Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.1986, Side 19
MÁNUDAGUR 20. OKTÓBER 1986.
19
Merming
Kvöldstund meo horku-
snjöllum gítarleikara
Tónleikar James Emery á vegum Gramms
i Duushúsi 14. október.
Ótrúlegustu staði má gera að tón-
leikasölum. Það sannaðist þegar
Gramm stóð fyrir tónleikum gítar-
leikarans James Emery. Þeir fimdu
litla diskóholu bakatil í Duushúsi
og fyrir tónleika af þessu tagi reynd-
ist það hreint ekki slæmur staður.
Að minnsta kosti hefur maður kom-
ið í ýmsa verri.
Af James Emery hefur farið það
orð að hann sé maður hins óraf-
magnaða gítars í jassinum, það er
með öðrum orðum maður hins klass-
iska gitars. Þessu ber að taka með
nokkrum fyrirvara því að upp í botn-
inn á klassískum gítar hefur hann
stungið hljóðnema og tengt við
magnara. Það virtist mér hann þó
fyrst og fremst gera til að skapa vissa
tóneffekta og þar sem hann fór svo
einstaklega snyrtilega með þetta,
rétt til að lyfta tóninum og skapa
ákveðin áhrif tel ég slíkt síður en
svo skemmandi.
Kunnuglegur „neðanjarð-
arstíll"
Það stakk mín eyru, þegar ég fór
að hlusta á Emery, að mér fannst
ég á vissan hátt kannast við það sem
Tórílist
Eyjólfur Melsted
hann var að spila - og það ekki beint
frá honum sjálfum. Tekið skal fram
að það er töluvert annað að heyra
kappann spila sóló heldur en til
dæmis á plötunum sem hann hefur
leikið inn á með tríói sínu. Ekki
veit ég hvort þar á milli liggja raun-
veruleg tengsl, en leikur hans minnti
mig mjög svo á stíl nokkurra ung-
verskra gítarista sem léku neðan-
jarðaijass á klassíska gítara í
kringum lok þess sjöunda og upphaf
áttunda áratugarins. Stundum áttu
þessir náungar þess kost að skreppa
vestur yfir, þá helst til Vínarborgar,
og tróðu ótrauðir upp. Þess á milli
léku þeir í luktum kjöllurum heima
fyrir. Það var erfitt að staðsetja
þessa náunga í stíl. Það sem þeir
léku var eins ‘konar skemmtileg
blanda af Django Reinhard stíl, hefð-
bundnu sígaunamynstri og þjóð-
lagaarfinum eins og Bartók skráði
hann, en allt saman sveiflaði það.
Og alla þessa þætti mætti líka nota
til lýsingar á spili Emerys, nema
hvað við bætast ósvikin Suðurríkja-
bluesáhrif.
Leiktæknin heldur tónsmíö-
unum uppi _
Ær og kýr Emerys eru að þjóta á
fullri ferð um hálsinn þveran og
endilangan og stundum finnst manni
James Emery.
að honum hljóti að vera keppikefli
að leika eins margar nótur og mögu-
legt er á sem allra skemmstum tíma.
En hann fer líka skemmtilega að
þessu, svo að úr verður áhrifamikill
gitarleikur. Hann lék þama, held ég,
eingöngu eigin tónsmíðar og í þeim
mætti gæta heldur meiri fjölbrevtni.
En hann leitar svo sem víða fanga.
Auk bluesins úr heimahögum sækir
hann efiiivið allt frá Bartók til Aust-
urianda fjær. Athyglisvert er hvem-
ig hann notar sóprangítarinn. Við
hann beitti hann, auk klassískrar
leiktækni, plektara, bambussprota
og krómrörsklemmu stálgítarsins.
Já, leiktækni James Emery er vissu-
lega fjölbreytilegri en tónsmíðar
hans og heldur þeim í raun og vem
uppi. Þama áttu menn sem sagt
ánægjulega kvöldstund með hörku-
snjöllum gítarleikara. EM.
Blásarar og
strengir hjá
Kammer-
músík-
klúbbnum
Tónleikar Kammermúsikklúbbs Reykja-
vikur i Bústaðakirkju 12. október.
Rytjendur: Daði Kolbeinsson, Steven
Wiggets, Einar Jóhannesson, Óskar Ing-
ólfsson, Joseph Ognibene, Emil Friðfinns-
son, Hafsteinn Guðmundsson, Bjöm
Árnason, Szymon Kuran, Kathleen Beard-
en, Elizabeth Dean, Amþór Jónsson.
Efnisskrá: Ludwig van Beethoven: Dúó
fyrir klarinettu og fagott i C-dúr WoO 27.1
og i B-dúr WoO 27.3; Wolfgang Amadeus
Mozart Serenata fyrír 8 blásara i c-moll
KV 388 og Strengjakvintett í c-moll KV 406.
Kammermúsíkklúbburinn hélt
sína fyrstu tónleika á þessu starfsári
í Bústaðakirkju á sunnudagskvöld.
Á síðustu árum hefúr, rétt eins og á
upphafsárum hans, orðið til eins
konar fastakjami tónlistarmanna
sem koma fram á hans vegum. Pilt-
amir í Blásarakvintett Reykjavíkur
tilheyra þeim kjama og það vom
einmitt þeir sem bám uppi dagskrá
þessara tónleika.
Tónlist
Eyjólfur Melsted
Fyrst komu tvö dúó Beethovens fyr-
ir klarínettu og fagott, hreint yndis-
leg stykki og meistaralega leikin af
þeim Einari Jóhannessyni og Haf-
steini Guðmundssyni. Efþetta heitir
ekki að blása sig vel saman þá veit
ég ekki hvað það er.
Að þurfa að þola samanburð
við eigin góða leik
Svo tók oktett Mozarts KV 388
við. Harrn hefur verið fyrr á dag-
skrá, meðal annars á Kvöldlokkum
á jólaföstu sem hafa verið fastir liðir
hjá Blásarakvintett Reykjavíkur
undanfarin ár og jafhan verið ein-
hverjir ljúfústu tónleikar ársins. Hér
var oktett þessi vissulega vel blás-
irm, en hann hefur verið betur
blásinn á þeim tónleikum sem að
framan var getið. Það er náttúrlega
erfitt að gera alltaf jafnvel. Ekki
vantaði svo sem að hér væri vel og
fagmannlega leikið, en hafi menn
einu sinni leikið snilldarlega þá
verður óhjákvæmilega upp frá þvi
við það miðað. Því veldur, held ég,
að ekki hstfi liðið verið jafiivel valið
nú og þá og að því hafi blásaramir
ekki náð að falla eins vel saman.
En taka vil ég fram að það var engu
að síður eymagaman að hlýða á
leikinn þama í Bústaðakirkju.
Löngum tækifærissinnaðir
Mörgum þykir það skrýtið uppá-
tæki að skrifa sama verkið upp á
nýtt fyrir aðra hljóðfæraskipan.
Stundum fitja menn upp á trýnið og
tala um að hin og þessi tónskáld
hafi verið tækifærissinnuð. Líklega
verður ekki, né hefúr nokkum tíma
verið, hægt hjá því að komast til að
geta lifað af listinni. Og þetta gerðu
þeir nánast undantekmgalaust, allir
stóm karlamir í kúnstinni. Umskrift
Mozarts á oktettinum KV 388 fyrir
strengjakvintett, og þá með skrán-
ingamúmerinu KV 406, er snilldar-
verk. Það er fróðlegt að fylgjast með
því hvemig verkið gjörbreytist við
umskráninguna, en heldur samt öllu
því fegursta í eðli sínu þótt það
breyti svo um svip.
Skrýtið þótti manni að sjá
Guðnýju Guðmundsdóttur fara
höndum um lágfiðluna, en henni
verður ekki skotaskuld úr því frekar
en öðm. Og samleikurinn var prýði-
legur, ekki vantaði það. Og
Kammermúsíkklúbburinn ætlar,
samkvæmt þessu, að bjóða okkur
upp á vandaðar og vel fluttar dag-
skrár á þessum vetri eins og endra-
nær.
EM.
22" Digivision 3476 HiFi stereo. Tölvustýring á
myndlarhpa, HiFi tuner, 99 Canal og fl. og fl.
Tæki með öllu. Verð aðeins kr. 49.920,-stgr.
VESTUR-ÞYSK
GÆÐAVARA
3906 myndbandstæki, hæð 9,5 cm, framhlaðið,
3 möguleikar á upptöku, 14 daga minni, 12 rás-
ir, scart tengi. Vestur-þýsk - japönsk gæðavara.
Verð aðeins kr. 39.990,- stgr.
14" 3106, 8 rásir, 3 vatta hátalari. Verð aðeins
kr. 24.990,- stgr.
Umboðsmenn um land allt.
Hjá Óla Keflavik
Rafeindavirkinn Grindavik
Árvirkinn Selfossi
Kaupf. Rangæinga Hvolsvelli
Nelsti Vestmeyjum
Hátíðni Höfn, Hornaf.
Rafvirkinn Eskifirði
Kaupf. Héraósbúa Egilsstöðum
Kaupf. Þingeyinga Húsavik
KEA Akureyri
Radióþjónustan Ólafsfiröi
Kaupf. Skagfirðinga Sauðárkróki
Oddur Sigurðsson Hvammstanga
Póllinn hf. jsafiröi
Kaupf. Stykkishólms Stykkishólmi
Verslunin Blómsturvellir Hellissandi
Húsprýði Borgarnesi
Skagaradió Akranesi
JL-húsiö Reykjavík
Skipholti 7 - Símar 20080 og 26800.