Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.1986, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.1986, Blaðsíða 24
24 MÁNUDAGUR 20. OKTÓBER 1986. Iþróttir • Boris Becker vann i gœr fræki- legan sigur á Ivan Lendl. Becker vann Lendl Aöi fflraaisscn, DV, Þýskalandi; Vestur-Þjóðverjinn Boris Becker gerði sér í gærkvöldi lítið fyrir og tryggði sér ástralska meistaratitil- inn í tennis. Til úrslita lék hann gegn sterkasta tennisleikara heims, Ivan Lendl frá Tékkósló- vakíu, og sigraði Becker, 8-6, 7-6, 6-2 og 6 0. Og það er ekki á hverj- um degi sem Ivan Lendl tapar leik og enn sjaldgæfara er að sjá tölur eins og 6-0 þegar hann er annars vegar. -SK Navratilova fékk Porsche Siggi Sveins í þriðja sætinu Afli fflmaissan, DV, ÞýskaJaridi; Þegar fimm umferðum er lokið í hinni hörðu keppni 1. deildar í þýska handknattleiknum er íslendingurinn Sigurður Sveinsson í þriðja sætinu yfir markahæstu leikmenn deildarinn- ar. Erhard Wunderlicht, Milberts- hofen, er í efsta sætinu sem stendur og gamla kempan Jersey Klempel í öðru sæti. Annars er röð efstu manna þannig: Wunderlicht, Milbertshofen.....44/22 J. Klempel, Göppingen..........43/14 Sigurður Sveinsson, Lemgo......39/16 Jurina, Shiitterwald...........37/22 Mijatovic, Weiche Handewitt.....34/7 Fraatz, Essen..................34/11 Enn eitt áfallið hjá Juventus Juventus varð fyrir enn einu áfallinu þegar félagið vann stórsigur, 5-0, yfir Ascoli í gær í ítölsku 1. deildar keppn- inni. Fyrirliðinn Scirea varð að fara af leikvelli, meiddur á nára. Fjórir fastaleikmenn Juventus léku ekki með, Laudrup, Cabrini, Manfredonia og Aldo Serena. Briascht skoraði tvö mörk, Platini, Bonetti og 16 ára nýliði Renato Buso skoruðu eitt mark. Busto skoraði sitt mark eftir mikinn einleik. Diego Maradona skoraði mark fyrir Napoli sem gerði jafntefli, 2-2, heima gegn Atalanta. Annar Argentínumað- ur, Passarella, tryggði Inter' Milano sigur, 1-0, yfir Sampdoría. Daninn Klaus Berggren skoraði sitt fyrsta mark fyrir Roma sem lagði Tor- ino að velli, 2-0, í Torino. Juventus er efst á Ítalíu með 10 stig eftir sex leiki. Napoli hefur 9, Inter Milano, Como og Roma 8. -SOS Grátið í sjónvarpinu Gunnlaugur A. Jónssan, DV, Sviþjóö: Gífurleg gremja er ríkjandi þessa dagana í Svíþjóð vegna úthlutunar- innar á vetrarólympíuleikunum. Sem kunnugt er hrepptu Frakkar hnossið en margir áttu von á því að Svíar, sem nú sóttu Um leikana i 7. skipti, yrðu loks heppnir. En það fór á aðra leið og í beinni sjónvarpsútsendingu grét einn helsti talsmaður íþróttahreyfingarinn- ar og er það lýsandi dæmi um gremju og vonbrigði Svía. Eitt dagblaðanna segir alþjóðlegu ólympíunefndina skipaða „gömlum körlum“ sem aðeins hugsi um hvar kellingunum þeirra líði best þegar þeir úthluti ólympíuleikum. -SK • Hörð barátta í leik Vals og Njarðvíkur I gærkvöldi. Leifur Gústafsson, sem skoraði sig- urkörfuna, er lengst til hægri á myndinni. DV-mynd Brynjar Gauti Aöi fflmarascm, DV, Þýskalandi; Bandaríska tennisstjaman Martina Navratilova, sem ekki veit aura sinna tal, sigraði í gær- kvöldi á stóru alþjóðlegu tcnnis- móti kvenna sem fram fór í Vestur-Þýskalandi. Navratilova, sem hélt upp á þrjátíu ára afinæli sitt á laugardaginn, sigraði so- véska fyirverandi löndu sína, Mandlikovu í úrslitaleiknum, 6-2 og 6-3. Fyrir sigurinn fékk hún glænýjan Porsche sportbíl sem metinn er á 1,6 milljónir króna. Hún ætti því að geta boðið vinkon- um sínum í bíltúr á næstunni. -SK Guðni skor- aði 34 stig - Haukar unnu KR, 82-77 Haukar lögðu KR-inga að velli með 82 stigum gegn 77 í úrvals- deildinni í körfúbolta á laugardag í íþróttahúsi Hafnarfjarðar. Jafh- ræði var með liðunum í fyrri hálfleik og höfðu KR-ingar nauma forystu allt fram á síðustu mín. hálfleiksins þegar Pálmar Sigurðs- son skoraði þriggja stiga körfú fyrir Hauka og kom þeim yfir í fyrsta sinn í leiknum, 46-44. Þann- ig var staðan í hálfleik. í þeim síðari höfðu Haukar yfirhöndina og höfðu 6-10 stiga forystu lengst af. KR-ingum tókst ekki að saxa á forystuna þrátt fyrir stórleik Guðna Guðnasonar og undir lokin var munurinn orðinn 12 stig, 81-69. KR-ingum tókst þó að minnka muninn í 5 stig á síðustu sekúnd- unum og lokatölumar urðu 82- 77 fyrir Hauka. læikurinn var mjög skemmtilegur og góður af hálfú beggja Hða. Hjá KR bar Guðni af og skoraði 34 stig. Pálmar var að venju atkvæðamestur hjá Haukum og skoraði 20 stig. Maður leiksins, Guðni Guðnason, KR. -RR Rosaleg spenna á lokamínútunum - þegar Valur vann Njarðvík, 75-73, í gærkvöldi „Það var virkilega sæt tilfinning að horfa á eftir boltanum í körfúna og innsigla þannig sigurinn í leiknum, en þetta er aðeins sigur í fyrstu lotunni á Islandsmótinu og að mínu áliti kem- ur baráttan til með að standa á milli þessara liða á mótinu í vetur, þau standa greinilega upp úr hvað getu liðanna snertir í úrvalsdeildinni," sagði Leifur Gústafeson í samtali við DV að leikslokum f leik Vals og Njarð- víkur í úrvalsdeildinni í körfuknatfi leik sem fram fór í íþróttahúsi Seljaskóla í gærkvöldi. Valsmenn sigr- uðu í leiknum með aðeins tveggja stiga mun, 75-73, eftir æsispennandi loka- mínútur þar sem Val Ingimundarsyni mistókust tvö vítaskot þegar aðeins tvær sekúndur voru eftir af leiknum og þar kærkomið tækifæri að jafna leikinn og knýja fram úrslit í fram- lengingu. Leikurinn einkenndist af mikilli baráttu liðanna og einnig mikl- um mistökum á báða bóga en þó brá fyrir skemmtilegum leikköflum inn á milli. Valur í miklum ham Njarðvíkingar byrjuðu leikinn af miklum krafti og náðu fljótlega for- skoti og á tímabili var staðan orðin 14-7, en Valsmenn hristu af sér slenið og með góðri baráttu tókst þeim að jafna leikinn um miðjan fyrri hálfleik, 16-16. Eftir það var jafnræði með lið- unum og skildi þau aldrei meira að en tvö til fjögur stig. Valur Ingimund- arson var í miklum ham og hitti sérstaklega vel á tímabili þó að hann hefði verið í strangri gæslu, erfitt væri að segja til um hvemig Njarðvíkurlið- ið væri ef hans nyti ekki við því hann er hálft liðið. Þegar flautað var til leik- hlés voru Njarðvíkingar með fjögurra stiga forystu, 38-34. Mikil spenna í lokin Njarðvfkingar byrjuðu seinni hálfleik eins og þann fyrri með miklum látum og náðu fljótlega tíu stiga forskoti en þegar leið á seinni hálfleikinn virtust Njarðvík- ingar hreinlega sprungnir og Valsmenn gengu á lagið og söxuðu jafnt og þétt á forskot Njarðvíkinga, Valsmenn voru búnir að ná upp mjög góðri baráttu og þó sérstaklega í vöminni og virtist það koma Njarðvíkingum í opna skjöldu. Valsmenn fóru að hitta vel og til að mynda skoraði Einar Ólafsson, hinn ungi og skemmtilegi leikmaður, tvær þriggja stiga körfur með stuttu millibili. Þegar um fimm mínútur voru til leiksloka jöfhuðu Valsmenn leik- inn og spennan var í hámarki og eftir það var hnífjafht á með liðunum. r"AGFvárð”"j | meistari | ■ fflukur lárus Haukascm, DV, Danmorku; | ■ Árósaliðið, AGF, hefur nú I I tryggt sér danska meistaratitil- ■ ■ inn í knattspymu í fyrsta skipti I I í 26 ár. Liðið er með 39 stig en ■ I Bröndby, sem er í öðru sæti, er 8 J með 28 stig. Fjórar umferðir eru S ■ eftir. AGF sigraði Herfölge í I I gærkvöldi og með sigrinum ■ I tryggðu leikmenn AGF sér titil- I ■ inn eftirsótta. -SK^ Leifur skorar sigurkörfuna Þegar um ein mínúta er til leiksloka kemur Valur Njarðvíkingum yfir með glæsilegri þriggja stiga körfu, 73-71, en rétt á eftir jafhar Torfí Magnússon fyrir Valsmenn, 73-73, Njarðvíkingai bruna upp í sókn en sóknin rennur út í sandinn og 25 sekúndur eftir af leiknum. Valsmenn hefja sókn og í henni skorar Leifur Gú- stafsson úrslitakörfu leiksins eftir mikinn baming undir körfunni. Eins og fyrr grein- ir hér að framan fengu svo Njarðvíkingar tvö vítaskot til þess að jafna leikinn þegar tvær sekúndur voru eftir en Val Ingimund- arsyni brást bogalistinn og skoraði úr hvorugu vítinu, og Valsmenn fögnuðu iimilega kærkomnum og mikilvægum sigri, en leikir milli þessara liða í vetur eiga ömgglega eftir að ráða miklu um hver hreppir íslandsmeistaratitilinn í mótslok. Valsmenn geta þakkað mjög góðum vamarleik, sérstaklega þegar á leikinn leið, sigurinn í gærkvöldi. Þrír leikmenn stóðu nokkuð upp úr í liði þeirra að öðrum ólöstuðum, en það vom þeir Einar, Torfi og Leifur. Njarðvfkingar geta lært margt af þessum leik, það sýnir sig best á því að það þýðir ekkert að leggja árar í bát þótt liðið sé búið að ná tíu stiga forskoti eins og það var búið að ná á tímabili í seinni hálfleik einungis fyrir baráttuleysi og klaufaskap. Valur Ingimundarson var langfrískastur Njarðvikinga í leiknum og skoraði tæp- lega helminginn af stigum liðsins, einnig komst Jóhannes Kristbjömsson nokkuð vel frá leiknum þó að hann hafi oft átt betri leiki. Sigurður Valur Halldórsson og Jón Otti Ólafsson vom dómarar leiksins og vom ekkert öfundsverðir af því hlutverki og komust þeir þokkalega frá því þó að þeim hafi orðið á mistök stundum rétt eins og leikmönnunum sjálfum. Stigin, Valur: Einar 20, Leifur 18, Torfi 16, Sturla 10, Tómas 5, Bjöm 4, Guðmund- ur 2. Stigin, Njarðvík: Valur 34, Jóhannes 14, Hreiðar 8, Teitur 7, Kristinn 6, fsak 4. -JKS • ÞorbjÖrn Jensson. Ekkert gekk upp i | j gærkvöldi i Sviþjód. | j „Hreinasta ; hörmung“ j | -TobbiJensogfelagartopuðustort | I Guimlaugur A. Jónsson, DV, Svfþjóð: „Þetta var hreinasta hömiung og aHir . leikmenn í liði okkar áttu afar lélegan dag,“ sagði Rolf Liljeblad, framkvæmda- stjóri sænska 1. deildar liðsins IFK Malmö, en í gær tapaði liðið illa fyrir erkifjendunum Ma'mö BI, 19-27, eftir að staðan hafði verið 9-12 í leikhléi. Þeir Þorbjörn Jensson og Gunnar Gunnarsson leika báðir með IFK Malmö. Liljeblad sagði ennfremur: „Og það allra versta er að báðir fslendingamir eru meidd- ir og óvíst hvenær þeir komast í gagnið aftur.“ Þorbjöm Jensson meiddist í síðari hálfleik í gærkvöldi og er ekki víst hvort hann get- ur leikið næsta leik liðsins. Gunnar Gunnarsson hefúr verið meiddur en reyndi að leika í gærkvöldi. Hann gafst upp eftir firnm mínútur og verður greinilega að taka sér einhveija hvild frá handknattleik. -SK. - j

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.