Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.1986, Page 27
ÞRIÐJUDAGUR 14. OKTÓBER 1986.
27
Það er ekki á hverjum degi - eða nóttu - að beðist er fyrir í síbylju fyrir utan Sögu. En það gerðist einmitt þegar leiðtogaralUð stóð sem hæst og á
meðfylgjandi DV-mynd BG sjást fulltrúar bandarísku samtakanna National Conference for Soviet Jewry á fullri ferð í bænalestrinum. Félagsmenn berjast
fyrir málstað gyðinga í Sovétríkjunum og milli bæna voru þuldar upp þúsundir nafna þeirra sem sæta fangelsun eða ofsóknum vegna trúarskoðana.
Áður neitaði Boy George að ræða
við móður sína, sagði samskiptum
þeirra lokið. En eftir meðferð við
ofneyslu eiturlyfja var hún sá fyrsti
sem hann óskaði eftir að hitta og
sýnir myndin betur en mörg orð við-
kvæmni augnabliksins. Dinah og
Boy George eru hérna sameinuð á
nýjan leik.
Ólyginn
sagði...
Sviðsljós
Paul
McCartney
er að verða gráhærður - öldruð-
um aðdáendum sinum til hinnar
mestu skelfingar. Þar sem þeir
eru á svipuðum aldri og kappinn
þykja slíkar staðreyndir með af-
brigðum uggvænlegar og
margir gamlir bítlar reyna að
forðast spegla af fremsta mætti.
Annars þykir Paul með unglegri
mönnum og ekki auðvelt að
giska á réttan aldur goðsins -
sem mun víst vera farinn að
halla í fimmta tuginn.
Villi
hinn villti
af Bretlandi var engli líkastur í
heimsókn hjá Juan Carlos
Spánarkóngi í síðasta mánuði.
Hann vingaðist einkum við shá-
ferhund kóngsa og sagði voff-
ann mun skemmtilegri í
viðkynningu en seppana sem
amma hans á Bretlandseyjum
heldur sér til skemmtunar í höll-
inni. Villa er boðið að koma sem
allra fyrst til Spánar aftur.
Julio Iglesias
er núna ákveðinn í að ganga i
hjónaband að sögn sænskra
blaða. Hann hitti sænsku sýn-
ingarstúlkuna Cecilia Hörberg í
Svíþjóðarheimsókn fyrir tveimur
árum og segja þeir allra fróðustu
að það hafi ekki liðið honum
úr minni síðan. Þau hittust aftur
nú fyrir skömmu og það varð
bara einn, tveir, þrír og búmm!
Paríð renndi upp í einkaþotu
Iglesias á Stokkhólmsflugvelli
og hvarf eitthvað út í himin-
geiminn - sagt er að stefnan
hafi verið tekin á Boston.