Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.1986, Síða 13
LAUGARDAGUR 13. SEPTEMBER 1986.
13
DV
OFF J
.4«
HtithohÞ&y of
pa rodUtJt* **?«**-«|» A
imtinfton.v
(vninritttt
\itut
IVtf'r <«ok
tfírhí«>‘I l r;*> u
l.Kil*-rb<>r(
KLn|>t<m
l«»»»wth«*»
t-.y?
l»v (h<m
!»><»» mttpptird
attti *u<u )>«*?■*'>•*
Iktited byl'im Oun-ley
' y h*nrt v r houU'
SS33J
Bresk fyndni
TAKING OFF
Ritstjórn: TIM DOWLEY.
Methuen, 1986.
Ýmsir fyndnustu menn á Bret-
landi leggja til efiú í safnritið
Taking off. Þar má nefna Monty
Python-hópinn, Michael Frayn,
Noel Coward, Peter Sellers, Alan
Bennett, S.J. Perelman og höf-
unda þessa ómótstæðilega
tímarits Private Eye. En hér eru
einnig höfundar af öðru sauða-
htisi. Til að mynda Tom Stopp-
ard, Max Beerbohm, Swinbume
og Ezra Pound.
Safiiað hefur verið skopstæl-
ingum á ólíkustu verkum, m.a.
eftir rithöfunda, ljóðskáld,
blaðamenn, gagnrýnendur, lög-
íræðinga og stjómmálamenn.
Hér em ljóð, greinar, sögur og
stuttir leikþættir.
Svo sem vænta má er efnið afar
misjafht að gæðum, og skopið
misjafnlega háð þekkingu á
breskum aðstæðum. En gullkom
má víða finna, ekki síst þegar
fjallað er um stjómmál og oft
hjákátlegt efni í bresku press-
unni.
Tíundi
maðurinn
THE TENTH MAN
Höfundur: Graham Greene.
Penguln Books, 1985.
Fremur mun óvanalegt að rit>
höfundar skrifi skáldsögur og
gleymi þeim síðan. Þetta virðist
þó hafa hent Graham Greene.
Hann samdi stutta sögu sem
gmndvöll væntanlegrar kvik-
myndar fyrir bandaríska stórfyr-
irtækið MGM árið 1944.
Handritið fór í skjalasafii fyrir-
tækisins og lá þar í tæpa fjóra
áratugi. Sagan var aldrei kvik-
mynduð en hefur nú birst á
prenti Greene-aðdáendum, og
reyndar höfundinum sjálfum, til
óblandinnar ánægju.
„Tíundi maðurinn" er afar for-
vitnileg frásögn af auðugum
lögfræðingi, Louis Chavel, sem
kaupir líf sitt svo dým verði að
hann hlýtur engan frið fyrr en í
dauðanum. Hann er einn þrjátíu
manna sem teknir em í gíslingu
á stríðsárunum. Tíundi hver
maður er tekinn af lífi. Fang-
amir draga. Chavel verður einn
hinna þriggja. I örvæntingu býð-
ur hann hverjum meðfanga sinna
sem er öll auðævi sín fyrir að
skipta við sig, deyja í sinn stað.
Ungur maður þekkist boðið.
Þegar Chavel sleppur úr fang-
elsi að stríðinu loknu er hann
fátækur maður sem verður að
búa við minninguna um hugleysi
á örlagastundu. Uppgjör hans
við sjálfan sig er kjami þessarar
meistaralegu Greene-sögu.
Erlend bóksjá
Amerískur harmleikur
SAVAGE GRACE
Höfundar: NATALIE ROBINS og STEVEN
M. L ARONSON.
Penguin Books, 1986.
Baekeland-fjölskyldan hafði til að
bera ýmislegt það eftirsóknarverðasta
sem tengt er ameríska draumnum í
hugum manna: auð, frægð og glæsi-
leika.
Leo Hendrik Baekeland var upp-
finningamaður sem varð vellauðugm-
af eigin rammleik. Hann fann m.a. upp
efnið Bakelite sem var eitt fyrstu pla-
stefhanna. Af þeim sökum var hann
oft titlaður í virðingarskyni „faðir
plastsins".
Leo Hendrik er þó ekki aðalpersón-
an í þeim ameríska harmleik sem
rakinn er í Savage Grace, heldur af-
komendur hans. Sérstaklega þó
sonarsonurinn Brooks, glæsileg og
fögur eiginkona hans, Barbara, og
sonur þeirra, Tony. Þetta var hæfi-
leikaríkt fólk sem gat þó ekki nýtt
hæfileika sína til gagnlegra hluta.
Þrír sjálfselskir og geðríkir einstakl-
ingar sem eyðilögðu líf hvers annars
af sannri íþrótt.
Meginatburðir í lífi þessara auðugu
iðjuleysingja eru sem úr lygilegum
amerískum auðstéttarreyfara. Hjónin,
og þó einkum Barbara, ólu Tony upp
í þeirri trú að hann væri einstakur
snillingur, ekki síst á sviði lista. Hann
gat aldrei risið undir þeim væntingum.
Sá alvarlegi ljóður var hins vegar á
ráði sonarins, að mati foreldranna, að
hann reyndist þegar á bamsaldri kyn-
hverfúr. Brooks og Barbara gerðu allt
sem þau gátu til þess að venja hann
af þeim ósið. Móðir hans hélt þannig
að honum álitlegum stúlkum með mi-
sjöfnum árangri.
Sambúð foreldranna sjálfra var þó
ekki til fyrirmyndar. Þau voru oft
ofeafengin hvort við annað og áttu það
til að leita ástarsambanda utan hjóna-
bandsins. Samband þeirra fékk svo
óvæntan enda þegar faðirinn, Brooks,
hvarf á braut með vinkonu sonarins
og skildi móður og son eftir í sárum.
Þegar Tony komst á táningaaldur-
inn fór hann að neyta eiturlyfja og
varð þá gjarnan ofsafenginn, ekki síst
við móður sína sem reyndi að stjóma
lífi hans á óeðlilegan og ógeðfelldan
hátt. Hún gekk til dæmis svo langt í
því að venja hann af kynvillunni að
samrekkja honum sjálf og gumaði
reyndar af því að í ástarmökum við
Metsölubækur
- pappírskiljur
BRETLAND
1. Jackie Collins:
LUCKY. (1)
2. B. T. Bradford:
HOLD THE DREAM. (2).
3. Anita Brookner:
FAMILY AND FRIENDS.
(5).
4. Wilbur Smith:
THE BURNING
SHORE. (3).
5. Arthur Hailey:
STRONG MEDICINE. (7).
6. Eric Can Lustbader:
JIAN. (6).
7. John Mortimer:
PARADISE POSTPONED.
(4).
8. Alice Walker:
THE COLOUR PURPLE. (-).
9. Isabel Allende:
THE HOUSE OF THE
SPIR ITS. (-).
10. Stephen King:
SKELETON CREW. (8).
(Byggt á The Sunday Tímes).
Umsjón:
Elías
Snæland
Jónsson
sig bæri hann engin merki þess að
vera kynhverfúr.
Þótt margir hafi orðið til þess að
óttast vaxandi geðveiki Tonys neitaði
faðir hans að sjá af peningum til þess
að hann hlyti nauðsynlega meðferð.
Og svo fór að lokum sem sumir óttuð-
ust að Tony framdi ógnvekjandi glæp.
Hann myrti móður sína.
En sagan er ekki þar með sögð.
Tony, sem framdi ódæðið í Bretlandi,
var settur á geðveikrahæli þar í landi.
Eftir nokkur ár tókst vinum hans að
koma því svo fyrir að honum var sleppt
og hann sendur til Ameríku. Þar
dvaldi hann hjá móðurömmu sinni.
Eftir aðeins vikudvöl á heimili öm-
munnar, þar sem hann gerði herbergi
sitt að eins konar hofi um móður sína
(krús með ösku móðurinnar var þar á
einskonar altari), réðist hann að
ömmu sinni með hnífi og lagði til
hennar mörgum stungum, að eigin
sögn til þess að hlífa henni við þján-
ingum þessa heims. Fyrir eitthvert
kraftaverk lifði hún af árásina en Tony
var handtekinn.
Þegar ljóst varð að yfirvöld í Banda-
ríkjunum höfðu ekki hug á því að
sleppa Tony lausum í bráð greip hann
til óyndisúrræðis. Hann framdi sjálfs-
morð. Og aðferðin var táknræn. Þetta
bamabamabam „föður plastsins"
kæfði sig með því að setja plastpoka
yfir höfuð sitt og hnýta fyrir.
Þessi rústun fjölskyldu, sem í fjar-
lægð séð virtist táknræn fyrir dásemd-
ir ameríska draumsins, er rakin í
Savage Grace með viðtölum við fjölda
manna sem átti samskipti við eitthvert
þeirra þriggja eða þau öll. Þar á með-
al em margir listamenn og áhangend-
ur lista en Baekeland-fjölskyldan lagði
rækt við samband við slíkt fólk. Hér
vitna til dæmis nokkrir þekktir rithöf-
undar, svo sem James Jones (sem
reyndar skrifaði skáldsögu um Bro-
oks, Barböru og Tony sem heitir The
Merry Month of May) og William
Styron. Harmsagan er rakin með
beinni ræðu þeirra vitna sem stíga
fram á sviðið. Einnig er birt mikið af
bréfum sem Brooks, Barbara og Tony
skrifúðu og fengu. Þessi frásagnarað-
ferð gerir verulegar kröfúr til lesenda
að meta ólíkar, jafiivel gagnstæðar,
fullyrðingar og draga ályktanir sem
höfundar slíkra bóka eru vanari að
gera sjálfir.
Saga Baekeland-fjölskyldunnar
hefði þótt fjarstæðukenndur reyfari.
Frásögnin er jafn blæbrigðarík og hún
er ótrúleg, enda viðhorf vitnanna til
þessarar ógæfusömu amerísku fjöl-
skyldu harla ólík. Þær raunverulegu
sögupersónur, sem hér er sagt frá, eru
alltof krepptar inn í sjálfa sig til að
vekja nokkra samúð. Það er þá helst
að Tony, móðurmorðinginn, höfði til
slíkra tilfinninga þar sem hann var svo
ljóslega eyðilagður andlega af foreld-
rum sínum.
Maður sem breytist í
konubrjóst
WHEN SHE WAS GOOD Roth er þekktur fyrir dirfeku í efnis-
THE BREAST
Hölundur: Philip Roth.
Penguin Books, 1986.
Bandaríski rithöfundurinn Philip
BANDARÍKIN
1. Garrison Keillor:
LAKE WOBEGON DAYS.
2. Larry McMurty:
LONESOME DOVE.
3. Jackie Collins:
LUCKY.
4. John Irving:
THE CIDER HOUSE
RULES.
5. Pat Both:
PALM BEACH.
6. John Saul:
HELLFIRE.
7. Lawrence Sanders:
THE FOURTH DEADLY
SIN.
8. Eric Van Lustbader:
JIAN.
9. Jennifer Wilde:
ANGEL IN SCARLET.
10. Herman Wouk:
INSIDE, OUTSIDE.
Rit almenns eðlis:
1. Priscilla Beaulieu Prestley:
ELVIS AND ME.
2. Lee lacocca og W. Novak:
IACOCCA:
AN AUTOBIOGRAPHY.
3. M. Scott Peck:
THE ROAD LESS
TRA VELED.
4. Marcia Chellis:
LIVING WITH THE
KENNEDYS.
5. Isak Dinesen:
OUT OF AFRICA og
SHADOW ON THE
GRASS.
(Byggt á The New Yorik Times Book Revi-
ew.)
vali og framsetningu. Þeir eiginleikar
njóta sín vel í sögunni The Breast en
þar segir af manni sem breytist í helj-
armikið konubrjóst.
Roth gengur hér í skóla hjá Kafka
sem ritaði í Metamorphosis um mann
sem tók á sig mynd skordýrs. En svo
sem Roth er von og vísa er hér lögð
mikil áhersla á kynferðishlið umbreyt-
ingarinnar sem innlegg í baráttuna
milli kynjanna.
Sagan um brjóstið kom fyrst út árið
1972 og vakti nokkrar deilur eins og
fleiri bækur Roth. Hugmyndin er
skemmtilega fáránleg og frásögnin
gegnsýrð þeim sérstæða húmor sem
Roth er lagið.
When She Was Good, sem er frá
árinu 1967, er fremur ömurleg frásögn
af óhamingju ungrar konu, Lucy, í
miðvesturríkjum Bandaríkjanna um
miðbik aldarinnar og þeirra karl-
manna sem hún á samskipti við.
Penguin hefúr á síðastliðnu ári gefið
út flestar bækur Philip Roth í sam-
ræmdri útgáfú og geta lesendur þar
kynnst honum svo náið sem hugur
þeirra stendur til. Hann er einn af
fremstu yngri rithöfundum Bandaríkj-
anna. í sögum sfnum er hann afar
upptekinn af þeim vandkvæðum sem
því fylgja að hans mati að vera karl-
maður og gyðingur. Hann hefur tekið
á þeim málum af hispursleysi og
dirfeku sem gjaman hafa leitt til um-
tals og deilna. Fáir mótmæla því að
Roth er afar hugmyndaríkur og skrifar
oft magnaðan texta. En óneitanlega
er hann bestur í hæfilegum skömmt-
um.
Hrollvekjandi
SKELETON CREW
Höfundur Stephen King.
Futura Publications, 1986.
Fáir hafa náð jafnmiklum vin-
sældum sem hrollvekjuhöfundar
og Stephen King. Hann semur
þykkar bækur um hryllilega og
yfimáttúrulega atburði sem
henda tiltölulega venjulegt fólk.
ímyndunarafli hans virðast þar
fáar skorður settar.
I þessa bók hefúr hann safnað
mörgum smásögum sem birst
hafa í ýmsum tímaritum á und-
anfömum árum. Sumar em
örstuttar en sú lengsta eiginlega
stutt skáldsaga. Hún er reyndar
einnig eftirminnilegasta sagan.
Þar segir frá viðureign manna
við óhugnanleg dýr sem virðast
eiga uppruna sinn í leynilegri
tilraunastöð. Að venju lætur
King atburðarásina gerast í
hversdagslegu umhverfi: hér er
helsta sögusviðið stór kjörbúð
sem verður um hríð einskonar
virki mannfólksins.
Margar styttri sagnanna em
einnig spennandi og áhugaverð-
ar. Þar segir til dæmis frá tölvu
sem nær sambandi við máttar-
völdin (Word Processor of the
Gods), handtaki sem ávallt leiðir
til dauða (The Man Who Would
Not Shake Hands) og manni sem
grípur til örþrifaráða til að
bjarga lífi sínu á eyðiey þegar
ekkert er þar til matar nema
hann sjálfur (Survivor Type).
Ovenjulegur
arfur
MISS PEABODY’S INHERITANCE
Höfundur: Ellzabeth Jolley.
Penguin Books, 1986.
Dorothy Peabody er miðaldra
kona sem býr við afar fábreyttar
aðstæður ásamt sjúkri móður
sinni. Hún skrifar bréf til ástr-
alsks skáldsagnahöfundar,
Diana Hopewell, sem svarar
mjög vinsamlega og segir henni
ekki aðeins frá sjálfri sér heldur
sendir henni einnig kafla úr
skáldsögu sem hún er að skrifa.
Dorothy laðast mjög að skáld-
konunni og fyllist áhuga á
sögupersónum hennar.
Með líkum hætti tekst Eliza-
beth Jolley, sem sjálf er áströlsk,
að fanga athygli og áhuga Jesan-
dans með þessari frumlegu sögu
um sífellt nánara andlegt sam-
band tveggja kvenna, sem aldrei
hafa hist, og söguþættina sem
tengja þær saman. Hvað er veru-
leiki og hvað ímyndun? Dorothy
á að lokum erfitt með að greina
þar á milli. Kannski eru skilin
harla óglögg og sú litla veröld,
sem ímyndunarafl skáldsagna-
höfundar skapar, engu óraun-
verulegri en hversdagslegur
veruleiki. í það minnsta er slík
tilbúin veröld sá arfur sem Do-
rothy hlýtur að lokum frá
vinkonu sinni hinum megin á
hnettinum.