Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.1986, Síða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.1986, Síða 28
28 MÁNUDAGUR 20. OKTÓBER 1986. Tilkynning frá landbúnaðarráðu- neytinu til þeirra sem stofnuðu félagsbú fyrir 1. janúar 1985 í samræmi viö ákvæði 2. mgr. 28. gr. jarðalaga nr. 65/1976, sbr. I. 90/1984, skal senda ráðuneytinu skriflegan félagsbússamning til samþykktar fyrir 15. nóvember nk. Landbúnaðarráðuneytiö 13. október 1986. = TOPP 10NGÆÐI I BÍUNN bílaútvarps- og segulbandstækin sjá þér fyrir hinum einasanna tóni. FT 970 44 vatta kraftmikið bíltæki, stillingar milli fjögurra eða tveggja hátalara innbyggðar, sjálfvirk afspilun og hraðspólun í báðar áttir, fjölbreyttar tónstillingar, FM stereo, FM mono, LW, MW, o.m.fl. FT 980 Útvarp með FM stereo/mono, MW og LW. 5 stöðva minni, ýmsar tónstillingar, sjálfvirk afspilun í báðar áttir, hraðspólun í báðar átt- ir, með stillingum fyrir cr02 og metal kassett- ur. r WAWALTUMC A pi M P3 P4 f>6 MEWO JMU.J ’mzæzœ&z ’ææs&æ&z? •væ* w rm - t s * FT 2200 Tæki fyrir þá kröfuhörðu. 18 stöðva minni, mjög næm kassettuafspilun, aðskildar bassa- og treble stillingar, innbyggð stilling milli fjögurra og tveggja hátalara, FM stereo, FM mono, LW, MW, sjálfvirk afspilun í báðar áttir, hraðspólun í báðar áttir o.m.fl. SANYO og JENSEN hátalarar frá kr. 2.200. Ef þú vilt gott tæki, veldu þá @ SANYO ÍSETNING SAMDÆGURS. Gunnar Ásgeirsson hf. Suóurlandsbraut 16 Sími 9135200 Fréttir DV Papeyjarsundið á Eskifirði: Syntu fyrir 70-80 þúsund Emil Thorareraen, DV, Eskifirði; Papeyjarsundinu svokallaða lauk um siðustu helgi. Nemendur í 9. bekk grunnskólans á Eskifirði gengust fyrir því í fjáröflunarskyni og rennur ágóð- inn í ferðasjóð 9. bekkjar. Vegalengdin fiá Eskifirði til Papeyjar er um 75 km og syntu krakkamir í 9. bekk vega- lengd sem nemur þessari leið fi-am og til baka eða samtals 150 km. Sundið hófst á föstudag kl. 2 eftir hádegið en því lauk 39 tímum seinna eða á sunnu- dagsmorgun kl. 5. 12 nemendur eru í 9. bekk og eru krakkamir 15 ára. í þessu mikla sundi fengu þeir til liðs við sig 3 nemendur úr 8. bekk þannig að alls þreyttu sund- ið 15 sem þýðir að hver og einn hefur að meðaltali synt 10 km. En þó var það svo að þegar upp var staðið höföu sumir synt lengra en aðrir styttra á móti. Áður en sundið byijaði höfðu 9. bekkingar gengið um bæinn og boð- ið hæstvirtum bæjarbúum að heita á sig ef þessi þolraun tækist. Vom 4 möguleikar í áheitunum. Þessir hraustu unglingar reiknuðu með að fjáröflunin gæfi þeim 70 til 80 þúsund í aðra hönd og bjuggust þeir við að fara hringferð í kringum landið í vor þegar námi væri lokið. Þess má að lokum geta að það vom Helga Unnarsdóttir íþróttakennari og Þórhallur Þorvaldsson sem önnuðust framkvæmdina á sundinu og færðu nemendur þeim bestu þakkir fyrir að sundi loknu. Þá fylgdist Sigurborg Einarsdóttir hjúkrunarkona með heilsufari krakkanna sem reyndist í góðu lagi og sagði Sigurborg að það hefði komið sér á óvart ef þeir hefðu ekki þolað þetta eins vel og þeir væm á sig komnir. Krakkarnir syntu vegalengd sem nemur frá Eskifirði til Papeyjar. Sumir stungu sér fagmannlega eins og sjá má á myndinni. Slappað af eftir harðan sundsprett. DV-myndir Emil Lögreglan á Fáskrúðsfirði skoðar hjól hjá ungum herramanni sem fylgist spenntur með. DV-mynd Ægir Fáskrúðsfjörður: „Heil skoðun" á reiðhjólin Ægir Kiisdnssan, DV, Fáskrúðsfiröi; Lögreglan á Fáskrúðsfirði var ný- lega með reiðhjólaskoðun hjá bömum hér. Mikil eftirvænting var hjá böm- unum hvort þau fengju „heila skoðun" eins og eitt þeirra sagði, flest þeirra vom með hjólin í lagi og vom heldur en ekki montin þegar lögreglan hafði límt viðurkenningu á hjólin þeirra. Fáskrúðsfjördur: Á sjóunda þúsund tunn- um skipað upp Ægir Kristinssan, DV, Fáskrúðsfirði: Nýlega var skipað upp úr Goðafossi á sjöunda þúsund plastsíldartunnum frá Noregi sem fara á tvær söltunar- stöðvar, Pólarsíld og Sólborgu. Að undanfömu hefur verið saltað í um 2 þúsund tunnur hjá Pólarsíld en söltun var ekki hafin hjá Sólborgu þegar þetta var skrifað. Síldartunnum skipað á land úr Goðafossi í Fáskrúðsfjarðarhöfn á mánudag. DV-mynd Ægir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.