Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.1986, Síða 2
2
LAUGARDAGUR 13. SEPTEMBER 1986.
Frétíir
Gunnlaugur Claessen:
Óvíst að
íslenskur
dómstóll
hefði verið
tekinn
gildur
Hefði verið unnt að yfirheyra ís-
lensku vitnin í skaðabótamáli ríkisins
gegn Sikorsky-þyrlufyrirtækinu fyrir
íslenskum dómstóli? Þessa spumingu
lagði DV fyrir Gunnlaug Claessen rík-
islögmann.
„Að sögn hinna bandarísku lög-
manna okkar í málinu þá hefði sá
kostur ekki verið fyrir hendi að höfða
einhliða vitnamál fyrir borgardómi
Reykjavíkur og senda endurrit af þvi
til hins bandaríska dómstóls. Slíkt
hefði örugglega ekki verið tekið gilt
sagði Gunnlaugur.
„Það er þess vegna mjög villandi
þegar því er haldið fram, án nokkurs
fyrirvara, að þessi leið hefði verið fær
og þessa leið hefði átt að fara. Gagn-
rýni, sem þannig er fram sett, án
nokkurrar könnunar á því hvort
vitnamál kæmi að gagni í málarekstr-
inum, verður því að teljast léttvæg.
Varðandi það hins vegar hvort unnt
hefði verið að fara þessa leið með sam-
komulagi við Sikorsky er um margt
óljóst. I fyrsta lagi hvort Sikorsky
hefði yfirhöfuð fallist á þá málsmeð-
ferð. í öðru lagi, jafnvel þótt Sikorsky
hefði fallist á það fyrir sitt leyti er
ekki víst að hinn bandaríski dómstóll
hefði tekið þær gildar. Það hefði fyrst
komið í ljós eftir á.
Hefði dómstóllinn ekki treyst sér til
að leggja slíkar yfirheyrslur til grund-
vallar er ljóst að mikil vinna, tími og
fyrirhöfii hefðu farið til einskis.
Hér verða menn auðvitað að hafa í
huga þann kjama málsins að málið
er rekið fyrir erlendum dómstóli og
um þann málarekstur gilda reglur við-
komandi lands, hvort sem okkur líkar
betur eða verr,“ sagði Gunnlaugur.
-KMU
PV
Seðlabankinn:
Tíu gjaldeyrisleyfi
til sumarhúsakaupa
Seðlabanki Islands hefur veitt 10
aðilum heimild til að yfirfæra gjald-
eyri vegna sumarhúsakaupa á Spáni.
Samkvæmt lögum eru gjaldeyris-
leyfin eingöngu veitt félagasamtök-
um eða stofhunum en aldrei
einstaklingum. Þrátt fyrir það munu
tugir sumarhúsa á Spáni vera einka-
eign íslendinga.
„Ef satt er þá hafa þau kaup farið
fram í leyfisleysi og kaupendumir
reyna að sjálfsögðu að halda þeim
leyndum," sagði talsmaður Seðla-
bankans í samtali við DV. „Enda
brot á landslögum."
Samkvænit heimildum DV fæst
aðeins eitt fyrirtæki hér á landi við
sölu á sumarhúsum á Spáni um þess-
ar mundir; G. Óskarsson & Co. Hefur
Þaö sprikla margir á sólinni á Spáni
án þess aö Seðlabankinn viti af því.
fyrirtækið þegar selt 10 hús á Spáni
og því fyllt núverandi kvóta Seðla-
bankans. Kaupendur sumarhúsanna
em:
Samvinnubankinn, Samvinnu-
tryggingar, 2 hús, Verðandi, sjó-
mannafélag Vestmannaeyja,
Starfsmannafélag Ritan, Félag is-
lenskra gullsmiða, 2 hús, Starfe-
mannafélag Garðabæjar, Iðnaðar-
mannafélag Sauðárkróks og
Orlofesamtökin Bakki.
Önnur hús, er íslendingar hafa
fjárfest í á Spáni, em því keypt án
vitundar gjaldeyrisyfirvalda og við-
skiptin ólögleg.
Einn umsvifámesti söluaðili sum-
arhúsa á Spáni til skamms tíma,
Páll Jónsson, hefur verið kærður til
Rannsóknarlögreglu ríkisins fyrir að
standa ekki skil á á greiðslum ein-
staklings vegna kaupa á sumarhúsi
og hafa fjölmargir aðrir sömu sögu
að segja. Nema svik Páls rúmum sex
milljónum króna.
Þá hefur Guðjón Styrkársson lög-
maður boðið spænsk sumarhús til
sölu en ekki selt neitt. Það sama
má segja um ferðaskrifetofúna Atl-
antik. Ferðaskrifstofan Útsýn hefúr
haft milligöngu um sölu íbúða á
Benal Beach á Torremolinos en
þjónusta ferðaskrifetofunnar hefúr
eingöngu fahst í því að koma vænt-
anlegum kaupendum í samband við
söluskrifetofúr ytra
-EIR
SIS í áfengis-
flutningana
- Eimskip siglir með tóbakið
„Sambandið siglir nú með allt áfengi
til landsins og Eimskip sér um tóbak-
ið. Þetta er árangur útboða á flutning-
unum og ég tel að við höfúm náð
rúmlega 50 prósenta lækkun frá al-
mennum töxtum skipafélaganna,"
sagði Höskuldur Jónsson, forstjóri
ÁTVR, í samtali við DV.
Að sögn Höskuldar, sem nú hefúr
setið í forstjórastóli ÁTVR í tæpt ár,
er verið að panta til landsins tæki og
annað sem þarf til að koma á sjálfeaf-
greiðslu áfengis. Verður það fyrst
reynt er áfengisútsalan í Kringlunni í
nýja miðbænum verður opnuð.
„Þá erum við að láta innrétta sér-
stakkr geymslur í húsnæði okkar á
Draghálsi fyrir dýr og vandmeðfarin
vín. Hingað til höfum við ekki haft tök
á að geyma slíkan vaming svo vel
sé,“ sagði Höskuldur.
Bið á nýjum útsölum
Einhver bið verður á því að nýjar
áfengisútsölur verði opnaðar utan
Reykjavíkur í kjölfar síðustu sveitar-
stjómarkosninga en þá var meirihluti
kjósenda í Ólafevík, Neskaupstað,
Hafnarfirði, Kópavogi og í Garðabæ
meðmæltur opnun áfengisútsölu í
sinni heimabyggð.
„Atkvæðagreiðsla í sveitarfélögum
leggur engar kvaðir á ríkissjóð í þess-
um efnum. Ég held að það sé nær að
ljúka þeim verkefnum sem þegar em
komin í gang. Við erum að fara að
opna útboð vegna byggingar í Mjódd-
inni og hún ætti sem best að geta
þjónað Garðabæ, Kópavogi og Hafn-
arfirði," sagði Höskuldur Jónsson.
-EIR
Höskuldur Jónsson: - Er að láta innrétta sérstakar geymslur fyrir dýr og vand-
meðfarin vín.
Fjórir stórmeistarar keppa í Grundarfirði
Stykki urðu tonn
Meinlegar villur urðu í viðtali við
Jón Sveinsson um heimtur hafbeitar-
stöðva í DV á fimmtudaginn. Rétt er
málsgreinin þannig:
„Samkvæmt gróflegri áætlun
slepptu hafbeitarstöðvamar samtals
um 425 þúsund laxaseiðum til sjávar
í fyrra. A þessu ári ém heimtur stöðv-
anna samtals í kringum 60 tonn. Árið
1985 vom heimtumar um 58 tonn og
árið 1984 um 24 tonn.“
Fjórir stórmeistarar og tveir al-
þjóðlegir meistarar verða meðal
þátttakenda í landsliðsflokki á
Skákþingi Islands sem hefet í grunn-
skóla Eyrarsveitar í Grundarfirði á
mánudag. Þetta er í fyrsta skípti sem
keppni í landsliðsflokki fer fram ut-
an höfúðborgarsvæðisins og sjaldan
eða aldrei hefur mótið verið betur
skipað.
Keppendur em þessir samkvæmt
töflunið: 1. Hannes Hlífar Stefáns-
son, 2. Jón L. Ámason, 3. Guðmund-
ur Sigurjónsson, 4. Þröstur
Þórhallsson, 5. Sævar Bjamason, 6.
Jóhann Hjartarson, 7. Margeir Pét-
ursson, 8. Þröstur Ámason, 9. Dan
Hansson, 10. Karl Þorsteins, 11.
Davíð Ólafeson og 12. Björgvin Jóns-
son.
í fyrstu umferð eigast þessir við:
Hannes og Björgvin, Jón og Davíð,
Guðmundur og Karl, tveir Þrestir,
Sævar og Dan, Jóhann og Margeir.
Teflt er frá kl. 18-23 virka daga en
frá kl. 14-19 um helgar, fostudagar
em frídagar. Tefldar verða 11 um-
ferðir á mótinu sem lýkur laugar-
daginn 27. september.
-JIÁ
Vanmerktar neysluvorur hættu-
legri en hreinlætisvörurnar
Það er misjafiit fyrir hverju heil-
brigðisyfirvöld veija þegnana. Þegar
fréttist um ódýra gosdrykki sem vom
á boðstólum í stórmarkaði var rokið
til og þeir teknir úr umferð vegna
þess að merking á drykkjunum var
ekki í samræmi við reglugerð. Hins
vegar em alls konar stórhættuleg
eiturefiii á boðstólum í verslunum
algerlega ómerkt á íslenska tungu
þrátt fyrir reglugerðir þar sem kveð-
ið er á um að slíkur vamingur eigi
að vera merktur á íslensku.
Tryggvi Þórðarson, heilbrigðis-
fulltrúi hjá Heilbrigðiseftirliti
Reykjavíkur, sagði að ekki væri
óeðlilegt að neysluvörur væm fjar-
lægðar ef merkingu þeirra væri áfátt.
En eftirlit með ómerktum eiturefria-
vörum í verslunum er spuming um
hvað yfirhlaðið heilbrigðiseftirlit
kemst yfir að kanna. „Þetta starf
bættist á okkur án þess að nokkur
breyting hafi orðið á starfeliðinu,"
sagði Tryggvi.
Heilbrigðisfulltrúamir
í búðarápi
Eftirlitið er framkvæmt þannig að
heilbrigðisfulltrúar fara í verslanir á
svæðinu og finna vanmerktar vörur
og senda þær síðan Hollustuvemd
ríkisins sem metur þær með tilliti til
merkinga og gefur síðan út lista yfir
þær vörur sem mælst er til við heil-
brigðiseftirlit í landinu að stöðvuð
verði sala á. Síðan verður að fylgj-
ast með því að vörur af listanum séu
ekki í verslunum. Einnig koma nýjar
vörur á markaðinn og þá þarf að
athuga þær með tilliti til merkingar
og innihalds.
„Það er víða pottur brotinn með
þessi merkingarmál. Það er alltaf að
slæðast pakki og pakki af ómerktum
þvottaefrium í hillumar eftir að
nokkuð gott lag er annars komið á
merkingu þvottaefiia í uppþvotta-
vélar,“ sagði Tryggvi.
„Þetta verður ekki í lagi fyrr en
komið verður á fót eftirliti með inn-
flutningi á þessum efiium," sagði
hann.
Tryggvi sagði að ekki væri einhlítt
að efiú sem merkt væru sem hættu-
vara í einu landi væm einnig merkt
svo í öðru landi. Kröfur em mismun-
andi. Vörur frá Englandi em yfirleitt
illa merktar sagði Tryggvi en aftur
á móti em vörur á Norðurlöndunum
undantekningarlaust vel merktar,
en ekki samkvæmt íslenskum regl-
um. Hér á landi em listamir yfir
hættuleg efni yfirleitt mun styttri en
eriendis. -A.BJ.