Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.1986, Side 4
4
MÁNUDAGUR 20. OKTÓBER 1986.
Stjómmál
Prófkjór SjáHstæðisflokksins á Norðuriandi eystra:
Halldór
Blondal varð
langefstur
]án G. Hauksson, DV, Akureyri
Halldór Blöndal varð langefstur í
prófkjöri Sjálfetæðisflokksins á Norð-
urlandi eystra sem fram fór á laugar-
dag. Hann fékk 654 atkvæði í fyrsta
sætið og 919 atkvæði í það heila. Alls
kusu 1074. Úrslitin eru bindandi varð-
andi fimm efetu sætin.
Bjöm Dagbjartsson varð i öðru sæti.
Hann fékk 156 atkvæði í fyrsta sætið
og 482 í annað sætið. Alls fékk Bjöm
849 atkvæði í prófkjörinu.
Tómas Ingi Olrich varð í þriðja sæti,
Vigfus Jónsson í fjórða, Margrét
Kristinsdóttir í fimmta, Stefán Sig-
tryggsson í sjötta, Bima Sigurbjöms-
dóttir í sjöunda og Tryggvi Helgason
í áttunda sæti.
Þrettán hundmð félagar em í Sjálf-
stæðisflokknum í kjördæminu og nýir
félagar bættust við á laugardag. Kjör-
sókn var því mjög góð eða yfir 82
prósent. -baj
Bjóm Dagbjartsson:
Atti von á
góðri útkomu
Jón G. Haukssan, DV, Akureyii;
„Mér líst vel á þessi úrslit og er
ánægður. Sjálfur átti ég von á því að
útkoman hjá okkur Halldóri yrði
þokkaleg og sú varð raunin. Ég vil
nota tækifærið og þakka fólki stuðn-
inginn,“ sagði Bjöm Dagbjartsson
þingmaður í gær en hann varð í öðm
sæti í prófkjörinu. -baj
Tómas Ingi Olrich:
Mjög ánægður
Jón G. Haukssan, DV, Akureyii
„Þriðja sætið er það besta sem ég
gat gert mér vonir um. Ég stefndi á
eitt af þremur efstu sætunum en gerði
mér jafnframt grein fyrir að við öfluga
menn væri að etja. Það tókst og ég
er að sjálfsögðu mjög ánægður," sagði
Tómas Ingi Olrich sem var í þriðja
sæti prófkjörsins."
Áttu von á að komast inn á þing?
„Já, það verður kosið samkvæmt
nýjum kosningareglum og samkvæmt
þeim em miklir möguleikar á að flokk-
urinn nái inn þremur mönnum hér í
kjördæminu. Þriðji maðurinn yrði þá
eins konar uppbótarþingmaður, hann
færi inn á fylgi flokksins um allt land.“
-baj
Kjorsokn var mjog goo i profkjori Sjálfstæðisflokksins á Norðurlandi eystra, eöa yfir áttatíu og tvö prósent.
DV-mynd JGH
Urslrtin
Halldór Blöndal:
Mikið traust
Ján G. Haukssan, DV, Akuieyii;
„Ég er mjög ánægður með úrslitin,
það er mikið traust að fá yfir sextíu
prósent atkvæða i fyrsta sætið. Enn-
fremur er ég ánægður með hve þátt-
takan í prófkjörinu var góð, hún er
mun betri en i prófkjörinu hjá okkur
fyrir bæjarstjómarkosningamar síð-
astliðið vor,“ sagði Halldór Blöndal
þingmaður i gær en hann varð lang-
efetur í prófkjörinu á laugardag. -baj
Halldór Blöndal, 919 atkvæði
Bjöm Dagbjartsson, 849 atkvæði
Tómas Ingi Ulrich, 674 atkvæði
Vigfús Jónsson, 576 atkvæði
Margrét Kristinsdóttir, 567 atkvæði
Stefán Sigtryggsson, 441 atkvæði
Bima Sigurbjömsdóttir, 272 atkvæði
Tryggvi Helgason, 93 atkvæði
Matttiías Á. Mattiiesen utanríkisiáðhena:
Samningar ekki útilokaðir
„Það er aldrei útilokað að náist
samningar. Saltsíldarviðræður við
Sovétmenn hafa áður farið í loft
upp, en náðst saman á endanum.
Seinast í fyrra, þegar ég stóð í þessu,
fór allt í strand en engu að síður
náðust samningar að lokum,“ sagði
Matthías Á, Mathiesen utanríkis-
ráðherra í samtali við DV.
Svo sem kunnugt er af firéttum
hefúr saltsíldarviðræðum við Sovét-
menn verið slitið án þess að samn-
ingar hafi tekist og hefúr ekkert
verið ákveðið um framhald viðræðn-
anna. Sjómenn, útgerðarmenn og
síldarsaltendur hafa beint þeim til-
mælum til stjómvalda að ræða ekki
um olíukaup við Sovétmenn nema
þeir breyti afetöðu sinni varðandi
kaup á saltsfld héðan.
„Ég tel rétt að hefja þessar viðræð-
ur um olíukaupin eins og um var
samið og sjá hverju fiam vindur.
Formaður viðræðunefiidarinnar,
Þórhallur Ásgeirsson ráðuneytis-
stjóri, er í Sovétríkjunum núna og
hann mun gera sitt til þess að það
geti orðið framhald á saltsíldarvið-
ræðunum. Það er svo mikið í húfi
fyrir okkur.“
- Hefúr viðræðunefhdin einhver
fyrirmæli um að beita olíukaupunum
til þess að liðka fyrir um sölu salt>
síldarinnar?
„Ekki veit ég til þess. En auðvitað
hljótum við að taka tállit til allra
þátta innan rammasamningsins við
Sovétmenn áður en endanlegir
samningar eru gerðir," sagði utan-
ríkisráðherra. -VAJ
í dag mælir Dagfari
Kvikmyndir á ríkisjötunni
Þegar íslensk kvikmyndafram-
leiðsla var að vaxa úr grasi þótti við
hæfi að styrkja þessa starfsemi af
hálfu hins opinbera meðan hún var
að slíta bamsskónum. Einhver vin-
samlegur menntamálaráðherra
stofnaði Kvikmyndasjóð sem átti að
veita styrki til kvikmyndafram-
leiðslu til eflingar þessari nýju
listgrein. í kjölfarið gerði mikil
gróska vart við sig í framleiðslu ís-
lenskra kvikmynda. Hver myndin á
fætur annarri var framleidd og frum-
sýnd og voru yrkisefnin mörg. Sumar
þessar myndir komust að vísu aldrei
lengra heldur en að verða frumsýnd-
ar
Nú má segja að allar íslenskar bíó-
myndir hafi átt það sammerkt að
höfundar þeirra hafi verið harla á-
nægðir með myndir sínar en því
miður gegndi ekki sama máli með
áhorfendur. Enduðu þessi ósköp með
þvi að flestar þessara kvikmynda
stóðu ekki undir sér og lentu í gjald-
þroti áður en yfir lauk. Framleiðend-
ur brugðust yfirleitt illa við og
reiddust fólki fyrir að vilja ekki
sækja bíómyndir sem framleiðend-
umir' voru ánægðir með.
Framleiðendur gátu þó huggað sig
við að geta sótt fé í Kvikmyndasjóö-
irrn til að standa undir hallanum af
bíómyndum sem fólk hafði ekki
áhuga á að sjá. Svo fór þó að lokum
að sjóðurinn tæmdist enda var ekk-
ert lát á fallítbíómyndum.
Stjómmálamenn lágu undir lát-
lausri krítik frá stétt kvikmynda-
framleiðenda fyrir þá nisku að vilja
ekki veija meira almannafé til að
standa undir áframhaldandi fram-
leiðslu bíómynda sem ekki vom
sóttar og þessi harmagrátur hefur
nú loks borið áangur.
Fjármálaráðherrann, sem jafh-
framt er formaður Sjáfetæðisflokks-
ins, hefur lagt fram fjárlagafrumvarp
þar sem gert er ráð fyrir stórauknum
fjárveitingum til Kvikmyndasjóðs.
Framleiðendumir hafa tekið gleði
sfna á nýja leik og em nú allar líkur
á því að framleiðsla íslenskra kvik-
mynda hefjist af auknum þrótti. Það
er auðvitað skiljanlegt að framleið-
endur kætist við það að geta fram-
leitt bíómyndir fyrir peninga úr
ríkissjóði án þess að hafa áhyggjur
af því hvort einhver vill sjá sýning-
amar eða ekki. I sjálfú sér er það
þægilegt og viðkunnalegt líf að geta
stundað atvinnu án þess að þurfa
að velta því fyrir sér hvort hún skil-
ar tapi eða gróða. Ef einhver
afgangur verður fer hann í vasann
ef tap verður má alltaf sækja skot-
silfur í sjóðinn góða.
Hitt er annað hvort skattborgur-
unum líkar þetta jafrivel. Peningam-
ir, sem renna í sjóðinn, em ekki
peningar ráðherranna eða stjóm-
málamannanna. Þeir em skattpen-
ingar fólksins, afraksturinn af
yfirvinnunni og.bónusunum og tekj-
unum sem almenningur vinnur fyrir
hörðum höndum. Fram að þessu
hefur það verið stefna hjá Sjálfstæð-
isflokknum að halda sköttum í
skefjum og leyfa sem flestum að ráð-
stafa sínum eigin peningum. Til að
mynda að leyfa fólki að ákveða sjálft
hvort það fer í bíó eða ekki bíó.
Aðrir flokkar hafa einnig látið það
átölulaust að fólk fái að ráða hvaða
mynd það sér.
Á þessari stefnu hefur augsýnilega
orðið einhver breyting eftir að for-
maður flokksins gerðist fjármálaráð-
herra. Honum finnst það glapræði
að láta fólk komast upp með það að
sækja ekki bíómyndir sem framleið-
endum þóknast að framleiða. Hann
hefúr ákveðið að íslenskar bíómynd-
ir skuli ofan í pupulinn hvað sem
það kostar. í stað þess að greiða
aðgangseyri af þeim sýningum sem
fólk hefur valið sér hefúr formaður
Sjálfstæðisflokksins þvi ákveðið að
verja nokkrum milljónatugum af
skattpeningunum til Kvikmynda-
sjóðsins þannig að ef bíógestir sýna
íslenskri framleiðslu þá ókurteisi að
mæta ekki til sýninga þá skal að-
gangseyririnn greiddur í gegnum
sjóðinn.
Þetta er vfst hin nýja stefha Sjálf-
stæðisflokksins og guru flokksins í
menntamálum hefúr kallað for-
manninn og bandamenn hans, full-
trúa hins nýja tíma. Aðgangseyrir-
inn, sem ríkissjóður ætlar að borga
fyrir myndir sem enginn nennir að
sjá, ku lýsa stórhug og djúpum skiln-
ingi, svo orðrétt sé vitnað til hinna
andlegu leiðtoga Sjálfetæðisflokks-
ins.
Hér með er vakin athygli á þesa-
ari merku stefnumótun sem felur það
í sér að nú þarf fólk ekki lengur að
fara í bíó til að borga sig inn. Sjálf-
stæðisflokkurinn hefur ákveðið að
Kvikmyndasjóður borgi fyrir það.
Jafnvel þótt það fari alls ekki í bíó.
Dagfari