Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.1986, Síða 37

Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.1986, Síða 37
MÁNUDAGUR 20. OKTÓBER 1986. 37 dv Sandkom Amar á Rúvak Arnar Bjömsson frá Húsavík var í síðustu viku ráðinn fréttan'.aður hjá svæðisút- varpinu á Akureyri. Fyrir er Þórir Jökull Þorsteinsson, en þess má geta að Gísli Sigur- geirsson, fréttamaður hjá Rúvak, mun í framtíðinni sinna sj ónvarpinu fy rst og fremst. Hvað um það, Arnar er einn af stofnendum Víkurblaðsins á Húsavík og fyrsti ritstjóri þess. Amar sagði í blaðavið- tali að starfið legðist vel í sig. Valinkunnir sæmdarmenn Enn er fólk að ræða leið- togafundinn svakalega í Höfða. Helst er að heyra að fólk sakni yfirlýsingar frá Hallvarði Einvarðssyni ríkis- saksóknara um að þeir Gorbatsjov og Reagan séu báðir valinkunnir sæmdar- menn. Hvers vegna gleymdist að gefa út þessa yfirlýsingu? Mýflug Flugfélagið Mýflug í Mý- vatnssveit er að byggja flug- skýli þessa dagana. Margir haífa velt því fyrir sér hvemig flugvélakostur þessa flugfé- lags líti eiginlega út. Eitt eru flestir sammála um; mýflug- umar sjást varla á radar hjá flugumferðarstjórum, hvað þá þegar stjórarnir eru í kaffi. Ekki undir Jón Víkurblaðið segir í síðasta tölublaði sínu að Ragnar Helgason frá Kópaskeri hafi hringt í blaðið. Hann kvaðst ...gengur ekki undir Jón. hafa verið að hlusta á Kol- brúnu Jónsdóttur, þingmann Bandalags jafnaðarmanna, í útvarpsviðtali þar sem hún segist hvorki hafa áhuga á frama né vera gengin undir Jón Baldvin. Ragnari varð svo að orði: Hún Kolbrún elska er ekkert flón og alveg sama um framann. Hún gengur ekki undir Jón sem eflaust væri gaman. Stefán Vaigeirsson. Stefán Val- geirs „Ég sé ekki hvernig ég get samþykkt þetta frumvarp," sagði í fyrirsögn í Degi þegar blaðið ræddi við Stefán Val- geirsson þingmann um fjár- lagafrumvarpið. Orð Stefáns vom á forsíðu og mjög áber- andi. Samkvæmt þessu verður líklegast ekkert fjárlagafrum- varp samþykkt í ár. Hugsanlegur hryðjuverka- maður „Hugsanlegur hryðjuverka- maður átti pantað far til landsins," sagði í fyrirsögn i Morgunblaðinu á dögunum. Hinn hugsanlegi hryðju- verkamaður heitir Diujeva og býr í París. Samkvæmt frétt- inni er talið hugsanlegt að hún gæti tengst hryðjuverk- um. Nú spyr maður sig hvað hefði hugsanlega gerst ef hún hefði hugsanlega komið til landsins. Það hefur hugsan- lega margt getað brotist um í höfði þessa stórhugsuðar. Þetta er okkur hi num til um- hugsunar. Rjúpnaveiði- menn Rjúpnaveiðin er hafin hér fyrir norðan sem og fyrir sunnan. Algengast virðist sem menn hafi veitt þetta um fimmtán fugla fyrsta kvöldið. Á Húsavík fékk einn veiði- maður þó 50 stykki fyrsta kvöldið og verður það að telj- ast rúmlega sæmileg veiði. Rjúpan virðist annars víða vera nokkuð stygg, þrátt fyrir að hún sé komin í hausttísk- una, sem er auðvitað í stíl við snjóinn Gottbíó Gríðarlegur kraftur er nú í rekstri Borgarbíós á Akureyri, eins og við sögðum nýlega frá. Nú stendur ti! að Borgarbíó, sem fær sal númer tvö fyrir áramót, taki einnig á leigu bíóið á Húsavfk og standa við- ræður um það nú yfir. Með krafti Borgarbíós er bíómenn- ing á Akureyri líka að vakna til lífsins. AUir streyma á nýju myndirnar sem bíóið fær strax og þeim hefur verið rúllað j gegn í Reykjavík. Halldór Reynisson. Halldór Reynis Halldór Reynisson, klerkur og forsetaritari, var í mót- tökunefnd Islendinga þegar leiðtogamir mættu til lands- ins. Hann skók hendur þeirra beggja áður en þeir fóm í draugahúsið, Höfða. Nú berast þær fréttir hins vegar að Halldór hafi hlotið kosningu sem prestur í Hruna. Nema hvað. Dansinn er greinilega að byrja. Varúð I Bretlandi er sagt að ekið sé yfir mann á tíu mínútna fresti. V ið heyrum nú að þessi maður sé búinn að fá meir en nóg af þessu ölfu saman. Umsjón: Jón G. Hauksson Fjórtýóla torfæruhjól: Skera land- ið í sundur Jón G. Haukssan, DV, Akuxeyri- Bæjarstjóralykillinn hafði vistaskipti Reykjavík - Akureyri: Teppið orðið 279 km Jón G. Haukssan, DV, Akureyii: Eftir nýliðið sumar eru 279 kíló- metrar á leiðinni milli Reykjavíkur og Akureyrar lagðir bundnu sliÞ lagi. Leiðin er 433 kílómetrar og samkvæmt þessu eru 64% hennar með teppi. Það er því minna mál en áður að skella sér á milli á bíl. Þeir kaflar, sem enn vantar bundið slitlag á, eru milli Akur- eyrar og Varmahlíðar í Skagafirði, hluti af Vatnsskarðinu, í Víðidaln- um, á neðanverðri Holtavörðu- heiði og niður x Norðurárdal og að hluta í Hvalfirði. Alls voru lagðir 290 km af bundnu slitlagi á þjóðvegi landsins í sumar. Emil Thoraiensen, DV, Eskifiiöi; Hrafhkell A. Jónsson, sem gegnt hefur starfi bæjarstjóra á Eskifirði síð- an í júní sl., afhenti á dögunum nýja bæjarstjóranum, Bjama Stefánssyni, lyklana að bæjarskrifstofunum og peningaskáp bæjarsjóðs Eskifjítrðar. Jóhann Klausen gegndi starfi bæjar- stjóra til 15. júní sl. en hafði ekki áhuga á að gegna því starfi lengur, enda var hans ráðningartími þá úti. Hrafnkell A. Jónsson, sigurvegari í síðustu bæjarstjómarkosningum, myndaði síðan meirihluta um stjóm bæjarins með einum alþýðuflokks- manni og einum sjálfstæðismanni, en sjálfur komst Hrafhkell inn ásamt öðrum manni á* óháðum lista. Hrafnkell tók síðan að sér bæjar- stjórastarfið og þykir hafa komist vel í gegnum það þessa mánuði sem harm hefur verið bæjarstjóri. En bæiinn hefur tekið stakkaskiptum í útliti, enda var lagt sérstakt kapp á að snyrta bæinn í tilefni 200 ára' afmælisins í sumar og fýrrverandi bæjarstjórn búin að leggja drög að því. Bjami Stefánsson er 35 ára, lög- fræðingur að mennt. Hann útskrifað- ist sem lögfræðingur 1983 og tók við starfi aðalfulltrúa sýslumannsins í S- Múlasýslu og bæjarfógetans á Eski- firði sama ár. Áður starfaði Bjami hjá RLR með námi sínu í Reykjavík. Kona Bjama er Hrefha Teitsdóttir og eiga þau 8 ára dóttur. DV-mynd Emil. „Það er farið að bera talsvert á fórum uppi á heiðum eftir þrí- og fjórhjóla torfæmhjól. Þau em t.d. orðin mjög áberandi uppi á Súlum og í Glerárdal," sagði Þorsteinn Thorsteinsson, formaður Um- hverfismálanefndar Akureyrar. „Hjólin skera landið í sundur þannig að í leysingum næsta vor fer vatn að rerma í fömnum. Það er byrjunin á að landið blási upp. Þetta er hátt uppi í 5-700 metra hæð og á þessum stöðum grær seint.“ Þorsteinn sagði að eitthvað heföi borið á því að rjúpnaskyttur væm á þrí- og fjórhjóla torfæmhjólum við veiðar. „Menn verða að gæta sín að skemma ekki náttúmna. Þetta er viðkvæmur timi núna þegar jörðin er ekki enn orðin freð- in.“ Hrafnkell afhendir Bjárna bæjarstjóralykilinn. Eskifjörður: SVEFNSÓFI m/rúmfataskúffu Tvær stærðir: 70 x 200 sm, kr. 11.950,- 85 x 200 sm, kr. 14.980,- FUftUHÚSÍÐ HF. Suðurlandsbraut 30, sími 687080. C hy| I A Laugavegi 81 I J/\ sími 21444

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.