Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.1986, Qupperneq 3

Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.1986, Qupperneq 3
MÁNUDAGUR 20. OKTÓBER 1986. 3 Solveig Pétursdóttir með eiginmanni sinum, Kristni Björnssyni, og bömum Sotveig Pétursdóttir: Hlutur kvenna mátt vera meiri „Ég er náttúrlega mjög ánægð og vil koma á framfæri þakklæti til minna stuðningsmanna og sérstaklega fjöl- skyldu minnar fyrir að standa með mér í þessari baráttu," sagði Sólveig Pétursdóttir, sem hafhaði í áttunda sæti. Hlutur kvenna hefði mátt vera meiri. Mér fannst þó markverðast við úrslit prófkjörsins að ungt fólk komst í ör- ugg sæti, sjöunda og áttunda, þar af kona í annað þeirra," sagði Sólveig. -KMU Jón Magnusson: Ekkert kemur á óvart „Úrslitin í prófkjörinu verða ekki véfengd og þau sýna fram á ákveðinn styrk Alberts Guðmundssonar. Að öðru leyti er ekkert óeðlilegt sem kem- ur fram nema ef vera skyldi að Sólveig Pétursdóttir er talsvert hærri en flest- ir höfðu búist við. Ég er að sjálfsögðu ekki ánægður með minn hlut. Það er ljóst að reglum- ar bjóða upp á misnotkun og ég hefði talið hreinlegra að hafa þetta fyrir alla stuðningsmenn Sjálfstæðisflokks- ins. Það er ekkert sem kemur á óvart í þessu prófkjöri en hitt er annað mál að menn velta fyrir sér ákveðnum hlutum, ljóst er að peningaaustur og fleira er komið gersamlega út í öfgar. Ég þakka góðan og mikinn stuðning - það vantaði ekki nema herslumun að þetta gengi betur.“ -baj Stjómmál Vilhjálmur Egilsson varð i 11. sæti. Vilhjálmur Egilsson: Albert er sigurvegari „Úrslitin eru ótvíræð - Albert er sig- urvegari. Þetta er dómur Sjálfstæðis- manna í Reykjavík. Ég stefndi auðvitað í öruggt sæti og náði því ekki. Meginástæðan fyrir því er að mínu mati að ég átti ekki marga stuðningsmenn í þeim hópum sem studdu Albert hvað dyggilegast. Útkoma kvennanna er góð - eins og ég átti von á og jafnvel betri,“ sagði Vilhjálmur Egilsson. -baj Jón Magnússon: Peningaaustur kom- inn út í öfgar. Bessí Johannsdottir: Ágætt fyr- ir þá átta efstu „Mér líst ágætlega á úrslit prófkjörs- ins fyrir þá átta efstu. Ég er óánægð með mín eigin úrslit en vil þakka öllum sem studdu mig í prófkjörinu - þegar maður fer í próf- kjör á maður von á öllu. Hlutur kvenna í þessu prófkjöri er nákvæmlega eins og ég átti von á fyr- ir,“ sagði Bessí Jóhannsdóttir. -baj Hér birtast úrslit prófkjörsins í tölum. I fyrsta dálki eru þau atkvæði sem töldust frambjóðanda í það sæti sem hann hafnaði. í öðrum dálki eru Frambjóðandi 1. Albert Guðmundsson 2. Friðrik Sophusson 3. Birgir ísl. Gunnarsson 4. Ragnhildur Helgadóttir 5. Eyjólfur Kon. Jónsson 6. Guðm. H. Garðarsson 7. GeirH. Haarde 8. Sólveig Pétursdóttir 9. JónMagnússon 10. María E. Ingvadóttir 11. Vilhjálmur Egilsson 12. Esther Guðmundsdóttir 13. Bessí Jóhannsdóttir 14. Ásgeir H. Eiriksson 15. Rúnar Guðbjartsson Bessi Jóhannsdóttir hafnaði i 13. sæti. öll atkvæði sem hann hlaut. I þriðja dálki þau atkvæði sem honum nýttust ekki. I aftasta dálki eru atkvæði greidd í fyrsta sæti. -KMU 1. sæti 2.374 1.360 891 323 517 126 93 113 137 43 123 34 27 54 Urslit prófkjörsins Lokasæti 2.374 2.166 3.116 3.201 2.893 2.559 3.088 3.456 3.321 3.335 3.480 2.987 2.921 2.551 1.289 Samtals 4.091 5.036 5.476 4.853 4.661 4.318 4.194 4.165 3.691 3.650 3.616 2.987 2.921 2.551 1.289 Ónotað 1.717 2.870 2.360 1.652 1.768 1.759 1.106 709 370 315 136 0 0 0 0 Paö hlýtur vera góö furir því sextíu hafa valið BBC tölvuna ástœða skólar ER SYNDSAMLEGT AÐ VELJA AÐEINS ÞAÐ BESTA? Laugavegi 63 (Vitastígsmegin) — Simi 62 20 25

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.