Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1986, Síða 10
10
FIMMTUDAGUR 13. NÓVEMBER 1986.
Utlönd
Snubbóttur endir hjá herra Olíu!
I margra augum var hann „herra
01Ia“ táknmynd fyrir stefhu araba
í olíumálum, mörkuð ágimd og
linnulausri viðleitni til þess að taka
fyrir kverkar iðnríkja vestursins. í
rúma tvo áratugi virtist Ahmed Zaki
Yamani sjeik geta rifið olíuverðið
upp úr öllu valdi eða fellt það eftir
eigin geðþótta og sömuleiðis koll-
steypt efhahagskerfi heims.
Yamani þurfti ekki annað en láta
nokkur orð falla og alþjóðlegir pen-
ingamarkaðir fóru kollhnís eftir
kollhnís en ríkisstjómir riðuðu til
falls. Þegar olíukreppan var hvað
verst dró einn skopteiknarinn upp
mynd af OPEC í gervi arabísks stiga-
manns sem tók fyrir kverkar fómar-
dýri sínu og æpti: „Yamani eða lífið!“
Fallvölt er hylli konungsins
Framabraut Yamanis, sem hafði
verið þjóðsögu líkust, fékk snubbótt-
an endi á dögunum þegar Fahd ibn
Abdul Aziz. konungurSaudi Arabíu,
setti Yamani frá embætti olíu- og
auðlindaráðherra með einu penna-
striki í konunglegri tilskipun. Því
embætti hafði Yamani sjeik gegnt
frá því 1%2. Ekki er það ellin sem
olli Yamani missi starfsins því að
hann er aðeins 56 ára að aldri. Hans
hátign setti til bráðabirgða í ráð-
herrasætið aðalkeppinaut Yamanis,
sjálfan áætlunarráðherrann Hisham
Naszerr. Ix-t Naszerr það verða sitt
fyrsta verk að kalla verðákvörðun-
amefhd OPEC saman til aukafund-
ar, líklegast til þess að finna leiðir
til að þoka olíuverðinu upp á við en
síðastliðið ár hefur það stöðugt sigið
niður á við vegna þeirrar stefhu
Yamanis að dæla takmarkalaust upp
olíu og láta flæða yfir olíumettaðan
markaðinn.
Óánægðir með tekjumissinn
vegna verðlækkunarinnar
Auðvitað bar hinn arabíski olíu-
sjeik þar ekki hag olíuneytenda fyrir
brjósti þótt þeir högnuðust auðvitað
í fyrstu atrennu á verðfallinu vegna
umframframboðsins. Tilgangurinn
var að flæma út af markaðinum olíu-
framleiðsluríki utan OPEC sem hafa
allmiklu meiri tilkostnað við sína
olíuvinnslu, eins og til dæmis Bretar
og Norðmenn sem sækja sína olíu á
hafsbotn í Norðursjónum. Eftir að
samkeppni þeirra væri úr sögunni
gæti OPEC notað sér einokunarað-
stöðuna til þess að hækka olíuverðið
aftur.
Menn hafa fyrir satt að Fahd kon-
ungur hafi ekki verið fyllilega sáttur
við þessa stefnu aðalráðgjafa síns en
Yamani látinn víkja eftir tvo áratugi á valdastólunum
Ahmed Zaki Yamani sjeik, stefnumótandi i oliumálum Saudi-araba og höfundur olíubannsins 1973 sem var upp-
hafið að oliukreppunni. .;
Yamani fylgdi fast sinni stefhu þótt
konungsfjölskyldan yrði stöðugt
óánægðari með tekjumissinn vegna
verðfallsins og hefði viljað ná olíu-
verðinu aflur upp í að minnsta kosti
átján dollara fatið. Yamani benti á
að framleiðandinn gæti annaðhvort
stýrt framleiðslumagninu eða verð-
inu en ekki hvoru tveggja samtímis.
Á sautján daga fundi OPEC í Genf
í síðasta mánuði kippti Fahd kon-
ungur nokkrum sinnum í taumana
símleiðis frá Riyadh í hinum og þess-
um málefnum sem borið hafði á
góma á fundi ráðherranna. Varð það
líka ofan á hjá fundarmönnum að
setja til ársloka framleiðslutak-
markanir sem gætu stuðlað að
verðhækkunum en Yamani hafði
upphaflega staðið þvert gegn þvi.
Olían og pólitíkin
Það er ekki bara ágimdin ein sem
knýr Fahd konung til þess að vilja
hækka olíuverðið. íran knýr á. íran-
ir reiða sig mjög á olíutekjumar til
þess að halda uppi stríðsrekstrinum
gegn írak. Þótt Saudi-arabar styðji
Irak svo lítið beri á þá stendur þeim
stuggur af hemaðarmætti írans,
jafht sem áhrifavaldi þess yfir
múslímum. I júlí í sumar gáfu íranir
í skyn að þeir kynnu að grípa til
hemaðaraðgerða gegn Saudi Arab-
íu, Kuwait og öðrum ríkjum sem
leggja Irak til fé til hergagnakaupa.
Ungur kominn til áhrifa
Yamani mundi vera það sem hér
er kallað hámenntaður maður. Hann
er sonur trúaðs dómara í Mekka,
helgustu borg íslamstrúarinnar.
Hann lauk námi frá Kaíró-háskóla
og 1956 lauk hann prófi frá laga-
skóla Harvard. 1958 gerðist hann
lögfræðilegur ráðunautur ríkis-
stjómarinnar í Riyadh og varð
skjólstæðingur Faisals krónprins
sem síðar varð konungur og út-
nefndi hinn 32 ára gamla lögmann
olíuráðherra 1962. OPEC, olíusam-
lagið, hafði verið stofhað tveim árum
fyrr en hafði þá ekki markað sér
þann sess sem það skipar í dag. Sam-
lagið var eins konar framvörður
gegn risaolíufyrirtækjunum sem
höfðu ráðið olíuverðinu í heiminum.
Nóg tækifæri fyrir
vananmann
Þegar olíukreppan stóð sem hæst
höfðu Vesturlandamenn hinn versta
bifur á Yamani en sumir þeir sömu
segja í dag að honum hafi verið gert
rangt til og hann hafi oft verið sætt-
andi afl í deilum olíuseljenda og
olíukaupenda. Þeir telja að vald-
hafamir í heimalandi hans hafi í
vonbrigðunum yfir minnkandi oliu-
tekjum síðustu ára valið að gera
Yamani að sektarlambi.
f miðju uppnáminu út af fréttinni
um frávikningu Yamanis hringdi
hann í náinn vin sinn í Genf þar sem
sjeikinn á sjálfur íbúð. „Hvað er
svo sem um þetta segja,“ sagði Ya-
mani í símtalinu, „þetta er ákvörðun
hans hátignar og þannig er lífið.“ -
Hann bætti því við að hann mundi
verða í næsta nágrenni þegar
OPEC-ráðherramir hittast í Genf í
desember.
Kunningjar Yamanis hafa ekki
miklar áhyggjur af því hvemig hon-
um muni reiða af. „Hann er ekki á
neinu flæðiskeri staddur og þarf ekki
að leggjast í neitt iðjuleysi því að
olíufyrirtækin mundu ólm vilja fá
hann í raðir sérfræðinga sinna.“
Ný borg reist
í stað Armero
Ár liðið frá náttúruhamförunum í Kólumbíu
Storknaður leir svo langt sem aug-
að eygir minnir á verstu náttúru-
hamfarir þessarar aldar. Þann
þrettánda nóvember í fyrra lagðist
borgin Armero í Kólumbíu í eyði
þegar tíu metra há aurskriða vall
niður eflir hlíðum eldfjallsins
Nevado del Ruiz. Talið er að alls
hafi um tuttugu og þrjú þúsund
manns farist í þessum náttúruham-
förum.
Hrollvekjandi myndir bárust af
helstríði þrettán ára stúlku sem lést
eftir að hafa staðið í aur og vatni
upp að hálsi í þrjá daga. Óhugnan-
legar voru líka myndimar af eftirlif-
endum þöktum leðju og barst þeim
hjálp hvaðanæva úr heiminum.
Nýborg
Á meðan enn heyrast drunur frá
eldfjallinu er nú verið að reisa nýja
borg, þrettán kílómetrum sunnar, í
þorpinu Lerida. Búist er við að í
mars verði lokið við 90 prósent
þeirra 4 700 húsa sem áætlað var að
byggja.
Skipulagsstjóri uppbyggingar-
starfsins, Carlos Rocha, hefur skýrt
frá því að kostnaðurinn við bygg-
ingu húsanna sé um 250 milljónir
dollara. Ráðgert hefúr verið að reisa
hús fyrir um þijátíu þúsund manns.
Lerida í Tolimahéraðinu var lítið
þorp með þrjú þúsund og átta hundr-
uð íbúa fyrir náttúruhamfarimar en
fjöldi íbúa þar er nú orðinn tíu þús-
und. Þrátt fyrir þau vandræði, sem
orðið hafa vegna þessarar skyndi-
legu fjölgunar, er borgarstjórinn þar
bjartsýnn. Segir hann viðskipti þeg-
ar vera farin að blómgast.
Skipulagsleysi
Allir em þó ekki sammála. Erlend-
ir hjálparsérfræðingar og sumir
eftirlifenda kvarta undan skipulags-
leysi við uppbyggingu svæðisins.
Segja þeir húsin, sem reist hafa ver-
ið, léleg, leigan sé tiltölulega há og
brestir séu í skipulagningu atvinnu-
mála.
Torsten Wegner er fúlltrúi deildar
þeirrar hjá Alþjóða Rauða krossin-
um sem sér um aðstoð við fóm-
arlömb náttúmhamfara. Segir hann
að til hafi verið nægilegt fé og áætl-
anir til þess að byggja þau hús, sem
með þurfti, á fimm mánuðum. Það
hafi þó ekki verið hægt vegna þess
að ráðuneyti sáu ekki til þess að
framkvæmdir hæfúst við allar lagnir
í húsin sem þau höfðu lofað að bera
ábyrgð á.
Þeir sem fylgst hafa náið með
ástandinu segja að nefnd þeirri, er
sett var á laggimar til að skipu-
leggja uppbyggingarstarfið, hafi
ekki borist allt það fé er henni hafði
verið lofað. Að sögn sendifulltrúa
nokkurs frá Evrópu hefur fénu ekki
verið stolið, eins og sumir hafa hald-
ið fram, heldur hafi því verið skipt
til ýmissa ráðuneyta til þess að flýta
fyrir öðrum framkvæmdum.
Gjaldþrota
Carlos Rocha, sem nýlega hefur
látið af embætti sem skipulagsstjóri
eftir aðeins þrjá mánuði, játar að
nefndin sé gjaldþrota og að fé komi
nú frá ríkinu.
Um fimm hundruð fjölskyldur búa
enn í tjaldbúðum sem komið hefúr
verið upp víðs vegar um norðurhluta
Tolima. Um þrjátíu þúsund eru á
skrá yfir þá sem misst hafa vinnuna
eftir náttúruhamfarimar en talið er
að um tuttugu og fimm prósent
þeirra séu að villa á sér heimildir til
þess að njóta góðs af hjálparstarfinu.