Dagblaðið Vísir - DV - 22.08.1986, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 22.08.1986, Blaðsíða 28
40 FÖSTUDAGUR 22. ÁGÚST 1986. tfr' Andlát Lovísa Aðalheiður Guðmunds- dóttir, Klapparstíg 5, Ytri-Njarðvík, lést 14. ágúst síðastliðinn. Hún var fædd 19. nóvember 1924. Jarðarförin fer fram frá Ytri-Njarðvíkurkirkju í dag, föstudaginn 22. ágúst, kl. 14.00. Ásgeir Ólafsson forstjóri lést 16. ágúst síðastliðinn. Hann var fæddur 2. desember 1922, sonur Elísabetar Guðjónsdóttur og Ólafs Guðmunds- sonar. Ásgeir kvæntist eftirlifandi eiginkonu sinni, Dagmar Gunnars- dóttur, árið 1947 og eignuðust þau 4 böm. Hann starfaði hjá Brunabóta- félagi íslands í fjölda ára, fyrst sem bókari, síðan skrifstofustjóri og sem forstjóri félagsins frá 1957-1981. Síð- ustu ár var hann framkvæmdastjóri Viðlagatryggingar. Útförin fer fram frá Dómkirkjunni í dag, föstudaginn 22. ágúst, kl. 13.30. Jón Margeir Sigurðsson, Þórafelli 10, Reykjavík, er látinn. Útförin fer fram frá Hvalsneskirkju laugardag- inn 23. ágúst kl. 14.00. Ingveldur Edvardsdóttir frá Hell- issandi, Álfaskeiði 96, Hafnarfirði, andaðist í Borgarspítalanum 21. ágúst. Jóna Guðrún Guðlaugsdóttir, Selfossi, er lést 11. ágúst síðastliðinn verður jarðsungin frá Selfosskirkju laugardaginn 23. ágúst kl. 13.30. Hallgrímur Sveinn Sveinsson, frá Hálsi í Eyrarsveit, er látinn. Útförin fer fram frá Grandarfjarðarkirkju laugardaginn 23. ágúst kl. 14.00. Sigríður Ólafsdóttir, Grænuvöllum 6, Selfossi, er látin. Útförin fer fram frá Selfosskirkju laugardaginn 23. ágúst kl. 15.00. Tilkyrtningar Flugleiðir bjóða maraþonfargjöld 1 tilefni af Reykjavíkurmaraþoni, sem fram fer 24. ágúst, hafa Flugleiðir ákveðið að bjóða þátttakendum utan af landi sérstök kjör á flugi frá áfangastöðum Flugleiða til höfuðborgarinnar. Afsláttur á venju- legu flugi fram og til baka nemur 35%. Sem dæmi má nefna að maraþonfargjald fram og til baka frá Akureyri er kr. 3.908, frá Egilsstöðum kr. 4.825 og frá fsafirði kr. 3.708. Innifalið í þessu verði er þátt- tökugjald x Reykjavíkurmaraþoni og maraþonpeysa. Laugardaginn 23. ágúst kl. 9-14 þurfa þátttakendur að koma í Ferða- skrifstofima Úrval, Pósthússtræti 13, og fá aflient keppnisgögn og maraþonpeysu gegn framvísun farseðils. Hlynur Út er komið tímaritið Hlynur, 3. tölublað 1986. Útgefandi er Landssamband fs- lenskra samvinmistarfsmanna. 1 blaðinu eru nokkrir þættir úr sögu Kaupfélags Eyfirðinga í tilefni 100 ára afinælis þess. Samvinnuskólinn að Bifröst er heimsótt- ur. Rætt er við Tryggva Þór Aðalsteinsson, framkvæmdastjóra MFA, og einnig við nokkra nemendur Félagsmálaskóla al- þýðu. f blaðinu er áhugaverð grein um búðahnupl, ýmsar smærri greinar og akemmtiefiii, s.s. krossgáta, bamaefni, bridge og skák. Héraðslæknar Ráðxmeytið hefur skipað eftirtalda heilsu- gæslulækna til þess að vera héraðslæknar frá og með 1. júlí 1986 að telja til jafhlengd- ar 1990: Kristófer Þorleifsson, Ólafsvík, héraðs- læknir í Ólafsvík, Bergþóru Sigurðardóttur, ísafirði, héraðs- lækni í Vestfjarðahéraði, Friðrik J. Friðriksson, Sauðárkróki, hér- aðslækni í Norðurlandshéraði vestra, Ólaf H. Oddsson, Akureyri, héraðslækni í Norðurlandshéraði eystra, Stefán Þórarinsson, Egilsstöðum, héraðs- lækni í Austurlandshéraði, ísleif Halldórsson, Hvolsvelli, héraðs- lækni í Suðurlandshéraði og Jóhaim Ágúst Sigxirðsson, Hafnarfirði, héraðslækni í Reykjaneshéraði. Meginverefni héraðslæknis samkvæmt lögum nr. 59/1983 um heilbrigðisþjónustu, er að vera sérstakur ráðunautur ríkis- stjómar um hvaðeina er viðkemur heil- brigðismálum héraðsins. Hann skal fylgjast með því að ffamfylgt sé lögum og reglum um heilbrigðismál í héraðinu. Haim hefur umsjón með beilbrigðisstarfi í umboði ráðuneytis, í sjxikrahúsum, heil- sugæslustöðvum og annars staðar þar sem sh'kt starf fer fram. Hann skal annast sam- ræmingu heilbrigðisstarfs í héraðinu. Ennfremur er héraðslæknir formaður heil- brigðismálaráðs héraðsins, situr í svæðis- nefnd um málefni fatlaðra og í svæðis- nefnd um heilbrigðiseftirlit, um hollustuhætti og heilbrigðiseftirlit, sem fulltrúi heilbrigðisstjómar. Basar Kattavinafélagsins Kattavinafélagið heldur basar í Góðtempl- arahúsinu í Hafnarfirði laugardaginn 23. ágúst og hefst hann kl. 14. Allur ágóði rennur til húsbyggingar félgsins, Katt- holts í Ártúnshöfða. Tapað-Fundið Reiöhjól hvarf Appelsínugult Raleigh telpuhjól tapaðist frá Kjalarlandi 14 aðfaranótt 17. ágúst. Finnandi vinsamlegast hringi í sima 83352. Myndavél tapaðist Pentax ME myndavél með 50 mm linsu og munstraðri ól, tapaðist í sjoppu við Njálsgötu, mánudaginn 18. ágúst. Finnandi vinsamlegast hringi í síma 32348. Fundarlaun. Kettlingur fannst Kettlingur fannst við Laugaveg. Hann er svartur og brúnn með hvíta höku og er ómerktur. Eigandi getur haft samband í síma 10815. Dótfannst í Húsafelli Um verslunarmannahelgina fannst úlpa, fótbolti, sólgleraugu og drykkjarmál sam- an í einni hrúgu á víðavangi 1 Húsafelli. Líklegt er að einhver lítill drengur hafi gleymt þessu. Eigandi hafí samband í síma 35134. Dökkbrún læða týnd Dökkbrún læða með rauða ól tapaðist frá Áslandi 10, Mosfellssveit, 26. júlí síðastlið- inn. Þeir sem hafa orðið varir við hana vinsamlegast hafi samband í síma 667325. Afmæli 70 ára er í dag, 22. ágúst, Jón A. Skúlason póst- og símamálastjóri. Hann hóf störf hjá Landssíma ís- lands 1945 og hefur starfað hjá Póst- _ og símamálastofnun síðan en lætur senn af storfum fyrir aldurs sakir. Kona Jóns er Inga Gröndal og eiga þau tvö böm. Jón tekur á móti gest- um í Átthagasal Hótel Sögu kl. 17-19 í dag. 70 ára verður á morgun, 23. ágúst, Elías S. Jónsson, símstöðvarstjóri á Drangsnesi. Hann tekur á móti gestum í félagsheimilinu ú Drangs- nesi kl. 16-20 á afmælisdaginn. Útvarp - sjónvarp________________________dv Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson lögfræðingur: „Jónas og Svavar í sévflokki“ Dagskrá úfyarpsins var mjög góð í gærkvöldi. Ég sveiflaðistmilli rúsar eitt og tvö og mútti hafa mig allan við til að missa ekki af þeim góðu þáttum sem boðið var upp á. Sjö- fréttimar hlusta ég alltaf á, en í gær fjölluðu þær mikið um undirstöðuat- vinnugreinina, sjávarútveginn. Rækja, skreið og síld, allt til háal- varlegrar umfjöllunar. „Ef Rússar kaupa ekki af okkur síld þá er ekk- ert nema gúanó,“ sagði Dagbjartur Einarsson fyrir hönd þeirra í Grindavík. Síðar í fréttunum kom fram að Steingrímur Hermannsson ætlar ásamt viðskiptanefhd í ferð til Kína. Kannski vilja Kínverjar kaupa síld af okkur? Jónas Jónasson er aldeilis frábær útvarpsmaður. Það hefur hann sýnt og sannað á undanfömum árum. Ekki brást hann í gærkvöldi í þætti sínum Ég man. Þar var hann með skemmtilegar upprifjanir og spjall um lífið og tilveruna úr öllum áttum. Semsagt Jónas í essinu sínu. Reykjavík í augum skálda er góður þáttur og í gærkvöldi vora tekin fyr- ir árin frá 1975 til 1986. Það var ánægjulegt að hlusta á lestur úr sög- um og ljóðum skálda og ljóðskálda. Efnið tengdist mannlífinu í okkar fallegu höfuðborg, er skartar nú sínu fegursta, rétt rúmlega tvö hundrað ára. Tónskáldin gleymdust ekki og lög um Reykjavík hljómuðu í þessum þætti. Svavar Gests er annar frábær út- varpsmaður og honum brást heldur ekki bogalistin í þætti sínum Rökk- urtónar á rás tvö. Þáttur hans er mjög vel unninn og yfirsjá hans í þessum efnum hreint ótrúleg. Ég hlustaði einnig á þáttinn Náttmál á rás tvö og heyrði þar hressilegt spjall við nýkjörinn bæjarfulltrúa á Akur- eyri, Gísla Braga Hjartarson, múrarameistara og íþróttamann. í heildina var dagkrá rásanna mjög góð í gærkvöldi og í raun var heppilegt að sjónvarpið skyldi vera í sínu vikulega fríi. Vamarliðið: Villti um fyrir lögreglunni Lögreglan í Keflavík fékk tilkynn- ingu um að mikill reykur og neyðar- blys hefðu sést frá sjónum úti fyrir Höfhum á Reykjanesi um fimmleytið í gær. Var lögreglulið sent á staðinn auk, manna fiá Slysavamafélagi íslands, en þegar betur var að gáð kom í ljós að þama vora vamarliðsmenn af Keflavíkurflugvelli að æfingum, skutu m.a. upp blysum sem höfðu villt um fyrir lögreglumönnum og vora með þyrluæfingar. Að sögn lögregluvarðstjóra í Kefla- vík er það algengt að vamarliðið sé með æfingar á þessum slóðum og láti lögregluna venjulegast vita af því fyr- irfram en að þessu sinni hafi það gleymst. Var því ekki þorandi annað en að athuga hvað væri á seyði þegar neyðarblys og reykur sáust á lofti. -BTH Fjórðungsþing Vestfirðlnga - verður haldið um helgina Regína Thoiarensen, DV, Gjögri Ábúðarmiklir hreppsnefndar- og sveitarstjómarmenn munu setja sig í stellingar og mæla af spekt og anda- gift á Fjórðungsþingi Vestfirðinga sem haldið verður á Isafirði 22. og 23. ágúst. Aðalmál þingsins era þau að rætt verður um skipulag skólamála á Vest- fjörðum. Framsögu í því máli hefur Pétur Bjamason fræðslustjóri. Einnig verður rætt um framvindu ferðamála í fjórðungnum. Birgir Þorgilsson hefur framsögu um málið. Stjórn Blaðaprents á fundi sínum i gær. Talið frá vinstri: Guðrún Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Þjóðviljans, Árni Gunnarsson, ritstjóri Alþýðublaðsins, Valdimar Jóhannesson, framkvæmdastjóri Alþýðublaðsins, Kristinn Finnbogason, stjórnarformaður Blaðaprents, Jón Kristjánsson, þingmaður Framsóknarflokks, Hrafnkell Ársæls- son, framkvæmdastjóri Blaðaprents, og Ragnar Árnason, formaður útgáfustjórnar Þjóðviljans. Síðumúlapressan undir eitt þak? Miklar breytingar virðast framund- an á starfsemi Blaðaprents hf. sem er prentsmiðja Tímans, Alþýðublaðsins og Þjóðviljans. Á stjómarfundi í fyrirtækinu í gær var rætt um samning sem verið er að gera við verktaka í Reykjavík um makaskipti á hxóseign Blaðaprents í Síðumúla og nýbyggingu verktakans við Lyngháls í Árbæjarhverfi. Kristinn Finnbogason, stjómarfor- maður Blaðaprents, sagði í samtali við DV í gær að samningurinn hefði feng- ið jákvæða umfjöllun á þessum fundi en að engar ákvarðanir hefðu verið teknar. Annar fundur í stjóm Blaða- prents hefur verið boðaður eftir viku., Kristinn sagði að nýbyggingin, sem hér um ræðir, væri 1500 fermetrar að stærð og er hún ennþá í smíðum. Ef af skiptunum yrði myndi þar skapast aðstaða fyrir ritstjómir blaðanna þriggja, Tímans, Alþýðublaðsins og Þjóðviljans. Sagði Kristinn að ekki væri verið að rasða um sameiningu blaðanna heldur einxmgis um leiðir til að auka hagkvæmni í rekstri þeirra. Væri til dæmis verið að athuga kaup á sameiginlegu tölvukerfi fyrir hlöðin þijú. -EA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.