Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.1986, Page 28
28
ÞRIÐJUDAGUR 14. OKTÓBER 1986.
Andlát
Guðbjörn Pálsson lést 30. septemb-
er sl. Hann fæddist 15. júní 1896 í
Reykjavík, sonur hjónanna Guð-
laugar Ágústu Lúðvíksdóttur og Páls
Hafliðasonar. Guðbjörn stundaði
vörubifreiðaakstur alla tíð, lengst af
hjá Pípugerð Reykjavíkur. Eftirlif-
andi eiginkona hans er Guðmunda
Gísladóttir. Þeim varð fjögurra
barna auðið. Útför Guðbjörns verður
gerð frá Dómkirkjunni í dag kl. 13.30.
Páll Baldursson, Hrafnhólum 6,
lést 10. október sl.
Arndís Tómasdóttir, Kársnesbraut
19, Kópavogi, andaðist í Borgarspít-
alanum 29. september sl. Jarðarförin
fer fram frá Fossvogskirkju miðviku-
daginn 15. október kl. 13.30.
Bergþóra Hildur Ingibergsdóttir
lést 12. október á gjörgæsludeild
Landspítalans.
Guðriður Guðmundsdóttir, Laug-
arásvegi 25, lést aðfaranótt 11.
október í Borgarspítalanum.
Ingibjörg Ingvarsdóttir, Hverfis-
götu 70, Reykjavík. lést í Borgarspít-
alanum föstudaginn 10. október.
Jóhanna S. Waage, Ljósalandi 7,
Bolungarvík, lést 11. október.
Sigurlína Björnsdóttir frá Hofi
andaðist í Landakotsspítala að
morgni þess 11. október. Minningar-
athöfn um hina látnu fer fram í
Dómkirkjunni í Reykjavík miðviku-
daginn 15. október kl. 13.30. Jarðsett
verður að Hofi á Höfðaströnd laug-
ardaginn 18. október kl. 13.30.
Sumarlín Gestsdóttir frá Raufar-
höfn lést í Landakotsspítala þann 11.
október.
Daníel Bjarnason frá Ásgarði lést
i Richmond í Kanada 28. sept. sl.
Þorsteinn Bjarnason, Holtsgötu
16, lést í Landspítalanum 12. október.
Kristgerður Eyrún Gísladóttir,
Meðalholti 21, Reykjavík, verður
jarðsungin frá Háteigskirkju
fimmtudaginn 16. október kl. 15.
Pálína Þorkelsdóttir, Sogavegi 92,
verður jarðsungin frá Fossvogs-
kirkju miðvikudaginn 15. október kl.
15.
Minningarathöfn um Hjört Guð-
mundsson fyrrverandi bónda,
Lækjarmóti, Fáskrúðsfirði, verður í
Fossvogskirkju þriðjudaginn 14. okt-
óber kl. 13.30. Útför hans fer fram
að Kolfreyjustað laugardaginn 18.
október kl. 14.
Þórir Baldvinsson arkitekt, Forn-
haga 25, Reykjavík, verður jarðsung-
inn frá Dómkirkjunni í Reykjavík
miðvikudaginn 15. október kl. 15.
Tilkynningar
Gítartónleikar í Duus húsi
Gítarleikarinn James Emery er staddur
hér á landi þessa dagana og heldur hann
á vegum Gramms tónleika í Duus húsi í
kvöld kl. 21. James er einn af kunnustu
djassgítarleikurum af yngri kynslóðinni í
Bandaríkjunum. Hann mun leika á klassí-
skan gítar en einnig á hinn sjaldgæfa
sópranógítar.
Fyrirlestrar í guðfræðideild í
tilefni 75 ára
afmælis Háskóla íslands.
Professor Nils Egede Bloch-Hoell, for-
stöðumaður Egede stofnunarinnar í Osló,
t
Móðir okkar og fósturmóðir,
SIGURLÍNA BJÖRNSDÓTTIR
FRÁ HOFI,
andaðist á Landakotsspítala að morgni þess 11. okt-
óber. Minningarathöfn um hina látnu fer fram I
Dómkirkjunni í Reykjavík miðvikudaginn 15. október
kl. 13.30.
Jarðsett verður að Hofi á Höfðaströnd laugardaginn
18. október kl. 13.30.
Fyrir hönd vina og ættingja.
Sólveig Jónsdóttir - Ásberg Sigurösson.
Pálmi Jónsson - Jónína S. Gísladóttir.
Friörik Pétursson - Jóna Sveinsdóttir.
Sigurður J. Friöriksson - Guðný Guðmundsdóttir.
Andrés Björnsson - Margrét Vilhjálmsdóttir.
Barnabörn og barnabarnabörn.
Nauðungaruppboð
á fasteigninni Unufelli 36, þingl. eigandi Oddgeir B. Guðfinnsson, fer fram
á eigninni sjálfri fimmtud. 16. okt.'86 kl. 15.00. Uppboðsbeiðendur eru Lands-
banki íslands, Tryggingastofnun Ríkisins og Gjaldheimtan í Reykjavík.
______Borgarfógetaembættlð í Reykjavik.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á fasteigninni Austurbergi 10, 4.h.2„ þingl. eigandi Árni
Ásgeirsson, fer fram á eigninni sjáifri fimmtud. 16. okt.'86. kl. 16.00. Uppboðs-
beiðendur eru Landsbanki Islands, Gjaldheimtan í Reykjavik og Veðdeild
Landsbanka íslands.
Borgarfógetaembættið i Reykjavík.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 149., 154. og 157. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1985 á
eigninni Leirutanga 13A, neðri hæð, Mosfellshreppi, þingl. eign Helga
Rúnars Auðunssonar, fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar í Reykjavík á eign-
inni sjálfri föstudaginn 17. október 1986 kl. 17.00.
Sýslumaðurinn í Kjósarsýslu.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 35., 37. og 41. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1985 á fast-
eigninni Litlahvammi, Reykholtsdalshreppi, Borgarfjarðarsýslu, þingl. eign
Guðmundar Kjerúlf, fer fram að kröfu Guðjóns Ármanns Jónssonar hrl„
Útvegsbanka islands og Tryggingastofnunar ríkisins á eigninni sjálfri föstu-
daginn 17. október nk. kl. 14.00.
_____________Sýslumaður Mýra- og Borgarfjarðarsýslu.
Útvarp - Sjónvaip i>v
Sólveig Leifsdóttir hárgreiðslumeistari:
Hlynnt þessu
frjálsa framlagi
og góðar stöðvar til að hafa á bak
við eins og við vinnu. Á fimmtudags-
kvöldum hlusta ég oft á útvarpið og
hef gaman af viðtalsþáttunum á rás
2 og hlusta á þá ef verið er að tala
við spennandi persónur. Nú svo
hlusta ég oft á leikritin á rás 1.
Eg er mjög hlynnt þessu frjálsa
framlagi hvað varðar útvarps- og
sjónvarpsstöðvar og vona bara að
þetta eigi eftir að ganga vel hjá þess-
um aðilum í framtíðinni.
Ég horfi ekki mikið á sjónvarp en
svona þegar ég hef tíma til þess. Ég
fylgist með framhaldsþáttum ef þeir
eru góðir og áhugaverðir en sit ekki
fyrir framan sjónvarpið og horfi á
eitthvað leiðinlegt. Um helgina
horfði ég aðeins á Stöð 2 og leist vel
á það sem ég sá. Mér finnst þetta
lofa nokkuð góðu þegar þetta verður
komið almennilega af stað.
Úvarpið hlusta ég á með öðru eyr-
anu í vinnunni og þá aðallega á rás
2 og Bylgjuna og finnst þetta léttar
mun halda fyrirlestur í guðfræðideild í
dag, 14. október, kl. 10.15 í 5. kennslustofu
um efnið „Da Norge var romersk ka-
tolsk“. Sama dag kl. 20.30 hefst ráðstefna
í samvinnu við Norræna húsið í Reykjavík
til að minnast 300 ára afmælis Hans Egede
Grænlandstrúboða. Þar mun professor
Nils Egede Bloch Hoell tala um „Hans
Egede og Grönland". Miðvikudaginn 15.
október mun séra Kolbeinn Þorieifsson
tala um „Hans.Egede Island og Grænland.
Fimmtudaginn 16. október mun Harald-
ur Ólafsson dósent tala um „Grænland í
dag“. Föstudaginn 17. október verður
kvikmynd Knud Rasmussens um Græn-
land sýnd. Fyrirlestrarnir hefjast kl. 20.30
og verða haldnir í Norræna húsinu í
Reykjavík. AUir eru velkomnir.
Svæðisútvarp Reykjavíkur og
nágrennis
tekur til starfa að nýju
Svæðisútvarp Reykjavíkur og nágrennis
tekur til starfa að nýju eftir nokkurra
daga hlé vegna leiðtogafundarins. Starfs-
menn svæðisútvarpsins hafa undanfarna
daga starfað við alþjóðlegt fréttaútvarp á
vegum Ríkisútvarpsins og utanríkisráðu-
neytisins og á meðan hafa útsendingar
Svæðisútvarpsins legið niðri. Útsendingar
hefjast að nýju í dag, 14. október. Útsend-
ingar Svæðisútvarpsins standa frá kl. 17.03
til 18.30 alla virka daga og það er sent út
á FM-bylgju 90,1. Starfsmenn Svæðisút-
varps Reykjavíkur og nágrennis eru
Sverrir Gauti Diego (umsjónarmaður),
Sigurður Helgason og Þorgeir Ólafsson.
Allar frekari upplýsingar eru veittar í síma
688188.
SPRON styrkir meistaralið
Gróttu
Þriðjudaginn 30. september sl, voru þrjú
ár liðin frá því að Sparisjóður Reykjavíkur
og nágrennis opnaði sitt fyrsta útibú að
Austurströnd 3, Seltjarnarnesi.
Frá upphafi hafa Seltirningar tekið
sparisjóðnum vel og hefur hann á þessum'
starfstíma dafnað, vaxið og öðlast traust
bæjarbúa. Þessi þrjú ár hefur SPRON Sel-
tjarnarnesi reynt að styðja æsku bæjarins
með ýmsu móti eins og smágjöfum eða
styrkjum til íþróttaiðkana o.fl. og reynt
þannig að stuðla að heilbrigðara og betra
lífí.
Nú vill SPRON Seltjarnarnesi gera enn
betur og hefur ákveðið að styrkja meist-
aralið Gróttu í handbolta karla þetta
keppnistímabil, sem nú er að hefjast. í lið-
inu eru ungir og efnilegir menn sem munu
spila í 2. deild í vetur og hefur Guðmund-
ur Magnússon verið ráðinn þjálfari liðs-
ins. Meistaraflokkur Gróttu í handbolta
spilar nú í nýjum búningum sem merktir
eru SPRON Seltjarnarnesi og voru bún-
ingarnir formlega teknir í notkun á
afmælisdegi útibúsins.
Meðfylgjandi mynd var tekin við það
tækifæri er meistaraflokkurinn og stjórn
handknattleiksdeildar Gróttu þágu veit-
ingar starfsmanna SPRON Seltjarnarnesi.
Minningarfyrirlestur um
Sigurð S. Magnússon
prófessor
Föstudaginn 17. október kl. 13.15 heldur
prófessor Sir Malcolm Macnaughton frá
Glasgow-háskóla í Skotlandi fyrirlestur á
Landspítalanum, sem nefnist „The ethich
of artificial reproduction“. Fyrirlesturinn
er haldinn til minningar um Sigurð S.
Magnússon prófessor, sem lést fyrir réttu
ári, þann 21. okt. 1985. Sigurður S. Magn-
ússon, dr. med., var prófessor og forstöðu-
maður Kvennadeildar Landspítalans í rúm
10 ár, frá 1975 til daúðadags 1985. Hann
var forseti læknadeildar háskólans þegar
hann lést, 58 ára að aldri. í starfí sínu á
kvennadeild og við háskólann hafði Sig-
urður unnið ötullega að uppbyggingu
háskólakennslu og vísindastarfa í sinni
grein á íslandi, jafnframt því sem hann
beitti mikilli starfsorku til að gera
kvennadeildina að stofnun sem þjónaði
íslenskum konum á sem breiðustum
grundvelli. Sérstök áhugamál hans hin
síðari ár tengdust ófrjósemi og samskipt-
um íslenskra lækna við erlenda starfs-
bræður, einkum á Norðurlöndum og í
Bretlandi. Prófessor Macnaughton er
þekktur fyrir rannsóknir á hormónaefna-
skiptum í sambandi við frjósemisvandamál
og hefur átt mikinn þátt í að móta umræð-
ur um glasafrjóvgun í Bretlandi og víðar.
Fyrirlesturinn verður haldinn í kennslusal
Hjúkrunarskóla íslands á Landspítalan-
um.
Kársnessókn
Félagsvist verður í safnaðarheimilinu
Borgum í kvöld, 14. október, og hefst kl.
20.30.
Ryrirlestur á vegum
rannsóknarstofnunar
uppeidismála
Þriðjudaginn 14. október flytur Ingólfur
Á. Jóhannesson sagnfræðingur fyrirlestur
á vegum Rannsóknarstofnunar uppeldis-
mála er nefnist Að vera kennari. Viðhorf
og væntingar til kennarastarfsins í tím-
ans rás. Fyrirlesturinn verður haldinn í
kennaraskólahúsinu við Laufásveg og
hefst kl. 16.30. Öllum er heimill aðgangur.
Minnispeningur
í tilefni fundar
Reagans og Gorbatsjovs
IS- SPOR hf. hefur framleitt minnispening
í tilefni af Reykjavíkurfundi Reagans og
Gorbatsjovs. Minnispeningurinn er sleg-
inh í takmörkuðu upplagi, hámark 1000
peningar, og verður til sölu hjá frímerkja-
og myntsölum, Rammagerðinni og fleiri
stöðum eftir ástæðum. Söluverð Reag-
ans-Gorbatsjovs minnispeningsins er kr.
1.200 með söluskatti.
Tónleikar
Áskriftartónleikar Sinfóniunn-
ar
Finnski hljómsveitarstjórinn Petri Sakari
stjórnar öðrum áskriftartónleikum Sin-
fóníuhljómsveitar Islands í Háskólabíói á
fimmtudagskvöldið kemur, 16. október.
Hann er einn hinna ungu, finnsku hljóm-
sveitarstjóra, sem getið hafa sér frægðar-
orð á örskömmum tíma. Einleikari að
þessu sinni verður Sigurður Ingvi Snorra-
son klarinettleikari.
Afmæli
60 ára afmæli á i dag, 14. október,
Steinar Steinsson tæknifræðingur
og skólastjóri Iðnskólans í Hafnar-
firði. Hann og kona hans, Guðbjörg
Jónsdóttir, ætla að taka á móti gest-
um í tilefni dagsins á heimili sínu,
Holtagerði 80 í Kópavogi eftir kl. 17
í dag.
80 ára afmæli á í dag, 14. október,
Einar S. Magnússon, fyrrum leigu-
bílstjóri á Hreyfli, Nóatúni 32,
Reykjavík. Kona hans er Anna Guð-
mundsdóttir. Þau ætla að taka á
móti gestum á heimili sínu í kvöld.