Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.1986, Side 35
LAUGARDAGUR 13. SEPTEMBER 1986.
35
Bikarmeistarar 1986, sveit Samvinnuferða-Landsýnar. Talið frá vinstri: Jón Baldursson, Guðmundur Pétursson, Helgi
Jóhannsson, Valur Sigurðsson og Sigurður Sverrisson. Á myndina vantar Þorgeir Eyjólfsson.
Samvinnuferðir-Landsýn
bikarmeistarar 1986
Sveit Samvinnuferða-Landsýnar
varð bikarmeistari Bridgesambands
íslands 1986 um síðustu helgi er hún
vann sveit Jóns Hjaltasonar í undan-
úrslitum og síðan sveit Pólaris í
úrslitum.
Hinn undanúrslitaleikurinn stóð
milli sveita Sigfúsar Amar Ámasonar
og Pólaris og unnu þeir síðamefndu
með miklum yfirburðum. Töluverð
spenna var hins vegar í hinum undan-
úrslitaleiknum, milli Jóns og Sam-
vinnuferða-Landsýnar, þótt þeir
síðamefiidu ynnu örugglega með góðri
skor í síðustu lotunni.
Úrslitaleikurinn var hins vegar tölu-
vert ævintýralegur því að öllu jöfnu
heíðu Pólarismenn átt að vera búnir
að gera út um leikinn eftir fyrstu
16-spila lotuna. Þeir unnu hana 67-14
og héldu jöfnu í annarri, 32-32. Það
var því einungis formsatriði að vinna
leikinn, eða hvað? í þriðju lotunni
splittaði fyrirliði Pólaris ólympíupari
sínu, Guðlaugi og Emi, og þegar upp
var staðið höfðu Samvinnuferðir-
Landsýn skorað 77 impa en Polaris
engan. Þar með var frumkvæðið hjá
Samvinnuferðum og þeir unnu síðan
síðustu lotuna sannfærandi.
Hér er spennandi spil frá henni.
Allir á hættu/suður gefur.
lítið upp í slemmuna á hinu borðinu.
Þriggja laufa opnunin lofaði 5-5 í
láglitunum og ef til vill var Hjalti of
fljótur á sér að dobla með þetta góðan
stuðning við láglitina.
Noröurlandsmót
í tvímenningi ’86
Bridgesambönd Norðurlands,
eystra og vestra, gangast fyrir sam-
eiginlegu Norðurlandsmóti í tví-
menningskeppni laugardaginn 4.
október nk. í Félagsborg á Akureyri.
Spilamennska hefst kl. 10 árdegis.
Öllu spilaáhugafólki á Norðurlandi
er heimil þátttaka. Þetta verður í
fyrsta skiptið sem slíkt mót verður
haldið. Spilaðar verða tvær umferðir
eftir Mitchell-fyrirkomulagi, með 32
spilum í hvorri umferð. Keppnisstjóri
verður framkvæmdastjóri Bridge-
sambandsins, Ólafur Lárusson, en
tölvuútreikning annast Margrét
Þórðardóttir.
Þátttökutilkynningar þurfa að
hafa borist fyrir 1. október nk. til
Harðar Blöndal í s. 96-23124 eða Arn-
ar Einarssonar i s. 96-21053.
Allt spilaáhugafólk á Norðurlandi
er hvatt til þátttöku í þessu fyrsta
opna meistaramóti beggja svæðanna.
Góð verðlaun auk silfurstiga.
Röð efstu para varð þessi:
1. Arnar Geir Hinriksson-
Einar Valur Kristjánsson, ísafirði 176
2. Jón Gunnarsson -Jóhann Ævarsson,
Bolungarvík 149
3. Jóhannes Oddur Ðjarnason-
Hermann Sigurðsson, Þingeyri 140
4. Ása Loftsdóttir-Páll Áskelsson,
ísafirði 99
5. Ólöf Ólafsdóttir-Bjöm Sveinsson,
Tálknaf. 86
6. María Ólafsdóttir-Gunnar J.
Egilsson, Bolungarvík 85
7. Karl Gunnarsson-Pétur Júlíusson,
Bolungarvík 70
8. Steinberg Ríkharðsson-Þórður Reim-
arsson, Tálknafirði 63
Briddsfélag Breiðholts
Vetrarstarfsemi félagsins hófst sl.
þriðjudag. Spilaður var eins kvölds
tvímenningur í einum 14 para riðli.
Röð efstu para var þessi:
1. Rafn Kristjánsson-
Þorvaldur Valdimarsson 205
2.-3. Hermann Sigurðsson-
Þórhallur Gunnlaugsson 183
2.-3. Anton R. Gunnarsson-
Hjálmar Pólsson 183
4.-5. Leifur Karlsson-
Sigfús Skúlason 169
4.-5. Baldur Bjartmarsson-
Gunnlaugur Guðjónsson 169
Meðalskor 156
Næsta þriðjudag verður spilaður
eins kvölds tvímenningur en þriðju-
daginn 23. sept. hefst þriggja kvölda
hausttvímenningur. Aðalfundur fé-
lagsins verður haldinn í Gerðubergi
mánudagskvöldið 15. sept. kl. 20.
Spilað er í Gerðubergi og hefst spila-
mennska kl. 19.30 stundvíslega.
Keppnisstjóri er Hermann Lárusson.
Frá Briddsfélagi Hafnarfjarð-
ar
Fyrsti fundur nýkjörinnar stjórnar
var haldinn þ. 5.9. sl. og skipti stjórn-
in þá með sér verkum á eftirfarandi
hátt:
Formaður: Guðni Þorsteinsson,
varaformaður: Hulda Hjálmarsdótt-
ir,
ritari: Erla Sigurjónsdóttir,
gjaldkeri: Ingvar Ingvarsson,
áhaldavörður: Þórarinn Andrews-
son,
blaðafulltrúi: Kristján Hauksson.
Ákveðið var að hefja spilamennsku
á ný með „upphitun" mánudaginn
15. sept. nk. með eins kvölds tví-
menningi og mun spilamennskan
hefjast kl. 19.30 í Iþróttahúsinu við
Strandgötu.
Spilarar eru hvattir til að mæta og
nýir félagar eru velkomnir.
Opna Þjóöviljamótið
20. september
Afinælismót Þjóðviljans 20. sept-
ember í Gerðubergi ætlar að verða
eitt mesta bridgemót sem haldið hef-
ur verið. Yfir 50 pör (100 manns) eru
þegar skráð til leiks. Tryggt hefur
verið að allt húsnæðið að Gerðubergi
verði undirlagt spilaáhugafólki
þannig að enn er hægt að bæta við
nokkrum pörum. Lokafrestur til að
tilkynna þátttöku rennur út fimmtu-
daginn 18. september nk. Hægt er
að hafa samband við Ólaf Lárusson
á skrifstofu Bridgesambandsins
(18350) eða heima (16538).
Mjög glæsileg verðlaun eru í boði,
m.a. verða 1. verðlaun flug fyrir tvo
til Kaupmannahafnar eða Salzburg
(að vali) með Samvinnuferðum/
Landsýn.
Keppnisgjaldi er mjög stillt í hóf,
aðeins kr. 600 fyrir spilara. Að auki
verður spilað um silfurstig. Keppnis-
stjóri verður Ólafur Lárusson en
Vigfús Pálsson mun annast tölvu-
vinnslu útreiknings.
Norbur
+ KD109875
<7 9632
0 6
+ 9
Veítur Austur
*Á +G432
f75 VÁG104
0 K9854 0 ÁD
+ ÁKG84 + D103
SUÐUR
46
KD8
0 G10732
+ 7652
I opna salnum sátu n-s Ásmundur
Pálsson og Karl Sigurhjartarson en
a-v Sigurður Sverrisson og Jón Bald-
ursson.
Þar gengu sagnir á þessa leið:
Suður Vestur Norður Austur
pass 1T 2S dobl
pass 4L pass 6L
pass pass
Ásmundur spilaði út tígli og Jón
drap í blindum. Hann tók síðan tvisv-
ar tromp og spilaði tígli. Þegar norður
var ekki með voru góð ráð dýr og Jón
fór inn á spaðaás til þess að trompa
tígul. Síðan trompaði hann sig heim
með spaða og spilaði hjarta og svínaði
tíunni.
Eins og lesendur sjá er spilið nú tap-
að ef Karl spilar hjarta til baka en
hann var of fljótur á sér og spilaði tígli.
Nú var Jón með pálmann í höndun-
um, hann drap með kóngnum og tók
trompin í botn. Endastaðan var ein-
ungis tæknileg úrvinnsla, þ.e. sönnuð
tvöföld kastþröng þar sem norður
verður að valda spaðann og suður tíg-
ulinn og hvorugur getur því valdað
hjartað.
Auðvitað gat Jón unnið slemmuna
með því að spila hjartagosa áður en
hann trompaði sig heim á spaðann en
þá verður suður líka að eiga hjarta-
hjónin. Og raunar verður hann að eiga
þau ef spilið á að geta unnist.
í lokaða salnum sátu n-s Þorgeir
Eyjólfsson og Helgi Jóhannsson en
a-v Hjalti Elíasson og Öm Amþórs-
son.
Sagnimar vom styttri:
Suður Vestur Norður Austur
pass 3L 3S dobl
pass pass pass
Þorgeir varð tvo niður en 500 vom
Opna minningarmótið á
Selfossi 11. október:
Opna minningarmótið á Selfossi,
tileinkað Einari Þorfinnssyni, verð-
ur haldið á Selfossi, laugardaginn 11.
október nk. Mótið verður með baro-
metersniði, með tveimur spilum milli
para, miðað við 36 para þátttöku.
Umsjónarmenn verða þeir Hermann
og Ólafur Lárussynir.
Skráning er þegar hafin hjá stjóm
félagsins á staðnum (Valdimar
Bragason er formaður félagsins), svo
og hjá ólafi Lárussyni á skrifstofu
Bridgesambandsins.
Vakin er sérstök athygli á því að
mótið er miðað við 36 para þátttöku,
þannig að búast má við að fljótlega
fyllist í það. Áríðandi er því að spilar-
ar láti skrá sig hið allra fyrsta.
TBK
Vetrarstarf Tafl- og bridgeklúbbs-
ins hefst fimmtudaginn 18. sept. nk.
með tvímenningskeppni. Spilað
verður í Domus Medica eins og und-
anfarin ár og hefst kl. 19.30. Skráning
í síma 34611 (Gísli). Stjómin.
Bridgedeild Breiðfirðinga
Vetrarstarf félagsins hefst fimmtu-
daginn 18. sept. með eins kvölds
tvímenningi. Spilamennska hefst
stundvíslega kl. 19.30. Spilað er í
húsi Hreyfils við Grensásveg og er
ísak Sigurðsson keppnisstjóri.
Aðalfundur félagsins verður haldinn
annan sunnudag, 25. sept., í Hreyfils-
húsinu kl. 16.00.
Frá Bridgesambandi Vest-
fjarða
Arnar Geir Hinriksson og Einar
Valur Kristjánsson frá ísafirði urðu
Vestfjarðameistarar í tvímennings-
keppni 1986. Mótið var spilað á
Þingeyri um síðustu helgi með þátt-
töku 27 para, víðs vegar að. Keppnis-
stjóri var Ólafur Lámsson.
Arnar og Einar tóku forystuna um
miðbik mótsins og héldu henni af
öryggi. Þeir báru einnig sigur úr
býtum árið 1985 og hafa raunar verið
viðloðandi þennan titil síðustu árin.
Mótið fór afar vel fram undir styrkri
stjórn þeirra heimamanna, enda að-
stæður til fyrirmyndar á keppnisstað.
(Spilað var í nýja skólanum á Þing-
eyri.)
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á fasteigninni Funahöfða 7, þingl. eigandi Miðfell hf., fer
fram á eigninni sjálfri miðvikud. 17. sept. 1986 kl. 10.30. Uppboðsbeiðend-
ur eru Iðnaðarbanki íslands hf., Skúli Bjarnason hdl., Jón Finnsson hrl.,
Gjaldheimtan í Reykjavík, Ólafur Gústafsson hri. og Skúli J. Pálmason hri.
Borgarfógetaembættið í Reykjavik.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á fasteigninni Logafold 75, þingl. eigandi Ásmundur Jó-
hannsson, fer fram á eigninni sjálfri miðvikud. 17. sept. 1986 kl. 11.30.
Uppboðsbeiðendur eru Gjaldheimtan í Reykjavík og Veðdeild Landsbanka
íslands.
Borgarfógetaembættið i Reykjavík,
Nauðungaruppboð
á fasteigninni Markan/egi 15, íb. 0102, tal. eigandi Garðar Sigurþórsson, fer
fram á eigninni sjálfri miðvikud. 17. sept. 1986 kl. 16.00. Uppboðsbeiðandi
er Sveinn H. Valdimarsson hrl.
Borgarfógetaembættið í Reykjavik.
EINKAMÁL
Til sölu VHS-videóspólur fyrir
fullorðna
Verð frá kr. 1700.
Þeirsem óska nánari upplýsinga leggi nafn og
heimilisfang í pósthólf 8231, 128 Rvk.
/fi* /fi* /fi* /fi* /Á /£* /fi* /fi* /fi* /fi* /fi* /fi* /fi* /fi* /fi* /fi* /fi* /fi* /fi* /l
þús.km.
X Merc.-Benz 280 s 97 1978 690.000,-
X Chrysler Le Baron m/öllu 90 1981 450.000,-
X Nissan Cedric ST 65 1985 690.000,-
Toyota Tercel 4x4 25 1985 500.000,-
X Plymouth Premier 111 1979 250.000,-
X Rover 78 1979 350.000,-
Willys 8 cyl. lítið 1942 220.000,-
X Mercury Lynx 40 1983 400.000,-
Fiat Uno 45 16 1985 250.000,-
XFiatUno ES 26 1984 230.000,-
Honda Accord 86 1980 200.000,-
Chevrolet Concours 91 1977 220.000,-
X Volvo 264 GLE 60 á vél 1979 330.000,-
XFiatPanda 54 1982 135.000,-
X Suzuki Pic. pallbíll 60 1982 250.000,-
X Ford Fiesta GIHA 110 1979 120.000,-
XSuzuki AltoSS 74 1983 220.000,-
Econoline húsbill 150 1978 500.000,-
Ford Mustang4cyl. 102 1980 280.000,-
X Ford Fairmont Futura 70 1981 310.000,-
Ford Maverick 66 míl. 1976 160.000,-
FordTaunus 69 1982 270.000,-
X Suzuki Alto 40 1981 135.000,-
X Nissan Sunny 57 1983 240.000,-
Honda Accord 61 1981 315.000,-
XSuzuki AltoSS 15 1983 230.000,-
X Fiat Panorama st. 18 1985 250.000,-
Suzuki Alto 64 1981 130.000,-
X Honda Civic 68 1981 220.000,-
X Fiat Ritmo 66 1982 220.000,-
Ford Escort LX1300 49 1984 320.000,-
X Citroen 16 BX 33 1984 500.000,-
X Fiat Panorama st. 23 1985 230.000,-
X Honda 200 ES þrihjól 1984 160.000,-
X Econoline 4x4,12 manna 45 1979 850.000,-
Porche 924 2á vél 1977 480.000,-
Ath: Bílar merktir X fást að hluta til á skuldabréfi í
allt að 9 til 18 mán. og jafnvel lengur, þá fasteigna-
tryggð bréf.
Opið frá kl. 9 til 19 alla virka daga
og laugardaga frá kl. 10 til 17.
kss *;rrjr" BÍLAKJ ALLARINN
skún Gfsiason Fordhusinu v/hliö Hagkaups.
fr.kv.stj: Rnnbogi Ásgeinwon Símar 685366 og 84370.
Vantar á söluskrá:
Suzuki Alto 1981-83
Fiat Uno 1983-85
Ford Fiesta 1983-84
Mazda 323 1983-84
Ford Sierra 1600 1984
Árg. Verð
FORD HUSINU
Tegundir Ekinn