Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1986, Side 7
FIMMTUDAGUR 13. NÓVEMBER 1986.
7
Fréttir
Sea Shepherd samtökin:
Slóð átaka og ofbeldis
- Watson hefur hlotið 15 mánaða fangelsisdóm
Sea Shepherd samtökin, sem lýst
hafa ábyrgð á hendur sér íyrir
skemmdarverkin á eignum Hvals hf.,
voru stofnuð af Paul Watson fyrir 9
árum, eða árið 1977 er Watson var
rekinn úr Greenpeace-samtökunum
vegna þess hve ofbeldishneigður hann
þótti. Síðan hefur saga samtakanna
verið slóð ofbeldis og átaka viða um
heim en þess ber að geta að erfitt er
að átta sig á hvaða aðgerðir á árunum
frá 1977 til dagsins í dag má rekja til
samtakanna því þau hafa verið dugleg
við að eigna sér aðgerðir sem þau
hafa svo ekki reynst hafa komið ná-
lægt við nánari skoðun.
Paul Watson verður fyrst kunnur á
árinu 1977 er honum var vikið, ásamt
átta öðrum, úr Greenpeace-samtökun-
um í Vancouver í Kanda. Kom brott
vikning Watson í framhaldi af
aðgerðum Greenpeace gegn selveiði-
mönnum á ísnum norður af Kanada.
Til átaka kom milli náttúruvemdar-
manna og selveiðimanna á þessum
slóðum. Selveiðimenn réðust á nátt-
úruvemdarmennina og börðu þá með
selakylfum sínum en náttúmvemdar-
mennimir neituðu að svara í sömu
mynt utan Watson sem kom fram með
háværar kröfur um að selveiðimönn-
unum yrði kastað í sjóinn. Þessar
kröfur vom svo dropinn sem fyllti
mælinn í samskiptum Watsons og
Greenpeace. Yfirgáfu Watson og átta
vinir hans samtökin og stofnuðu sín
eigin.
Keyptu gamlan landhelgisbrjót
Hið fyrsta sem Watson og menn
hans gerðu var að festa kaup á göml-
um togara í Hull á Bretlandi og var
það skipið St. Giles sem er frægur
landhelgisbijótur úr þorskastríðunum
hér við land. Var skipið skírt Sea
Shepherd en enn má sjá hið gamla
nafii skipsins undir því nýja. Á næstu
árum einbeittu samtökin sér svo að
selveiðimönnum á ísnum við Kanda
og léku þeir oft þann leik að kafsigla
báta selveiðimánnanna á skipi sínu.
Vegna þeirra aðgerða var Watson
dreginn fyrir dómstóla í Kanda og
dæmdur þar til 15 mánaða fangelsis
fyrir vikið.
Næstu aðgerðir Sea Shepherd, sem
vitað er með vissu um, eru á árunum
1989-81. Þá tókst þeim að sökkva
þremur hvalveiðiskipum. Tvö þeirra
voru spönsk og hafði verið lagt, svipað
og Hval 6 og Hval 7, en þriðja skipið
Sierra, skráð á Kýpur með japanskri
áhöfh var eitt af svokölluðum „sjóræn-
ingja“hvalveiðiskipum og var því
sökkt þar sem það var á veiðum utan
við Kanaríeyjar. Sierra stundaði veið-
ar utan við öll lög og rétt á tegundum
sem voru alfriðaðar alls staðar í heim-
inum og þótti engum eftirsjá að því
skipi, ef undan eru skildir eigendur
þess. Engin- slys á mönnum urðu í
þessum aðgerðum.
Færeyjar alvarlegustu átökin
Ekki er vitað um neinar aðgerðir
af hálfu Sea Shepherd samtakanna í
Evrópu á árunum 1981 til 1985 en
sumarið 1985 kom skip þeirra hingað
Lögregluvörður við skip Sea Shepherd er það var hér i Reykjavikurhöfn.
til lands á leið til Færeyja þar sem
ætlunin var að hindra grindhvalaveið-
ar þar. Hafði skipið viðstöðu hér í
þrjá daga og segir Watson að þá hafi
hafist undirbúningur að þeim
skemmdarverkum er hér voru unnin
með því að gert var kort af Reykja-
víkurhöfh. Lítill árangur varð af för
Sea Shepherd til Færeyja þetta ár og
var skipinu stuggað frá eyjunum en
Watson hafði í hótunum um að koma
árið eftir og þá fengju Færeyingar að
finna fyrir því, hvað og hann gerði.
Er Sea Shepherd kom til Færeyja
síðasta sumar var skipinu bannað að
koma inn fyrir 3ja mílna lögsögu eyj-
anna að viðurlagðri aðför að lögum.
Skipið hélt sig við mörk lögsögunnar
til að byrja með en síðan var yfirvöld-
um í Færeyjum storkað með því að
sigla skipinu inn og úr lögsögunni.
Ákvað færeyska lögreglan þá að grípa
inn í og handtaka áhöfn skipsins.
Varðskipið Olaf Helgason hafði
fylgst með Sea Shepherd og þar um
borð voru færeyskir lögreglumenn
undir stjóm Jon Mortensen varð-
stjóra. Fóm þeir um borð í tvo
gúmmíbáta og ætluðu yfir í Sea Shep-
herd. Þá kom til mikilla átaka milli
skipveija Sea Shepherd og lögreglu-
mannanna. Skutu skipverjar á
gúmmíbátana með rakettubyssum og
línubyssum og reynt var að kveikja í
gúmmíbátunum með bensíni. Lögregl-
an svaraði þessu með táragassprengj-
um sem skotið var um borð í Sea
Shepherd. Gúmmíbátunum var síðan
snúið við í átt að Olaf Helgason og
reyndi varðskipið að sigla Sea Shep-
herd uppi en án árangurs.
Nýjustu aðgerðir Sea Shepherd eru
skemmdarverkin hér á landi sem
greint hefur verið frá.
-FRI
INGVAR HELGASON HF
Vonarlandi v/Sogaveg, sími 37710.
Heildverslun með eitthvert fjölbreyttasta úrval leikfanga á einum stað.
Hafið samband í síma 91-37710 eða komið og skoðið úrvalið.
Innkaupa-
stjórar
*
Nýjar sendingar úrvals-
leikfanga renna út eins og
heitar lummur.
Nú er að hrökkva eða
stökkva.
ALLT AÐ
AFSLATTUR
AF FUAVARNAREFNUM
ALLT AÐ
20%
AFSLATTUR
AF MALNINGU
OPIÐ
KL. 8-18 VIRKA DAGA
KL. 10 - 16 LAUGARDAGA
2 góðar byggingavöniverslanir.
Austast og vestast í borginni
Stórhöfða, sími 671100
Hringbraut, sími 28600.