Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1986, Side 13
FIMMTUDAGUR 13. NÓVEMBER 1986.
13
Neytendur
Gott er að leita til læknisins ef eitthvað bjátar á.
Átta til níu þúsund
án heimilislækna
-fjönitíu og átta starfandi heimilislæknar í Reykjavík
„Það eru átta til níu þúsund Reyk-
víkingar á sjúkrasamlagsaldri án
heimilislækna," sagði viðmælandi
okkar hjá sjúkrasamlaginu.
Nú starfa alls 48 heimilislæknar á
höíúðborgarsvæðinu, á eigin stofúm
og heilsugæslustöðvunum. Hverjum
lækni eru ætlaðir sautján hundruð
og fimmtíu einstaklingar.
Nú eru á lista níu læknar hjá
sjúkrasamlaginu og getur fólk leitað
þangað til að velja sér heimilis-
lækni.
Ef fólk vill skipta um lækni af ein-
hverjum ástæðum er það hægt
tvisvar á ári, þ.e. í janúar og desemb-
er og er því fólki bent á að snúa sér
til sjúkrasamlagsins.
Allir hafa aðgang að læknum eftir
lokunartíma. A kvöldin, mn holgar
og á hátíðisdögum er bæjarvaktin
að störfum. Þá getur fólk hringt og
leitað upplýsinga eða beðið um
lækni heim ef um neyðartilfelli er
að ræða. Ef fólk hefur ekki heimilis-
lækni eða ef bráð tilfelli koma upp
getur fólk leitað læknis á Borgar-
spítalanum en þar er læknavakt
allan daginn.
Að fara til heimilislæknis er ekki
dýrt. Eitt skipti kostar eitt hundrað
kr. Þá er sjúkrasamlagið búið að
niðurgreiða verðið fyrirfram. Ef leit-
að er til bæjarvaktarinnar kostar
það sex hundruð kr. á kvöldin en sjö
hundruð og sjötiu kr. á nóttunni.
Sjúkrasamlagið greiðir til baka
hluta upphæðarinnar og borgar því
viðkomand eitt hundrað og áttatíu
kr. þegar upp er staðið. Hjá Borg-
arspítalanum eru greiddar sex
hundruð kr. fyrir þjónustuna'og þar
er sama fyrirkomulag með endur-
greiðslu.
Nú eru starfandi fimm heilsu-
gæslustöðvar í höfuðborginni, þ.e.
Árbæ, Hlíðunum,Breiðholti, Foss-
vogi og Miðbæ. Einnig er heilsu-
gæslustöð á Seltjamanesi sem sér
um vestasta hluta vesturbæjarinns.
Við þær starfa fjórtán fastráðnir
læknar.
Á þessu má sjá að enginn hörgull
er á heimilislæknum í dag og því er
athyglisvert hve margir þeir eru sem
nýta sér ekki þjónustu þeirra. í dag
væri mun ódýrara fyrir þjóðfélagið
að menn nýttu sér þessa þjónustu
frekar en að leita til sérfræðinga
þegar í óofni er komið. -BB
Skuggaþolnar
plöntur
Nú fer skammdegið í hönd og erfið-
ur tími fyrir blómin.
Ekki er til nein planta sem getur
vaxið án birtu en til eru nokkrar plön-
ur sem þola þó að á þeim sé dimmt,
m.a. kentíupálmi, drekatré, stofugreni
og fikjutré Benjamína. Plönturnar er
pijög gott að setja af og til í herbergi
með sterkri birtu.
Ekkert ætti að vera því til fyrirstöðu
að lífga upp á heimilið með blómum.
-BB
Hér má sjá kentíupálma, drekatré, stofugreni og fikjutré Benjamina.
10% STAÐGREIÐSLUAFSLATTUR
GREIÐSLUKJÖR
ATH. AUKIN ÞJÓNUSTA
vrsA
>>0STs^dum SKÓVERSLUN pos^e
ÞÓRÐAR PÉTURSSONAR,
Laugavegi 95, sími 13570.
Teg.
8910.
Litir:
Vínrauður
og
fjólublár
m/rifluðum
sóla.
Nr. 36-41.
Verð
kr. 1.885,-
Teg. K.
Litir: Hvítt
eða blátt
leður með
stömum sóla.
Nr. 39-41.
Verð kr 495,-
Teg. 10.
Loðfóðruð barnastígvél.
Litir hvítt/grænt.
Stærðir 22-23, verð 795,-
Stærðir 24-27, verð 850,-
Stærðir 28-31, verð 895,-
Teg. 17.
Loðfóðruð barnastígvél.
Litir hvítt/blátt.
Stærðir 22-23, verð 795,
Stærðir 24-27, verð 850,
Stærðir 28-31, verð 895,
Teg. 8304 Ecco.
Litir: Grátt eða svart leður, loðfóðr-
uð. Nr. 36-46.
Verð kr. 3.498,-
Teg. 02.
Litur: Svart,
fóðruð
Nr. 36-41.
Verð kr.
1.170,-
Teg. kuldastígvél
m/góðu loðfóðri.
Nr. 30-41. Litir:
Grænn/gulur -
grár/rauður
eða grár/grænp.
Verð kr. 795,-
Teg. 105.
Svart, grátt
eða
brúnt leður/
rúskinn
m/riffl-
uðum sóla.
Stærðir 36-41
Verð 3.895,-
SÉRTILBOÐ:
Teg. 711.
Litir: Ljósgrænt eða
Ijósbrúnt nubuk
skinn. Nr. 36-41
kr. 695,-