Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.1986, Blaðsíða 17
LAUGARDAGUR 18. OKTÓBER 1986.
17
evringur og blaöamaður, leikur
Georg, eiginmann Stellu. Hann var
í reynd allur lemstraður eftir mynd-
ina. Gestur hefur áður leikið I
myndunum Útlaginn, Gullsandur og
Með allt á hreinu.
DV-mynd JGH
Tveir vanir að norðan, Þráinn Karlsson og Gestur Einar.
Gestur með gifs á báðum handleggjum upp í krika, klórar sér í nefinu á
öxi Guðrúnar Þorvarðardóttur. Halldór Þorgeirsson fylgist með.
Fínn tími
Myndin Stella í orlofi var tekin í
sumar frá 12. júní og fram yfir versl-
unarmannahelgi. Unnið var 17. júní
og alla laugardaga. Þetta var tekið
með hörkunni sex.
„Þetta var feikilega skemmtilegur
tími, fínn tími. Sumarfríið fór í þetta
og meira til. En að leika í kvikmynd-
um eins og þessari er mikil tilbreyt-
ing frá blaðamennskunni, þó ég
kunni vel við mig í því starfi. Þetta
var samheldinn og skemmtilegur
hópur. Og þrátt fyrir vosbúð og hrak-
farir á stundum var alltaf verið að
hugsa um mann.“
Gestur ekki í töku í dag
Að sögn Gests eru ótrúlega mörg
handtök sem þarf að gera í kringum
eina upptöku áður en sjálfir leikar-
arnir koma til sögunnar. „Það fer
oft stór hluti dagsins í það að bíða.
Einn daginn var sett á mig gifs
snemma um morguninn. Klukkan
fimm um daginn kom svo tilkynning-
in: Gestur verður ekki í töku í dag.“
Gestur Einar Jónasson er ekki alls-
endis óvanur kvikmyndatökuvél-
inni. Stella í orlofi er fjórða
kvikmyndin sem hann leikur í. Hann
lék Þórð huglausa, þræl Gísla, í Út-
laganum. I Gullsandi lék hann
sjoppukónginn í sveitinni, en hann
kom gullæðinu af stað, og í mynd-
inni Með allt á hreinu var það
smáhlutverk sem barþjónn.
Tólf ár fastráðinn leikari
Hann var í nítján ár viðloðandi
leikhúsið á Akureyri, þar af tólf ár
sem fastráðinn leikari. Hann hefur
verið með þætti í Ríkisútvarpinu á
Akureyri. Þessa stundina er hann
með rabbþáttinn Um náttmál á rás
2 klukkan níu annað hvert fimmtu-
dagskvöld.
Margir úrvalsleikarar koma fram
í myndinni Stella í orlofi, leikarar
eins og Laddi, Edda Björgvinsdóttir,
Sigurður Sigurjónsson, Öm Áma-
son, Pálmi Gestsson, Eggert Þorleifs-
son og Gísli Rúnar. Það er semsé
allt heila skemmtigengið.
Það er kvikmyndafélagið Umbi
sem framleiðir myndina Stella í or-
lofi. Það stóð einnig að myndinni
Skilaboð til Söndru. Þær sem standa
að kvikmyndafélaginu eru meðal
annarra Guðný Halldórsdóttir
(Duna), Ingibjörg Briem, Ragnheiður
Harvey og Kristín Pálsdóttir.
Þaðersagtað veðríðhafialdreiveriðbetra. Eittervíst. Verðiðhefur
sjaldan veriðbetra. Dollarinn erá góðu verði-ogþín bíða lystisemdir
Flórída, allt frá dýrindis mat og ævintýraheimi Walts Disneys til tónleika
og skemmtana undir berum himni.
Líttu til dæmis á þennan útreikning:
Verð* Hótel Staður Dvöl
A Kr. 21.488 Days Inn Orlando 11 dagar
B Kr. 23.952 Dayslnn Orlando 18dagar
C Kr. 23.766 Gateway St. Pete 11dagar
D Kr. 27.686 Gateway St. Pete 18dagar
Koníaksflaska fyrir
að demba sér í ána.
- Nú fékkstu að finna skemmtilega
fyrir því sem Georg, eiginmaður
Stellu. Værirðu til í að ganga í gegn-
um þetta allt saman aftur?
„Já, já, það er engin spurning. En
ég get fullvissað þig um að það verð-
ur ömgglega ekki farið eins illa með
leikara í handriti aftur í bráð. Enda
sagði Duna, höfundurinn, við mig:
Gestur minn, ef ég hefði vitað að það
yrði farið svona illa með þig hefði
ég ekki skrifað handritið svona. En
þessu fylgdi líka kostur. Eftir að ég
fór í ána í fjórða sinn lofuðu þær
mér koníaksflösku. Þær stóðu við
það. Ég á hana ennþá heima, óupp-
tekna, til minningar um gott sumar.“
-JGH
s
1
r®
Innifalið fiugferðir, akstur til og frá flugvelli og gisting.
* Verð á mann í 4ra manna fjölskyldu (tvö böm undir 12 ára aldri).
Ótal fleiri otrúlega ódýrir möguleikar.
Frekari upplýsingar veita söluskrifstofur Flugleiöa, umboösmenn og ferðaskrifstofur.
Söluskrifstofan Lækjargötu sími 690100, Hótel Esju slmi 690100, Álfabakka 10 sími 690100.
FLUGLEIÐIR
Upplýsingasími: 25100