Dagblaðið Vísir - DV - 22.08.1986, Blaðsíða 4
4
FÖSTUDAGUR 22. ÁGÚST 1986.
Fréttir
Magnús G. Friðgeirsson, framkvæmdastjóri búvörudeildar Sambandsins
„Meginhlutverk búvörudeildar-
innar er að vera sölutæki sláturleyf-
ishafanna fyrir afurðir þeirra sem
þeir selja ekki í sínu heimahéraði.
Þessar afurðir senda þeir í sameigin-
legt sölufyrirtæki og það ber að
annast sölu á þeim mörkuðum sem
eru fyrir utan þeirra svæði sem er
annars vegar Reykjavíkursvæðið og
hins vegar erlendir markaðir. Síðan
hefúr deildin með höndum kjötiðnað
sem hún rekur fyrir eigin reikning
og reynir að halda uppi eðlilegri
vöruþróun í sambandi við kjötsölu."
- Ert þú sammála þvi að rekja
megi hið háa verð á kindakjöti til
milliliðanna í landbúnaði og einok-
unarfyrirkomulags Sambandsins?
„Nei, ég er ekki sammála því. En
það eru sjálfsagt margar ástæður
fyrir þessu. Ég held að þetta sé sam-
eiginlegur vandi allra þeirra þátta '
sem tengjast kjötinu. Staðreyndin
er sú að Island er harðbýlt land og
það er hægt að framleiða í sumum
tilfellum ódýrara en hér. Þar við
bætist að sláturtími er mjög stuttur.
Samgöngur voru mjög slæmar sem
gerði það að verkum að byggð voru
sláturhús út um allt land. Samgöng-
umar hafa batnað verulega og
forsendur fyrir fjölda sláturhúsa
koma til með að breytast og hafa
þegar breyst gífurlega. Tæknivæð-
ingin hefúr einnig breytt mjög
forsendunum fyrir fjölda bænda.
Þá tel ég að margar leiðir séu fær-
ar til spamaðar í heildsölunni. Á
tveimur til þremur árum ætti að
vera hægt að gera miklar breytingar
til batnaðar. Allir þættir þarfnast
breytinga: bændaþátturinn, slátur-
húsaþátturinn og heildsöluþáttur-
inn.“
- Hefúr þetta háa verð ekki orðið
til þess að stórlega hefur dregið úr
neyslu kindakjöts innanlands með
þeim afleiðingum að greiða hefur
þurft hundruð milljóna til útflutn-
ingsbóta og niðurgreiðslna?
„Ég mundi ekki vilja orða þetta
þannig. Við skulum gera okkur
grein fyrir því að hér er dýrara að
framleiða. Ég vil heldur ekki segja
að hér sé óhóflegur milliliðakostnað-
ur. Ef við lítum til nágrannalanda
okkar þá er hlutfall slátur- og heild-
sölukostnaðar af heildarverðinu
miklu hærra heldur en hér gerist.
Samt sjáum við fram á leiðir til úr-
bóta. Sú spuming hlýtur þá að
vakna hvort ekki aukist kostnaður
við' aðra liði þegar tekst að spara á
einhveijum sviðum. Það er til dæmis
líklegt að kostnaður eigi eftir að
aukast í sambandi við vömþróun
sem miðast á að því að haga henni
eftir breyttum þörfum neytenda og
láta hana falla betur að því þjóð-
félagi sem við búum í nú.“
- Hvaða úrbætur ert þú að tala um?
„Það er ekkert langt síðan við fór-
um að pakka kjöti í lofttæmdar
umbúðir. Við höfðum verðlagning-
arkerfi sem kom í veg fyrir að það
væri hægt. Það var aðeins fyrir
tveimur árum sem þetta kerfi var
lagt niður og frá þeim tíma hefur
orðið gífurleg breyting. Áður var
þetta þannig að heildsöluaðilinn
mátti ekki leggja á kjötið fyrir
vinnslu- og pökkunarkostnaði. Það
gerði það að verkum að þetta starf
þurfti að eiga sér stað í verslunun-
um. Þær voru ekki nægilega stórar
til að standa undir þeim kostnaði
sem eru samfara þessum lið.“
- Sambandið hefúr verið gagnrýnt
fyrir lítinn áhuga á útflutningi
kindakjöts. Er það rétt að SÍS bregð-
ist alltaf harkalega við þegar útflutn-
ing ber á góma?
„Ég vil nú segja það að ef Sam-
bandið bregst harkalega við þá er
það til þess að sá útflutningur geti
orðið. Það halda margir að Sam-
bandið sé með einhveijar einokun-
artilhneigingar í þessum efnum. Ég
get upplýst að við verslum við eina
sjö einstaklinga sem koma nálægt
þessu útflutningshlutverki Sam-
bandsins. Ég get nefrit að það er
einstaklingur sem hefúr fúndið góða
lausn á Japansmarkaði og annar á
Hollandsmarkaði.
Við höfum reyndar ákveðin sam-
bönd á þeim mörkuðum sem við
höfum unnið mest á. Við erum hins
vegar tilbúnir um leið þegar einhver
aðili sér leiðir til að selja kjöt á við-
unandi verði og markaður er fyrir
hendi í viðkomandi landi. Stað-
reyndin er sú að það hafa mjög
margir boðið sína liðveislu en ekki
gert sér grein fyrir hvert hið endan-
lega verð er eða hvoit til séu slátur-
hús sem viðurkennd eru fyrir
viðkomandi markað eða önnur
ákvæði sem þarf að uppfylla. Þegar
þeir svo reka sig á að ekki er hægt
að uppfylla þær hugmyndir, sem þeir
höfðu í upphafi, fara þeir gjaman í
blöðin og segja að það séu annarleg-
ar ákvarðanir að baki því að við
viljum ekki taka þátt í þessu. Ef
þessir aðilar sjá fram á að geta selt
kjöt er þeim það frjálst."
- Þú ert þá ekki sammála þvi að
Sambandið vilji ekki gera neitt í út-
flutningsmálum vegna þess að
greiðslur úr ríkissjóði séu mun ör-
uggari tekjulind en kaupendur
erlendis, t.d. í Bandaríkjunum?
„Síður en svo. Ríkissjóður ákvarð-
ar verð á þessum samningsbundnu
afurðum og okkar hlutverk er að
reyna að ýta undir sölu. Hvort það
er í gegnum íslenska einstaklinga
sem vilja leggja þessu máli lið eða
hvort við vinnum kjötið beint á
markaði er algjörlega tilfinninga-
laust af okkar hálfu. Að vísu erum
við með nokkra markaði sem við
höfum þróað og þekkjum til. Við
erum að sjálfsögðu mjög ánægðir
yfir þvi ef einhverjir sjá leiðir sem
við höfum ekki komið auga á.“
DV-yfirheyrsla
Texti:
Arnar Páll Hauksson
Myndir: Óskar
- Sambandið hefur ekki brugðið
fæti fyrir þessa einstaklinga?
„Ef þú ert að vitna til Ameríku-
markaðarins og þeirra skrifa sem átt
hafa sér stað undanfarið ár þá vil
ég segja þetta: í fyrsta lagi buðum
við að þessir menn gætu alfarið tek-
ið þessi mál í sínar hendur. Ef þeir
vildu það ekki þá buðum við að ef
þeir fyndu kaupendur mundum við
geta aðstoðað gjaldfiítt við að útbúa
útflutningspappíra og annast önnur
fagleg atriði viðkomandi útflutn-
ingsstarfinu. Það sem olli því að
ekkert varð úr þessu var að það
fannst ekki kaupandi sem hafði hug
á að kaupa kjötið gegn þeim skilmál-
um sem almennt gerast í viðskipta-
heiminum."
- Hefúr Sambandið gert nógu mik-
ið í útflutningsmálum? Hafa ekki
útflutningsbætur og geymslukostn-
aður dregið úr áhuganum?
„Ég vil ekki meina að útflutnings-
bætumar spili nokkum þátt í þessu
tilviki. Það má hins vegar alltaf
spyija sjálfan sig hvenær búið sé að
gera nóg. Svarið er alltaf nei því það
er aldrei búið að gera nógu mikið.
Þetta snýst einnig um hversu mikið
fé er ætlað í markaðssetninguna og
hver heildarstefnan er í framleiðslu-
málunum.
Við búum við það að það er heims-
markaðsverð á þessum afurðum.
Ný-Sjálendingar og Ástralíubúar em
að auka sína framleiðslu og þeir ráða
þessu heimsmarkaðsverði. Við höf-
um ekki sætt okkur við sama verð
fyrir okkar afúrðir og þeir fá. Það
hefúr reyndar farið eftir því hvað
einstakir markaðir viðurkenna.
Sumir viðurkenna okkar vöm hik-
laust sem betri, aðrir hafa fyrirvara
og síðan em enn aðrir sem vilja
okkar vöm síður. Við höfúm reynt
að halda okkur á þeim mörkuðum
sem vilja greiða okkur umfram
markaðsverðið. Við komumst hins
vegar ekki hjá því að þetta heims-
markaðsverð setur okkur skorður.
Ef menn em hins vegar að tala um
að sleppa útflutningsbótunum þyrft-
um við að fá þrefalt heimsmarkaðs-
verðið. Við teljum að framkvæm-
anlegt sé, og það hafi tekist, að ná
frá 5 til 20 prósentum yfir þessum
markaðsverði. Að ætla sér að ná
þreföldu markaðsverði væri krafta-
verk.“
- Sambandið hefur verið gagnrýnt
fyrir að notfæra sér geymslukostnað
sem tekjulind.
„Þetta er reginmisskilningur.
Sambandið á óvemlegar frysti-
geymslur. Og þegar magnið er mest
höfum við leigt geymslur hjá fyrir-
tækjum og einstaklingum hér í bæ.
Þau leigugjöld, sem við höfum greitt
þar, hafa annaðhvort verið þau sömu
eða eilítið yfir viðurkenndum
geymslukostnaði. Ef eitthvað er hef-
ur staðan orðið neikvæð í þessu
dæmi. Og að Sambandið fái jákvæða
niðurstöðu út úr geymslu er mis-
skilningur."
- Hvað um margumræddan milli-
liðagróða í landbúnaðinum?
„Ég hef aldrei komið auga á þenn-
an milliliðagróða þennan stutta tíma
sem ég hef starfað í þessum málum.
Sláturhúsin eiga í mjög miklum erf-
iðleikum og búvörudeild Sambands-
ins hefúr ekki átt afgang heldur hið
gagnstæða. Það hefúr verið eilítill
halli. Ég kem því ekki auga á þenn-
an milliliðagróða sem menn eru að
tala um og vil því vísa þessu tali til
föðurhúsanna og óska jafnframt eftir
nánari skýringu.
Menn hafa leikið sér að reiknings-
dæmum og sagt að sú verðmæta-
aukning, sem verður á húseignum
sláturhúsa, sé milliliðagróði. Hvem-
ig ætla menn að taka þann gróða
og brúka? Rífa þeir hann upp úr
þaki sláturhúsanna með kúbeini eða
kemur þetta út úr einhverri maskínu
sem prentar seðla í einu homi
þeirra."
- Kaupfélögin og sláturhúsin eru
sem sagt ekki „skattstofúr" fyrir
Sambandið?
„Alls ekki. Það em bændumir sem
eiga sláturhúsin í hveiju héraði í
gegnum sitt kaupfélag. Sláturhúsið
gerir ekkert annað en það sem
bændur vilja að það geri og þeir
stjóma þessu fyrirtæki. Búvörudeild
Sambandsins getur ekki gert annað
en það sem sláturleyfishafamir, sem
að henni standa, fela henni að gera.
Ég hef lagt áherslu á að skapa
beinna samband milli bænda, slátur-
leyfishafa og búvömdeildarinnar því
eftir því sem þetta samband verður
skýrara verður það betra að mínu
mati.“
-Hvað um of háan sláturkostnað?
„Of hár sláturkostnaður er fullyrð-
ing úr lausu lofti gripin. Ég minntist
á það hér að framan að slátur- og
heildsölukostnaður er lægri hér en
í nágrannalöndunum."
- Hver er staðan á innanlands-
markaði í sölumálum lambakjöts?
„Það er að koma nokkuð ný mynd
á markaðsmálin. Við em búnir að
koma upp mjög öflugri pökkunarað-
stöðu þar sem vörunni er pakkað á
mjög myndarlegan hátt, enda eigum
við ekki að sætta okkur við annað
fyrir innanlandsmarkaðinn sem er
okkar dýrmætasti markaður.
Markaðssetningin hér hefur breyst
mjög mikið bara á þessu ári og áður
hafa til dæmis ekki þekkst eins líf-
legar auglýsingar. Menn hafa gert
sér grein fyrir að það þarf að hugsa
vel um neytandann. Það þarf að
færa honum vöruna í því ástandi að
það sé ekki óhagstætt fyrir hann að
kaupa hana.“
- Framtíðarhorfurnar?
„Ég get ekki neitað því að við erum
á villigötum hvað varðar stjómun
kjötframleiðslunnar. Það fyrir-
komulag að stjóma eigi heildarkjöt-
framleiðslunni í gegnum eina grein
og að hinar greinamar eigi að dansa
við hliðina og hlíta öðrum lögmálum
getur skaðað þá grein, sem er undir
stjómun, ef þetta heldur áfram. Það
verður annaðhvort að stjóma allri
framleiðslunni eða engu.“
-APH