Dagblaðið Vísir - DV - 22.08.1986, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 22.08.1986, Blaðsíða 17
FÖSTUDAGUR 22. ÁGÚST 1986. 17 r>v Lesendur TTAlltof lítið sýnt fra kvennaknattspymu í sjónvarpinu" íþróttaunnandi hringdi: Mér hefur þótt það áberandi hvað lítið er sýnt frá kvennaknattspymu í sjónvarpinu, það er greinilegt að ekk- ert jafhrétti ríkir á þvi sviði. Þar sem þróunin hefur verið gífurleg í átt að jafiirétti hér á landi á ýmsum sviðum má ekki gleyma íþróttasvið- inu. Það má vel vera að kvennaknatt- spyma sé ekki eins langt á veg komin og karlaknattspyma en það má ekki einblína á það því það em ekki alltaf gæðin sem skipta máli heldur baráttu- gleðin og kvenfólk hefur sýnt það og sannað, í fótbolta sem öðm, að það getur barist. Til þess að kvennaknattspyma geti orðið góð þarf auðvitað hvatningu og er sjónvarpið góð leið til hvatningar en eins og er þá er hún ekki fyrir hendi þvi það er alltof lítið sýnt frá kvenna- knattspymu í sjónvarpinu. „Það var eins og ég væri kominn aftur í gamla tímann“ * Iþróttakennarar athugið! Grunnskóli Eskifjarðar Iþróttakennara vantar að Grunnskóla Eskifjarðar. Góð íbúð fyrir hendi á góðum kjörum, flutningsstyrkur kemur til greina. Nánari upplýsingar gefur Jón Ingi Einars- son skólastjóri í sima 97-6182. Skólanefnd. Akureyrarbær \yjjf Forstöðumaður öldrunarþjónustu Laust er til umsóknar starf forstöðumanns öldrunarþjónustu á Akureyri. i starfinu felst að veita forstöðu dvalarheimilun- um Hlíð og Skjaldarvik og þjónustu bæjarins við aldraða. Krafist er góðrar menntunar og starfsreynslu á þessu sviði. Umsóknir berist undirrituðum fyrir 4. sept. næstkomandi og veitir hann nánari upplýsingar um starfið. Akureyri 21. ágúst 1986 Bæjarstjóri. Fáum við bjor fyrir aldamót? Sigurður G. Haraldsson skrifar: Nú, þegar aðeins em eftir fjórtiín ár í tuttugustu og fyrstu öldina, er ekki nema von að sú spuming vakni hjá mér, og sjálfsagt mörgum fleirum, hvort okkur núlifandi íslendingum muni yfirleitt auðnast að lifa þá tíð að geta dmkkið bjór eða áfengt öl að fommannasið. Slíkt mun þó fólk í flestum löndum heims eiga kost á utan múhameðstrúarlanda og íslands, auk þess sem bjórinn mun vera í daufara lagi hjá frændum okkar Færeyingum. Hvenær ætla ráðamenn íslensku þjóðarinnar eiginlega að taka á sig þá rögg að leyfa bjórinn hér á fslandi? Ekki er örgrannt um að jafnvel fólk í löndum þar sem andi þeirra Stalíns og Leníns ríkir eigi kost á að sötra bjórinn. Um hvemig bjórmálum í Kína er háttað em sjálfeagt aðrir mér fróð- ari. Ósköp finnst mér leitt að vita að fólk þurfi helst að komast út fyrir poll- inn til þess að geta dmkkið bjór, sem auk þess að valda ekki ofurölvun hjá fólki með öllum þeim hörmungum og óláni sem henni getur fylgt, ku vera bæði hollur og næringarríkur sam- kvæmt nýjustu rannsóknum. Hvemig væri að þingmennimir okk- ar tækju sig til og gengju í það með oddi og egg strax á komandi þingi að samþykkja bjórinn, eða að minnsta kosti efna til þjóðaratkvæðagreiðslu um bjórmálið og niðurstöður hennar væm svo látnar gilda. Um leið og maður óskar sjálfum sér og öðrum til hamingju með tvö hundr- uð ára afmæli Reykjavíkur, dreifbýlis- fólki jafiit sem þéttbýlisfólki, er þess farið á leit við þingmenn okkar að þeir færi okkur bjórinn á komandi vetri til þess að koma okkur á landa- kort vínmenningaþjóða heims. G.A. hringdi: Ég er nýkominn af Reykjavíkursýn- ingunni á Kjarvalsstöðum og finnst að ég verði að þakka þeim sem að henni standa, því ég hafði svo mikið gagn og gaman af henni. Ég er nú gamall Reykvíkingur, fæddur og uppalinn i Reykjavík og man því tímana tvenna. Þegar ég skoðaði sýninguna var það eins og ég væri kominn aftur í gamla tímann, ég átti meira að segja erfitt með að slíta mig frá þessu öllu saman, fara úr gamla tímanum og aftur í þann nýja. Það var ekki laust við að ég yrði von- svikinn að verða gamall aftur. En þrátt fyrir það skemmti ég mér vel og ég er viss um að unga kynslóð- in hefur sömu sögu að segja. Úrval vid allra hœfi Síðasti dagur útsölunnar Allir kjólar ...................... 790,- Allar buxur ...................... 790,- Allar peysur ..................... 590,- Pils frá kr....................... 290,- Bolir frá kr....................... 250,- Jakkar frá kr..................... 990,- Sokkar, gammosíur, sundbolir, eyrnalokkar. Allt á útsölu! Laugavegi 101, sími 26105. Ifentar &/? þsrw a<f mp bil? SMA-AUGLYSING I DV GETUR LEYST VANDANN. Smáauglýsingadeild EunOCAPO VfSA — sími 27022. Opið í kvöld til kl. 21, laugardag kl. 10-16. Vörimarkiilgrinn hi. EIÐISTORG111

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.