Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.1986, Qupperneq 25
ÞRIÐJUDAGUR 14. OKTÓBER 1986.
25
Sandkom
Jón Óttar Ragnarsson stöðv-
arstjóri.
Rifist um
dollarann
Það varð margur landinn
skúffaður þegar ljóst varð að
ekki var hægt að græða eins
mikið á leiðtogafundinum og
útlit hafði verið í fyrstu. En
sumir voru klókari en aðrir
og fengu nokkra dollara í
budduna.
Einn hinná heppnu var
leigubílstjóri nokkur í borg-
inni sem fékk það eftirsótta
hlutverk að snatta með er-
lenda gesti. Hann lét sér ekki
nægja að nota leigubílinn
heldur hafði einnig á sínum
snærum þrjá einkabíla sem
hann halaði drjúgt inn á líka.
Á meðan sátu aðrir leigubíl-
stjórar meira og minna
aðgerðalausir og öskuillir á
stöðvunum. Fólki hafði jú ver-
ið sagt að halda sig heima yfir
leiðtogahelgina og hlýddu
margir því kalli nauðugir vilj-
ugir.
Erfið byrjun
Þeir voru ári óheppnir á
Stöð 2 að tækjabúnaðurinn
skyldi klikka þegar þeir ætl-
uðu að fara að senda út fréttir
fyrstu dagana eftir að stöðin
tók til starfa. Ætlunin var að
taka þátt í leiðtogarallinu af
fullum þunga. En þá biluðu
tækin og helgin leið án frétta-
útsendinga.
Sú skoðun heyrist nú víða
að forráðamenn stöðvarinnar
hefðu átt að bíða með að opna
hana þar til tæknimenn hefðu
verið búnir að læra á tækin
og fyrirséð að útsendingar
gætu gengið hnökralaust.
Stöðin hefði ekkert unnið við
að elta leiðtogafundinn, enda
hefði sá biti verið henni of
erfiður á bernskuskeiðinu.
Eða eins og einn tæknimanna
Stöðvar 2 orðaði það, þegar
hann var spurður fyrir helgi
hvort ekki væri erfitt að byrja
á þvílíkum hasar sem leið-
togafundinum í fyrsta frétta-
tíma:
„Þetta er bara eins og að
láta hvítvoðung borða nauta-
steik á fyrsta degi.“
En krakkinn varð af steik-
inni í þetta skiptið, eins og
allir vita. Vonandi kemst
hann þó til manns þegar fram
líða stundir.
Fáirvildu
frelsast
Bæjarfulltrúamir á Isafirði
hafa lítinn áhuga á að ganga
hinn mjóa veg dyggðarinnar,
að því er blaðið Bæjarins
besta segir.
Það gerðist í lok bæjar-
stjómarfundar á ísafirði á
dögunum að bæj arstj óri
kvaddi sér hljóðs utan dag-
skrár. Skýrði hann skömlega
frá því að væntanlegir væm
til bæjarins nokkrir bindindis-
menn, þar á meðal æðsti
templar, til að halda erindi um
áfengisneyslu og þann voða
sem af henni er sagður hljót-
ast. Benti hann bæjarfulltrú-
um á að fylgjast með
fundarboðinu ef þeir vildu eða
teldu sig hafa gagn af erind-
inu.
Bindindisfundurinn var svo
haldinn skömmu síðar. Kom
þá í ljós að einungis þrír bæj-
arfulltrúar „töldu sig hafa
gagn af erindinu" og mættu
til eldmessunnar. Er líklegt
að staða bæjarstjómarinnar
hafi enn styrkst við þetta
framtak þremenninganna.
Sýning á
Vellinum
Það rak margan sjónvarpsá-
horfandann í rogastans þegar
varpað var beint frá heimsókn
Ronalds Reagan Bandaríkja-
forseta í flugskýlið á Keflavík-
urflugvelli í fyrradag. Þar
fognuðu forsetanum landar
hans á Vellinum, með góli og
blístri, eins og unglingar á
útitónleikum. Reagan sagði
fáeina fimmaurabrandara og
jukust þá fagnaðarlætin um
allan helming.
Þessi sýning mun hafa farið
mjög fyrir brjóstið á þeim sem
heima sátu. Einn þeirra stóðst
ekki mátið þegar pípið stóð
sem hæst á Vellinum og stjak-
aði við imbakassanum sínum
þannig að það slokknaði á
honum. Fór hann ekki meira
í gang þann daginn og mun
líklega þurfa á sérfræðilegri
aðhlynningu að halda til að
komast í samt lag aftur. Eig-
andinn dreif sig yfir í næstu
íbúð til að fá að horfa á sión-
varpið þar. Það var leyft gegn
því að hann tæki ekki virkan
þátt í því sem var að gerast á
skerminum. Því er við þetta
að bæta að umræddum sjón-
varpseiganda er obbolítið í
nöp við herinn. Skrautsýning-
in í fiugskýlinu var því heldur
mikið af því góða.
Imbakassinn fór fyrir litið
vegna gleöinnar á Vellinum.
Þegar annað
fellurfrá...
Hér er ein skondin úr túr-
istalífinuáSpáni:
Það var í sumar að hjón ein
íslensk komu í ferðamanna-
hópi til Spánar. Ekki höfðu
þau lengi dvalið í fyrirheitna
landinu þegar konan varð yfir
sig hrifin af því. Fjasaði hún
um það í tíma og ótíma hvað
það væri dásamlegt að vera á
Spáni. Hún gæti sko alveg
hugsað sér að eiga heima þar
og óvitlaust væri að flytja
þangað á elliárunum og opna
til dæmis bjórkrá.
Bóndi konunnar var ekki
eins hrifinn. Hann hnussaði
bara og lagði kollhúfur þegar
sem mest gekk á fyrir eigin-
konunni í Spánarhrósinu.
En hún lét sér ekki segjast
og þegar hún sá að vonlaust
var að telja eiginmanninn á
að flytja út sagði hún með
áherslu:
„Ég skal sko segja ykkur
það að þegar annað okkar fell-
ur frá þá ætla ég að setjast
hér að og opna bar.“
Umsjón:
Jóhanna S. Sigþórsdóttir
/
Skeljungsbúðin
Einhell loftpressur
STÓR VERÐLÆKKUN
HÖFUM FENGIÐ TAKMARKAÐ MAGN
AF 300 OG 400 LTR. PRESSUM Á AFAR
HAGSTÆÐU VERÐI.
GERÐ 300 KR. 24.680 (31.064)
GERÐ 400 KR. 36.315 (44.285)
SíÖumúla33
símar 81722 og 38125
TIL SÖLU BYGGINGAKRANI
af gerðinni Liebherr 22k/32 árg. 72. Upplýsingar eftir
kl. 19.00 í síma 98-2696 og 98-2448.
Háskólaerindi í minningu
Sigurðar S. Magnússonar
prófessors
Föstudagur 17. október.
Sir Malcolm Macnaughton, prófessor í kvensjúk-
dómafræðum við háskólann í Glasgow, mun flytja
erindi í boði læknadeildar Háskóla Islands er hann
nefnir:
„The Ethics of Artificial Reproduction".
Fyrirlesturinn verður fluttur í kennslusal Hjúkrunar-
skóla íslands á Landspítalanum og hefst kl. 13.15.
Öllum er heimill aðgangur. Sir Malcolm Macnaughton
er forseti samtaka breskra fæðingar- og kvensjúk-
dómalækna, Royal College of Obstetricians and
Gynaecologists. Hann er þekktur fyrir rannsóknir á
sviði kvensjúkdómafræði, einkanlega varðandi ófrjó-
semi. Fyrirlesturinn fjallar um siðfræðivandamál sem
tengjast tæknifrjóvgun.
Til sölu
notuö
skrifstofuhúsgögn:
skrifborð - stólar - fundaborð -
afgreiðsluborð, laus skilrúm og margt fleira.
I EINSTAKT
l TÆKIFÆRI
Opið í dag kl. 14-19,
laugardag kl. 14-16.
Komið í Síðumúla 12, 2. hæð.
Dagblaðið-Vísir
Við erum með hagstœðu
veröin og úrvalið lika!
Kúplingsdiskar
og pressur
ítinn pening
Stýrisendar
Splndilkúlur
Vatnsdœlur
Mlðstöðvar og mótorar
LJós og perur
Hjá HABERGi fœröu skjóta úrlausn,
eöa faglega ábendingu um hvar
þú gerir hagkvœm innkaup
Póstkröfur afgreiddarsamdœgurs.
Sími 91-84788