Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.1986, Qupperneq 3
ÞRIÐJUDAGUR 14. OKTÓBER 1986.
3
Fréttir
Vildu spila
upp á gjaldið
Leigubílstjóri, sem ekið hefur
þremur ítölskum fréttamönnum
alla siðustu viku, varð fyrir sér-
kennilegri reynslu þegar kom að
því að gera upp reikningana. Fyr-
irfram var samið um ákveðið gjald
en þegar að uppgjöri kom buðu
ítalamir honum að spila upp á það
að annað hvort fengi hann tvöfalt
gjald eða tapaði öllu.
Bílstjórinn sagði blaðamanni DV
að hann væri vanur fjárhættuspili
og hefði alveg verið til i þetta,
hefði hann tekið upp spilastokk
og stokkað vel og boðið upp á að
draga spil, sá sem fengi hærra spil-
ið væri sigurvegarinn. Hann
sagðist hafa dregið á undan og
fengið spaðagosa. En þegar að því
kom að ítalinn drægi guggnaði
hann þótt hann vissi ekki hvaða
spil bílstjórinn væri með á hendi.
„Því er nú and... verr að hann vildi
ekki draga, ég er sannfærður um
að ég hefði unnið," sagði bíistjór-
inn en upphæðin var mjög há,
skipti hundruðum þúsunda ef
hann hefði unnið. -S.dór.
Bfllinn fannst
í höfhinni
Jón G. Haufcsson, DV, Akureyii:
Lancerbíllinn, sem stohð var á
Akureyri aðfaranótt 12. september
s!., fonnst á laugardaginn. Honum
hafði verið ekið í höfhina á Akur-
eyri.
Það var trillusjómaður sem fann
bilinn er hann kom fram á dýptar-
mæli hjá honum undan bryggjunni
framan við sláturhús KEA. Bíllinn
var á hvolfi á botninum og er ljóst
að þeir sem stálu honum hafa ýtt
honum út af bryggjunni að notkun
lokinni.
Ekið á dreng
Jón G. Haukssan, DV, Akureyri:
Um helgina var ekið á ungan
dreng á Hólabraut á Akureyri.
Drengurinn var fluttur á sjúkra-
hús en fékk fljótlega að fara heim
því meiðsl hans voru lítil.
Þá lenti piltur á vélhjóli í
árekstri við bifreið á gatnamótum
Glerárgötu og Strandgötu. Hann
var einnig fluttur á sjúkrahús en
meiðsl hans reyndust minni háttar.
^ Notar ^
þú
Gold Sonne/RS
WOLFF
SYSTEM
Það gera vandlátir.
BENCO,
-^s. (91 )-21945^-^
Norsk Stál og Sindra Stál. Enn treystum við þjónustuna.
STÁLHF
Pósthólf 881, Borgartuni 31, 105 Reykjavík, sími: 27222.
NORSKA STÁUÐ ER KOMIÐ!
Nýlega hóf Sindra Stál öflugt samstarf við hið velþekkta
fyrirtæki Norsk Stál.
Við væntum mikils af þessu samstarfi. Sívaxandi styrkur
Sindra Stáls felst einmitt í víðtækri og skjótri þjónustu.
Norsk Stál, Bergen.
Geysiöflug birgðastöð fyrirýmiss konarstál, t.d. skipaplötur
og skipastangajárn. Snögg afhending vegna sérverkefna.
Norsk Stál, Fredrikstad.
Sérhæfir sig f þunnu stáli, t.d. kaldvölsuðum og galv-
aniseruðum plötum. Staðlaðar stærðir eða sniðið
nákvæmlega að óskum kaupenda.
maBorka
SUMARAUKI
Hvernig væri að enda sumarið með sumarauka á Mallorka?
Við bjóðum uppá 3 stuttar ferðir.
Gist verður á okkar rómuðu Royal íbúðarhótelum.
Þetta eru vinsælustu ferðirnar.
Brottfarardagar: 22. október - 8 dagar, uppselt.
29. október - 5 dagar, uppselt.
2. nóvember - 7 dagar, fá sæti laus.
Verð frá kr. 12.800,-
Miðað við 4 saman í íbúð.
Ferðaskrifstofa, Hallveigarstíg 1 - Símar 28388 - 28580.