Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.1986, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.1986, Blaðsíða 7
ÞRIÐJUDAGUR 14. OKTÓBER 1986. 7 Rússneska skipið, Georg Otz, sem Gorbatsjov og Raisa bjuggu í, hélt frá Reykjavik skömmu eftir hádegi i gær. Hér heldur það út á ytri höfnina. DV-mynd S Eríendu gestimir á leiðtogafundinum: Flestir famir Flestir þeir sem sóttu ísland heim vegna leiðtogafundarins eru famir eða fara í dag. Rússnesku skemmti- ferðaskipin Baltika og Georg Otz létu bæði úr höfn eftir hádegi í gær og Bolette fer í dag. Allt liðið sem tengist Hvíta húsinu fór á sunnudag og á leigunámshótel- unum fjórum, Holti, Esju, Loftleið- um og Sögu, fengust þær upplýsing- ar að flestir hefðu tekið saman pjönkur sínar í gær en hinir færu í dag. Hjá Ferðaskrifstofu ríkisins feng- ust þær upplýsingar að langflestir, er skrifstofan hefði útvegað hús- næði, hefðu farið i gær og þeir síðustu færu i dag. ' -KÞ Reykjavikurhofn: Ekki var leitað í trillubátunum Tveir sjómenn sem voru að leggja af stað á sjóinn voru teknir með byssu í Reykjavíkurhöfh sl. laugardag eins og DV hefur skýrt frá. Þetta leiðir hugann að því að algengt er að trillu- karlar hafi byssur með sér á sjóinn og skjóti svartfugl. Það kemur og fyr- ir að byssumar em geymdar um borð í trillunum þegar þær em í landi. En var gerð vopnaleit í trillunum í Reykjavíkurhöfn í sambandi við allar þær miklu öryggisráðstafanir sem gerðar vom vegna leiðtogafúndarins? Þessa spumingu bárum við upp við Bjarka Elíasson yfirlögregluþjón. Hann sagði að engin vopnaleit hefði farið fram í trillunum. „Ég held að það heyri til algerra undantekninga að trillukarlar geymi byssur sínar um borð í trillunum nú- orðið. Það hefur verið svo mikið um innbrot í trillumar að þeir taka öll verðmæti með sér heim,“ sagði Bjarki. Hann sagði að eftir atburðinn í Daníelsslippnum hér um árið þegar maður ógnaði fólki með byssu, sem hann hafði stolið úr trillubát, hefði lögreglan haft samband við trillukarl- ana og farið fram á það að þeir geymdu ekki vopn um borð í trillunum. Sagð- ist Bjarki trúa því að eftir þessum óskum lögreglunnar væri farið. -S.dór. Fréttir Hótel Loftleiðir: 77Komum líklega sléttir útÉé „Nýting á hótelinu hefði verið jafn- mikil þó svo að fundurinn hefði ekki komið til,“ sagði Einar Olgeirsson, hótelstjóri Hótel Loftleiða, þegar við spurðum hann í gær um nýtinguna þar í síðustu viku. „Þetta gekk allt mjög vel og líklega komum við sléttir út úr þessu dæmi. Við hækkuðum örlítið verðið til þess að mæta þeim aukna tilkostnaði sem hótelið varð að leggja fram enda gerð- um við alls ekki ráð fyrir neinum greiðslum frá hinu opinbera í tengsl- um við leigunámið. Málið var að bjarga gistivandamálinu og á það lögðum við aðaláherslu,“ sagði Einar. -SJ Hótel Esja: „Eigum eftir að gera dæmið upp“ Hótel Esja var eitt þeirra hótela sem var tekið leigunámi vegna leiðtoga- fundarins. Við spurðum Aðalstein Hans Indriðason, hótelstjóra hvemig nýtingin hefði verið á meðan leigun- ámslögin vom í gildi. „Það var fín nýting hjá okkur, en við urðum samt fyrir því að nokkur herbergi stóðu ónotuð og ekki er ljóst hver greiðir kostnaðinn af því. Við eigum eftir að gera dæmið upp en við vorum með fullbókað hótel fyrir og þurftum því að breyta pöntunum og ég held að það taki smátíma að koma hlutunum í samt lag hér hjá okkur," sagði Aðal- steinn. Hann sagðist hafa hevrt nokkrar óánægju raddir erlendis frá vegna þeirra breytinga sem varð að gera á pöntunum í kjölfar leigunámsins. -SJ Hótel Saga: „Slæmt að skemmtana- hald lagðist niður“ „Við vorum með fullbókað fyrir, þannig að það breytti ekki miklu þó að rússamir kæmu hér inn. Um tíma vom milli 50 og 60 herbergi tóm hjá okkur og við vitum ekki hvort rúss- amir borgi það, eða hið opinbera. Við eigum eftir að kanna það mál,“ sagði Bjarni Sigtryggsson, aðstoðarhótel- stjóri Hótel Sögu aðspurður um nýtingu á hótelinu á meðan leigun- ámsákvæðin giltu. Bjami sagði að líklega mundi hótel- ið ekki hagnast beinlínis á viðskiptun- um í síðustu viku. „Það sem var líklega verst við þetta mál er að ekki var hægt að halda almenna dansleiki hér um síðustu helgi og þar með töp- uðust töluverðar tekjur bæði fyrir hótelið sem og starfsfólk," sagði Bjarni. Aðeins hefur borist eitt bréf frá danskri ferðaskrifstofu sem hótar málaferlum vegna breytinga á pöntun- um, en Bjami sagði ljóst að hótelið gæti ekki bætt þeim neinn kostnað vegna þessara breytinga. -SJ - Kynnist ----------- V. undratölvunni Macintosh l S og nýjustu tölvunni / Opnum á morgun Radíóbúðinni Skipholti 19 o V __ :==aey^=y>-S[, /3 'n=*i Opin frá kl. 9-18 miðvikud. fimmtud. og föstud. Enginn aðgangseyrir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.