Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1986, Page 4
4
FIMMTUDAGUR 13. NÓVEMBER 1986.
Sljómmál
Þingmenn heyrðu fyrst um Hafskipsskýrsluna í sjónvarpsfréttum:
Hér er um greinilegt
trúnaðarbrot að ræða
„Hér er uni trúnaðarbrot að ræða,
greinilegt trúnaðarbrot. Hver það
er sem hefúr framið það veit ég
ekki,'1 sagði Mattbías Bjarnason
viðskiptaráðherra í umræðum á Al-
þingi í gær.
Jón Baldvin Hannibalsson, for-
maður Alþýðuflokksias, hafði kvatt
sér hljóðs um jángsköp. Spurði hann
viðskiptaráðherra hverju það sætti
að skýrsla þingskipaðrar rannsókn-
amefndar um Hafekipsmálið skyldi
hafa verið afhent sumum fjölmiðlum
á undan fulltrúum þingflokka og
sþurði hvort hér væri um leka að
ræða.
„Það kom á mig í gærkvöldi þegar
ég sá fréttamann veifa þessari
skýrslu," sagði Matthías í svari sínu.
Urðu allnokkrar umræður um
trúnaðarmá! og trúnaðarbrest.
Beindist gagnrýni þingmanna meðal
annars að því að ekýrslan skyldi
ekki hafa verið afhent fúlltrúvun
þingflokka fyrr. Var ráðherrann
spurður hversu mörg eintök af Haf-
skipssýrslunni hefðu farið í umferð
og hverjir hefðu fengið þau áður en
skýrt var fyrst frá henni í fréttum.
Matthías Bjamason taldi upp þá
aðila sem fengið höfðu skýrsluna en
þeir em: ríkisstjórnin, viðskipta-
ráðuneytið, forsætisráðuneytið,
Seðlabankinn, Útvegsbankinn, for-
seti sameinaðs þings og varaformað-
ur Sjálfstæðisflokksins.
Ennfremur hefðu nefndarmenn
haft skýrsluna undir höndum og ein-
hverjir hefðu prentað hana. Kvaðst
Matthras harma það hversu oft mál
hefðu lekið út. í nokkrum tilvikum
hefði ekki getað verið um neinn
annan að rarða en nrann sem ætti
sæti í ríkisstjóminni. Kvaðst hann
vilja standa að því að greiða at-
kvæði með löggjöf um að skylda
Ijölmiðla til að gefa upp hvaðan þeir
hefðu trúnaðampplýsingar.
-KMU
Starfsmenn og tæki sjónvarpsstöðvanna i setustofu þingmanna, Kringlunni.
DV-mynd GVA
Þingmenn kvarta undan sjónvarpsmönnum:
Hreiðra um sig í setustofunni
Alþingismenn hafa kvartað undan
því að hafa ekki lengur ró og næði
í setustofu sinni í Alþingishúsinu,
Kringlunni. Sjónvarpsstöðvar hafi
hreiðrað um sig þar.
Starfsmenn ríkissjónvarpsins og
Stöðvar tvö hafa notað setustofu
þingmanna til að taka upp viðtöl.
Hafa viðtölin að undanfómu verið
það tíð að nánast á hverjum þing-
degi hefur verið stillt þar upp ljós-
kösturum og kvikmyndavélum.
Þingmenn hafa notað Kringluna
mikið til taflmennsku. Einnig hefúr
hún þótt henta til einkaviðræðna.
Sjónvarpsmönnum þykir setustof-
an skásti upptökustaðurinn í þing-
húsinu.
Leitað er lausnar á vandamál-
inu.
-KMU
Tilnefningar Vest-
firðinga duga ekki
til að fá Svavar
Svavar Gestsson, formaður Alþýðu-
bandalagsins, kvaðst í gær enn standa
við þá yfirlýsingu sína að hann gæfi
kost á sér á lista flokksins í Reykjavík
en ekki á Vestfjörðum.
Eins og fram kom í blaðinu í gær
varð Svavar í sjötta sæti með 111 tiln-
efningar í fyrri umferð forvals Al-
þýðubandalagsins um skipan lista
flokksins í Vestíj arðakj ördæmi. I síð-
ari umferðinni verður kosið um þá sex
efstu sem gefa kost á sér.
Fimm efstu í forvalinu urðu Kristinn
H. Gunnarsson, Sveinbjörn Jónsson,
Magnús Ingólfsson, Þóra Þórðardóttir
og Torfi Steinsson. Þar sem Svavar
býður sig ekki ffarn i kjördæminu þarf
uppstillingamefnd að bæta við einu
nafni í síðari umferðina. Nefndin má
bæta við fleiri nöfnum.
Röð næstu manna í forvalinu varð
þessi: Þuríður Pétursdóttir, ísafirði,
Pétur Pétursson, Bolungarvik, Finn-
bogi Hermannsson, Isafirði, og Pálmi
Sigurðsson, Bjamarfirði.
-KMU
Þingflokkar senda sveit
til Sameinuðu þjóðanna
Sex fulltrúar þingflokka á Alþingi
sitja allsherjarþing Sameinuðu þjóð-
anna í New York í ár. Þrír þeirra eru
alþingismenn, eirrn er varaþingmaður,
einn þinglóðs og einn ffamkvæmda-
stjóri þingflokks.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins em
þeir Eyjólfur Konráð Jónsson, for-
maður utanríkismálanefiidar, og
Sigurbjöm Magnússon, ffamkvæmda-
stjóri þingflokksins.
Fyrir Alþýðuflokk situr þing Sam-
einuðu þjóðanna Jón H. Guðmunds-
son þinglóðs. „Hann hljóp í skarðið
fyrir Eið Guðnason sem ekki komst
vegna anna,“ sagði Kjartan Jóhanns-
son, þingmaður flokksins.
Framsóknarflokkur sendir Jón
Sveinsson varaþingmann. Hann star-
far sem lögfræðingur á Akranesi.
Alþýðubandalagið og Kvennalistinn
senda þingflokksformenn sína, Ragnar
Amalds og Guðrúnu Agnarsdóttur.
-KMU
I dag mælir Dagfari
Pylsugerðarmenn í svefnpokum
Það er ekki ofsögum sagt af gestr-
isni okkar íslendinga. Nú hefúr
komið í ljós að við höfum hýst stór-
hættulega hryðjuverkamenn vikum
saman og allir, sem nálægt þeim
komu meðan á dvölinni stóð, em
sammála um að kurteisari mönnum
hafi þeir ekki kynnst. Það er á
hreinu að blessaðir strákamir sváfu
saman í svefnpoka á Hjálpræðis-
hemum og var annar með skegg en
'hinn skegglaus. Þetta vom með við-
felldnari mönnum sem gist hafa
herinn og er þá mikið sagt. Og það
var ekki rustamennskunni fyrir að
fara þegar þeir störfúðu hjá Sláturfé-
laginu. Myndarlegir og skemmtileg-
ir menn, segir fyrrverandi samstarfs-
fólk, sögðu sögur ffá írlandi og bám
saman hvemig væri að vinna hjá
SS og á pöbb á Irlandi. Raunar fóm
þeir að vinna í pyslugerð SS fyrir
misskilning, enda mjög auðvelt áð
viliast á Sláturfélaginu og írskum
pöbb ef út í það er farið. Útlendinga-
eftirlitið blandaði sér hins vegar í
málið og kom ffiðarboðunum í skiln-
ing um að þótt þeir hefðu leyfi til
að starfa á írskum pöbb þá næði slíkt
leyf. ekki yfir starfsemi pylsugerðar
SS. Kom það ekki að haldi þótt í
ljós kæmi að dyggasti stuðnings-
maður Sea Shepherd á fslandi væri
fyrrum vagnstjóri hjá Strætisvögn-
um Reykjavíkur, heldur þvert á
móti, og vegna kunningsskapar við
útlendingana tvo var vagnstjórinn
fyrrverandi sagður eiga við geðræn
vandamál að stríða. En menn í
Rannsóknarlögreglu ríkisins, út-
lendingaeftirliti eða í hinni almennu
lögreglu eiga hins vegar ekki við
nein geðræn vandamál að stríða.
Þess vegna létu þeir nægja að svipta
hina sjálfmenntuðu pylsugerðar-
menn SS vinnu sinni og létu þar við
sitja. Að vísu höfðu borist þær upp-
lýsingar frá lögreglunni í Færeyjum
að hér væm á ferð lífshættulegir.
ofbeldismenn en engum heilvita
manni dettur í hug að taka hið
minnsta mark á mgli i Færeyingiim.
Þeir eiga við ákveðin vandamál að
stríða sökum skorts á áfengi og vita
nánast ekkert um írskar krár, hvað
þá pylsugerð eða fyrrverandi vagn-
stjóra í Reykjavík. Því var það
samdóma álit hinna hæfustu manna
að stinga skyldi upplýsingum Fær-
eyinga undir stól en hlifa þeim þó
við kærum fyrir að ónáða að nauð-
synjalausu íslenska „Sherlokka“.
Prúðu piltamir af Hemum bmgðu
sér víst upp í Hvalfjörð og lögðu allt
í rúst í Hvalstöðinni áður en þeir
sökktu bátunum í Reykjavíkurhöfn.
Það vom því þreyttir og úrvinda
menn sem lögðu upp til Keflavíkur-
flugvallar snemma á sunnudags-
morgun í þeim tilgangi að ná flugvél
til Lúxemborgar. Hin sívökulu augu
Reykjavikurlögreglunnar létu þetta
ferðalag ekki ffam hjá sér fara.
Mennirnir vom stöðvaðir í Öskju-
hlíð og þótti vörðum laganna einsýnt
að þar ækju menn sem hefðu fengið
sér í staupinu. Svo reyndist ekki
vera, heldur höfðu þeir aðeins fengið
sér pylsu áður en þeir lögðu upp á
flugvöllinn. Þennan sannleik upp-
götvuðu útsendarar lögreglustjóra
og létu því mennina fara óáreitta
ferða sinna því í miklu var að snú-
ast vegna tveggja hvalbáta sem vom
að sökkva í höfninni í Reykjavík.
Vom hinir erlendu pylsugerðar-
menn því beðnir að hraða för sinni
úr landi frekar en ekki og urðu þeir
fúslega við þeirri bón. En það er lít-
ið að gerast í höfuðstöðvum lögregl-
unnar á sunnudagsmorgnum og því
sátu menn þar og lásu skeyti fær-
eysku lögreglunnar upphátt hver
fyrir annan um leið og þeir veltust
um af hlátri.
Allir vita síðan framhaldið. Og í
DV í gær er haft eftir ráðuneytis-
stjóra dómsmálaráðuneytisins að
alþjóðalögreglan Interpol hafi verið
beðin um að handtaka pylsugerðar-
mennina tvo af Hjálpræðishemum.
Að vísu segja fróðir menn að Interp-
ol handtaki ekki einn eða neinn
heldur miðli aðeins upplýsingum
milli lögregluliða hinna ýmsu landa.
En á þessu er auðvitað ekki takandi
neitt rriark, enda eins víst að ein-
hverjir Færeyingar séu starfandi hjá
Interpol.
Nú er ekkert annað eftir en að
setja nefnd í málið. í þeirri nefnd
verður að sjálfsögðu fyrrverandi
ráðuneytisstjóri dómsmálaráðu-
neytisins sem sagði ekki nokkum
skapaðan hlut í mjög löngu máli í
viðtali við fféttamann Bylgjunnar í
gær. En af þessu máli höfúm við þá
lært það að í engu er að treysta
pylsugerðarmönnum, Færeyingum
og fyrrverandi vagnstjórum hjá
SVR, svo ekki sé talað um Hjálpræð-
isherinn eins og hann leggur sig.
Dagfari