Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1986, Page 17
FIMMTUDAGUR 13. NÓVEMBER 1986.
17
Lesendur
Ljótt er
að heyra
Einar Jóhannsson skrifar:
Ég get ekki orða bundist lengur eft-
ir að vara búinn að lesa og hlusta á
umræður um vinnubrögð Hjálpar-
stofriunar kirkjunar. Ég hafði vonað
í lengstu lög að ekkert væri til í skrif-
um Helgarpóstsins um þetta mál en
nú er komið á daginn að ekki veitti
af að kanna mál þessarar stofnunar.
Ég hef blindandi lagt þessari stofnun
fé til líknarmála þó í litlum mæli hafi
verið. Mig tekur sárt að hugsa til
ýmissa sem hafa sent peninga til þess-
arar stofiiunar, þetta hafa oft á tíðum
verið ellilífeyrirsþegar og aðrir sem
ekki hafa úr miklu að spila og margir
þeirra hafa sagt að þeir hefðu það
mikið handa á milli að þeir gætu vel
séð af nokkrum krónum til hungraðra
bama í heiminum og allt þetta fólk
hefir trúað þvi að stofnun sem kennir
sig við kirkjuna væri allra best trú-
andi til þess að koma þessu fé á
leiðarenda.
En svo bregðast krosstré sem önnur
tré. Mér finnst lágkúruleg vinnubrögð
að auðgast - já, ég segi auðgast - á
kostnað auðtrúa sála. Ég myndi áreið-
anlega leggja eitthvað fyrir á vaxta-
reikning ef ég hefði á aðra milljón í
kaup á ári.
Svo er alveg víst að þessi vinnubrögð
skapa efasemdir í garð annarra stofn-
ana sem vinna að góðgerðarstarfsemi.
Alla vega er ljóst að ég mun hætta
að styrkja Hjálparstofhun kirkjunnar
nema að þeir sem ráða þar ríkjum
geti sannað það að ekki sé sóað þvi
fé er ætlað er til líknarmála - og að
meira eftirlit sé haft með þessari stofn-
un, það virðist ekki veita af því eins
og nýlegt dæmi sýnir.
Ég treysti þessum forráðamönnum
ekki þó að þeir hrópi hátt um að í
rannsóknarskýrslunni komi fram að
þeir hafi unnið gott starf - enda hafa
þeir svo sannarlega fengið greitt fyrir
það starf.
„Þessi vinnubrögð skapa efasemdir í garð annarra stofnana sem vinna að
góðgerðarstarfsemi."
Áfengi
stoliö
úr bíl
Jón hringdi:
Föstudaginn 7. nóvember lagði
ég bilnum mínum fyrir utan skrif-
stofúna mína á Langholtsvegi og
stóð bíllinn þar frá klukkan 3 tii
4. Þar var stolið úr bílnum þremur
hvítum plastpokum er innihéldu
átta flöskur af áfengi. Þetta var
frekar sjaldgæft vín er ég haföi
keypt og því langar mig að telja
það upp ef einhver gæti hugsan-
lega veitt mér einhverjar ábend-
ingar: 2 flöskur af Cutty Shark
viskíi, 2 af Beefeter gini, 2 af Mart-
ini Vei-mouth, rauðum, 1 af
Smimoff vodka, 1 af Bristol Cream
sérríi. Vitni var að þessum atburði
er sá mann færa pokana á milli
bifreiða. Ef þjófúrinn vill losna við
frekari vandræði, sem hugsanlega
gætu orðið af þessu, bið ég hann
vinsamlegast að hringja í síma
687970 í vikunni, annars verður
þetta kært beint til lögreglunnar
er gæti fengið aðstoð vitnisins til
að upplýsa hver þjófurinn er.
Áfangar
Ingvar Agnarsson skrifar:
Skóldieg snilli, nýjar hugsanir
og stórkostlegar uppgötvanir eiga
rót að rekja til sambands við
lengra komna íbúa annarra
stjarna.
Dýpsta sæla og sorgin þunga
svífa hljóc aust yfir storð,
þeirra mál ei talar tunga,
tárin eru beggja orð.
Þótt Ólöf Jónsdóttir ó Hlöðum
hefði aðeins ort þessa einu stöku
þá hefði hún nægt til þess að lyfta
skáldkonunni á efsta bekk meðal
skáldmæringa íslenskrar þjóðar
„Allar stjörnur utan við Satúm-
us em sólir.“ Þessi eina setning
nægir til þess að gera Brúnó að
einhverjum mesta vísindamanni
og vitsnillingi allra alda.
„Draumur eins er ævinlega
vökulíf annars.“ Enginn vísinda-
maður hefur nokkm sinni veitt
mannkyninu eins mikla framfara-
möguleika, eins og dr. Helgi
Pjeturss með þeim skilningi sem
felst í þessari einu setningu.
ER BLAÐIÐ FYRIR ALLA
Fæ enn fiöring ... segir Páll Þorsteinsson, dagskrárstjóri Bylgjunnar, í Viku-
viðtalinu.
Ný framhaldssaga, skrifuð af Gunnari Gunnarssyni rithöfundi fyrir Vikuna.
Spennusagan Lifandi lík hefst í þessu tölublaði. Fylgist með frá byrjun.
★
öldrunarmál á íslandi. Dögg Pálsdóttir lögfræðingur gjörþekkir þennan víðamikla málaflokk og skrifar fyrsta
þátt af tíu í Vikunni nú.
Leiklist í Lindarbæ og Leikslok í Smymu.
í skák getur allt gerst, segir Margeir Pétursson, íslandsmeistarinn í skák 1986. Hann er nafn Vikurtnar.
Vetrartískan.
Lúða með broccoli í Viku-eldhúsinu.
Lifa hratt, deyja ungur, gleymast aldrei. James Dean.