Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.1986, Side 14
14
LAUGARDAGUR 18. OKTÓBER 1986.
Þeir bestu austantjalds
í sumar efndu Sovétmenn til um-
fangsmikilla flotaæfinga á hafinu
norður af Japan. Þrátt fyrir að æf-
ingarnar hafi verið leynilegar og
óviðkomandi haldið í hæfilegri f]ar-
lægð þá er vitað að fjöldi herskipa
og kafbáta var þar og að æfingamar
voru með þeim mestu sem haldnar
hafa verið á sjó hin síðari ár.
Flotinn safnaðist saman á flóanum
milli Kamtsjatka skagans og Síberíu.
Tilgangurinn var að þjálfa flotann í
að verja svæðið þar sem kjarnorku-
kafbátar með langdrægar eldflaugar
eiga að athafha sig á stríðstímum.
Frá þessum stað er gert ráð fyrir að
skjóta flaugum að vesturströnd
Bandaríkjanna.
Vaxandi fiotaveldi
Með flotaæfingunum var og verið
að gera umheiminum ljóst að Sovét-
menn hafa homið sér upp öflugum
Kyrrahafsflota sem ekki verður
gengið fram hjá þegar herstyrkur
þeirra er metinn.
Þetta er árangur uppbyggingar
sem staðið hefur undanfama tvo ára-
tugi. Það er verið að breyta Kyrra-
hafsflota Sovétmanna úr þunnskip-
aðri strandgæslu í alvömflota sem
hægt er að beita i hemaði.
Flotauppbygging Sovétmanna
breytir mati Vesturlandabúa á víg-
stöðunni á Kyrrahafi. Hernaðaryfir-
völd í Bandaríkjunum og Japan telja
að í allt eigi Sovétmenn nú um 830
fleytur á Kyrrahafi. Til samanburðar
má geta þess að í sjötta flota Banda-
ríkjanna á Kyrrahafi eru um 70
herskip. í sjötta flotanum er saman
kominn nánast allur herstyrkur
Bandaríkjamanna á Kyrrahafi.
í flota Sovétmanna eru auk hefð-
bundinna herskipa nýtískulegar
sprengjuflugvélar, kafbátar búnir
kjarnorkuflaugum og fullkomnustu
orrustuþotur Sovétmanna.
Yfirráðasvæði Bandaríkja-
manna
Tii þessa hefur Kyrrahafið lengst
af verið talið yfirráðasvæði banda-
ríska flotans. Bandarískir hemað-
arsérfræðingar segja að þrátt fyrir
vaxanda flotastyrk Sovétmanna þá
hafi Bandaríkin og bandamenn
þeirra enn undirtökin á Kyrrahaf-
inu. Mörg skip Sovétmanna eru sögð
of lítil og veikburða til að ástæða sé
til að óttast að raunverulegur flota-
styrkur Sovétmanna sé í samræmi
við fjölda skipa.
Sérfræðingamir segja að Banda-
ríkjamenn hafi yfirburði í tækni og
geti þar að auki bætt um 160 skipum
við flotann á Kyrrahafi með stuttum
fyrirvara. Eru það skip úr þriðja flot-
anum sem staðsettur er við vestur-
strönd Bandaríkjanna.
Samt sem áður er erfitt að horfa
fram hjá að floti Sovétmanna hefur
vaxið hröðum skrefum síðustu ár og
flotauppbyggingin helst í hendur við
önnur hemaðarumsvif Sovétmanna
í Austur-Asíu bæði á landi og sjó.
Þetta hefur beint athyglinni að
markmiðum stjómarinnar í Kreml
með vaxandi umsvifum á þessu
svæði.
Við Cam Ranh flóann í Víetnam
hafa Sovétmenn verið að breyta fyrr-
um flotastöð Bandaríkjanna í
upplýsinga- og njósnamiðstöð til að
fylgjast með herstyrk andstæðinga
sinna í Suðaustur-Asíu og á hafinu
þar í kring. Komið hefur fram ótti
meðal ríkistjóma landanna við vest-
anvert Kyrrahaf um að Sovétmenn
hafi undanfarið fjölgað kjamorku-
flaugum sem eru í skotfæri við
Peking, Tokyo og Seoul.
Ný stefna Gorbatsjovs
Herstyrkur Sovétmanna í Asíu hef-
ur bætt þeim upp takmörkuð áhrif á
sviði efnahags- og stjómmála. Gor-
batsjov hefur sagt að Sovétmenn
fiskveiðisamning við Sovétmenn þar
sem þeim verði veittur réttur til að
nota hafnir á eyjunum og koma upp
aðstöðu til fiskvinnslu í landi.
Malcolm Fraser, forsætisráðherra
Ástralíu, hefur sagt að þannig samn-
ingar séu ekki til annars en að
gulltryggja vaxandi hernaðarumsvif
Sovétmanna á sunnanverðu Kyrra-
hafi. „Þeir munu vissulega byrja á
fiskvinnslu," er haft eftir Fraser, „en
við hana bætist fljótlega aðstaða til
viðgerða á skipum og flugvöllur til
að flytja áhafnir fiskiskipanna að og
frá eyjunum. Hvað vantar þá til að
kalla megi vinnslustöðina herstöð."
Kyrrahafsfloti Sovétmanna er sá
stærsti sem þeir halda úti og hefur
þrefaldast síðustu tvo áratugina.
Þegar haft er í huga að við hann
hafa bæst skip sem búin eru kjama-
vopnum þá hefur máttur flotans
vissulega gert gott betur en að þre-
faldast. í Kyrrahafsflotanum em nú
m.a. tvö flugmóðurskip af Kiev gerð.
Talið er að 130 kafbátar tilheyri flot-
anum þar. Það er svo gott sem sami
fjöldi og Bandaríkjamenn eiga alls.
Á heimaslóðum
Kafbátunum er flestum haldið inni
á Okhotskflóanum þar sem heræf-
ingamar, sem getið var um í upphafi,
fara fram. Talið er að í kafbátaflotan-
um séu ekki færri en 48 kafbátar
búnir langdrægum eldflaugum sem
hægt er að senda á skotmörk í
Bandaríkjunum.
Flest sovésku herskipin em stað-
sett mjög nærri ströndum heima-
landsins. Þc ber við að þau birtast á
fjarlægum slóðum svo sem á Suður-
Kínahafi. Vitað er að flotastöðin við
Cam Ranh flóa hefur verið stækkuð
eftir að Bandaríkjamenn yfirgáfu
hana árið 1975. Þar hafa Sovétmenn
nú mikilvæga flotastöð. Því er sýnt
að Sovétmenn hafa fengið eitthvað
fyrir sinn snúð eftir að hafa stutt
stjóm Víetnams ríkulega.
Fyrst eftir að Sovétmenn settust
að við Cam Ranh flóann var aðstað-
an þar notuð fyrir kaupskipaflota
þeirra. Síðar var tekið til við að
byggja upp flotaaðstöðuna. Fyrir
skömmu var talið að á þessum stað
hefðu Sovétmenn að jafnaði 25 her-
skip, fimm kafbáta, 16 stórar
sprengjuflugvélar, 14 ormstuþotur
og 8 könnunarflugvélar. Þetta hefur
allt bæst við síðan árið 1979 því þá
var enn ekki farið að bera á liðssafn-
aði við Cam Ranh.
Cam Ranh og Da Nang
Stöðin í Cam Ranh þjónar sem
mótvægi við stöðvar Bandaríkja-
manna á Filippseyjum. Sama hlut-
verki gegnir bækistöð sovéska
flughersins við Da Nang. Stöðvar
Bandaríkjamanna á Filippseyjum
eru innan seilingar frá þessum stöðv-
un. Það sama gildir um suðurhluta
Kína. Flotastöðin í Cam Ranh kann
einnig að koma að notum við liðs-
flutninga til Indlandshafs.
Fari spenna vaxandi á þessu svæði
er sovéski flotinn mun betur stað-
settur í Cam Ranh en ef hann er allur
gerður út frá Vladivostok. Öflugur
floti í Víetnam getur hæglega lokað
siglingaleiðum frá Persaflóa til Jap-
an og Bandaríkjanna og þannig
komið í veg fyrir flutninga á olíu.
Þrátt fyrir að stækkun Kyrrahafs-
flota Sovétmanna veki mesta athygli
þá verður einnig að hafa í huga að
síðustu ár hafa þeir einnig verið að
byggja upp aðstöðu fyrir flugher sinn
á Kurileyjum norðan Japan. Eyjun-
um náðu Sovétmenn í síðari heims-
styrjöldinni af Japönum og hafa ekki
ljáð máls á að skila þeim aftur.
Hemaðarsérfræðingar í Banda-
ríkjunum og Japan hafa áætlað að í
allt hafi Sovétmenn um 500 þúsund
hermenn í Asíu. Það er fjórðungur
alls mannafla í Sovéska hemum.
Þeir bestu af flugmönnum sovéska ffotans eru reiöubúnir aö mæta þeim bestu frá Bandaríkjunum.
Sovétmenn ætli sér í framtíðinni að
ganga á hlut Bandaríkjamanna á
Kyrrahafi. í það minnsta er ljóst að
Bandaríkjamenn em ekki lengur án
samkeppni á svæði þar sem þeir hafa
til skamms tíma verið einráðir.
„Ég efa að herstyrkur okkar sé
nægilegur á Kyrrahafinu," er haft
eftir Mike Mansfield, sendiherra
Bandaríkjanna í Japan. „Enn er
okkur þó ekki ógnað en ógnunin er
nú hugsanleg.“
Kiribatieyjar
Umsvif Sovétmanna á Kyrrahafinu
hafa beint athyglinni að svæðum sem
áður voru ekki talin hemaðarlega
mikilvæg. Eitt þessara svæða er
Kiribartieyjaklasinn. Það er mikill
grúi smáeyja suður undir miðbaug.
I heild er svæðið um 3 milljónir fer-
kílómetra. Næsta fáir jarðarbúa hafa
á þessu svæði við litlar vinsældir
eyjaskeggja. Þeir voru því uppnumd-
ir yfir kurteisi Sovétmanna sem buðu
fé fyrir veiðiréttindin. En þótt hér
séu ekki miklir hagsmunir í húfi þá
hefur fiskveiðisamningur Kiribati-
manna við Sovétmenn valdið nokkr-
um taugatitringi í Washington.
Hinn ungi forseti Kiribatieyja, Ier-
emia Tabai, hefur sagt að ótti
Bandaríkjamanna við að þegnar
hans hafi ánetjast hjá Sovétmönnum
sé með öllu ástæðulaus. Ríkin hafi
aðeins gert með sér „viðskiptasamn-
ing“. Hitt er þó eftirtektarvert að
Sovétmenn hafa aldrei áður samið
um fiskveiðar við Kyrrahaferíki.
Meira en túnfiskur
Áhyggjur Bandaríkjamanna stafa
af því að þeir óttast að Sovétmenn
hafi áhuga á ýmsu öðru á Kiribati-
Vel má þó vera að ekkert sérstakt
búi að baki fiskveiðisamningnum við
Kiribatimenn. Það þykir þó ekki trú-
legt þegar haft er í huga að Sovét-
menn hafa verið að gera hosur sínar
grænar víðar á Kyrrahafseyjum og
boðið efnahagsaðstoð. Víðast hvar
hefur boðum Sovétmanna ekki verið
tekið en ekki alls staðar.
Nokkur Kyrrahaferíki hafa aflétt
banni við siglingum sovéskra her-
skipa í landhelgi í þeirri von að hafa
mætti nokkrar tekjur af skipunum,
komi þau að landi.
Aðeins fiskveiðisamningar
Fyrir fáum mánuðum komst á
stjómmálasamband milli Vanuatu
og Sovétríkjanna. Vanuatu er eyja-
klasi sem áður var nefndur Nýju
Suðureyjar. Nú hefur verið gefið í
skyn að til standi að Vanuatu geri
Sovéski flotinn sækir fram á Kyrrahafinu
hafi vanrækt Austur-Asíu og þá
framtíðarmöguleika sem þar eru fyr-
ir hendi. Viðleitni Sovétmanna til
að auka við herstyrk sinn þar þykir
benda til að stefnunni hafi verið
breytt og að í framtíðinni eigi eftir
að fara fleiri sögum af áhuga Sovét-
manna á Austur-Ásíu.
Sókn Sovétmanna á svæðinu þykir
einnig eftirtektarverð fyrir það að á
sama tíma er allt á huldu um framtíð
bandarískra flotastöðva á Filippseyj-
um og rétt þeirra til að hafa skip
búin kjarnorkuvopnum á hafinu þar
í kring.
Þessar staðreyndir benda til að
heyrt þessara eyja getið. Flatarmál
þurrlendis í eyjaklasanum er ákaf-
lega lítið og eyjarnar snauðar af
öllum auðæfum ef frá eru talin auðug
túnfiskmið í hafinu í kringum þær.
Bretar réðu fyrir Kiribatieyjunum
þar til fyrir sjö árum að þær fengu
sjálfstæði. Bretar nefndu þær Gil-
bertseyjar. Fáum ríkjum hefur þótt
eftir nokkru að slægjast á þessum
eyjum. Þó kom þar fyrir ári að Sovét-
menn keyptu rétt til túnfiskveiða
fyrir 16 skip við eyjarnar fyrir litlar
60 milljónir króna. Þar með var frið-
urinn úti.
Bandaríkjamenn hafa veitt túnfisk
eyjum en rétti til að veiða nokkra
túnfiska. Með túnfiskbátunum er
hægt að mæla dýpi og jafnvel að
finna auðæfi á hafsbotni. Við það
bætist að um þúsund mílum norður
af Kiribati eru Marshalleyjarnar þar
sem Bandaríkjamenn hafa prófað
eldflaugar.
Ef til vill er þessi ótti við 16 sov-
éska túnfiskbáta ástæðulaus. Samt
sem áður verður ekki fram hjá því
litið að Sovétmenn eru að efla flota
sinn á norðanverðu Kyrrahafinu og
hafa öflugar flotastöðvar í Víetnam.
Því væri ekki undarlegt þótt þeir litu
hýru auga til eyja á Kyrrahafinu.