Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1986, Side 9
FIMMTUDAGUR 13. NÓVEMBER 1986.
9
Útlönd
Flugvélin lenti
á hafísjaka
Norskur leiðangur, sem gerður hef-
ur verið út til suðurskautsins, greip
til þess að lenda flugvél sinni á 800
metra löngum hafísjaka vegna elds-
neytisskorts. Þar áttu mennimir
steíhumót við rannsóknarskip sem
færði þeim flugvélabensín.
Leiðangurinn er kallaður „90 gráður
suður“ og gera leiðangursmenn sér
vonir um að rekja slóð Roalds
Amundsens, landkönnuðar og pólar-
fara. Ætla þeir að verða komnir suður
á pólinn þann 14. desember til þess að
minnast afmælis þess þegar Amundsen
kom þangað.
Flugvél þeirra af gerðinni De Havil-
land Otter (tveggja hreyfla) lenti á
hafísjakanum, sem gnæfir 80 metra
upp úr sjónum. Rannsóknarskip
þeirra, Áróra, var komið á staðinn.
Áttu þeir þá eftir þúsund km flug til
áfangastaðarins, Cape Evans, á
McMurdo-eyju. En þaðan munu þeir
koma sér upp fimm öðrum bækistöðv-
um.
Lendingin á hafísjakanum tókst
giftusamlega enda veður sæmilegt. En
beðið var batnandi veðurs til flugtaks-
ins aftur og dvöldu þá leiðangursmenn
í nótt um borð i skipinu.
Flugvélin hafði lagt upp í ferðina frá
Inver Cargill á Nýja-Sjálandi en ísjak-
inn er á 66. gráðu suðlægrar breiddar.
Þangað kom hún eftir 9'A stundar
flug.
Breski klerkurinn Terry Waite á Beirútflugvelli tyrir skömmu, en Waite het-
ur undanfarna mánuöi staðiö i viðkvæmum samningaviðræðum við
mannræningja i Libanon um lausn bandariskra gisla. Bandariskir embættis-
menn segjast bjartsýnir á að takast megi að frelsa fleiri vestræna gisla i
Líbanon fyrir milligöngu stjórnvalda i íran.
Reagan sam-
þykkti vopna-
sendingar til íran
segir í New York Times í morgun
Reagan Bandaríkjaforseti fundaði í
gær með leiðtogum beggja þingflokka
i bandarísku fulltrúadeildinni og
fræddi þá um samskipti Bandaríkj-
anna og Iran á undanförnum vikum.
Að undanfömu hafa verið uppi hávær-
ar raddir um það í Bandaríkjunum að
stjómvöld í íran hafi aðstoðað við
lausn bandaríska gíslsins Jacobsen úr
haldi múslimskra mannræningja í
Beirút fyrir skömmu.
Á sama tíma er haft eftir banda-
rískum embættismönnum að þarlend
stjórnvöld muni innan skamms opin-
bera allar staðreyndir um samskipti
Irana og Bandaríkjamanna varðandi
lausn gísla í Líbanon.
Bandaríska blaðið New York Times
segir í dag að Reagan forseti hafi vitað
af og samþykkt vopnasendingar til
íran og hafi varið þá ákvörðun sína
með yfirlýsingu um nauðsyn þess að
styrkja í sessi hófsamari valdakjama
í röðum klerkaveldisins í Teheran.
Ennfremur er haft eftir bandarískum
embættismönnum í New York Times
að forsetinn sé bjartsýnn á að tveim
öðrum bandarískum gíslum í Líbanon
verði gefið frelsi eftir samningavið-
ræður við mannræningjana með aðild
íranstjómar sem nú eiga að standa
yfir.
Skuldarar
funda í Lima
Stjómmálamenn frá 35 skuldugustu Ýmsar tillögur hafa komið fram um
ríkjum heims funda nú í Lima, höfuð- * endurgreiðslu lánanna og haft er eftir
borg Perú, um leiðir til að minnka utanríkisráðherra Perú að líkur séu á
skuldabyrði sína sem nú er lauslega að ríkin komi sér saman um endur-
áætluð 900 milljarðar Bandaríkjadoll- greiðslu lánanna á fjömtíu til fimmtíu
arar. ámm með lækkuðum vöxtum.
MediPac hlífðarplastið er frábær uppfinning fyrir
s|úklinga með gips og sáraumbúðir, brunasár, exem
og aðra kvilla.
MediPac hlífðarplastið er ákaflega auðvelt í
notkun. Milt límefnið ertir ekki húðina og MediPac
hlífðarplastið er óskaðlegt umhverfinu, það rotnar í
jörðu og myndar engin eiturefni við bruna.
MediPac hlífðarplastið hefur á skömmum tíma
sannað gildi sitt á sjúkrahúsum og heilsuhælum
erlendis.
MediPac hlífðarplastið fæst í öllum apótekum.
UMB
Skeifai i
PÐS
11, 10f
(PGHE
Reykjav
LDVEFf
ík, Simi
SLUN
(91)831
81.