Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.1986, Page 5

Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.1986, Page 5
ÞRIÐJUDAGUR 14. OKTÓBER 1986. 5 Sterkari, sannari SjálfstæÖisflokkur Það er óþarfi að fara mörgum orðum um Albert Guðmundsson. Allt sjálfstæðisfólk þekkir vel kraft hans og ósérhlífni við að leggja góðum málum lið. Albert Guðmundsson er samt af ýmsum talinn rekast illa í Sjálfstæðisflokknum. Þannig er það oft um sterka, sjálfstæða einstaklinga, ekki bara í okkar flokki, heldur öllum flokkum - hérlendis sem erlendis. En þeir styrkja líka flokka og breikka stórlega, - og enginn éfast um stuðning Alberts við S j álfstæðisstefnuna. Allt sjálfstæðisfólk veit að það er stærri, sterkari og umfram allt sannari Sjálfstæðisflokkur sem býður fram með Albert Guðmundsson í fylkingarbrj ósti í Reykjavík. Sjálfstæðisfólk! Leggjum ekki andstæðingum Alberts Guðmundssonar lið við tilraunir þeirra til þess að koma honum á kné og grafa þannig undan mögu- leikum Sjálfstæðisflokksins í komandi kosningum. Stefnum ótrauð að glæsilegum sigri hans í prófkjörinu sem fram fer á laugardaginn. Sjálfstæðisfólk! Stöndum þétt saman um sterkan lista í Reykjavík undir styrkri forystu Alberts Guðmundssonar. Stöndum þétt saman þann 18. október um stærri, sterkari og sannari Sjálfstæðisflokk. Stuðningsmenn Alberts Guðmundssonar. Skrifstofa stuðningsmanna er að Nóatúni 17. Símar 20020,21551 og 23556.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.