Dagblaðið Vísir - DV - 22.08.1986, Blaðsíða 3
FÖSTUDAGUR 22. ÁGÚST 1986.
3
Fréttir
Snör handtök:
Markaði
heimalning
nágrannans
Sá atburður varð í Austur-
Húnavatnssýslu fyrir skömmu,
er Björn á Löngumýri, er nú býr
búi í Vesturhlíð, var að reka fé
sitt heim til rúnings, að heimaln-
ingurinn í Litladal stökk inn í
fjárhóp Bjöms. Litlidalur er
næsti bær við Vesturhlíð og þar
býr Svavar bóndi Jóhannsson.
Er Bjöm hafði komið fé sínu x
rétt varð honum ljóst að tvö
ómörkuð lömb vom í hópnum.
Hann vissi af öðru en áleit sem
svo að ærin hefði verið tvílembd
og var þvi ekkert að hika við að
setja mark sitt á þau bæði. Um
kvöldið skilaði heimalningurinn
sér hins vegar heim í Litladal til
að fá pelann sinn og varð Svavar
bóndi ákaflega hissa að sjá mark
Bjöms í Vesturhlíð á lambinu.
Með einu símtali skýrðust málin
þó og Svavar brennimerkti sitt
eigið mark ofan í mark Bjöms.
Skildu menn sáttir og einu eft-
irhreytur þessa máls eru þær að
eym heimalningsins em dáiítið
en !
v< >m.
-EIR
Slasaðist um
borð í togara
Siguiján Egðsson, DV, Ólafevik;
Það óhapp átti sér stað um borð
í togaranum Má frá Ólafsvík sl.
miðvikudag að einn skipverja
klemmdist illa á hendi. Maður-
inn varð á milli toghlera og
lunningar þegar verið var að hífa
inn trollið.
Már var staddur á IÁtragrunni
þegar slysið varð. Hélt hann til
Ólafsvíkur með þann slasaða.
Maðurinn var síðan fluttur til
Reykjavíkur til frekari læknis-
meðferðar. Ekki er ennþá ljóst
hversu mikil meiðsl hans em.
„Reykjavíkunnyndin:
Sýnd í Há-
skólabíói til
ágústloka
„Reykjavíkurborg tók bíóið á
leigu og verður myndin sýnd hér
út mánuðinn á 5-sýningum og er
aðgangur ókevpis,“ sagði Frið-
jón Guðmundsson, sýningar-
maður í Háskólabíói. Myndin,
sem hér um ræðir, er kvikmynd
Hrafhs Gunnlaugssonar
„Reykjavík, Revkjavík".
„Þetta er heimildarmynd Og
eign Reykvíkinga og auðvitað
verður að sýna hana. En við
höfum vart hafl tíma til að anda
ennþá þannig að ekki hefur verið
ákveðið hvað gert verður um
mánaðamótin," sagði Stefán
Kristjánsson, framkvæmdastjóri
afinælisnefixdar. Sagði Stefán að
vel kæmi til greina að færa
myndina í minni sal en það færi
eftir aðsókn og áhuga fólks.
„Við höfum orðið varir við
áhuga erlendis frá um að fá til
sýningar búta úr myndinni og
erum við ánægðir með það. Yrði
þetta þá gert fyrir milligöngu
sendiráða okkar erlendis og er
alveg möguleiKi að gerður verði
30 mínútna bútur úr myndinni,
settur á videospólu og sendur út.
Yrði þetta góð kynning fyrir
borgina," sagði Stefán Kristjáns-
son.
JFJ
Rafmagnsljós taka
við af blöðrunni
- DV reynir nýja áfengismæla lögreglunnar
„Þetta nýja tæki til mælingar á
ölvun hjá ökumönnum hefur fyrst
og fremst mikinn spamað í för með
sér og er töluvert hentugra í notkun.
Það tekur við af blöðrunni en þar
er hvert munnstykki mjög dýrt. I þvi
eru kristallar sem skipta litum en
nýi mælirinn sýnir rafmagnsljós,"
sagði Óskar Ólason yfirlögreglu-
þjónn, aðspurður um nýjan alkóhól-
mæli sem lögreglan hefur nú tekið
í notkxm.
Nýjtmgin er lítið rafmagnstæki
sem andað er í með einföldu munn-
stykki og í því eru ljós í þrem litum
sem kviknar á við alkóhólprufu.
Grænt ljós kviknar ef ökumaður
hefur ekki smakkað áfengi eða lítið,
er undir 0,25 prómillum, gult ljós
táknar áfengismagn frá 0,25-0,50
prómill sem þýðir að ökumaður er
sendur í blóðprufu og loks er rautt
ljós sem þýðir yfir 50 prómill áfengis-
magn í blóði og að ökumaður er
greinilega kominn yfir markið.
Til að athuga nánar virkni hins
nýja alkóhólsmælis brugðu tveir
blaðamenn DV sér niður á umferðar-
deild lögreglunnar við Hverfisgötu
og fengu að reyna báðar gerðir
áfengismæla eftir að hafa neytt lítils
magns af áfengi. Annar hcifði drukk-
ið u.þ.b. eitt og hálft glas af meðal-
sterku rauðvíni og hinn einn
tvöfaldan drykk af koníaki. Raunar
urðu rúðurstöður blöðrunnar og
nýja mælisins nokkum veginn þær
sömu en þó kom á óvart hverjar þær
urðu.
Sá blaðamaðurinn, sem neytt hafði
létta vínsins, reyndist vera á mörk-
um gula og rauða ljóssins á nýja
mælinum og sýndi töluverð litbrigði
þegar mælt var með blöðru sem þýð-
ir að sá hefði verið sendur í blóð-
prufu, enda greinilega við
ölvunarmarkið. Hins vegar hefði
ekki reynst ástæða til að senda þann
sem sterka vínsins neytti í blóðprufu
þar sem nýi mælirinn sýndi gult ljós
og þótt munnstykkið á blöðrunni
sýndi litabreytingar voru þær ekki
það miklar að ástæða þætti til blóð-
prufu.
Eins og Guðmundur Ingi Sigurðs-
son, varðstjóri á umferðardeild,
sagði er það nokkuð einstaklings-
bundið hve mikið mælist af áfengis-
magni í blóði eftir tilraun á við þessa
svo ekki er hægt að staðhæfa neitt
um hvort létt vín mælist frekar en
sterkt á áfengismælum eða öfugt.
Hins vegar bar blaðamönnum
saman um að þægilegra reyndist að
blása í nýja tækið en blöðruna og
útkoman úr því varð skýrari. Ekki
má heldur gleyma því að hver áfeng-
ismæling með því er u.þ.b. hundrað
krónum ódýrari en gamli mátinn.
-BTH
Blaðamenn DV prófa gamla og nýja mátann, blöðruna og rafmagnsmælinn.
DV-myndir Oskar Öm
Nýi áfengismælirinn sem tekur nú
við af blöðrunni.
PIERRE VANDEL NÚ í REYKJAVÍK
Opið til kl. 20 i kvöid
í ölium deildum.
NYJA
FRANSKA
LÍNAN
fyrir nýtísku
heimili
JIE
KORT
■uis
A A ▲ ▲ A A
□ CD3 Diapasa
■_iC,_cr i_ikJuuqj
L3 u-ijpajiijí^
iuhDumuiu>ihiíI kaiii.
Jón Loftsson hf.
Hringbraut 121 Sími 10600
Húsgagnadeild, sími 28601