Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.1986, Page 7

Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.1986, Page 7
MÁNUDAGUR 20. OKTÓBER 1986. 7 Atviriniuriál Þaö er alltaf handagangur i öskjunni þegar síld er söltuð. Nú verður aðeins saltað í 50 þúsund tunnur sem fara til Svíþjóðar og Finnlands. Þessi mynd er tekin á Eskifirði á dögunum þegar söltun hófst. DV-mynd E.Th. Þýska verksmiöjan til landsins: Líkleg árs- velta 60-70 milljónir Búið að semja um kaupverð Nú eru um 99 prósent líkur á því að Álafoss kaupi í félagi við kanínu- bændur og fleiri þýsku verksmiðjuna sem framleitt hefur nærföt úr kanínu- hárum. „Það er búið að semja um kaupverð á verksmiðjunni og nú er unnið að því að safna hlutafé til kaupanna. Það þarf að safna 25 milljónum. Álafoss mun að öllum líkindum leggja fram þriðjung þeirrar upphæðar. Kanínu- bændur verða hluthafar. Byggðastofn- un verður líklega með,“ sagði Ingjaldur Hannibalsson, forstjóri Ála- foss. Ekki vildi Ingjaldur gefa upp umsa- mið kaupverð en sagði að kaupin væru sangjöm og greiðslukjör góð. Ingjaldur sagði að eftir ítarlega at- hugun benti allt til þess að verksmiðj- an gæti skilað arði og orðið ábatasöm fjárfesting. Líkleg velta verksmiðj- unnar væri um 60-70 milljónir á ári. Verksmiðjan verður flutt frá Þýska- landi til íslands í kringum áramót og verður staðsett nálægt verksmiðju Álafoss í Mosfellssveit. „Verksmiðjan getur líklega hafið framleiðslu í mars á næsta ári. Við munum halda áfram framleiðslu á nærfótum úr kanínuhárum, munum kaupa allt kanínuhár sem hér er fram- leitt, sem er núna um 3 tonn á ári, og munum einnig flytja inn kanínuhár frá Kína, til að byrja með í kringum 7 tonn. Það er einnig ætlimin að nota verksmiðjunna til að þróa ýmsar nýj- ungar,“ sagði Ingjaldur. -KB Verður faríð að bræða sfldina? - ekkert annað hægt að gera við 50 þús. lestir af kvótanum „Síld er mun afurðameiri fiskur en loðnan og það er fullkomlega grund- völlur fyrir því að hefja síldarbræðslu. Spumingin er bara um síldarverðið. Síld gefur af sér meira mjöl en loðna og eykur það hagkvæmnina þar sem algert verðhrun hefur átt sér stað á lýsi. Enda þótt mjölverð sé ekki hátt þá hefur ekki átt sér stað verðhnm á því,“ sagði Jón Reynir Magnússon, forstjóri Síldarverksmiðja ríkisins, í samtali við DV. Menn velta því nú mjög fyrir sér hvað eigi að gera við þau 50 þúsund tonn af síldarkvótanum sem ekki er hægt að nýta til annars en bræðslu eftir að síldarsamningamir við Rússa fóm út um þúfur. Síldarútvegsnefnd hefur selt 50 þúsund tunnur til Sví- þjóðar og Finnlands en það em um það bil 7-8 þúsund lestir. í frystingu gætu farið 5-10 þúsund lestir og standa þá eftir um það bil 50 þúsund lestir af þeim 70 þúsund tonna kvóta sem ákveðinn var í ár. Sumir benda á að sjálfsagt sé að bræða þetta magn og vísa þá til þess að Norðmenn bræða um það bil 70% af síldinni sem þeir veiða. í því sam- bandi er rétt að benda á að ekki nema um 5% af þeirri síld sem veidd er utan íslands fer í verkun. Aðrir benda á að skynsamlegra sé fyrir okkur að veiða ekki þessar 50 þúsund lestir heldur geyma þær í sjón- um og láta síldina auka kyn sitt. Loks má benda á að enn er í gildi hér á landi bann við síldarbræðslu og hefur síld ekki verið brædd á íslandi síðan á þeim frægu síldarárum, nema ef farmar hafa eyðilagst á haustveiðun- um undanfarin ár. SfldarsöKunarplássin: Fer illa með fjáriiag margra - ef sfldarsöltun fellur svo til alveg niður „Það mun hafa mikil og slæm áhrif á atvinnulífið hér á Austfjörðuni og raunar í öllum síldarplássunum, sem og fjárhag margra heimila að síldar- söltun skuli svo til alveg falla niður í haust“ sagði Emil Thorarensen, frétta- ritari DV á Eskifirði, um ástandið sem skapast hefur við það að uppúr samn- ingum við Rússa um kaup á saltsíld slitnaði. Emil sagði að á Eskifirði hefði í fyrra verið saltað í 39 þúsund tunnur og hefði Eskifjörður verið með mesta söltun af einstökum stöðum. Síldar- söltunin hefur verið uppgrip fyrir fjölmarga. Fólk sem stundar aðra vinnu hefur komið á kvöldin og saltað fram á nótt, jafhvel embættismenn hafa komið til að bjarga verðmætum og afla sér aukatekna. „Að engin síld er söltuð nú gæti leitt til tímabundins atvinnuleysis á ýmsum stöðum hér á Austfjörðum. Það er ekki bara vinnan við sjálfa söltunina sem um er að ræða. Menn hafa haft vinnu við síldina alveg frá því í sept- ember og fram í mars, en þá er vanalega búið að skipa út öllum síld- artunnunum," sagði Emil. Þá benti hann á að flestar söltunarstöðvar landsins hefðu verið búnar að búa sig undir söltun með því að kaupa salt og tunnur og nú sitja þær uppi með þetta ónotað. AUt myndi þetta leiða til mikilla erfiðleika. -S.dór. Gott veggrip 1 með laus Öruggari akstur á ísilögðum vegum. hemlunareiginleikar erfiðar aðstæður. Stöðugleiki í hálku Goodyear vetrardekk eru úr sérstakri gúmmíblöndu og með munstri sem gefur dekkinu mjög gott veggrip. Goodyear vetrardekk eru hljóðlát og endingargóð. LEIÐANDI I VEROLD TÆKNIÞR Laugavegi 170-172 Simi 28060 695500

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.