Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.1986, Page 8
8
MÁNUDAGUR 20. OKTÓBER 1986.
SENDLAR ÚSKAST
STRAX
Upplýsingar á afgreiðslu
í síma 27022.
Rakarastofan Klapparstíg
Hárgre'iðslustofan
Klapparstíg
Sími 12725
Opið á laugardögum.
Fímapantaná
13010
I
-i
LYFTARAR ATH! Nýtt heimilisfang
Eigum til afgreiðslu nú þegar mikið úrval notaðra raf-
magns- og dísillyftara, ennfremur snúninga- og
hliðarfærslur. Tökum lyftara upp í uppgerðan, leigjum
lyftara, flytjum lyftara.
Varahluta- og viðgerðaþjónusta.
Líttu inn - við gerum þér tilboð.
Tökum lyftara í umboðssölu.
LYFTARASALAN HF.
Vatnagöröum 16, símar 82770-82655.
Til sölu
notuð
skrifstofuhúsgögn:
skrifborð - stólar - fundaborð -
afgreiðsluborð, laus skilrúm og margtfleira.
I EINSTAKT
TÆKIFÆRI
Opið kl. 14-19 í dag.
Komið í Síðumúla 12, 2. hæð.
Dagblaðið-Vísir
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á eigninni Reykjamel 5, Mosfellshreppi, þingl. eign Finnsk-
íslenska, ferfram á eigninni sjálfri fimmtudaginn 23. október 1986 kl. 16.00.
Sýslumaðurinn i Kjósarsýslu.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á eigninni Skógarási, spildu úr landi Saurbæjar, Kjalames-
hreppi, þingl. eign Ólafe Böðvarssonar, fer fram á eigninni sjálfri fimmtudaginn
23. október 1986 kl. 13.45.
Sýslumaðurinn i Kjósarsýslu.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 35., 45. og 51. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1986 á eign-
inni Hagalandi 4, efri hæð, Mosfellshreppi, þingl. eign Eiríks Sigurðssonar,
fer fram eftir kröfu Veðdeildar Landsbanka Islands á eigninni sjálfri fimmtudag-
inn 23. október 1986 kl. 15.15.
Sýslumaðurinn i Kjósarsýslu.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 35., 45. og 51. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1986 á eign-
inni Urðarholti 3, íb. 101, Mosfellshreppi, þingl. eign Arnar Stefánssonar og
Kristínar Þorsteinsdóttur, fer fram eftir kröfu Arnar Höskuldssonar hdl. á eign-
inni sjálfri fimmtudaginn 23. október 1986 kl. 15.30.
Sýslumaðurinn í Kjósarsýslu.
Utlönd
Samora Machel
talinn af
í flugslysi
Vaxandi spenna á landamærum Mósambík og Suður-Afríku
Flugvél á leið frá Zambíu til Mós-
ambík með yfir fjörutíu farþega fórst
í fjallendi í Suður-Afríku í gær-
kvöldi, að því er staðfest hefur verið
af yfirvöldum í Suður-Afiíku. Ríkis-
útvarp Mósambík hefur leikið
sorgarlög í allan morgun og tals-
maður stjómvalda í höfúðborginni
Mapútó hefur staðfest að Samora
Machel, forseti Mósambík, hafi verið
um borð í flugvélinni sem fórst. Var
Machel á leið heim frá fundi með
ráðherrum nágrannaríkja er haldinn
var í Lusaka, höfúðborg Zambíu, um
helgina.
Pik Botha, utanríkisráðherra Suð-
ur-Afríku, staðfesti í morgun að
flugvél með yfir fjömtíu manns hefði
farist á suður-afrísku landsvæði.
Sagði ráðherrann að þrátíu og átta
hefðu farist en fiórir lifað af flugslys-
ið.
Marcelino Dos Santos, forseti
þingsins í Mósambík, kvað þarlend
yfirvöld þegar hafa hafið rannsókn
á orsökum flugslyssins og hvatti
íbúa landsins til að hafa hemil á sér
þar til frekari upplýsingar hefðu
borist um hvað gerst hefði.
Er fréttist að Machel væri saknað
var þegar í stað boðað til neyðar-
fundar í byltingarráði Mósambík og
her og lögreglusveitum skipað í við-
bragðsstöðu til að koma í veg fyrir
hvers konar tilraunir til að valda
uppnámi og öngþveiti. "
Mósambík hefur verið undir stjóm
marxistastjómar Samora Machels
frá því nýlendustjóm Portúgala lauk
í landinu árið 1975 en hefur á þvi
tímabili orðið að kljást við vaxandi
andspyrnu skæmliða hreyfinga í
landinu er notið hafa stuðnings
stjómvalda í Suður-Afríku.
Samskipti Suður-Afríku og Mós-
ambík hafa verið mjög stirð að
undanfömu en stjómvöld í Suður-
Afríku saka yfirvöld í Mósambík um
að leyfa skæmliðum afríska þjóðar-
ráðsins að athafna sig í landinu og
skipuleggja herferðir inn fyrir landa-
mærin til Suður-Afríku.
Stórsigur hægrimanna í Grikklandi
Helsti flokkur stjómarandstæðinga
í Grikklandi, Nýi lýðræðisflokkurinn,
sem er íhaldsflokkur og til hægri í
grískum stjómmálum, vann mikil-
væga sigra á kostnað stjómarflokks
grískra sósíalista undir forystu Andre-
asar Papandreu forsætisráðherra í
sveitarstjómarkosningum sem haldn-
ar vom í Grikklandi um helgina.
Sósíalistar töpuðu verulegu fylgi yfif
til íhaldsmanna í kosningunum, meðal
annars meirihluta sínum í þrem
stærstu borgum Grikklands, Aþenu,
Saloniki og Pireus. Meirihluti Nýja
lýðræðisflokksins yfir sósíalistum í
kosningunum var víða um tíu prósent.
Vígreifir stuðningsmenn Nýja lýð-
ræðisflokksins streymdu sigri hrós-
andi út á götur Aþenu í gærkvöldi,
sprengdu flugelda og ollu töluverðu
umferðaröngþveiti í miðborginni. Haft
var eftir leiðtoga hægrimanna í gær-
kvöldi, Constantine Mitsotakis, að
kosningaúrslitin sýndu það svart á
hvítu að ríkisstjóm Papandreu væri
búinn að missa tökin á stjóm landsins
og hún hefði ekki lengur umboð meiri-
hluta þjóðarinnar. Skoraði Mitsotakis
á Papandreo að gera breytingar á
stjómarstefnu sinni í kjölfar kosn-
ingaúrslitanna.
Sögulegri Kinaheimsókn Elísabetar
Englandsdrottningar er nú lokið og
er hún væntanleg til Hong Kong á
morgun.
Englands-
drottning til
Hong Kong
Elísabet Englandsdrottning er væntr
anleg til Hong Kong á morgun eftir
sögulega heimsókn til Kína. Drottn-
ingin og eiginmaður hennar, Philip
prins, munu dvelja tvo daga í bresku
nýlendunni sem árið 1997 verður kín-
verskt yfirráðasvæði.
Embættismenn og viðskiptamenn
Hong Kong segja að heimsókn drottn-
ingarinnar til Kína hafi orðið til þess
að slaknað hafi á þeirri spennu er ríkti
vegna fyrirhugaðra breytinga.
Enn rikir þó tortryggni í garð vænt-
anlegra stjómenda og hefur Kína
verið sakað um að skipta sér af mál-
efnum Hong Kong áður en nokkur
skipti hafa farið fram. Einnig hefur
verið bent á að yfirvöld í Kína hafi
ekki orðið við tilmælum einnar millj-
ónar íbúa Hong Kong um að byggja
ekki kjamorkuver á landamæmnum
aðeins nokkra kílómetra frá Hong
Kong.
Sprengjutilræði
í Nígeríu
Þekktur nígerískur blaðamaður,
Dele Giwa, lést í gær í Lagos er
sprengja sprakk í pakka er honum
hafði verið afhentur. Hafði sonur hans
tekið við pakkanum af sendisveini og
síðan fært föður sínum þar sem hann
sat að snæðingi.
Giwa, sem var ritstjóri Newswatch
Magazine, hafði verið kallaður til að-
alstöðva öryggisþjónustu Nígeríu á
föstudaginn til yfirheyrslu. Að sögn
starfsfélaga hans var hann sakaður
um að skipuleggja byltingu og að flytja
inn vopn til Nígeríu. Hann neitaði
öllum sakargifitum og var leyft að fara
heim.
Newswatch Magazine, sem gefið
hefur verið út í eitt og hálft ár, hefur
birt harðorðar greinar um spillingu
og önnur viðkvæm málefni.
Giwa lærði blaðamennsku í Banda-
ríkjimum en sneri aftur heim til
Nígeríu 1979. Hann var settur í varð-
hald um vikutíma 1983 eftir að hafa
birt leynilegt efni að sögn lögreglunn-
ar. Ári seinna var varðhaldið úrskurð-
að ólöglegt og honum dæmdar
skaðabætur.
Oriov um Sovétrikin:
Allt annars og þriðja
flokks nema heimálin
Sovétríkin eru annars og þriðja
flokks í öllu nema hermálum, er
haft eftir sovéska andófsmanninum
Yuri Orlov sem nýlega var leyft að
fara frá Sovétríkjunum. Fullyrðir
hann að ef stjómmálalegar og efna-
hagslegar umbætur ættu sér stað í
Sovétríkjunum gætu þau náð yfir-
höndinni í kapphlaupi stórveldanna.
Aðspurður hvort slíkra umbóta væri
að vænta nefhdi hann örlítið frelsi
blaðanna sem áunnist hefði á síðast-
liðnu ári.
Orlov var spurður að því hvemig
ætti að haga sér í viðskiptum við
Sovétríkin. Sagði hann þá að mikil-
vægt væri að breyta ekki oft um
stefiiu heldur vera með þaulhugsaða
stöðu. Ekki væri ástæða til að óttast
að Sovétríkin gæfu ekki eftir.
Orlov sagði einnig að andófsmað-
urinn Andrei Sakharov gæti fengið
að fara frá Sovétríkjunum ef hann
lofaði að segja ekki frá hvemig
stjómmálavaldi væri beitt þar.
Yuri Ortov, sovéski andófsmaðurinn
sem nýlega var leyft að fara frá
Sovétríkjunum, fullyrðir að þau geti
sigrað i kapphlaupi stórveldanna
ef þau einbeita sér að vissum um-
bótum.