Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.1986, Qupperneq 11
ÞRIÐJUDAGUR 14. OKTÓBER 1986.
11
Fréttir
Gorbatsjov-hjómn kveðja
Raisa og Michael Gorbatsjov fóru af landi bron í gær. Hér sjást þau hjónin veifa til peirra sem komu að kveðja þau
á Keflavikurflugvelli. Við hlið Gorbatsjovs standa ráðgjafar hans, Arbatov og Dobrynin. DV-mynd: GVA
„Vandamálin leyst-
ust farsællega"
- sagði Birglr Þorgilsson
„Þetta gekk allt vel og gistivanda-
málið leystist að mestu innan
borgarmai-kanna. Við vorum t.d.
með heimild til að loka tveim skólum
á Laugarvatni sem við þurftum ekki
að nota. Vandamálin leystust far-
sællega og ekki síst vegna góðrar
samvinnu allra þeirra sem tóku þátt
í þessu starfi,“ sagði Birgir Þorgils-
son ferðamálastjóri í samtali við DV.
Hann taldi að um 3.500 manns
heföu komið hingað til lands vegna
fundarins og ljóst væri að einhverjir
hefðu fallið í þii gryíju að borga
óeðlilega hátt verð fvrir gistingu.
-SJ
Póstur og sími:
Kostnaður innan-
lands 10 til
20 milljónir
„Það er ljóst að dæ.mð er mjög
stórt og útlagður kostnaður, svo sem
vinnulaun og efhiskostnaður vegna
leiðtogafúndarins hjá Pósti og síma,
er einhvers staðar á bilinu 10-20
milljónir," sagði Guðmundvir
Bjömsson, aðstoðar póst-og síma-
málastjóri, aðspurður um útlagðan
kostnað hjá stofnuninni vegna íúnd-
arins um helgina.
Verið var að vánna að uppgjöri
vegna leiðtogafundarins hjá Pósti
og síma í gær og sagðist Guðmundur
vonast til að þeir kæmu nokkuð slétt
út úr þessu. Hann sagðist samt ekki
eiga von á að tekjur yrðu mikið
umfram gjöldin. Inni i áætlun Guð-
mundar em ekki tölúr vegna kostn-
aðar Pósts og síma af samskiptum
við útlönd. -SJ
Reagan og
Gorbatsjov fengu
Guðbrandsbiblíu
Biskup íslands, herra Pétur Sigur-
geirsson, afhenti á sumiudag
Guðbrandsbiblíu að gjöf til Reagans
og Gorbatsjovs í tilefni ;if fúndi
þeirra hér í Reykjavík með kveðju
frá íslensku þjóðkirkjunni.
I bréfi sem fylgir gjöfinni til leið-
toganna þakkar biskup þeim
komuna til landsins og lætur í ljósi
bæn um frið á jörð.
Guðbrandsbiblía er fyrsta íslenska
biblían og kom hún út 1584. Leið-
togamir fengu ljósprentaða gerð
biblíunnar sem kom út fyrir tveimur
árum þegar 400 ár vom liðin frá þvi
að hún var fyrst prentuð að Hólum
í Hjaltadal.
-SJ
Mæður
fyrir
frelsi
hittu
konur á
Alþingi
Fulltrúar ísraelsku samtakanna
Mæður fyrir frelsi hittu íslenskar al-
þingiskonur í þinghúsinu á meðan þær
dvöldu hér í tengslum við leiðtoga-
fundinn.
Það er ísraelska þingkonan Nava
Arad sen veitir samtökunum forstöðu
og em 200 mæður í þeim sem eiga
böm búsett í Sovétríkjunum og geta
ekki fengið leyfi til að sameinast fjöl-
skyldum sínum í Israel.
Islensku alþingiskonumar kváðust
líta á þetta mál sem-hluta af almennri
mannréttindabaráttu og ætla þær að
skora á Alþingi að styðja mæðumar
og standa vörð um baráttu þeirra fyrir
að sameinast sonum og dætrum á ný.
-SJ
Reagan og Gorbasjov ganga föstum skrefum af fundarstað i Höfða. DV-mynd: GVA
Reagan og Gorbatsjov:
Þetta
eru geðs-
legir
menn
- segir Steingrimur
„Báðir þessir menn komu mér vel
fyrir sjónir. Þetta eru geðslegir
menn,“ sagði Steingrímur Her-
mannsson forsætisráðherra þegar
hann var spurður hvemig honum
litist á þá Reagan og Gorbatsjov.
„Ég og Vigdís áttum mjög' ánægju-
lega fundi með þeim báðum. Reyndar
urðu þeir lengri en fyrirhugað var í
upphafi. Við ræddum við þá um land
og þjóð, samskipti þjóðanna og ég
spurði um þennan fund þeirra og
heimspólitíkina almennt.
Þetta voru ósköp ánægjulegar
stundir sem við áttum með þessum
mönnum og mér finnst þeir ekkert
öðruvísi en ég og þú,“ sagði Stein-
grímur Hermannsson.
-KÞ