Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.1986, Blaðsíða 27
I
MÁNUDAGUR 20. OKTÓBER 1986.
27
Iþróttir
Siggi Jóns áfram
úti í kuldanum
- Sheffield Wed. á mikilli ferð þessa dagana
Rafa Ra&sson, DV, Engiandi;
Ensku blöðin sögðu frá því fyrir
helgina að það væri kominn tími til
að Islendingurinn Sigurður Jónsson
hjá Sheifield Wednesday kæmi inn úr
kuldanum og var rætt um að hann
myndi leika með félaginu gegn Totten-
ham á laugardaginn. Svo varð ekki
og eins og leikmenn Sheff. Wed. léku
gegn Tottenham eru ekki líkur á að
Sigurður komist í liðið í bráð.
Miðvallarspilaramir Gary Shelton
og Gary Megson áttu snilldarleik.
• Sigurður Jónsson.
„Þetta eru geysilega kraftmiklir leik-
menn, sem eru alltaf á ferðinni," sagði
David Pleat, framkvæmdastjóri Tott-
enham.
Pleat sagði eftir leikinn að það yrði
erfitt að stöðva Wednesday ef liðið
héldi áfram að leika eins og gegn Tott-
enham. »
• Belgíski landsliðsmaðurinn Nico
Claesen náði sér ekki á strik með
Tottenham gegn Sheff. Wed. „Claesen
þarf smátíma til að kynnast okkur og
aðlaga sig leik liðsins," sagði Pleat.
-sos
„Stórkostiegt að
komast til Watford“
- segir Mark Falco sem hefur verið á skotskonum
0] Electrolux 0] Electrolux 0] Electrolux
ELECTROLUX
RYKSUGUTILBOÐ
Vörumarkaðurinn hl.
Eiöistorgi 11 - sími 622200
Rafa Ra&ssan, DV, Engiandi'
„Eitt það besta, sem gat komið fyrir
mig, var að komast til Watford," sagði
Mark Falco, fyrrum leikmaður Tott-
enham, sem skoraði þrjú mörk fyrir
Watford gegn Aston Villa. Falco hefur
leikið tvo leiki með Watford og skorað
fjögur mörk í þeim.
„Ef Tottenham hefur ekki vitað hvað
ég gat eftir níu ár hjá félaginu, þá er
eitthvað meira en lítið að á White
Hart Lane,“ sagði Falco, sem var seld-
ur frá Tottenham á 340 þús. pund.
Fullbókað hjá Villa
Það má segja að það sé að verða
fullbókað hjá Aston Villa. Leikmenn
félagsins hafa verið bókaðir alls tutt-
ugu og tvisvar sinnum í vetur. Paul
Elliott var bókaður í leiknum gegn
Watford og hefur hann verið bókaður
sjö sinnum í átta leikjum.
Thomas vill fara
Danny Thomas, bakvörðurinn knái
hjá Tottenham, hefúr óskað eftir því
að vera settur ú sölulista. Thomas
hefur ekki verið í byijunarliði Totten-
ham að undanfornu. Hann hefúr leikið
fimm leiki á keppnistímabilinu og hef-
ur Tottenham ekki tapað þeim. „Ég
hef verið mjög ánægður hér. Totten-
ham er gott félag. Því er það leiðinlegt
að fara frá félaginu," sagði Thomas.
• Mike Robinson hjá QPR vill fara
frá félaginu. Hann er óhress með að
þurfa að leika sem miðvallarspilari.
„Ég er sóknarleikmaður. Ekkert ann-
að,“ sagði Robinson.
-sos
Mike Robinson.
Jafhtefli í Bordeaux
Bordeaux heldur forustu sinni í Frakklandi. Félagið gerði jafntefli við
Marseille, 1-1, um helgina. Það voru Júgóslavar sem léku aðalhlutverk-
in í leiknum. Zoran Vujovic skoraði fyrir Bordeaux en rétt fyrir leikslok
jafnaði Sliskovic fyrir Marseille.
Boi-deaux er með 20 stig, Mairseille 18 og París St. Germain 16 stig
eftir að hafa gert jafntefli, 1-1, við Le Havre.
-SOS
„Rambo“ skoraði
tvö fyrir Celtic
PCM 32i
Plasmaskurðarvélin sem beðið var eftir!
PCM 32i plasmaskurðarvélin er afar hag-
kvæm nýjung frá L-TEC. Þessi hátíðnivél
kemst af með mjög litla orku, er einfasa og
220 voita og notar 18 ampera trega-öryggi.
Af öðrum kostum má nefna:
Lauflétt. Vegur aðeins 18 kg!
Sker venjulegt járn, allt að 10 mm þykkt.
Sker ál, ryðfrítt stál og aðra málma, aílt að 8
mm. i\
Celtic heldur sínu striki í Skotlandi.
Alan Mclnally, sem áhangendur
Celtic kalla Rambo, skoraði tvö mörk
þegar félagið lagði Motherwell að
velli, 3-1. Tony Shepherd skoraði
þriðja markið.
Celtic er efet í Skotlandi með 22 stig
eftir þrettán leiki. Dundee United
kemur næst með 21 stig, Rangers 19
og Hearts hefur 18 stig. Glasgow Ran-
gers vann stórsigur, 5-1, yfir Falkirk
á útivelli. Robert Fleck skoraði þijú
mörk og David Cooper og Ally McCo-
ist eitt hvor. Terry Butcher, fyrirliði
Rangers, opnaði markareikning sinn
í Skotlandi þegar hann skoraði sjálfs-
mark.
-sos
Einstakiega örugg í notkun.
jn.
VtaW «P« 09
oK»'' otn Peb
uenW9u
SINDRA
STALHF
Pósthólf 880, Borgartúni 31, 105 Reykjavík, sími: 27222.