Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.1986, Page 2
2
LAUGARDAGUR 18. OKTÓBER 1986.
Fréttir
2. Gamli kiricjugaröurinn viö Suö-
urgötu. Nýlega var ráðist á gamla
konu i garðinum og gerö tilraun
til aö nauðga henni. Arásarmaöur-
inn er fundinn og situr í gæsluvarö-
haldi.
3. Miklatún. Þar hafa nokkrar likamsárásir
veriö geröar og ástæöa til að vara viö þeim
stað.
1. Hljómskálagarðurinn. Fyrir nokkrum
dögum var ungri konu nauögaö á þessu
svæöi. Nauögarinn er ófundinn.
4. Öskjuhlíö. Þar hafa menn verið á ferö sem sýnt
hafa ýmiss konar kynferöilegt áreiti.
Nauðgarar undir smásjá
- aukið eftirlit á hættulegustu stöðunum í Reykjavík
Það virðist vera liðin tíð að fólk
geti gengið óáreitt um borgina og án
hræðslu við árásir. Á ákveðnum svæð-
um í borginni heíur gengið yfir alda
nauðgana og árása.
Nýjustu nauðgunartilfellin gerðust
með stuttu millibili, annars vegar var
ung kona fómarlamb árásar í Hljóm-
skálagarðinum og hins vegar 54 ára
gömul kona í gamla kirkjugarðinum
við Suðurgötu.
„Eftirlit verður hert á ákveðnum
svæðum, þar sem líkamsárásir hafa
verið nokkuð tíðar. Þetta fer strax í
gang. Hljómskálagarðurinn verður
sérstaklega vaktaður, hann er dæmi
um stað sem er sérlega hentugur til
svona iðju, stór garður og lítil umferð.
Kirkjugarðurinn við Suðurgötu verð-
ur undir eftirliti. Þar virðast árásir og
nauðganir hafa verið framkvæmdar á
hvaða tíma sólarhrings sem er, jafnvel
á hábjörtum degi. Eftirlit með Miklat-
úni verður einnig hert, þó ekki hafi
eins mikið borið á líkamsárásum þar,“
sagði Bjarki Elíasson yfirlögreglu-
þjónn.
Þótt Öskjuhlíðin hafi ekki verið
nefnd í upptalningu Bjarka Elíassonar
er mjög algengt að þar séu menn á
ferð sem haft geta í frammi ýmiss kon-
ar kynferðilega áreitni, leyst niður um
sig buxurnar og sýnt á'sér kynfærin,
gert tilraun til nauðgunar eða sýnt
aðrar furðulegar tilfæringar.
Það ber því að vara fólk, aðallega
konur, við þeim svæðum sem hér hafa
verið nefnd.
„Það er ákveðin áhætta fólgin í því
að ganga einn að nóttu til um svæði
þar sem umferð er lítil. Það er þó eng-
inn ástæða til að gera of mikið úr
hættunni. Reykjvík er þrátt íyrir allt
róleg og elskuleg borg miðað við er-
lendar borgir," sagði Bjarki.
TVeir slasaðir sjómenn af norsku skipi sóttir;
Þyrlan varð
eldsneytislaus
yfír skipinu
Slysavamafélaginu barst í fyrrinótt
beiðni um aðstoð af 6800 tonna norsku
flutningaskipi, Tinnes, þar sem það
var statt suðsuðaustur af Vestmanna-
eyjum. Tveir sjómenn á skipinu, 1.
stýrimaður og vélamaður, voru alvar-
lega slasaðir eftir að skipið hafði
fengið á sig brotsjó þannig að þeir
köstuðust til í brúnni.
Vamariiðinu var strax gert viðvart
og beðið um þyrlu frá því en hún komst
ekki af stað vegna slæms veðurs á
þeim slóðum er skipið var, 10 vindstig
vom að sunnan og úrhellisrigning, og
lægði ekki fyrr en upp úr hádeginu í
gær. Um þrjúleytið var þyrlan komin
ið skipinu sem þá var í um 100 sjó-
nílna fjarlægð frá Vestmannaeyjum.
/om tveir sjúkraliðar um borð í þyrl-
mni og sigu þeir niður í skipið. Þá
far þyrlan orðin eldsneytislítil og var
Lkveðið að Herkúlesvél á leið frá Bret-
andi gæfi þyrlunni eldsneyti. Kom
ferkúlesvélin á staðinn um þrjúleytið.
. v meðan á þessu stóð sveimaði hjálp-
rvél þ}Tlunnar, ein af P-3 kafbátavél-
■ m vamarliðsins, yfir skipinu.
Þyrlan beið síðan meðan sjúkralið-
amir komu hinum slösuðu fyrir á
sjúkrabörum en það gekk mjög erfið-
lega vegna mikilla meiðsla stýri-
mannsins. Þurfti Herkúlesvélin að
gefa þyrlunni aftur eldsneyti eftir að
sjúkrabörumar vom hífðar um borð
en áður en sjúkraliðamir vom teknir
aftur í þyrluna.
Þyrlan flaug síðan með þá slösuðu
á Borgarsjúkrahúsið og kom þangað
um kvöldmatarleytið. Höfðu þyrlu-
flugmennimir þá verið á lofti í tæpa
8 tíma samfellt og staðið sig frábær-
lega vel við erfiðar aðstæður en á
þessum slóðum vom 7-8 vindstig og
rigning.
Báðir sjómennimir em skaddaðir á
hrygg, stýrimaðurinn þar að auki
handleggsbrotinn og vélamaðurinn
rifbeinsbrotinn.
Þyrla Landhelgisgæslunnar var ekki
kölluð út í þetta verkefni þar sem flug-
menn hennar höfðu ekki fengið
nauðsynlega hvild eftir leitina við Víf-
ilfell.
-FRI
Sjómennimir bornir úf úr þyrlunni við Borgarspitalann í gærkvöldi. DV-mynd: S.