meiðsli hafa
hijáð vamarmenn Everton að
undanfomu og taldi því fram-
kvæmdastjórinn Howaid Kendal
nauðsynlegt að kaupa Watson.
-SMJ
Gunnar Huseby sést hér kasta i úrslitakeppni EM i Osló 1946.
minnka muninn fyrir ísland þegar um
fimmtán mínútur vom til leiksloka.
Þetta var þriðji landsleikur þjóðanna,
jafntefli varð í fyrsta leiknum, ísland
sigraði í Sviss í fyrra, 2-3, og sviss-
nesku stúlkumar vom síðan sterkari
í gærkvöldi.
-SK
40 ár frá sigri
Gunnars Huseby
- er ísland komst á landakort íþróttanna
íslenskt íþróttafólk hefur oft náð
næsta ótrúlega góðum árangri bæði
hér á heimavelli og erlendis. Virðist
þá skipta litlu máli hvort um er að
ræða keppni í flokka- eða einstakl-
ingsgreinum. Afrek landans í íþrótt-
um vekur ávallt þjóðargleði og
sjaldan er samkennd þjóðarinnar
meiri og almennari en þegar íþrótta-
fólk okkar vinnur glæsta sigra í
keppni við útlenda.
Sá viðburður, sem kom okkur á
landakort íþróttanna, var án nokk-
urs vafa þátttakan í 3. Evrópumeist-
aramótinu í frjálsum íþróttum í Osló
sem var sett 22. ágúst 1946 eða fyrir
nákvæmlega 40 árum. Einn tugur
vaskra íþróttamanna keppti á mót-
inu og árangurinn var stórkostlegur
og vakti vemlega athygli vítt um
Evrópu.
Gunnar Huseby var stjarna íslend-
inga, hann kom, sá og sigraði í
kúluvarpinu. Finnbjöm Þorvaldsson
komst í úrslit í 100 metra hlaupinu
og varð sjötti. Allir íslensku íþrótta-
mennimir stóðu sig með miklum
sóma á mótinu. Við skulum líta í frá-
sögn úr íþróttablaðinu eftir Konráð
heitinn Gíslason: „Við íslendingarn-
ir, sem horfðum á þessa keppni,
vomm með lífið í lúkunum meðan á
henni stóð. Við hétum á Gunnar að
duga nú vel landi sínu og þjóð, því
að hér var eini möguleikinn fyrir
okkur að eignast Evrópumeistara.
Eftir fyrstu umferð höfðum við allir
hjartslátt. Gunnar hafði kastað 14,94
metra en Rússinn Gorjainov 15,28 m.
I næstu umferð lyftist á okkur
brúnin. Nú kastaði Gunnar 15,56
metra, en Rússinn ekki nema 14,95 m
og aðrir þaðan af styttra. Ennþá voru
eftir 4 köst svo að margt gat skeð.
En við treystum á Gunnar. Þá var
það svo, að í hvert sinn sem Gorja-
inov steig í hringinn þá fengum við
sting og urðum órólegir og utan við
okkur. Og mikið létti okkur, þegar
þessari keppni var lokið og Gunnar
orðinn Evrópumeistari. Islenski
fáninn var dreginn að hún og ís-
lenski sigurvegarinn stóð á miðjum
verðlaunapallinum og tók við gull-
verðlaununum.“
Þó að afrek íslensku keppendanna
á Evrópumeistaramótinu í Osló 1946
hafi verið mjög góð voru þau enn
betri og glæsilegri fjórum árum síðar
í Brússel 1950. Sami keppendafjöldi
var á báðum mótunum eða tíu tals-
ins. I Brússel komu þrenn verðlaun
í hlut íslendinga.
Gunnar Huseby varði titil sinn í
kúluvarpinu og hafði gífurlega yfir-
burði, varpaði kúlunni 16,70 metra,
en næsti maður, Profeti frá Ítalíu
kastaði 15,16 metra.
Torfi Bryngeirsson gerði sér lítið
fyrir og varð Evrópumeistari í lang-
stökki, á nýju íslensku meti, stökk
7,32 metra. Torfi vann sér einnig rétt
til að keppa í úrslitakeppninni í
stangarstökki sem raunar var hans
aðalgrein en þar sem báðar greinarn-
ar fóru fram á sama tíma gat hann
ekki keppt í báðum og valdi lang-
stökkið. Enginn vafi er á því að hann
hefði einnig náð langt í stangar-
stökkinu.
Örn Clausen háði harða baráttu
við Frakkann Heinrich í tugþraut-
inni og það var ekki fyrr en í síðustu
greininni sem úrslit réðust. I fjórum
öðrum greinum komust íslenskir
keppendur í sex manna úrslit og voru
nálægt því að hljóta verðlaun í flest-
um þeirra.
-Örn Eiðsson
Elsta EM-metið slegið
- á heimsmeistaramótinu í sundi. Eðvarð syndir í dag
IlaSþói Guðmundæon, DV, Madrid:
Ragnheiður Runólfedóttir var nokk-
uð frá sínum besta tíma í 100 m
bringusundi á HM í gær. Hún synti á
1.15,52 en íslandsmet hennar, sem hún
setti fyrir hálfúm mánuði, var 1.15,13.
Hún varð númer 22 af 36 keppendum.
Eðvarð Þór hætti við að keppa í 200
m bringusundi en í dag keppir hann
í sinni aðalgrein, 100 m baksundi.
• A-þýska stúlkan Sylvia Gerasch
setti í gær nýtt heimsmet í 100 m
bringusundi þegar hún synti á 1.08,11.
Hún bætti eigið met frá 1984 um 0,18
sekúndur. önnur í sundinu var landa
hennar, Silke Höemer, synti á 1.08,41.
Tania Bogomilova frá Búlgaríu varð
þriðja, synti á 1:08,52.
• Hinn 17 ára gamli Jozsef Szabo
frá Ungveijalandi sigraði í 200 m
bringusundi, synti á 2.14,27. Setti
mótsmet og bætti um leið elsta Ev-
rópumetið í sundi en það var orðið 10
ára gamalt. Heimsmetshafinn, Victor
Davis frá Kanada, varð annar, synti á
2.14,93. Steven Bentley frá Bandaríkj-
unum varð þriðji, synti á 2.16,51.
-SMJ
FÖSTUDAGUR 22. ÁGÚST 1986.
31
Iþróttir
Ágúst Már ekki með
á móti Keflavík
„Nei, það er ömggt að ég leik ekki með á móti Kefla-
vík á sunnudaginn. Ég er tognaður á læri en ég vona
nú að það sé ekki mjög alvarlegt," sagði landsliðsmið-
vörðurinn sterki, Ágúst Már Jónsson, en hann varð
að fara af leikvelli eftir 10 mínútur í leik KR og Breiða-
bliks á sunnudaginn. Er vonandi að Ágúst nái sér sem
fyrst en nú er farið að styttast í stórverkefni landsliðs-
ins.
-SMJ
Mark Falco dæmdur í
tveggja leikja bann
Enska knattspymusambandið hefur dæmt Mark
Falco í tveggja leikja bann fyrir framkomu hans í leik
Tottenham og Aston Villa á síðasta keppnistímabili.
Falco þótti hafa visvítandi æst upp stuðningsmenn
Aston Villa með því að lyfta upp fingrum til þeirra
og gefa þannig til kynna hve mörg mörk hann hefði
skorað. Falco skoraði tvö mörk í leiknum sem Totten-
ham vann 4-2. Þykir þetta sýna aukna hörku knatt-
spymuyfirvalda í Englandi en ætlunin mun vera að
taka hart á svona málum í vetur. -SMJ
Prince of Wales
í búningum
ÞHalldór Einarsson sést hér halda á
búningi eins og þeim sem Prince
of Wales leikur í.
DV-mynd PK
frá Henson
- fimm deildariið í Englandi klæðast búningum frá Henson
Fimm deildarfélög í Englandi klæð-
ast búningum frá Henson þegar bolt-
inn fer að rúlla í Englandi á morgun.
Það em Aston Villa, sem lék í Hen-
son-búningum sl. keppnistímabil,
Petersborough, Bristol Rovers, Bor-
nemouth og Torquay. Fyrir utan þessi
félög leika fjölmörg utandeildarlið í
íslenskum búningum en Henson-bún-
ingamir em orðnir vel þekktir í
Englandi.
I gær var send út pöntun frá áhuga-
mannafélaginu Prince of Wales
þannig að prinsamir leika í Henson-
búningum. „Þetta hefúr verið
skemmtileg þróun,“ sagði Halldór
Einarsson, eigandi Henson sportfatn-
aðar hf. Halldór var viðstaddur þegar
hálfatvinnumannaliðið Aldringham
vann sigur 1-0 yfir Runcom í úrslita-
leik bikarkeppni hálfatvinnumanna á
Wembley sl. vor. Aldringham lék í
búningum frá Henson. „Forráðamenn
Runcom vom greinilega hrifiiir af
búningunum sem Aldringham léku í.
Þeir höfðu samband við mig um dag-
inn og báðu mig að hanna og sauma
nýja búninga á leikmenn félagsins,"
sagði Halldór.
Það em ekki eingöngu félög á Bret-
landseyjum sem leika í búningum frá
Henson. Félög í Hollandi, Noregi,
Bandaríkjunum, Grænlandi, Færeyj-
um og Danmörku leika í búningum
framleiddum hjá Henson. Þá leika
75% af íslenskum félögum í Henson-
búningum.
-sos
•Júlíus
•Stefán
• Hannes
„Eigum ágæta
möguleika"
- Guðnl nJósnafM um A-Þjóðveija
„Mér leist ágætlega á þetta og
við eigum nokkra möguleika
gegn Austur-Þjóðveijum, sér-
staklega ef við leikum með okkar
sterkasta lið og ef það leikur af
skynsemi," sagði Guðni Kjarb-
ansson í samtali við DV í
gærkvöldi, en hann sá leik Finna
og A-Þjóðverja {Helsinki í fyrra-
kvöld. Finnar sigmðu, 1-0, en í
liði þeirra lék aðeins einn at-
vinnumaður.
ísiendingar eiga að leika gegn
A-Þjóðveijum í Evrópukeppn-
inni ytra í lok október. „Við
þurfúm ekki að hafa neina
minnimáttarkennd gegn Aust-
ur-Þjóðveijunum,“ sagði Guðni.
-SK
Stórsigur ÍA
ÍA sigraði Víking, 4-0, í úr-
slitakeppni í eldri flokki í knatt-
spymu á Akranesi í gærkvöldi.
Karl Þórðarson, Jón Gunnlaugs-
son, Steinn Helgason og Matt-
hfas Hallgrímsson skoruðu mörk
ÍA sem nægir nú jafiitefli gegn
KR i, síðasta leiknum til að
tryggjá sér íslandsmeistaratitil-
inn.
-SK
Englendingur
með mótherjum
Skagamanna
Sporting Lissabon, mótheijar
Skagamanna í UEFA-bikar-
keppninni, unnu sigm- 3-1 >fir
Chaves í fyrsta leik sínum í port-
úgölsku 1. deildar keppninni.
Tveir nýir leikmenn léku með
Sporting, þeir Manuel Negrete
frá Mexíkó og Englendingurinn
Robert MacDonald sem var
keyptur frá Eindhoven í Hol-
landi. MacDonald lék með
hollenska félaginu í sjö ár.
-sos
Þrír KR-ingartil
Bandaríkjanna
- leika knattspymu með „íslendingaliði“ þar
„Við komum til með að leika með
háskólaliði í Suður-Karólínufylki í
vetur og í staðinn fáum við skólagjöld-
in felld niður. Þau eru um 100 þúsund
kr. og það munar auðvitað um það,“
sagði Stefán Pétursson sem ásamt
tveim öðrum KR-ingum, þeim Júlíusi
Þorfinnssyni og Hannesi Jóhannssyni,
leikur knattspymu í Bandaríkjunum
í vetur. Vegna þess munu þeir félagar
ekki geta leikið með KR í þeim leikjum
sem eftir eru í Islandsmótinu. Þeir
Stefán og Júlíus, sem munu nema við-
skiptafræði, verða í Karólínufylki en
Hannes leikur með öðru háskólaliði.
„Við verðum líklega sex íslendingar
í liðinu þama í vetur. Sigurður Svein-
bjömsson, sem lék með Val á sínum
tíma, er fyrirliði liðsins. Þá leika þeir
Davíð Skúlasson KR-ingur og Vafear-
arnir Karl Hjálmarsson og Bergsveinn
Sampsted með liðinu," sagði Stefán en
þeir félagar munu missa af undir-
búningi fyrir íslandsmótið á næsta
vetri þó að hann teldi líklegt að þeir
kæmu heim næsta sumar. Verður fróð-
legt að fylgjast með gengi þessa „ís-
lendingaliðs" í handarísku háskóla-
knattspymunni í vetur.
-SMJ
Víðir-Valur í kvöld
Einn leikur fer fram í 1. deildinni hefet kl. 19.00 og með sigri geta
í knattspymu í kvöld. Toppliðið Valsmenn náð tjögurra stiga for-
Valur heldur suður með sjó og skoti í deildinni.
leikur gegn Víði í Garði. Leikurinn
• Pétur Pétursson.
„Bjóst ekki við
öðrum úrslitum“
- sagði Pétur Pétursson
„Þetta lá alveg ljóst fyrir áður en dæmt
var í þessu máli. Ég bjóst ekki við neinni
annarri niðurstöðu. Við vorum með allt á
hreinu í þessu máli,“ sagði Pétur Pétursson
knattspymumaður í samtali við DV í gær-
kvöldi.
I gær dæmdi dómstóll íþróttabandalags
Hafnarfjarðar í „Pétursmálinu":, FH-ingar
kærðu úrslitin í leik þeirra gegn Skaga-
mönnum nýverið og töldu Pétur ólöglegan.
Dómstóllinn komst hins vegar að þeirri nið-
urstöðu að Pétur væri löglegur og unnu
Skagamenn þvi málið.
Niðurstöðu dómsins var beðið með mikilli
eftirvæntingu í gær og höfðu menn þá fram-
hald málsins og kærur annarra félaga í
huga. Að sögn eins þeirra sem sæti eiga í
dómstólnum verða forsendur dómsins ekki
birtar fyrr en seinni part dagsins í dag.
„Við hljótum að áfrýja“
„Ég hef ekki heyrt forsendumar fyrir
þessum dómi og vil þar af leiðandi ekki tjá
mig um þetta mál á þessu stigi. Við hljótum
að áfrýja þessum dómi til dómstóls KSÍ.
Annað kemur ekki til greina," sagði Ingi
Bjöm Albertsson, þjálfari FH, í samtali við
DV í gærkvöldi.
Flutningur í dómsali
Mikið kæruflóð hefur verið í knattspym-
unni hér á síðustu dögum og ekki sér enn
fyrir endann á þessum ósköpum. Hefur fs-
landsmótið farið fram að nokkrum hluta í
dómsölum og ljóst að KSÍ verður að athuga
sinn gang fyrir næsta keppnistímabil.
-SK